Bananarúlluterta
4 egg, stór
160 g sykur
65 g kartöflumjöl
2 tsk. lyftiduft
3 msk. kakó
2-3 tsk. olía til að pensla pappírinn með
Hitið ofninn í 240°C (220°C á blástur). Þeytið egg og sykur saman þar til blandan er létt og ljós, það tekur u.þ.b. 5-6 mín. Setjið þurrefnin í skál, sigtið þau út í og blandið varlega saman við með sleikju. Setjið bökunarpappírsörk í ofnskúffu, hún á að vera það stór að pappírinn nái upp með hliðunum. Penslið eða strjúkið með pappír olíu á bökunarpappírinn og klemmið hann saman í hornunum þannig að hann sé eins og skúffan. Hellið deiginu í ofnskúffuna og bakið í 7-8 mín., látið kólna í 10-15 mín. Setjið bökunarpappírsörk á borðið, stráið örlitlu af sykri á pappírinn og hvolfið botninum á hann. Rúllið botninum létt upp með bökunarpappírnum og geymið. Þetta er ekki nauðsynlegt ef þið setjið fyllinguna strax á kökuna. Rúllið kökubotninum út og setjið rjóma-bananablönduna á botninn. Rúllið tertunni upp og setjið á tertudisk. Setjið rjómarönd eftir endilangri kökunni, skreytið með banönum og súkkulaði og e.t.v. berjum.
Á milli og ofan á
4 dl rjómi, þeyttur
4 bananar
80 g súkkulaði, brætt
nokkur ber (má sleppa)
Takið frá svolítið af þeytta rjómanum til að setja ofan á. Stappið 3 banana og blandið saman við það sem eftir er af rjómanum og setjið á milli.
Umsjón: Sigríður Björk Bragadóttir
Mynd: Aldís Pálsdóttir




















Athugasemdir