„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áhrif COVID-19 á innlenda dagskrárgerð

Áhrif COVID-19 á innlenda dagskrárgerð
||rhallur Gunn­ars­son

Íslensku sjón­varps­stöðv­arnar hyggj­ast að mestu leyti halda sínu striki við fram­leiðslu íslensks dag­skrár­efnis næstu mán­uði, en ein­hverju seinkar. For­svars­menn tveggja þeirra segja að engar áætl­anir séu um að þátta­gerð verði aflýst vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, þó að vissu­lega setji hann það strik í áætl­un­ina að ein­hverri vinnslu verði seinkað um ein­hverjar vikur. Sú þriðja, RÚV, segir of snemmt að segja til um hvort fram­leiðsla verði felld niður hjá þeim, en nú þegar hefur Eurovision-keppn­inni og Ólymp­íu­leik­unum verið aflýst og frestað, sem til stóð að sýna beint frá.

„Við úthýsum allri fram­leiðslu og gefum okkur tölu­vert mik­inn tíma í verk­efnin, þannig að við erum bara í góðum málum. Miðað við að kvik­mynda­brans­inn taki flugið á nýjan leik í sum­ar­byrjun, þá hefur staðan sára­lítil áhrif á okkur,“ segir Pálmi Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps Símans.

Pálmi Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps Símans.

Engri dag­skrár­gerð hefur verið frestað eða aflýst þar. „Við áttum líka sjón­varps­efni á lager. Við höfum einnig verið að flýta og færa til sýn­ingar til að þjón­usta fólk sem best á meðan sem erf­ið­ast er á þessum tíma sem nú er. Einnig höfum við boðið upp á Helga Björns og félaga í sam­komu­bann­inu, og við erum ekki hætt að bjóða upp á slíka dag­skrá í samkomu­bann­inu.“

Þór­hallur Gunn­ars­son, fram­kvæmda stjóri Miðla Sýnar

Þór­hallur Gunn­ars­son, fram­kvæmda stjóri Miðla Sýnar, tekur í svip­aðan streng. „Það er allt á plani hjá okkur, þó að því gæti seinkað um ein­hverjar vikur til eða frá, við munum vinna okkur bara í kringum það. Það verður engri þátta­gerð aflýst hjá okkur,“ segir hann. Á meðal þáttar­aða sem eru í vinnslu hjá Sýn má nefna fjórar þátt­araðir fram­leiddar af Glass­ri­ver, sem er í eigu Baldvins Z leik­stjóra og fleiri aðila. Um er að ræða glæpa­ser­í­una Svörtu sand ar, Veg­ferð­ina og gam­an­þætt­ina Eurogarð­inn og Magaluf.

Þór­hallur Gunn­ars­son, Baldvin Z og Jóhanna Margrét Gísla­dóttir, sjón­varps­stjóri Stöðvar 2.
Patrikur Jamei: Æði er á Stöð 2 Maraþon
Matarboð með Evu er á Stöð 2
Eyja­fjalla­jök­ull hefst á mánu­dag á Stöð 2

Áhrifa frestana og aflýstra við burða gætir nú þegar hjá RÚV

„Það er of snemmt að segja til um hvaða áhrif þetta hefur á fram­leiðslu RÚV eða þá fram­leiðslu sem RÚV tekur þátt í. Þó er ljóst að þau verða óhjá­kvæmi­lega umtals­verð þegar upp verður staðið,“ segir Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri RÚV. „Bæði neyð­umst við til að fresta fram leiðslu á verk­efnum og þar með sýn­ingu á þeim og einnig gæti komið til þess að hverfa verði alfarið frá því að fram leiða önnur verk­efni, í það minnsta að svo stöddu.“

Eins og alþjóð veit þá hefur fjölda við burða verið frestað eða aflýst, og því verða engar útsend­ingar frá slíkum við­burðum, eins og áætl­anir gerðu ráð fyrir, eins og Skarp­héð­inn kemur inn á.

„Þá eru útsend­ingar frá við­burðum sem búið er að fresta eða slá af alveg kap­ít­uli út af fyrir sig. Stærsta dæmið um það eru auð­vitað Eurovision­keppnin sem hefur verið aflýst,“ segir Skarp­héð­inn.

„Við gerum þó ráð fyrir að bjóða upp á ein­hverja Eurovisiontengda dag­skrá um það leyti sem keppnin hefði átt að fara fram. Sú dag skrár­gerð er í mótun, bæði hjá okkur á RÚV og einnig hjá for­svars­mönnum keppn­innar sem gefið hafa út að í boði verður ein­hvers konar dag­skrá dag­inn sem úrslitin áttu að fara fram 16. maí. Þá hefur fjölda íþrótta­við­burða sem til stóð að sýna beint frá verið frestað um óákveð­inn tíma og ber þar helst að nefna Ólymp­íu­leik­ana sem áttu að vera burð­ar­efni í dag­skrá RÚV í ágúst.“

Félagsmenn svartsýnir um sína stöðu

Félag kvik­mynda­gerð­ar­manna á Íslandi stóð fyrir könnun meðal félags manna sinna í lok mars og benda nið­ur­stöður hennar til að kór­ónu veiru­far­ald­ur­inn hafi nú þegar haft gríð­ar­leg áhrif á kvik mynda­iðn­að­inn og afkomu kvik mynda gerð arfólks hér á landi. Nær allir sem svör­uðu höfðu lent í því að verk efnum væri frestað eða hætt við þau. Átti það við um bæði inn­lend og erlend verk­efni, svo sem leiknar myndir, heim ilda myndir, ser­íur, aug­lýs­ing ar og alls kyns sjón­varps­efni. Félags menn vinna á ýmsum sviðum inn an kvik mynda gerðar, flest sjálf­stætt starf­andi, laus­ráðið fólk og eig­endur smærri fyr­ir­tækja eða ein­yrkjar.

Sjá einnig: Áhrif COVID-19 á íslenskan kvik­mynda­iðnað gríð­ar­leg sam­kvæmt könnun Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins