„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ágústa bjó við heimilisofbeldi í mörg ár: „Hann nærist á lífi annarrar manneskju og smám saman murkar úr henni lífið í meðvirkni hennar“

Ágústa bjó við heimilisofbeldi í mörg ár: „Hann nærist á lífi annarrar manneskju og smám saman murkar úr henni lífið í meðvirkni hennar“
Ágústa Ágústs­dóttir

Umræða hefur verið um aukið heim­il­is­of­beldi á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og sam­komu­banns. Á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna 7. apríl var Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, gestur fund­ar­ins og vakti hún athygli á því að bæði rann­sóknir og reynsla sýna að hætta á að heim­il­is­of­beldi auk­ist og verði alvar­legra, jafn­vel fær­ist í auk­ana á meðan sam­komu­bann er í gildi vegna útbreiðslu COVID-19.

Í erindi sínu beindi Sig­þrúður orðum sínum að ger­endum og hvatti þá sem beita heim­il­is­of­beldi til að leita sér aðstoðar.

Fund­ur­inn varð til þess að Ágústa Ágústs­dóttir fékk loks­ins kjark til að setj­ast niður og skrifa um eigin reynslu af heim­il­is­of­beldi, sem hún bjó við í 14 ár með fyrrum sam­býl­is­manni sínum og barns­föður. Ágústa veitti Mannlífi góð­fús­lega leyfi til að deila skrifum hennar.

„Það var til­gang­ur­inn með þessum skrifum, að reyna að breyta ein­hverju slæmu í eitt­hvað gott,“ segir Ágústa.

„Ég skrifa þetta í þeirri trú að ég sé fyr­ir­mynd fyrir börnin mín og alla þá sem treysta sér ekki til að segja sína sögu og sýni fram á að það er alltaf leið út úr myrkr­inu. Endilega deilið sem víð­ast því það er virki­lega þörf fyrir þetta!“

Hér á eftir fylgir pist­ill Ágústu í heild sinni, milli­fyr­ir­sagnir eru blaða­manns.

„.Hann á bara erfitt. Hann átti svo slæma barn­æsku. Hann getur ekk­ert að þessu gert“

„Elsku þú! Í ljósi umræð­unnar um aukið heim­il­is­of­beldi langar mig að opna dyrnar mínar og tala til þín sem þarft á því að halda og láta þig vita að þú ert ekki ein, þótt þér finn­ist það í þínum aðstæðum. Að finn­ast maður vera aleinn í heim­inum, þora ekki að segja frá og tala um það sem raun­veru­lega er að ger­ast inn á heim­il­inu. Heim­il­inu þínu. Af ótta við að eng­inn muni trúa þér. Af ótta við að þú munir upp­götva að þú ert sú sem ert rugluð. Af ótta við að fólkið þitt muni snúa við þér baki því þú ert sú veika. Að það ert þú sem ert að gera vanda­mál úr hlutum. Storm í vatns­glasi. Hver myndi trúa svona hlutum?

Af því að svo lengi hefur þú verið að berj­ast við að fela hluti. Halda uppi ímynd­inni. Halda heim­il­inu saman. Láta hlut­ina ganga. Sýna öllum að þú sért ein­hvers virði. Sýna heim­inum að þú sért ein­hvers virði. Sýna honum að þú sért þess virði. Þessum dásam­lega manni sem þú ert búin að búa með í þessi ár. Hann á bara erfitt. Hann átti svo slæma barn­æsku. Hann getur ekk­ert að þessu gert. Mamma hans var alltaf svo vond við hann. Hann er að reyna eins og hann getur. En stundum á hann slæma daga. Allir eiga slæma daga. Af hverju á hann ekki að fá skiln­ing eins og allir aðrir? Innst inni er hann góður maður. Þú getur ekki yfir­gefið hann því það gerir maður ekki þegar fólk á erfitt. Þú værir ekki góð kona ef þú yfir­gæfir hann þegar hann þyrfti mest á þér að halda. Hvað ef eitt­hvað slæmt kæmi fyrir og þú værir búin að yfir­gefa hann? Það væri þá þér að kenna fyrir að hafa ekki verið til staðar. Þú gætir aldrei fyr­ir­gefið sjálfri þér það. Þú berð mikla ábyrgð. Ábyrgð á öllu. Er það ekki?

Þú segir við sjálfa þig „Ekki er ég full­komin heldur. Ég get verið alveg hræði­leg og ekki yfir­gefur hann mig þrátt fyrir það. Ég er eig­in­lega ómögu­leg mann­eskja, ég veit það og ætti að vera þakk­lát fyrir að hann elski mig og vilji búa með mér áfram. Á þennan hátt er hann betri mann­eskja en ég. Miklu sterk­ari. Við látum þetta ganga. Ég læt þetta ganga. Það var engin til­viljun að við hitt­umst. Við eigum heima saman. Við elskum hvort annað. Þetta mun allt saman lag­ast og verða betra. Við þurfum bara tíma. Ég get hjálpað honum að breyt­ast.“

„Sáttakynlífið er svo gott, það finnst honum allavega“

„Og eftir á, þegar hann skríður upp í til mín og vefur örmum sínum utan um mig grát­bólgna og tóma eftir að ég brotn­aði enn einu sinni. Hann er hlýr og auð­mjúkur þegar hann segir svo oft: „Fyr­ir­gefðu, ég ætl­aði ekki að gera þetta. Ég ætl­aði ekki að segja þetta. Þú mis­skildir mig. Þetta kom allt rangt út úr mér. Ég er ekki svona klár að tjá mig eins og þú. Ég elska þig svo mikið. Ég var bara svo hræddur um að missa þig. Ég get ekki hugsað mér lífið án þín. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef þú færir frá mér. Ég veit þetta var mér að kenna. Ég skal breyt­ast. Ég skal gera allt fyrir þig.“

Og svo er sátta­kyn­lífið svo gott á eftir. Það finnst honum alla­vega. Mig langar ekki því ég er tóm. Ég er þreytt, dofin. En ég læt eftir honum því þá verður allt gott á eftir. Annars verður hann brjál­aður aftur. Þá fæ ég að heyra hvað ég sé mikil ísdrottn­ing. Að það sé eitt­hvað að mér. Er ég orðin hrifin af öðrum? Hann ræddi þetta við trún­að­ar­vin sinn og sá var alveg sam­mála honum um að það hlyti ein­hver annar að vera í spil­inu. Ég veit að alveg sama þótt hann fái kyn­líf sjö sinnum í viku eða einu sinni í mán­uði þá er ég alltaf söku­dólg­ur­inn. Ég er aldrei nóg. Ég er kynköld. Ég er lokuð. Ef ég elskaði hann í alvör­unni þá myndi ég ekki vera svona frá­hrind­andi í rúm­inu. Ég er ekki til­búin í sumt sem hann vill. Samt heldur hann áfram að biðja um það. Hann brýtur mörkin mín ítrekað. Ég þarf alltaf að vera á varð­bergi. Get sjaldn­ast slakað á. Sef á varð­bergi. Sef illa. Get sjaldn­ast notið mín. Í það skiptið sem allt gengur upp og hann hagar sér vel hugsa ég „Ok, þetta var ynd­is­leg stund. Þetta hlýtur að vera merki um að hann sé að taka sig á. Nú hlýtur þetta að vera á réttri leið.“ En svo kemur næsta skipti.

Í hvert skipti sem hann kemur við mig eða tekur utan mig og ég leyfi mér að taka á móti í von um hlýju, snýst allt upp í kyn­ferð­is­lega tóna. Ég er ekki til­finn­inga­vera. Ég er kjöt­skrokkur. Hann vill mig ekki heldur bara lík­amann. Ég er svo svöng og hungrið eykst bara. Hungrið eftir hlýju. Bara hlýju.“

„Ég held áfram ótrauð að verja hann og afsaka fram í rauðan dauðann“

„En frið­ur­inn er eft­ir­sókn­ar­verður. Bara að finna frið og ró, að allt sé í lagi. Ég legg mikið á mig til að finna það. En það virð­ist vera all­veg sama hvað ég legg mikið á mig. Einhvern veg­inn lag­ast ekk­ert. Ekkert breyt­ist. Hann breyt­ist ekki. Hann lof­aði því samt svo mörgum sinnum. Það hlýtur samt að koma að því eftir öll þessi ár. Ég reyni bara áfram eins og góðri konu sæmir. Og ég held ótrauð áfram að verja hann og afsaka fram í rauðan dauð­ann.

Ég er þreytt. Svo ólýs­an­lega þreytt. Ég er líka reið. Ólgandi reið. En það er betra bara að reyna halda frið­inn. Það kostar minni orku tel ég sjálfri mér trú um, því ég er orðin samdauna ástand­inu. Ég er hold­gerv­ingur með­virkn­innar. Af hverju er ég alltaf að verja hann? Af hverju á hann meira erfitt en allir aðrir? Af hverju er hann alltaf fórn­ar­lambið? Af hverju er það alltaf öðrum að kenna hvar hann er staddur í líf­inu? Af hverju berð þú ábyrgð á honum? Hefur þú prófað að spyrja sjálfa þig að þessu?“

„Hann lýgur stanslaust um alla minnstu hluti“

„Ég veit hann lýgur. Hann lýgur stans­laust um alla minnstu hluti. Hann segir mér eitt en öðrum allt annað. Til að halda mér á tánum. Til að honum finn­ist hann vold­ugur. Til þess hann hafi stjórn­ina. Og hann er sann­fær­andi. Eins og atvinnu­maður. Þegar ég stend hann að lyg­inni verður hann öskuillur. Illur yfir því að ég saki hann um lygi. En í raun er hann illur vegna þess ég sé lyg­ina og kaupi hana ekki. Ber hana upp á hann. Og þá lýgur hann enn meira. Orð fljúga og rifr­ildið magn­ast. Hann nötrar í framan af reiði, and­litið rennur aftur og minnir eilítið á grimman hund sem til­bú­inn er að stökkva á mig hvenær sem er ef ég held áfram að ögra honum. Hann er svo sann­færður, svo ein­arður í sinni sann­fær­ingu að ég sé að saka hann um ósann­indi. Á end­anum er ég orðin svo þreytt, svo upp­gefin og þvæld að ég fer í alvör­unni að hugsa hvort þetta geti verið rétt hjá honum. Var ég kannski eftir allt saman að mis­skilja hann og saka hann um eitt­hvað sem hann átti ekki skilið? Það er betra að halda frið­inn. Úthaldið er þrotið í bili. Ég brotna, fer að gráta, loka mig inni í her­bergi og fer í fóst­ur­stell­ing­una. Vil bara sofna og fá frið. Tíma í friði. En ég fæ það ekki. Hann eltir mig inn og upp í rúm. Nú er hann bljúgur og mjúk­orður. „Eigum við ekki að vera vinir, ástin mín. Er þetta ekki orðið gott?“

„Ég loka mig smá saman af, einangra mig“

„Ég er þessi alvöru­gefna í sam­band­inu. Hann er svo lífs­glaður og kátur. Öllum líkar vel við hann því hann er svo hjálp­samur og bón­góður. Vinur allra. Reitir af sér brand­ara og hlær. Slær um sig á kostnað ann­arra. Ýkir allar frá­sagnir því það er svo miklu skemmti­legra þannig. Fólk heim­sækir okkur bara þegar hann er heima. Enginn kemur þegar ég er ein. Það hýtur að vera vegna þess að ég er svo hræði­lega óspenn­andi og leið­in­leg. Ekki vegna and­rúms­lofts­ins á heim­il­inu og þeirrar stað­reyndar að eng­inn kemur eig­in­lega lengur til okkar. En það er auð­vitað vegna þess hvernig ég er. Hann segir mér það reglu­lega þegar ég haga mér ekki eins og hann vill „Djöfull ertu rugluð maður, djöf­ull ertu biluð. Þú sérð ekki hvernig þú hagar þér. Það tala allir um þetta í kringum okkur. Það sjá þetta allir nema þú.“

Og efa­semd­ar­fræjum er sáð. Og þau spíra. Ég er tor­tryggin gagn­vart öðrum. Ég loka mig smám saman af. Einangra mig því engum finnst ég þess virði að kynn­ast. Og hvað með það. Ég þarf ekki á þeim að halda. Þau mega bara eiga sig og sitt sýnd­ar­veru­leika-full­komna líf. Hver halda þau að þau séu eig­in­lega? Þau eru ekk­ert betri en ég. Ef þau bara vissu hvernig allt væri í raun og veru. Ef þau bara gætu séð hvernig hann er í raun og veru. Tvö­faldur. Marg­faldur. Reiðin ólgar og kraumar. Það rétta væri að fara. Taka börnin og fara. Börnin. Aumingja börnin. Þá fer allt á hvolf hjá þeim og það verður mér að kenna. Þau munu kenna mér um og verða mér reið. Þá mun hann ná tökum á þeim og not­færa sér stöð­una sér í hag. Ég get það ekki. Ég verð að reyna áfram fyrir börnin.“

„Jú að drepa þig“

„Um nótt­ina er ég á varð­bergi. Um leið og ég heyri lítil fóta­tök trítla eftir gang­inum á leið sinni að skríða upp í, sprett ég fram úr og er komin fram í dyr og flýti mér með barnið aftur yfir í sitt rúm. Hann vill nefni­lega alls ekki hafa þau upp í hjá okkur. Verður yfir­leitt brjál­aður af pirr­ing og rýkur fram. Þá hefur hann ekki greiðan aðgang að lík­ama mínum ef barn er á milli. Betra að halda frið­inn. Svo börnin verði ekki vör við neitt.

Þegar ég sýni styrk verður hann hræddur og van­mátt­ugur. „Af hverju varst þú ekki að drekka í bænda­ferð­inni í dag? Fólk var spyrja mig að því hvort það væri eitt­hvað að, því þú varst með fýlu­svip á þér allan dag­inn.“ Ég spyr hann á móti „Mér leið mjög vel. Hefði þér liðið betur ef ég hefði verið að drekka?“ Hann svarar „Fólk leggur nú saman tvo og tvo þar sem ég drekk ekki og heldur því að ég sé að banna þér að drekka. Þetta var ömur­leg ferð. Þú sást algjör­lega um að eyði­leggja hana alveg fyrir mér“.
Hann finnur sig lít­inn því ég tók sjálf­stæða ákvörðun án þess að til­kynna honum um hana fyrir fram. Það sviptir hann völdum. Það finnst honum vont. Því finnur hann leið til að brjóta mig niður aftur.

Hann horfir á mig nötr­andi af reiði „Drullaðu þér frá and­lit­inu á mér áður en ég æli hel­vítis ógeðið þitt.“ Svo leikur hann sér að því að kúg­ast. Ég spyr hann „Hefur þú aldrei átt þér drauma um hluti sem þig langar til að gera í líf­inu?“. Hann svarar „Jú, að drepa þig.“ Svo hlær hann.

Fylltist hræðslu þegar hún yfirgaf manninn

Ágústa segir frá því óstjórn­leg hræðsla hafi gripið hana þegar hún hafði sig loks í að pakka, og yfir­gefa mann­inn end­an­lega, eftir þrjár til­raunir á fjórtán árum.

„Þegar ég loks hafði mig í að pakka ofan í tösku eftir þrjár til­raunir á fjórtán árum og þremur börnum rík­ari og yfir­gaf hann, hellt­ist yfir mig óstjórn­leg hræðsla. Hræðsla við að hann myndi koma heim og koma að mér vera að pakka niður. Það var í fyrsta skipti sem ég átt­aði mig virki­lega á að ég var hrædd við hann. Hörku­tólið ég. Það var óhugs­andi. Á þessum tíma var ég orðin samdauna líf­erni sem hafði verið partur af lífi mínu svo lengi að mér fannst það vera „normið“. Ég kunni ekki að lifa öðru­vísi. Að stíga út fyrir þetta líf­erni voru ókann­aðar lendur sem ég sann­færði sjálfa mig of oft um að ég gæti ekki. Að ég kynni ekki. Því ég ætti ekk­ert betra skilið.“

Segir hún frá hvernig mað­ur­inn mun reyna fyrst á eftir að höfða til kon­unnar með fag­ur­gala, síðan sam­visku og loks hót­unum.

„Hann mun reyn­ast ósköp bljúgur fyrst á eftir eins og í hin skiptin og höfðar til þín með hlýjum og ást­ríkum orðum. Orðum sem hann veit að þú vilt heyra. Svo höfðar hann til sam­visku þinnar því þú ert nátt­úru­lega að svíkja hann og ykkar sam­band sem aldrei hafði fengið að blómstra almenni­lega. Þú ert að svíkja börnin. Hann lofar öllu fögru. Þegar hann áttar sig á því að fögru orðin virka ekki lengur breyt­ast leik­arnir. Skráp­ur­inn snýst við og hið sanna eðli kemur í ljós. Hann gerir allt til að sann­færa aðra í kringum ykkur um að þú sért gengin af göfl­unum. Reynir að saka þig um fram­hjá­hald jafn­vel. Hann notar allt sem hann hefur á þig til að reyna brjóta þig niður. Allt það við­kvæma sem þú treystir honum fyrir. Allt sem gekk á í ykkar sam­bandi notar hann gegn þér og snýr og hag­ræðir eins og honum finnst henta sér best. Hann kennir þér um flest það sem miður hefur farið í hans lífi.

Í raun fer í gang ein­hvers­konar kaf­báta­hern­aður þar sem hann passar að halda and­liti sínu og sann­fær­inga­krafti gagn­vart öðrum, en þér sýnir hann tenn­urnar þegar eng­inn annar sér til. Hann reynir á allan hátt að taka þig á taugum sam­tímis og hann strögglar við að halda sjálfum sér saman. Því sann­leik­ur­inn er sá að ofbeld­is­menn eins og hann geta ekki verið einir. Þá „deyr“ hann. Þá ríkir stjórn­leysi. Hann þarf súr­efni og súr­efnið tekur hann frá öðrum. Hann lifir á öðrum. Hann nær­ist á lífi ann­arrar mann­eskju og smám saman murrkar úr henni lífið í með­virkni hennar og enda­lausri við­leitni við að reyna bjarga þessum góða manni sem lífið hefur barið svo ósann­gjarnt á. Þegar sú mann­eskja hverfur úr lífi hans hefst hann strax handa við að finna nýja til að „ná and­anum“. Það er nefni­lega gríð­ar­stór munur á hjálp­semi og sam­kennd og svo með­virkni og vor­kunn.

Því auð­vitað er ekk­ert að hjá honum. Hann er bara svona óhepp­inn með konur!“

„Enginn getur átt þig nema þú“

Að lokum biðlar Ágústa til kvenna sem fastar eru í ofbeld­is­sam­bandi að þær viti að þær séu ekki einar og ástandið sé ekki þeim að kenna.

„Elsku þú. Þú ert ekki ein. Í þinni ein­angrun ertu ekki ein. Ég vil að þú vitir að eng­inn getur átt þig nema þú sjálf. Og ég vil að þú vitir að þú berð ekki ábyrgð á ham­ingju ann­arra. Það er ekki þitt hlut­verk í líf­inu að bjarga öðrum. Það er engum að kenna hvar þú ert stödd í líf­inu. Og ég vil að þú vitir að það er ekki þér að kenna að þú sért í ofbeld­is­sam­bandi. Ábyrgð­ina berðu fyrst og fremst gagn­vart sjálfri þér. Að standa með sjálfri þér. Það getur eng­inn tekið skrefið nema þú sjálf. Og þú ert sterk, miklu sterk­ari en þú heldur. Að við­ur­kenna fyrir sjálfri þér að þú sért í ofbeld­is­sam­bandi og þú þurfir hjálp er eitt það erf­ið­asta sem til er.

En þar liggur einmitt styrk­ur­inn. Trúðu mér. Því þó svo okkar aðstæður séu ólíkar þá hef ég verið þarna sjálf. Að rétta út hönd­ina og kalla á hjálp er merki um gríð­ar­legan styrk og hug­rekki þrátt fyrir að á þeim tíma­punkti finnir þú þig laf­hrædda, eina, yfir­gefna og átta­villta. Að grípa svo í útrétta hjálp­ar­hönd sem til­búin er að taka utan um þig er það besta sem til er. Þar er hvíldin og frið­ur­inn sem þú svo lengi ert búin að reyna að finna. Þar finnur þú byrj­un­ina á ein­hverju sem þú ein getur haft völd yfir. Þar byrjar lífið. Þar byrjar þú!
Ef þú hefur haldið út allan þennan tíma núna í ofbeld­inu þá veistu að þú hefur úthald í að taka utan um sjálfa þig, halda fast og labba út. Því ef það er eitt­hvað sem þú hefur lært þá er það útsjón­ar­semi og hæfni til að lifa af!“

Þetta ljóð kom til mín í vetur og er samið til þín. Það heitir „Það birtir“:

Opnist himnar yfir mér
kom englar mér yfir vaki.
Er þrótt­ur­inn þrýtur
og hugur minn myrkv­ast
er allt lok­ast að mínu baki.

Ó leiddu mig veg­inn áfram
þú and­ans mis­kunn og náð.
Meðan svart brimið brýtur
á bak­inu grýttu
ó lýstu mér gefðu mér ráð.

Í sál­ar­djúps­ins ölduróti
er myrkrið skyggir sýn á allt
viltu muna að ljósið er aldrei langt undan
og hlýjar er þér er kalt.

Ég bið að þú horfir að ofan
og sam­tímis allt um kring.
Myrkri burtu bægir
úr hug­ar­fylgsnum
baðir mig í ljósa­hring.

Minn lífs­ins vegur er valtur
og oft hef ég villst af leið.
Þá storm­inn loks lægir
er ég aftur finn ljósið
það ávallt þar eftir mér beið.

Í sál­ar­djúps­ins ölduróti
er myrkrið skyggir sýn á allt
villtu muna að ljósið er aldrei langt undan
og hlýjar er þér er kalt.

Með von um að þú finnir þinn veg,
þín Ágústa

Býrð þú við heim­il­is­of­beldi?
Þú getur leitað ráð­gjafar hjá eft­ir­töldum sam­tökum: 

Kvenna­at­hvarfið 561 1205
Bjarma­hlíð Akureyri 551 2520
Bjark­ar­hlíð Reykja­vík 553 3000
Stígamót 562 6868 / 800 6868

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilisofbeldi

Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkar á milli ára
InnlentHeimilisofbeldi

Til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi fækkar á milli ára

Ný skýrsla rík­is­lög­reglu­stjóra um til­kynn­ingar til lög­reglu um heim­il­is­of­beldi og ágrein­ing milli skyldra eða tengdra aðila fyrir árið 2024 hefur verið birt á vef­svæði lög­regl­unnar. Á lands­vísu fékk lög­regla 2.379 til­kynn­ingar um slík mál árið 2024. Er það tæp­lega tvö pró­sent aukn­ing sam­an­borið við síð­ustu þrjú ár á undan. Ef aðeins er litið er til árs­ins 2023 var þrjú pró­sent...
Fyrrum tengdapabba Diddy býður við myndbandinu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“
HeimurHeimilisofbeldi

Fyrrum tengdapabba Diddy býður við mynd­band­inu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“

Faðir Kim Porter, Jake Porter, lýsir and­styggð sinni yfir nýlega birtu mynd­bandi af Sean „Diddy“ Combs, sem réðst á söng­kon­una Cassie Ventura árið 2016. Diddy er fyrr­ver­andi tengda­sonur Jake. Jake ræddi við Rolling Stone tíma­ritið á föstu­dag­inn en dóttir hans, Kim heitin, var í sam­bandi með Diddy í fjöldi ára og átti með honum þrjú börn. Í við­tal­inu gagn­rýndi Jake...
Maðurinn á bak við stóra kjólamálið reyndi að kyrkja eiginkonu sína: „Einhver mun deyja“
HeimurHeimilisofbeldi

Maðurinn á bak við stóra kjóla­málið reyndi að kyrkja eig­in­konu sína: „Einhver mun deyja“

Maðurinn sem átti stóran þátt í að starta alþjóð­legt rifr­ildi sem kallað var „Kjólinn sem braut inter­netið“ situr nú á bak við lás og slá eftir að hafa játað að hafa reynt að kyrkja eig­in­konu sína. Samkvæmt The Guardian ját­aði Keir Johnson, 38 ára, sig sekan um að stofna lífi eig­in­konu sinnar í hættu á fimmtu­dag, fyrir rétti í Glasgow,...
Níu konur kæra ríkið vegna brota á rétti í kjölfar ofbeldis
Innlent

Níu konur kæra ríkið vegna brota á rétti í kjöl­far ofbeldis

Níu konur hafa nú kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti sínum til rétt­látrar máls­með­ferðar. Konurnar eiga það allar sam­merkt að vera brota­þolar sem kærðu nauðg­anir, heim­il­is­of­beldi og/eða kyn­ferð­is­lega áreitni til lög­reglu en málin voru felld niður af ákæru­vald­inu. Það voru Stígamót ásamt 12 öðrum kvenna- og jafn­rétt­is­sam­tökum sem vöktu athygli á ákærunni. Steinunn Gyðu-...
Fólk

Erfitt fyrir utan­að­kom­andi aðila að skilja af hverju þol­and­inn fer ekki frá ger­and­anum

Það getur reynst erfitt fyrir utan­að­kom­andi aðila að skilja af hverju þol­andi heim­il­is­of­beldis fer ekki frá þeim sem beitir hana eða hann ofbeldi. Í sínum nýjasta pistli varpar Íris Eik Ólafs­dóttir, fjöl­skyldu­fræð­ingur, rétt­ar­fé­lags­ráð­gjafi og sátta­miðl­ari, ljósi á þann víta­hring sem þol­andi heim­il­is­of­beldis sog­ast inn í. Hún segir þann sem beitir ofbeldi gjarnan hafa í svo miklum hót­unum að þol­and­inn þorir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins