„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mexíkóskar pönnsur – Sniðugur réttur sem krakkar elska

Hagsýnir heim­il­is­rek­endur eiga alltaf eitt­hvað til­tækt í fryst­inum sem auð­velt er að grípa til þegar lít­ill tími er til þess að stússa í elda­mennsku. Hér er sívin­sæll barn­vænn réttur sem slær alltaf í gegn og er frá­bær til þess að eiga til­búna í kist­unni. Langs­niðug­ast er auð­vitað að útbúa nokkra skammta í einu og frysta í hæfi­legum pakkn­ingum fyrir ykkar fjöl­skyldu­stærð.

Mexíkóskar pönnsur – Sniðugur réttur sem krakkar elska

Mexíkóskar pönnsur (sniðugar í fryst­inn)
6-8 stk.

500 g kjúklinga­bringur
2 tsk. olía
1 tsk. mexíkóskt chili-duft
1 tsk. papriku­duft
1 tsk. kórí­and­er­duft
1 tsk. lauk­duft
1 tsk. salt
2 msk. olía til steik­ingar
1 lít­ill rauð­laukur, sneiddur þunnt
1 paprika, skorin í strimla
2 hvít­lauks­geirar, saxaðir fínt
1 krukka mild salsa-sósa (230 g)
150 g rjóma­ostur
börkur og safi úr ½ límónu
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar
6-8 tortilla-pönnu­kökur
u.þ.b. 50 g rif­inn ostur, t.d. gratínostur
1 lárpera, skorin í bita
1-2 msk. límónu­safi
1 lít­ill vor­laukur, fínt saxaður
hnefa­fylli ferskt kórí­ander
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður bland­aður pipar

Skerið kjúklinga­bringur í þunna strimla og blandið saman við olíu og krydd. Látið standa í a.m.k. 30 mín. Hitið olíu á pönnu og steikið lauk þar til hann fer að mýkj­ast. Bætið þá kjúklingnum saman við og steikið þar til hann hefur brúnast fal­lega. Setjið papriku og hvít­lauk saman við og steikið í 2-3 mín.

Bætið salsa-sósu og rjóma­osti út í og hitið þar til rjóma­ost­ur­inn er bráðn­aður. Bragð­bætið með límónusafa, berki og salti og pipar. Skiptið blönd­unni á milli tortilla-pönnu­kakanna, rúllið þeim upp og raðið í eld­fast mót. Stráið rifnum osti yfir. Á þessu stigi er til­valið að frysta rétt­inn.

Hitið ofn í 190°C og bakið þar til ost­ur­inn hefur brúnast fal­lega. Athugið að ef rétt­ur­inn er fros­inn í gegn þegar hann er settur inn leng­ist eld­un­ar­tím­inn um allt að 40-60 mín. og þá þarf að hafa álp­appír laus­lega yfir rétt­inum svo hann nái að hitna jafnt í gegn. Takið síðan álp­app­ír­inn af síð­ustu 20-25 mín.

Blandið saman lárperu, límónusafa, vor­lauk, kórí­ander og salti og pipar og dreifið yfir rétt­inn þegar hann er bor­inn fram.

Texti / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppskriftir

Bráðhollur og næringarríkur safi
Mannlífið

Bráð­hollur og nær­ing­ar­ríkur safi

Tómat­safi er allra meina bót. Stút­fullur af andoxíð­efnum, vítamínum og nauð­syn­legum nær­ing­ar­efnum. Talið er að hann geti meðal ann­ars lækkað kól­esteról- og blóð­syk­ur­s­gildi lík­am­ans og spornað gegn bólgu og sveppa­sýk­ingum. Tómatar eru stút­fullir af C-vítamíni og getur safinn styrkt varn­ar­kerfið og unnið gegn kvefi og flensu. Þá eru tómatar seðj­andi og því stór­snið­ugir sem milli­mál. Hráefni 2 stórir tómatar 1...
Frábært lágkolvetna meðlæti: Bakaðar graskerskartöflur
Mannlífið

Frábært lág­kol­vetna með­læti: Bakaðar graskerskart­öflur

Grasker eru sað­söm eins og kart­öflur, en lág í kol­vetnum miðað við rót­ar­græn­meti. Þau eru því til­valin sem með­læti þegar farið er á lág­kol­vetna­matar­æði. Á Íslandi er algeng­asta graskerið „butt­ernut squash“ og er það fáan­legt í nær öllum mat­vöru­versl­unum. Grasker er stór­gott á bragðið og lík­ist helst sætum kart­öflum í áferð og bragði. Hráefni: 1 stk. butt­ernut squash Ólífu­olía til...
Hollenskar pönnukökur – Þessar verður þú að prófa
Mannlífið

Hol­lenskar pönnu­kökur – Þessar verður þú að prófa

Hol­lenskar pönnu­kökur eru þéttar og mat­ar­miklar og má njóta hvenær sem er dags­ins. Þær eru þó vin­sælastar sem eft­ir­réttur. Hægt er að skreyta þær. Til eru sér­stakar Pof­fer­tjes-pönnur eða epla­skífupönnur sem eru til­valdar til steik­ingar. Pof­fer­tjes-pönnur eru meðal ann­ars fáan­legar í Byggt og búið í Kringl­unni Hráefni 2 bollar hveiti/bók­hveiti 2 stór egg 1½ tsk. lyfti­duft 1/4 tsk. salt 1...
Ljúffeng og saðsöm graskerssúpa
Mannlífið

Ljúffeng og sað­söm graskers­súpa

Á köldum vetr­ar­dögum er fátt jafn­við­eig­andi eins og að seðja hungrið með sað­samri súpu. Hér er upp­skrift af góðri og mein­hollri graskers­súpu. Hráefni: 2 msk. ólífu­olía 2 laukar, smátt saxaðir 1 kg nið­ur­skorið grasker eða butt­ernut squash 700 ml græn­met­is­kraftur eða kjúklinga­kraftur 150 ml rjómi Aðferð: Hitið 2 msk. ólífu­olíu í stórum potti, eldið síðan 2 fín­saxaða lauka á vægum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður