„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Biður starfsfólk Icelandair um að láta ekki kúga sig út í stórfelldar launalækkanir

Biður starfsfólk Icelandair um að láta ekki kúga sig út í stórfelldar launalækkanir
26. tbl. 2019

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir stjórn­endur Icelandair hafa toppað sig sem árásum á eigin starfs­fólk. Ragnar fjallar um ummæli Noga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, um að starfs­menn Icelandair séu „helsta fyr­ir­staðan“ fyrir að hægt sé að bjarga rekstr­inum.

„Þeir náðu þó að toppa sig, ótrú­legt en satt, með árásum á sitt eigið starfs­fólk sem er hið raun­veru­lega verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins,“ skrifar Ragnar á Facebook.

Hann spyr hvort að fólk eigi að sætta sig við að vinnu­mark­að­ur­inn verði end­ur­reistur eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á for­sendum fjár­magns og stjórn­enda þess.

„Hvað ef sam­keppn­is­hæfnin þýðir að launa­kjörin fari á par við það sem ger­ist hjá sví­virði­leg­ustu lággjalda­flug­fé­lög­unum sem stunda gerfi­verk­töku, skattaund­an­skot, stór­felld brot á kjara­samn­ingum og mann­rétt­indum og bein­línis þrælkun á starfs­fólki sem er svo algjör­lega ótryggt í vinnu. Öllu er svo úthýst til landa sem gera litlar sem engar kröfur um skatta á stór­fyr­ir­tæki eða vel­ferð starfs­fólks,“ skrifar Ragnar.

Hann spyr hvort að fólk geti sætt sig við að fyr­ir­tækin geti farið fram á að starfs­fólk afsali sér rétt­indum í nafni sam­keppn­is­hæfni. „Sam­keppni um hvað? Verstu lífs­gæðin fyrir mestu vinn­una?“

Hann sendir starfs­fólki Icelandair bar­áttu­kveðjur og biður það um að láta ekki kúga sig út í stór­felldar launa­lækk­anir og afsal rétt­inda.

„Stjórn­endur koma og fara en starfs­fólkið er og verður alltaf grunn­stoð fyr­ir­tæk­is­ins.“

Hann segir fólkið í land­inu vera í raun­veru­legri bar­áttu um lífs­kjör. „Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að standa í lapp­irnar og verja rétt­indin. Við erum í raun­veru­legu stríði um lífs­kjör okkar og fram­tíð. Starfs­fólk Icelandair stendur nú í fremstu víg­línu í þessu stríði. Ekki til að bjarga sínu eigin skinni heldur fyrir okkur öll,“ skrifar hann.

Hann segir Icelandair nota hræðslu­á­róður. „Fyrir alla muni látum ekki kúga okkur eða beygja til hlíðni með hræðslu­á­róðri því það verður ekk­ert flug­fé­lag án ykkar og ekki gæfu­leg fram­tíð ef stjórn­endur Icelandair ráða för. Án vinn­andi handa, okkar, geta fyr­ir­tækin ekki starfað.“

Sjá einnig: Segir flug­freyj­ur og flug­menn Icelandair þurfa að taka á sig 50-60 pró­senta launa­lækk­un

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins