„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Stendur til að halda áfram að leyfa gömlum mönnum að þurrka á sér punginn með hárblásurunum?“

„Stendur til að halda áfram að leyfa gömlum mönnum að þurrka á sér punginn með hárblásurunum?“
Mynd / Unsplash|Karen Kjart­ans­dóttir

Ýmsir þjóð­þekktir ein­stak­lingar létu áhuga­verð ummæli falla í vik­unni. Hér eru nokkur.

„Spurning hvort þetta end­ur­speglar fjöl­mið­il­inn Mark­að­inn eða fjöl­miðla yfir­leitt eða bara sam­fé­lagið, en í nýút­komnum Markaði Frétta­blaðs­ins eru 22 ljós­myndir af karl­mönnum (að með­töldum myndum af blaða­mönnum sem allir eru karl­kyns) en 2 myndir af konum,“

segir Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur í Facebook-hópnum Fjöl­miðlanördar, þar sem hann setur út á efn­is­tök nýjasta tölu­blaðs Markaðar Frétta­blaðs­ins.

Illugi Jök­uls­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Í dag kynnti Sam­fylk­ingin nýtt merki, þar er um að ræða hvítan hring á rauðum fleti. Ætli þeim hafi á ein­hverjum tíma­punkti dottið í huga að gúgla hvers­konar sam­tök noti helst það mynd­mál? Sam­fylk­ingin á ekk­ert skylt við þessi sam­tök og þess vegna veltir maður fyrir sér af hverju þetta mynd­mál sé notað,“

segir Elliði Vign­is­son sveit­ar­stjóri í færslu á Facebook, og upp­skar fjölda ummæla og gagn­rýni.

Elliði Vign­is­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Þetta er svo brjóst­um­kenn­an­legt kjaftæði í þér. Hefur þú aldrei séð rautt lógó eða hring? Tökum dæmi,“ svarar Karen Kjart­ans­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ingar, færslu Elliða og birtir mynd með athuga­semd sinni.

Karen Kjart­ans­dóttir Mynd / Facebook

„Já, ég er með spurn­ingu fyrir Þórólf. Nú stendur til að opna sund­laugar fyrir almenn­ing 18. maí. Stendur til að halda áfram að leyfa gömlum mönnum að þurrka á sér pung­inn með hár­blás­ur­unum að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum eða þurfa þeir að bíða eftir næstu til­slökun?“

spyr Atli Fannar Bjarka­son, verk­efna­stjóri vef­út­gáfu og sam­fé­lags­miðla á RÚV, á Twitter.

Atli Fannar

„Ég bý svo vel að hafa á heim­il­inu sér­fræð­ing í sótt­vörnum og geð­lækn­ingum. Og ekki bara það heldur er sér­fræð­ing­ur­inn ljóð­skáld gott. Grunar að eft­ir­far­andi kveð­skapur, sem var skil­inn eftir á nátt­borði mínu, sé kom­inn frá þessum mikla sér­fræð­ingi,

Ástríðan er ekki dauð
þótt öðru sé að hraka
holdið orðið eins og brauð
sem á eftir að baka.

Þannig er að eld­ast
ekk­ert fær því breytt
grána bæði og geld­ast
og geta ekki neitt.“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um fjöl­skyldu­lífið í færslu á Facebook.

Brynjar Níelsson
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins