„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Notaleg næringarbomba – Chili sin carne

Notaleg næringarbomba – Chili sin carne

Það er lítið mál að útbúa nota­legan „huggu­mat“ (eins og hug­takið comfort food hefur svo skemmti­lega verið þýtt yfir á íslensku) sem gleður bæði sál­ina og mag­ann yfir dimm­ustu vetr­ar­mán­uð­ina. Hér upp­skrift að einum slíkum rétti.

Notaleg nær­ing­ar­bomba – Chili sin carne
fyrir 4

Hér er chili sin carne (chili án kjöts) sem stenst kjöt­út­gáf­unni fylli­lega snún­ing. Því vill stundum bregða við í græn­met­is­út­gáf­unni af chili að það sé svo­lítið vatns­sósa og bragð­dauft, minni frekar á þykka græn­met­is­súpu en kjarn­gott og þétt chili. Það gerir hins vegar gæfumun­inn að setja rauð­vín, súkkulaði og smá­vegið af kaffi út í. Þannig fæst þetta djúpa þykka bragð sem á að vera af chili og er auð­veld­ara að ná fram þegar notað er kjöt í rétt­inn. Hér má gjarnan nota aðrar teg­undir af baunum, pinto-baunir, smjör­baunir og fleiri teg­undir henta líka vel. Ef þið eruð við­kvæm fyrir sterkum mat er gott að fara var­lega með chili-duftið, chili-aldinið og Chipotle-maukið. Best er að setja lítið í einu og bæta frekar við eftir þörfum.

2-3 msk. olía
1 kanil­stöng
1 lár­við­ar­lauf
1 tsk. kórí­and­er­duft
1 tsk. kumm­in­duft
½ tsk. Hot Mexican chili-duft
1 stór rauð­laukur, saxaður
4 hvít­lauks­geirar, fínt saxaðir
1 chili-aldin, smátt saxað (fræ­hreinsað ef þið viljið rétt­inn mild­ari)
1-2 msk. Chipotle-mauk (fæst frá Casa Fiesta)
1 msk. þurrkað óreganó
2-3 gul­rætur, skornar í bita
2 paprikur, skornar í grófa bita
100 g kasjú­hnetur, fínt saxaðar
1 dós svart­baunir, skol­aðar
1 dós nýrna­baunir, skol­aðar
2 dósir nið­ur­soðnir kirsu­berjatómatar
5 dl kjúklinga- eða græn­met­is­soð
1 dl rauð­vín
50 g 70% súkkulaði
1 msk. hun­ang
½ tsk. skyndi­kaffi­duft
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar
hnefa­fylli ferskur kórí­ander

Hitið olíu á pönnu og steikið kanil­stöng og lár­við­ar­lauf í stutta stund, bætið krydd­unum saman við og steikið áfram í 1-2 mín­útur. Bætið lauk út á og steikið við með­al­hita þar til hann fer að mýkj­ast.

Bætið hvít­lauk, chili-ald­ini og óreganó saman við og steikið áfram í nokkrar mín­útur. Setjið gul­rætur og papriku saman við og steikið í nokkrar mín­útur. Setjið þá kasjú­hnetur út í, ásamt baunum, tómötum og soði.

Látið þetta malla í u.þ.b. 30 mín­útur. Bætið þá rauð­víni saman við ásamt súkkulaði, hun­angi og skyndi­kaffi­dufti og látið malla í 5 mín. í við­bót. Bragð­bætið með salti og pipar eins og þarf. Stráið ferskum kórí­ander yfir rétt áður en rétt­ur­inn er bor­inn fram.

Berið gjarnan fram með lárperum, sýrðum rjóma, límón­u­sneiðum og nachos-flögum.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

baunir

Ljúffengar linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýfu
Mannlífið

Ljúf­fengar linsu­bauna­bollur með krydd­aðri jógúr­tí­dýfu

Linsu­baunir eru hrá­efni sem brýtur upp á marga mögu­leika ásamt því að vera mein­hollar og seðj­andi. Ólíkt þurrk­uðum baunum þarf ekki að láta linsu­baun­irnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leyn­ast smá­steinar í pok­anum. Linsu­bauna­bollur með krydd­aðri jógúr­tí­dýu gerir u.þ.b. 20 bollur 200 g brúnar eða rauðar linsu­baunir...
Bragðgóð baunabuff
Mannlífið

Bragðgóð bauna­buff

Bauna­buff eru hollur og góður matur sem er t.d. gott að eiga í frysti og grípa til þegar lít­ill tími er til stefnu. Baunir hafa hátt prótín­hlut­fall og eru stút­fullar af nær­ing­ar­efnum og trefjum. Þær eru ódýr matur og því vel til þess fallnar að drýgja t.d. pott­rétti og súpur. Nið­ur­soðnar baunir eru þægi­legur kostur þegar tím­inn er naumur en það er miklu ódýr­ara að leggja þurrk­aðar baunir í bleyti, sjóða þær og skipta þeim niður í hæfi­lega skammta og frysta. Þannig er fljót­legt að grípa til þeirra þegar á þarf að halda. Linsu­baunir þarf ekki að leggja í bleyti, þær eru því eins­konar skyndi­baunir sem er mjög hent­ugt að nota með litlum fyr­ir­vara.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður