„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga Vala kallar eftir tafarlausum styrkjum til fjölmiðla: „..Skora á ríkisstjórn að bregðast við áður en tjón verður“

Helga Vala kallar eftir tafarlausum styrkjum til fjölmiðla: „..Skora á ríkisstjórn að bregðast við áður en tjón verður“
Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kallar eftir því að fjöl­miðlar verði styrktir sér­stak­lega í næsta aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar. Í grein í Morg­un­blað­inu í dag bendir hún á að fjöl­miðlar geti ekki nýtt sér margar af þeim leiðum sem hafi verið kynntar, til dæmis að senda fólk í hluta­starf, en á sama tíma drag­ist aug­lýs­inga­tekjur saman.

„Aug­lýs­inga­tekjur fjöl­miðla hafa hríð­fallið eftir komu Covid og sam­komu­banns í kjöl­farið. Fjöl­miðlar geta ekki nýtt sér þær leiðir sem stjórn­völd hafa boðið upp á því það er jú ekki hægt að fresta bara greiðslum eða senda starfs­fólk í hluta­starf. Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi gegna fjöl­miðlar algjöru lyil­hlut­verki og vil ég því skora á rík­is­stjórn­ina að huga vel að útfærslu á því með hvaða hætti eigi að veita þeim stuðn­ing í næsta pakka sem kynntur verður. Það er ekki hægt að taka ákvörðun um styrk­veit­ingar til fjöl­miðla í sumar eða haust því slíkt verður að ger­ast núna. Það hafa nágranna­lönd okkar gert og ég skora á rík­is­stjórn að bregð­ast við áður en tjón verður.“

Fjöl­miðla­frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra var lagt fram í des­em­ber, en enn hefur ekki náðst sam­komu­lag um frum­varpið á þingi. Samkvæmt frum­varp­inu býðst einka­reknum fjöl­miðlum end­ur­greiðsla upp að 18% af rekstr­ar­kostn­aði, sem og heim­ild fyrir stuðn­ingi upp á fjögur pró­sent af launa­kostn­aði, gegn ákveðnum skil­yrðum.

Stöðug krafa um fréttir og afþreyingu

„Einn er sá rekstur sem enga athygli hefur fengið þegar kemur að stuðn­ingi stjórn­valda en getur lítið stuðst við þær leiðir sem þegar hafa verið sam­þykktar,“ skrifar Helga Vala. „Fjöl­miðlar eru hreint ekki að glíma við verk­efna­skort þessa dag­ana heldur er þvert á móti stöðug krafa sam­fé­lags­ins um reglu­legar fréttir af ástand­inu, krafa um almennar fréttir og síð­ast en ekki síst er mikil krafa um ýmiss konar afþrey­ing­ar­efni til að hafa ofan af fyrir okkur, börnum okkar og ung­mennum í sam­komu­banni.“

Segir Helga Vala fjöl­miðla hafa svarað þeim kröfum þeim breyt­ingum dag­skrá sinni og miðlum. „Upp­lýs­ing­arnar flæða til okkar sem og skemmti-, kennslu- og afþrey­ing­ar­efni. Fjöl­miðla­fólk hleypur hraðar en nokkru sinni á sama tíma og aug­ljós hætta steðjar að vinnu­veit­endum þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins