Indverskur kjúklingur á naan-brauði með jógúrtsósu
fyrir 3-4
Fyrir þá sem hafa tíma til er gott að blanda ½ dl af jógúrt saman við kryddaðan óeldaðan kjúklinginn og láta hann marinerast inn í ísskáp yfir nótt áður en hann er eldaður.
u.þ.b. 700 g (1 pakki) skinnlaus og beinalaus kjúklingalæri
3 tsk. indversk karríblanda frá Krydd- og tehúsinu eða önnur góð karríblanda
1½ tsk. salt
2 rauðlaukar, gróft sneiddur
4 naan-brauð
1 dós hrein jógúrt
1 tsk. kummin
½ gúrka, skorin í litla bita
1 hnefafylli ferskur kóríander
Þerrið kjúklinginn með eldhúspappír og skerið hvert læri í 4-5 bita. Setjið bitana í skál og veltið upp úr karríblöndunni og saltinu og þræðið síðan upp á grillspjót. Setjið til hliðar. Blandið saman hreinni jógúrt, ferskum kóríander og kummin í skál og hrærið vel saman. Stillið grillið að meðalháan hita og látið það hitna vel í u.þ.b. 10 mín. áður en kjúklingaspjótin eru sett á það. Grillið kjúklinginn þar til hann hefur eldast í gegn, gott er að snúa spjótunum reglulega. Grillið lauksneiðarnar á sama tíma þar til þær hafa mýkst. Grillið naan-brauðið þar til það hefur hitnað. Skiptið kjúklingnum og lauknum á milli brauðanna, því næst gúrkubitunum og sáldrið jógúrtsósu og ferskum kóríander yfir.
Uppskrift/Nanna Teitsdóttir
Stílisti/Bergþóra Jónsdóttir
Mynd/Aldís Pálsdóttir



















Athugasemdir