„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vann pottinn í póker lífsins með eintóma hunda á hendi

Söng­leik­ur­inn Níu líf, sem byggir á lífs­hlaupi Bubba Morthens, verður frum­sýndur í Borg­ar­leik­hús­inu 13. mars. Þetta er risa­sýn­ing á allan hátt og um 60 manns sem koma að hverri sýn­ingu, leik­arar, dans­arar, kór, sviðs­fólk, tækni­fólk og fleiri. Sjálfur kom Bubbi ekk­ert að hand­rits­skrifum eða vali á tón­list en segir að það sé bæði spenn­andi og óþægi­leg upp­lifun að sjá atburði lífs síns svona utan frá og það hafi orðið til þess að hann sjái ýmis­legt í nýju ljósi. Eig­in­kona hans, Hrafn­hildur Haf­steins­dóttir, kann­ist hins vegar ekk­ert við þennan mann sem birt­ist í verk­inu.

Vann pottinn í póker lífsins með eintóma hunda á hendi
Bubbi Morthens Mynd / Hallur Karlsson

„Þetta var bara hégóm­leiki af minni hálfu,“ segir Bubbi glott­andi þegar ég spyr hvað hafi ráðið því að hann ákvað að gefa sam­þykki fyrir upp­færsl­unni. „Hégóminn er harður hús­bóndi og hann var líka aðal­á­stæðan fyrir því að ég ákvað strax í upp­hafi að vera ekk­ert með putt­ana í þessu. Ég vissi að þá færi ég að reyna að fegra mynd­ina og láta mig líta sem best út. Það hefði aldrei gengið. Það eina sem ég bað um er að þetta yrði alvöru, mér yrði ekki hlíft á neinn hátt. Ég hef farið á nokkur rennsli á sýn­ing­unni og þar er ég bara áhorf­andi úti í sal. Það sem birt­ist á svið­inu er alfarið sköpun Ólafs Egils­sonar, sem hefur lagst í gríð­ar­legar rann­sóknir á lífi mínu fyrir þetta verk. Hann tók nokkur við­töl við mig og sat síðan á Þjóð­ar­bók­hlöð­unni vikum saman og pældi sig í gegnum þessi þús­und við­töl eða svo sem hafa verið tekin við mig í gegnum tíð­ina til að fá sem gleggsta mynd af mér.“

„Ég hélt að þegar tón­listin mín kæmi út og ég yrði frægur þá myndi ég losna við van­líð­an­ina og verða ham­ingju­samur. En það breytt­ist bara ekki neitt þegar það gerð­ist.“

Eiginkonan kannast ekki við þennan mann

En er það ekk­ert skrýtin til­finn­ing að horfa á sjálfan sig sem per­sónu í leik­verki?

„Jú, það er mjög skrýtið,“ segir Bubbi hugsi. „Ég horfi á alla þessa Bubba sem birt­ast þarna á svið­inu og suma þeirra þekki ég mjög vel, en aðra kann­ast ég lítið við en man þó eftir og veit að þeir eru alveg jafn­sannir og þeir sem ég er ánægður með. Mér finnst þessi Bubbi stundum óbæri­lega kjána­legur og það er óþægi­legt að sjá hvað hann er oft varn­ar­laus og auð­sær­an­legur. Það tekur á en er líka spenn­andi og það eru ýmsir atburðir úr lífi mínu sem ég sé frá öðru sjón­ar­horni en áður eftir að hafa horft á verkið. Ég er ánægður með það. En þetta er auð­vitað leik­sýn­ing, túlkun og end­ur­sögn, ekki heil­agur sann­leikur, og ef áhorf­endur ganga út úr salnum með þá til­finn­ingu að nú viti þeir allt um það hvernig líf mitt hafi verið eru þeir á villi­götum.“

Hefur eitt­hvað af fólk­inu þínu séð sýn­ing­una? Hvað finnst því um þetta?

„Tolli bróðir las hand­ritið og sagði að þetta yrði æðis­legt,“ segir Bubbi og hljómar dálítið hissa. „Hrafn­hildur eig­in­kona mín las hand­ritið líka, lok­aði því, leit á mig og sagði: „Ég þekki ekki þennan mann. Ég hef aldrei hitt hann.“ Sem er skilj­an­legt. Ég er búinn að vera edrú í tutt­ugu og fjögur ár og hún hefur aldrei þekkt mig öðru­vísi.“

„Svo er tals­maður þess­ara erlendu pen­inga­afla sem koma frá Noregi fyrr­ver­andi for­seti Alþingis sem hefur beinan aðgang að öllum stjórn­mála­mönnum á hægri og vinstri vængnum. Auðvitað gerir það mann reiðan,“ segir Bubbi, þegar talið berst að lax­eldi. Mynd / Hallur Karlsson

„Konurnar í lífi mínu þurfa engu að kvíða“

Hefurðu þá breyst svona mikið eftir að þú varðst edrú?

„Já, ég hef breyst mjög mikið,“ segir Bubbi ákveð­inn. „Ég hef unnið mikið í sjálfum mér til að verða heill og ná bata, það er margra ára vinna, tekur kannski alla ævina. Ég var svo skemmdur. Æskan var erfið, þótt hún væri líka ynd­is­leg og ég fengi gott atlæti. Ég var bráð­ger, var orð­inn flug­læs þegar ég byrj­aði í skóla sex ára gam­all, en smátt og smátt fór að halla á ógæfu­hlið­ina. Ég ólst upp við alkó­hól­isma, sá föður minn beita móður mína ofbeldi, sem var gríð­ar­legt áfall, og var svo mis­not­aður kyn­ferð­is­lega á mjög við­kvæmum aldri. Ég vann aldrei neitt í þessu, tróð þessu bara öllu niður í und­ir­með­vit­und­ina, var alltaf reiður og hræddur og í vörn. Hrafn­hildur þekkir ekki þann mann og í verk­inu er lögð mikil áhersla á æsk­una og ung­dóms­árin og árin fram að edrú­mennsku, en þó er stiklað á stóru fram á dag­inn í dag. Hún kemur auð­vitað vel út úr þessu og aðrar konur í lífi mínu sem koma við sögu í verk­inu þurfa ekki að kvíða neinu. Þær birt­ast allar sem mun sterk­ari og þroskaðri ein­stak­lingar en Bubbi.“

Voru þær hafðar eitt­hvað með í ráðum þegar verið var að skrifa verkið?

„Nei, ertu galin? Það hefði bara orðið eins og í póli­tík­inni; enda­laus þöggun,“ segir Bubbi og rekur upp hlát­ur­roku. „En ég held þær verði sáttar.“

„Ég ólst upp við alkó­hól­isma, sá föður minn beita móður mína ofbeldi, sem var gríð­ar­legt áfall, og var svo mis­not­aður kyn­ferð­is­lega á mjög við­kvæmum aldri. Ég vann aldrei neitt í þessu, tróð þessu bara öllu niður í und­ir­með­vit­und­ina, var alltaf reiður og hræddur og í vörn.“

Skrápurinn aldrei svo harður að vond ummæli stingi ekki

Ég hjó eftir því að þú sagðir áðan að það væri óþægi­legt að sjá hvað ungi Bubbi hefði verið varn­ar­laus og auð­sær­an­legur, er það liðin tíð? Ertu kom­inn með harðan skráp eftir fjöru­tíu ár í sviðs­ljós­inu?

„Nei, það er ég ekki,“ segir Bubbi án þess að hika. „Ég held að fólk sem seg­ist vera það sé að ljúga, það er algjört kjaftæði. Maður lærir að brynja sig fyrir því að ein­hverju leyti að fólk segi eitt­hvað ljótt um mann, það fylgir því að vera opin­ber per­sóna, en það stingur mann alltaf, að halda öðru fram er sjálfs­blekk­ing. Ég sé stundum á sam­fé­lags­miðl­unum að ein­hver segir að honum eða henni finn­ist Bubbi ömur­legur og þoli hann ekki og það kemur alltaf við mig. Ég er hættur að láta það særa mig og missi yfir­leitt ekki svefn yfir því, eins og ég gerði stundum í gamla daga en það síast inn og hefur áhrif, það er ekki hægt að neita því. Ég reyni að tækla það með því að hugsa að þess­ari mann­eskju líði eitt­hvað illa með sjálfa sig og hafi þörf fyrir að taka það út á öðrum. Ég þekki það, ég var svona sjálfur. Alltaf með kjaft og sagði alveg hræði­lega hluti við og um fólk vegna þess hvað mér leið sjálfum illa. Ég er alveg inni­lega þakk­látur fyrir að Netið var ekki komið á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Það væri hræði­legt ef þetta hefði allt saman verið skráð ein­hvers staðar á Netinu.“

Þótt Bubbi sé búinn að vera fjöru­tíu ár í sviðs­ljós­inu seg­ist hann ekki enn vera kom­inn með harðan skráp. „Maður lærir að brynja sig fyrir því að ein­hverju leyti að fólk segi eitt­hvað ljótt um mann, það fylgir því að vera opin­ber per­sóna, en það stingur mann alltaf, að halda öðru fram er sjálfs­blekk­ing,“ segir hann. Mynd / Hallur Karlsson

Væri löngu orðinn þingmaður ef áhuginn væri fyrir hendi

En þú ert nú sjálfur ófeim­inn við að viðra skoð­anir þínar á mönnum og mál­efnum á Netinu, ert að lenda í deilum um lax­eldi og álver og guð má vita hvað og skefur ekk­ert utan af því hvað þér finnst. Sérðu ein­hvern tíma eftir því?

„Nei, ég hef sterkar skoð­anir á ýmsum málum og þori alveg að tjá þær,“ segir Bubbi. „Sér­stak­lega á lofts­lags- og land­vernd­ar­málum. Og, já, á lax­eldi. Margir halda að ég sé á móti því vegna þess að ég er stang­veiði­maður en það er alls ekki ástæðan. Ég er á móti því að erlend stór­fyr­ir­tæki komi hingað og kaupi upp heilu firð­ina, borgi enga skatta og fari með allan gróð­ann úr landi. Og allt er það varið með því að ein­hverjir fái atvinnu. Nú eru þessi fyr­ir­tæki farin að koma með slát­ur­skip, moka upp úr fjörð­unum og sigla burt svo það kemur eng­inn Íslend­ingur neitt að vinnslu fisks­ins. Það er bara alveg óásætt­an­legt. Og svo er tals­maður þess­ara erlendu pen­inga­afla sem koma frá Noregi fyrr­ver­andi for­seti Alþingis sem hefur beinan aðgang að öllum stjórn­mála­mönnum á hægri og vinstri vængnum. Auðvitað gerir það mann reiðan. Svo er talað um að hér sé engin spill­ing eins og spill­ing felist bara í því að ein­hver komi með pen­inga í brúnum bréf­poka og múti ein­hverjum til að koma sínum málum fram eins og í gömlum bíó­myndum. Spill­ingin hér felst í frænd­hygli og vina­væð­ingu og alls kyns makki á bak við tjöldin. Það er óþol­andi.“

Það er auð­heyrt að þetta er Bubba hjart­ans mál eins og fleiri sam­fé­lags­mál­efni, hefur honum aldrei dottið í hug að fara út í póli­tík?

„Nei, ef ég hefði viljað verða þing­maður væri ég löngu orð­inn það. Ef ég ætla mér eitt­hvað þá fram­kvæmi ég það,“ segir hann og það liggur við að það hnussi í honum yfir þess­ari heimsku­legu spurn­ingu. „Ég held ég hafi bara ekki þá eig­in­leika sem þarf að hafa til að geta verið í póli­tík. Bjarni Bene­dikts­son hitti naglann á höf­uðið um dag­inn þegar hann sagði það hafa kostað sig blóð, svita og tár að kom­ast til valda. Það er það sem til þarf og mark­miðið er einmitt alltaf að kom­ast til valda, það verður ein­hvers konar fíkn sem þarf að fóðra með öllum ráðum eins og aðra fíkn. Ég er ekk­ert að dæma fólk fyrir það, en ég hef ekki þessa fíkn og langar ekk­ert í völd þótt ég hafi áhuga á póli­tík. Við erum öll póli­tísk, líka þeir sem segj­ast engan áhuga hafa á póli­tík, en að gera stjórn­mál að starfs­ferli og völd að mark­miði er ekki eitt­hvað sem vekur áhuga minn eða sam­ræm­ist eðli mínu. Mín áhuga­svið liggja allt ann­ars staðar.“

„Mér finnst þessi Bubbi stundum óbæri­lega kjána­legur og það er óþægi­legt að sjá hvað hann er oft varn­ar­laus og auð­sær­an­legur.“

Faldi vandlega að ljóðin fjölluðu um eigin reynslu

Talandi um áhuga­sviðin, eftir að hafa verið einn mest áber­andi og vin­sæl­asti tón­list­ar­maður lands­ins í ára­tugi sendi Bubbi frá sér ljóða­bók­ina Öskraðu gat á myrkrið, fyrir nokkrum árum og nú eru ljóða­bækur hans orðnar fjórar. Hvernig stóð á því að hann fór inn á þá braut eftir ára­tuga texta­smíð við lögin sín og er mik­ill munur á því að semja ljóð eða dæg­ur­laga­texta?

„Já, það er allt annað,“ segir hann ákveð­inn. „Prósa­ljóð gefa manni meira frelsi, aðra nálgun og oft aðra sýn á yrk­is­efnin. Ljóð hafa alltaf fylgt mér og ég les óskap­lega mikið af þeim en þessi skrif mín byrj­uðu samt reyndar alls ekki sem til­raun til að yrkja ljóð. Mig lang­aði að skrifa ævi­sögu mína með mínum eigin orðum og var búinn að gera nokkrar til­raunir til þess en komst aldrei lengra en svona þrjá­tíu síður. Ég fann ekki rétta formið, náði ein­hvern veg­inn ekki utan um efnið með því móti. Þess vegna skrif­aði ég Öskraðu gat á myrkrið, þar sem ég er að fjalla um tím­ann minn á Vogi milli tveggja heima, sendi Silju Aðal­steins­dóttur, fóstru minni, síðan ljóðin og fékk þau ummæli til baka frá henni að þetta væru frá­bær ljóð. Ég varð eig­in­lega mjög hissa, en líka mjög glaður.

Þannig byrj­aði þetta nú og þar sem ég átti líka alls kyns texta­brot um ver­tíð­ar­árin og vinn­una í slor­inu fór ég að vinna ljóð upp úr þeim og úr varð bókin Hreistur, sem fjallar um þá reynslu. Það erf­ið­asta sem ég hef skrifað var samt ljóða­bókin Rof, þar sem ég er að vinna með þá reynslu að hafa verið mis­not­aður kyn­ferð­is­lega og annað ofbeldi sem ég hef upp­lifað. Ég faldi það eins og ég mögu­lega gat að ég væri að fjalla um eigin reynslu. Þú hefðir þurft að vera mjög fær sál­fræð­ingur eða óskap­lega mik­ill mann­þekkj­ari til að sjá að ég var að tala um sjálfan mig, ekki ein­hverja krakka úti í bæ. Ég held að vinnan við þá bók sé það erf­ið­asta sem ég hef gert en það hjálp­aði mér óskap­lega mikið að koma þessu frá mér og var stór þáttur í því að verða heil mann­eskja. Á síð­asta ári kom svo ljóða­bókin Velkomin, sem fjallar um við­horfið til flótta­manna og með­ferð­ina á þeim. Ég veit ekki alveg hvaða bók kemur næst, er með tvær ljóða­bækur í vinnslu í augna­blik­inu. Önnur þeirra fjallar um látna íslenska tón­list­ar­menn og heitir Nokkrar bláar nótur, en ég ætla ekk­ert að flýta mér að gefa hana út, mig langar að liggja meira yfir efn­inu og kafa dýpra.“

„Svo er tals­maður þess­ara erlendu pen­inga­afla sem koma frá Noregi fyrr­ver­andi for­seti Alþingis sem hefur beinan aðgang að öllum stjórn­mála­mönnum á hægri og vinstri vængnum. Auðvitað gerir það mann reiðan,“ segir Bubbi, þegar talið berst að lax­eldi. Mynd / Hallur Karlsson

Vissi alltaf að hann yrði frægur maður á Íslandi

Þig hefur aldrei langað til að hætta í tón­list­inni og snúa þér alfarið að skrift­unum?

„Nei, aldrei. Þegar ég var lít­ill lang­aði mig að reyndar að verða þrennt þegar ég yrði stór; tón­list­ar­maður, rit­höf­undur eða forn­leifa­fræð­ingur. Ég hef enn þá gríð­ar­legan og nördískan áhuga á forn­leifa­fræði og er alltaf að lesa ein­hverja texta um hana, tölvan mín er líka troð­full af alls kyns texta­brotum en ég vissi að tón­listin var gjöf sem mér var gefin og að ég ætti að helga mig henni. Ég vissi alltaf, alveg frá því ég var strákur, að ég yrði tón­list­ar­maður og frægur maður á Íslandi. Það var eng­inn vafi á því í mínum huga. Ég var búinn að semja allan Ísbjarn­ar­blús tutt­ugu og eins árs og taka plöt­una upp tutt­ugu og þriggja ára. Ég ætl­aði að fylgja for­dæmi Bob Dylans og gefa út fyrstu plöt­una tutt­ugu og þriggja ára en ég átti aldrei pen­inga til að gera hana. Þess vegna var ég orð­inn tutt­ugu og fjög­urra ára þegar hún kom út og ég var alveg eyði­lagður að vera svona seinn með hana, fannst ég vera alveg að falla á tíma,“ segir Bubbi og rekur upp eina af sínum frægu hlát­ur­rokum. „Ég hélt að þegar tón­listin mín kæmi út og ég yrði frægur þá myndi ég losna við van­líð­an­ina og verða ham­ingju­samur. En það breytt­ist bara ekki neitt þegar það gerð­ist. Mér leið alveg jafnilla innra með mér þótt mér fynd­ist æðis­legt að sjá plöt­una mína í búð­ar­gluggum og fá stór­kost­lega jákvæðan „loks­ins, loks­ins“ dóm um hana eftir Halldór Inga á heilli opnu í Morg­un­blað­inu sem end­aði með þeim orðum að þessi tón­list­ar­maður ætti örugg­lega eftir að láta til sín taka í íslenska tón­list­ar­heim­inum. Sárs­auk­inn, reiðin og van­mátt­ur­inn var samt enn þá alveg jafn­sterkur og mér leið aldrei vel nema ég deyfði mig með kanna­bis eða kóka­íni. Ég man að þegar ég reykti kanna­bis í fyrsta sinn þá hugs­aði ég; vá ég ætla alltaf að vera í þess­ari vímu og það sama gerð­ist þegar ég próf­aði kókaín fyrst. Það var eina ástandið sem mér leið þol­an­lega í og þótt ég færi nærri því að óver­dósa í fyrsta sinn sem ég tók kók hugs­aði ég strax þegar ég vakn­aði; þetta var æðis­legt þetta ætla ég að gera sem fyrst aftur. Ég og áfengi áttum hins vegar mjög illa saman, ég var hræði­legur undir áhrifum áfengis og sem betur fer bar ég gæfu til þess að hætta að drekka nítján ára, ann­ars væri ég örugg­lega löngu dauður.“

Auður ber höfuð og herðar yfir hina

Þannig að þú sérð það fyrir þér að semja og flytja tón­list þar til þú kveður þennan heim?

„Já, það mun ég gera,“ segir Bubbi og enn og aftur er auð­heyrt að honum finnst þessar spurn­ingar mínar frekar kjána­legar. „Ég er tón­list­ar­maður og verð það alltaf.“

En hefur brans­inn ekki breyst mikið á þessum fjöru­tíu árum síðan þú byrj­aðir?

„Jú, hann hefur breyst gríð­ar­lega mikið,“ segir Bubbi, staldrar svo við og fer aftur að hlæja. „Sú full­yrð­ing sýnir nátt­úr­lega bara að ég er sex­tíu og þriggja ára en ekki tutt­ugu og þriggja en það hafa orðið mjög miklar breyt­ingar í tón­list­ar­heim­inum á þessum árum, bæði til góðs og ills. Við eigum orðið alveg ótrú­lega margt frá­bært tón­list­ar­fólk sem er á heims­mæli­kvarða en með­al­mennskan og draslið flýtur oft ofan á og vekur mesta athygli. Það ger­ist alltaf en maður huggar sig við það að til þess að draslið geti flotið ofan á verður und­ir­straum­ur­inn að vera sterkur og öfl­ugur og það er hann svo sann­ar­lega í tón­list­inni hér. Margir af þessum krökkum eru að gera frá­bæra hluti en mér finnst þó einn af ungu tón­list­ar­mönn­unum bera af. Það er hann Auður, hann er ein­stakur. Hann er mennt­aður í FÍH og spilar á mörg hljóð­færi og semur lang­bestu popptexta sinnar kyn­slóðar. Ég hlust­aði á plöt­una hans, Freðinn, og hringdi strax í hann, bað hann að hitta mig í kaffi og spjalla. Við höfum síðan orðið góðir vinir og erum að vinna ýmis­legt saman sem ég er óskap­lega ánægður með. Ég segi hik­laust að hann beri höfuð og herðar yfir alla aðra unga tón­list­ar­menn hér en hann þarf ekk­ert á slíkum yfir­lýs­ingum frá mér að halda, það sem hann er og það sem hann gerir er besti vitn­is­burð­ur­inn. Þið eigið eftir að sjá að ég hef rétt fyrir mér, bíddu bara.“

Er hann ekki að sumu leyti dálítið líkur þér þegar þú varst ungur?

„Jú, kannski að ein­hverju leyti,“ segir Bubbi eftir að hafa hugsað sig um örlitla stund. „Kannski fann ég það og hringdi þess vegna í hann, ég veit það ekki. Hann er bara svo góður.“

„Mér finnst ég æðislegur!“

Öfugt við Bubba við upp­tök­urnar á Ísbjarn­ar­blús erum við að falla á tíma og komið að hinni frægu loka­spurn­ingu. Ég spyr þó ekki; eitt­hvað að lokum? heldur hvort kóng­ur­inn ótt­ist það ekk­ert að líf hans verði opin­berað þjóð­inni á fjölum Borg­ar­leik­húss­ins í næstu viku? Er hann ekk­ert hræddur við hvað fólki muni finn­ast um hann og líf hans og hvað það muni segja um verkið?

„Nei, ég er ekki hræddur við það,“ segir hann. „Ég er reyndar afskap­lega mik­ill prí­vat maður og hleypi fáum að mér, öfugt við það sem margir halda, en ég er ekki lengur upp­tek­inn af því hvað öðrum finnst um mig. Það sem ég ein­beiti mér að núna er hvað MÉR finnst um mig. Og ég get sagt þér að mér finnst ég æðis­legur,“ bætir hann við og enn brestur á með hlát­ur­roku. „Ég horfi yfir líf mitt, æsk­una, ung­lings­árin, árin í dóp­inu, reið­inni og rugl­inu, edrú­mennsk­una, alla ást­ina. Horfi á það sem ég hef gert og öðl­ast í líf­inu og ég dáist að þessum strák sem byrj­aði að spila póker lífs­ins með ein­tóma hunda á hendi og end­aði með því að vinna allan pott­inn. Það er ekk­ert smá­ræðis afrek, þótt ég segi sjálfur frá og, já, ég er bara óskap­lega ánægður með sjálfan mig og líf mitt. Þá skiptir það voða­lega litlu máli hvað öðrum finnst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins