„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leikstýrir fyrstu sjónvarpsmyndinni 74 ára gömul

Leikstýrir fyrstu sjónvarpsmyndinni 74 ára gömul

Sjón­varps­myndin Sveins­stykki verður frum­sýnd á RÚV að kvöldi ann­ars páska­dags. Myndin byggir á sam­nefndu leik­riti Þorvalds Þor­steins­sonar, Arnar Jónsson leikur eina hlut­verkið, Svein, og Þór­hildur Þor­leifs­dóttir leik­stýrir. Þetta er í fyrsta sinn sem Þór­hildur leik­stýrir sjón­varps­mynd og hún hefur ekki leik­stýrt kvik­mynd síðan hún leik­stýrði hinni geysi­vin­sælu mynd Stella í orlofi árið 1986. Er hún að hasla sér völl á nýjum vett­vangi 75 ára gömul?

„Ég veit það nú ekki,“ segir Þór­hildur og hlær þegar ég ber þessa spurn­ingu upp við hana. „Þetta var að frum­kvæði Egils Eðvarðs­sonar upp­töku­stjóra og okkur Arnari leist vel á hug­mynd­ina þannig að við lögðum hana fyrir Skarp­héðin Guð­munds­son, dag­skrár­stjóra Sjón­varps­ins, sem ákvað að gera þessa mynd.“

Þór­hildur og Egill Eðvarðs­son skrif­uðu sjón­varps­gerð leik­rits­ins í sam­ein­ingu en upp­runi leik­rits­ins var hug­mynd sonar þeirra Þór­hildar og Arnars, Þorleifs Arnar leik­stjóra, árið 2003.

„Það er svo sem engin ofsa­leg eft­ir­spurn eftir full­orðnu fólki, en við erum alltaf til í slag­inn ef ein­hver leitar eftir því.“

„Þor­leifur Örn tal­aði við Þorvald og bað hann að skrifa verk fyrir Arnar vegna fjöru­tíu ára leikaf­mælis hans og sex­tíu ára afmælis,“ útskýrir Þór­hildur. „Það var svo sýnt í Reykja­vík undir leik­stjórn Þorleifs á þeim tíma­mótum og tíu árum seinna ákváðum við að halda aftur upp á afmæli Arnars með því að sýna verkið aftur og þá setti ég það upp en ekki Þor­valdur og það er sú sýn­ing sem liggur þess­ari sjón­varps­gerð til grund­vallar.“

Voldugasta verk Þorvaldar

Spurð hvort verkið tali sér­stak­lega sterkt til þeirra hjón­anna, slettir Þór­hildur í góm og hugsar sig um smá stund.

„Ég veit ekki hvort það talar eitt­hvað sér­stak­lega til okkar per­sónu­lega,“ segir hún. „En þetta er ofsa­lega flott verk og vel skrifað og að mínu áliti vold­ug­asta verk Þor­valdar, eitt af þessum verkum sem getur talað til fólks hvar sem er og hvenær sem er.“

Tit­il­per­sóna verks­ins, Sveinn, er að halda upp á afmælið sitt og hefur skrifað ræðu til að flytja í afmæl­is­veisl­unni sem haldin er í mat­sal fyr­ir­tæk­is­ins sem hann hefur unnið hjá ára­tugum saman, S. S. Eyfjörð, nafn sem Þór­hildur segir ansi auð­velt fyrir þá sem eitt­hvað vita að lesa í. Við lestur ræð­unnar ryðj­ast ýmsar minn­ingar farm í huga Sveins og eru ekki allar í sam­ræmi við það sem hann hefur skrifað í ræð­una. Þór­hildur segir verkið fjalla um mann sem horf­ist í fyrsta sinn í augu við sjálfan sig og hvernig lífi hann hefur lifað.

„Það lýsir afskap­lega tragískum manni sem aldrei hefur horfst í augu við eigin ágalla og afleið­ingar þeirra og þar af leið­andi aldrei getað bætt neitt eða gert neitt betur,“ segir Þór­hildur. „Þannig að það kraumar ýmis­legt undir þótt á yfir­borð­inu sé líf hans slétt og fellt.“

Engin ofsaleg eftirspurn eftir fullorðnu fólki

Samstarf þeirra Þór­hildar og Arnars hefur staðið í ára­tugi, bæði innan leik­húss og utan, þótt minna hafi borðið á þeim í leik­list­inni und­an­farin ár. Eru þau sest í helgan stein?

„Ekki alveg,“ segir Þór­hildur og hlær. „Það er svo sem engin ofsa­leg eft­ir­spurn eftir full­orðnu fólki, en við erum alltaf til í slag­inn ef ein­hver leitar eftir því. Arnar hefur til dæmis verið að lesa heil­mikið fyrir Storytel og fleiri og lék í upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins á Útsend­ingu áður en sýn­ingar féllu niður vegna sam­m­komu­banns­ins. Og ég setti upp sýn­ingu fyrir Söng­skól­ann í vetur, þannig að það er svona ýmis­legt sem til fellur, þótt það hafi kannski verið mun minna en við hefðum bæði kosið.“

Spurð hvort hún sé með ein­hver verk­efni í sikt­inu eins og er segir Þór­hildur að það sé ýmis­legt í píp­unum, en hún hafi þá reglu að ræða aldrei um fyr­ir­huguð verk­efni fyrr en allt sé klappað og klárt og öruggt að úr þeim verði.

Sveins­stykki verður, eins og áður sagði, frum­sýnt á RÚV á mánu­dags­kvöldið, verður það sýnt víðar? Hafa til dæmis nor­rænu sjón­varps­stöðv­arnar keypt það til sýn­ingar?

„Það veit ég ekk­ert um,“ segir Þór­hildur snögg upp á lagið. „Mínu hlut­verki er lokið og ég mun bara sjá það í sjón­varp­inu eins og þið hin og horfa á hann Svein okkar eins og við köllum hann gjarnan í fjöl­skyld­unni. Hann er eig­in­lega orð­inn heim­il­is­vinur og sest ansi vel að í manni og hefur áhrif á mann.“

„Ætli Hollywood verði ekki bara næst“

Þór­hildur seg­ist hafa haft mjög gaman að því að vinna í Sjón­varp­inu, þar sé gott fag­fólk sem gaman sé að vinna með. Sér­stak­lega Egill Eðvarðs­son, en þau eigi sér reyndar langa sam­starfs­sögu og hafi þekkst síðan þau voru ung.

„Við Egill höfum unnið ansi mikið saman,“ útskýrir hún. „Það hafa verið teknar upp mjög margar óperur sem ég hef leik­stýrt og Egill hefur oft stjórnað upp­tök­unum. Fyrir utan það að hann var nátt­úru­lega undir, yfir og allt um kring í Sjón­varp­inu og ég var mjög mikið þar í ýmsum þáttum, þangað til ég varð of gömul fyrir það líka,“ bætir hún við og skellir upp úr.

Þór­hildur hélt upp á 75 ára afmæli sitt á dög­unum og það hlýtur að telj­ast til und­an­tekn­inga að 74 ára gam­alt fólk sé að leik­stýra sinni fyrstu sjón­varps­mynd. Er nýr fer­ill í upp­sigl­ingu á þeim vett­vangi?

„Já, já, er það ekki bara? Svo er ég farin að leika í kvik­myndum, hef leikið lítil hlut­verk í tveimur sjón­varps­s­er­íum, og grín­ast með það að nú stefni ég stíft á annan kar­ríer innan kvik­mynda­heims­ins. Ætli Hollywood verði ekki bara næst,“ segir hún og skelli­hlær aftur. Það er auð­heyrt að hún er ekk­ert á þeim bux­unum að leggja árar í bát þótt árunum fjölgi og það verður spenn­andi að fylgj­ast með næstu skrefum hennar á nýju braut­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins