„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Margir listamenn óánægðir með samskiptin við Óperuna

Margir listamenn óánægðir með samskiptin við Óperuna

„Ljóst að gildir kjara­samn­ingar voru ekki virtir,“ segir Gunnar Hrafns­son, for­maður FÍH.

Félag íslenskra hljóm­list­ar­manna, FÍH, hefur fyrir hönd Þóru Ein­ars­dóttur óperu­söng­konu stefnt Íslensku óper­unni vegna van­gold­inna launa Þóru við upp­færslu óper­unnar Brúðkaup Fígarós síð­ast­liðið haust. Málið hófst í haust þegar átta ein­söngv­arar í Brúð­kaupi Fígarós tóku sig saman og leit­uðu til síns stétt­ar­fé­lags, FÍH, um leið­rétt­ingu launa sinna við sýn­ing­una.

Gunnar Hrafns­son, for­maður FÍH, segir að reynt hafi verið til þrautar að ná lend­ingu í mál­inu, hann hafi meðal ann­ars lagt fram sátta­til­boð, en Íslenska óperan haldi fast við þann skiln­ing að samn­ing­ur­inn milli Óper­unnar og FÍH gildi ekki í þessu til­viki þar sem söngv­ar­arnir hafi allir verið laus­ráðnir. Gunnar segir þá túlkun ekki stand­ast.
„Við erum með und­ir­rit­aðan samn­ing milli aðila frá árinu 2000 sem er mjög skýr í lýs­ingu á því hvernig gera skuli hlut­ina. Hann er ekki virtur af hálfu Óper­unnar, sem segir að þessi samn­ingur eigi alls ekki við, en honum hefur aldrei verið sagt upp og er því gildur.“

„Á atvinnu­rek­and­inn að geta skil­greint samn­inga eftir eigin henti­stefnu og borgað fólki bara eftir hend­inni?“

Spurður hvort sú túlkun Íslensku óper­unnar að samn­ing­ur­inn eigi ekki við í ráðn­ingu laus­ráð­inna söngv­ara stand­ist segir Gunnar svo sem allt í lagi að takast á um það. „En þegar gerður er gildur samn­ingur þar sem áskilið er að það skuli vera greitt sam­kvæmt honum og verk­kaup­anum beri að vera í sam­ráði við stétt­ar­fé­lagið um það hvernig sé greitt þá ber að fara eftir honum. Ef slíkur samn­ingur heldur ekki hvaða samn­ingar halda þá? Á atvinnu­rek­and­inn að geta skil­greint samn­inga eftir eigin henti­stefnu og borgað fólki bara eftir hend­inni? Ef maður skoðar þetta í stærra sam­hengi þá er þetta nátt­úr­lega eitt­hvað sem allir laun­þegar þurfa að vera vak­andi fyrir og berj­ast gegn.“

Þetta þarf að laga

Þótt stefnan sé gerð ein­ungis fyrir hönd Þóru standa allir ein­söngv­arar sýn­ing­ar­innar þétt við bakið á henni og Gunnar segir dóm­inn auð­vitað verða for­dæm­is­gef­andi fyrir þá alla, lög­fræði­lega sé það bara þannig að það þurfi að stefna fyrir hönd hvers og eins. „Þóra er bara svo mikil kjark­mann­eskja að hún tekur slag­inn fyrir hina,“ segir hann.

Spurður hvort fleiri stefnur á hendur Íslensku óper­unni séu í far­vatn­inu segir Gunnar að hann viti ekki til þess, en það sé ýmis­legt sem þurfi að taka á varð­andi samn­inga lista­manna við Óperuna. „Þetta barst í tal milli list­fé­lag­anna, sem eru rit­höf­undar, leik­stjórar, tón­skáld, söngv­arar og tón­list­ar­menn og svo vina­fé­lag Óper­unnar, og það kom í ljós að öll þessi félög hafa árum saman beðið um samn­ing við Óperuna en ekki fengið og margir eru mjög óánægðir með sinn hlut í sam­skiptum við Óperuna hvað laun varðar. Það er nátt­úr­lega draumaum­hverfi atvinnu­rek­and­ans að geta bara sagt að það gildi engar reglur og verk­tak­inn verði bara að taka því sem að honum er rétt. Laun óperu­söngv­ara hafa jafnt og þétt lækkað að raun­gildi und­an­farin ár og það þarf að leið­rétta.“

Búið er að birta Íslensku óper­unni stefn­una og Gunnar segir að FÍH geti ekki aðhafst annað í bili, nú sé bara beðið eftir því að málið verði dóm­tekið.

Nánar er fjallað um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins