„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dofri um brottnám dóttur sinnar: „Barnið er öruggt“

Dofri um brottnám dóttur sinnar: „Barnið er öruggt“

Barna­vernd Reykja­víkur hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá Dofra Her­manns­syni, for­manni Félags um for­eldra­jafn­rétti, um hvar hann heldur til með tíu ára gamla dóttur sína.

Stundin greinir frá. Dóttirin er í jafnri for­sjá móður og föður og átti að snúa aftur til móður sinnar síð­asta föstu­dag. Dóttirin er með lög­heim­ili hjá móður sinni, en er hjá föður sínum aðra hverja viku. Mætti hún ekki í skóla í dag eða á föstu­dag.

„Barnið er öruggt,“ segir Dofri í sam­tali við Mannlíf. „Dóttir mín greindi skól­anum frá and­legu og lík­am­legu ofbeldi af hálfu móður sinnar í síð­ustu viku. Og skól­inn hefur til­kynnt barna­vernd­ar­yf­ir­völdum um það, og málið er komið í far­veg hjá barna­vernd­ar­nefnd.“

Dofri sagði í sam­tali við Mannlíf að von væri á yfir­lýs­ingu frá honum sem birt­ast myndi á Kvenna­blað­inu.

„Ég sendi því móð­ur­inni skila­boð á föstu­dag, og sagði henni að á meðan málið væri í skoðun hjá Barna­vernd, þá yrði dóttir okkar hjá mér,“ segir Dofri Þú sendir ekki barn sem beitt hefur verið ofbeldi aftur til ger­anda þess.“

Forræðis- og umgengn­is­mál Dofra og fyrrum konu hans, Arndísar Stein­þórs­dóttur, hafa ítrekað ratað í fjöl­miðla. Nú síð­ast stigu fyrr­ver­andi stjúp­dóttir hans og dóttir, þær Katrín og Kolfinna Arn­dís­ar­dóttir, fram æi for­síðu­við­tali Stund­ar­innar og greindu frá ástæðum þess að þær slitu sam­skiptum við hann. Nokkrum dögum síðar var við­tal við Dofra í Kvenna­blað­inu og þar sagði hann meðal ann­ars að það væri eins og barn­inu hans hefði verið rænt.

Í yfir­lýs­ingu Kvenna­blaðs­ins segir Dofri fyrrum konu sína hafa beitt hann and­legu og lík­am­legu ofbeldi í 16 ára sam­búð þeirra. Og þegar hann til­kynnti að hann vildi ljúka sam­band­inu hafi hún sagt í vitna við­ur­vist að hún myndi eyði­leggja sam­band hans við dætur þeirra og mann­orð hans.

Hefur áhyggjur af systur sinni

„Við höfum miklar áhyggjur af henni, því við teljum að hún sé í mjög erf­iðum aðstæðum. Við erum miður okkar,” segir Katrín við Stundina. “Dofri hefur nú verið til­kynntur til barna­verndar- og lög­reglu­yf­ir­valda vegna máls­ins.Við treystum því að málið verði leyst far­sæl­lega af barna­vernd­ar­yf­ir­völdum.”

Dofri er for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti, sem berst fyrir jafnri umgengni for­eldra, og er með­limur í Jafn­rétt­is­ráði sem er ráð­gef­andi fyrir ráð­herra í jafn­rétt­is­málum. Arndís er skóla­stjóri Háteigs­skóla.

Samtalið við Dofra slitn­aði áður en blaða­maður Mannlífs gat spurt hann frekar um hvar feðginin eru stödd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins