„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fyrirsögn viðtals við Snædísi vekur hneykslun: „Fjölmiðlar geta gert betur árið 2020“

Fyrirsögn viðtals við Snædísi vekur hneykslun: „Fjölmiðlar geta gert betur árið 2020“
Snædís Jóns­dóttir

Snædís Jóns­dóttir mat­reiðslu­meist­ari og fyr­ir­liði íslenska kokk­lands­liðs­ins komst í fréttir á dög­unum þegar lands­liðið lenti í þriðja sæti á Ólymp­íu­leik­unum í mat­reiðslu á dög­unum.

Sjá einnig: Íslenska kokka­lands­liðið í 3. sæti á Ólymp­íu­leik­unum

Snædís var í við­tali í Frétta­blað­inu á laug­ar­dag í sér­stöku kynn­ing­ar­blaði um kokka­lands­liðið. Fyr­ir­sögn við­tals­ins „Heppin að eiga kokk fyrir kærasta,“ hefur vakið mikla athygli og skap­að­ist tölu­verð umræða um hana í Facebook-hópnum Fjöl­miðlanördar, sem telur tæpa átta þús­und með­limi. Sú sem hefur umræð­una segir: „Dapurleg fyr­ir­sögn hjá Frétta­blað­inu! Hún er fyr­ir­liði kokka­lands­liðs­ins og einn besti kokkur lands­ins. Fjöl­miðlar geta gert betur árið 2020! Það þarf ekki alltaf að þakka körlum fyrir það sem konur gera.“

Flestir eru sam­mála um að fyr­ir­sögnin sé und­ar­leg í ljósi þess að mun fleiri áhuga­verðir punktar koma fram í við­tal­inu, þó ekki sé það langt, sem nota hefði mátt sem fyr­ir­sögn. Einstaka eru á því að fyr­ir­sögnin hafi verið sniðug til að vekja athygli á við­tal­inu. Margir eru þó á því að hægt sé að fjalla um konur í fjöl­miðlum, án þess að þurfi að þakka mönnum þeirra fyrir fram­lag kvenn­anna.

Snædís segir í færslu á Facebook að það hafi verið for­rétt­indi að kom­ast í flott við­tal í Frétta­blað­inu og ræða afrekið sem íslenska kokka­lands­liðið vann sér inn núna í Þýska­landi á Ólymp­íu­leik­unum.

„Hins­vegar er ég rosa­lega ósatt með fyr­ir­sögn­ina á grein­inni þar sem þetta er ekk­ert tengt keppn­inni sjálfri þrátt fyrir að mér finn­ist ég að sjálf­sögðu heppin með mann­inn minn en ástæða þess er ekki að hann skuli vera kokkur. Smærra letrið á betur við grein­ina,“ segir Snædís og vísar þar til þess að hana dreymdi um að verða fata­hönn­uður, en elda­mennskan hafi verið þeim draumi yfir­sterk­ari.


Á meðal þeirra sem deila við­tal­inu á Facebook-síðu Snædísar er Eygló Harð­ar­dóttir fyrrum þing­maður og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Skrifar hún: „Einn allra besti kokkur heims og fyr­ir­liði kokka­lands­liðs­ins sem náði besta árangri sem liðið hefur náð á Ólymp­íu­leik­unum í mat­reiðslu er í við­tali og fyr­ir­sögnin er: „Heppin að eiga kokk sem kærasta.“ Við hljótum að geta gert betur árið 2020 en að þakka sífellt körlum það sem konur gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins