„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir of mikla orku fara í að efna til átaka og skapa tortryggni

Eftir árang­ur­lausan fund vegna deilu Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hjá Rík­is­sátta­semj­ara í gær segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri mikil von­brigði að ekki gangi hraðar að ná samn­ingum. Hann segir að allir við samn­inga­borðið hafi sama mark­mið: „Að leggja mesta áherslu á hækkun lægstu launa og sér­stak­lega huga að mik­il­vægum kvenna­stéttum í umönn­un­ar­störfum og leik­skólum.“

Dagur segir í færslu á Facebook að honum þyki of mikil orka fara í að efna til átaka. „Ég vildi óska að sami kraftur væri settur í samn­inga­gerð­ina og ítrekað virð­ist fara í skeyta­sendn­ingar í minn garð og samn­inga­nefndar borg­ar­innar.“

Í færslu sinni segir hann einnig að for­ysta Eflingar hafi reynt að skapa tor­tryggni um hvort til­boð Reykja­vík­ur­borgar sé ekki það sama við samn­inga­borðið og kynnt hefur verið opin­ber­lega.

„Því er ein­falt að svara: að sjálf­sögðu. Tilboð borg­ar­innar myndi hækka meðal grunn­laun almennra starfs­manna á leik­skólum úr 310 þús í 420 þús á mán­uði. Ofan á þessar tölur koma álags­greiðslur sem hafa verið greiddar á leik­skólum og eiga að halda áfram og verða heild­ar­laun í lok samn­ings­tím­ans því 460 þús. á mán­uði. Þetta er gott til­boð um mikla hækkun lægstu launa sem er hér með ítrekað. Fyrir ófag­lærða deilda­stjóra á leik­skóla úr röðum Eflingar myndu grunn­laun hækka í 520 þús. að með­al­tali á mán­uði. Með áður­nefndum álags­greiðslum eru heild­ar­laun þessa hóps 572 þús á mán­uði,“ útskýrir Dagur.

„Þetta er gott til­boð um mikla hækkun lægstu launa sem er hér með ítrekað.“

Sólveig segir Dag lofa öllu fögru í samningaherberginu

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hafði greint frá því að hún væri bjart­sýn á að hægt yrði að semja vegna ummæla Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í fjöl­miðlum fyrir helgi. Hún sagði ummæli hans vera merki um að borgin sé til­búin til að koma betur til móts við félaga Eflingar í þeirra kjara­bar­áttu.

Eftir árang­ur­lausan fund­inn hjá rík­is­sátta­semj­ara sagði hún svo tíma „fyrir leiki“ vera runn­inn út og bætti við að það væri leitt að Reykja­vík­ur­borg skynji það ekki.“

Í til­kynn­ingu Eflingar eftir fund­inn var vísað í orð Sól­veigar sem segir borg­ar­stjóra hafa lofað öllu fögru í fjöl­miðlum en það sem ger­ist í samn­inga­her­berg­inu sé ekki í neinu sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins