„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gagnrýna umfjöllun Íslands í dag: „Tóku þátt í ofbeldi gegn þolanda ofbeldis og barni hennar“

Hópurinn Líf án ofbeldis gagn­rýnir umfjöllun Íslands í dag á Stöð 2 harð­lega þar sem rætt var við Kolbrúnu Önnu Jóns­dóttir. Í þætt­inum sagði Kolbrún frá atburð­ar­rás sem varð til þess að hún var ákærð fyrir lík­ams­árás á barn­s­móður eig­in­manns síns. Í þætt­inum ræddi Kolbrún einnig mál eig­in­manns síns, Ólafar William Hand, sem hlaut dóm árið 2019 fyrir ofbeldi gegn barns­móður sinni.

Viðtalið við Kolbrúnu var sýnt í gær. Frosti Logason tók við­talið við Kolbrúnu.

Sigrún Sif Jóels­dóttir, ein talskvenna hóps­ins Líf á ofbeldis, tjáir sig um þátt­inn á Facebook-síðu sinni. Í færslu sinni bendir hún á að „skautað hafi verið fram hjá því“ að greina nægi­lega vel frá dóm­inum sem Ólafur hlaut.

„Í þætt­inum Ísland í dag þar sem spilað var við­tal við eig­in­konu Ólafs Hand og fjallað var um sak­fell­ingu yfir Ólafi og ákæru á hendur þeim hjónum í kvöld er alfarið skautað fram­hjá því að nefna fyrir hvað Ólafur var sak­felldur og á hvaða grunni sem hlýtur að vera grund­vall­ar­at­riði í fjöl­miðlaum­fjöllun um málið. Rétt er að halda því til haga að í dóm­inum yfir Ólafi William Hand kemur fram að hann hafi tekið barns­móður sína háls­taki, þrengt ítrekað að hálsi hennar og hrint henni þannig að hún féll í gólfið og að gögn og myndir af bráða­mót­töku LSH leiði í ljós „marga yfir­borðsá­verka á hálsi, tognun og ofreynslu á háls­hrygg, yfir­borðsá­verka á bak­vegg og brjóst­kassa“,“ skrifar Sigrún.

Hópurinn hafði fyrr í vakið athygli á umfjöll­un­inni og gagn­rýndu að til stæði að sýna þátt­inn á „besta tíma í sjón­varpi“.

„Síðan hvenær fá eig­in­konur dæmdra ofbeld­is­manna plat­form á besta tíma í sjón­varpi allra lands­manna til þess að lýsa yfir sak­leysi þeirra? Mega eig­in­konur dæmdra nauð­gara þá kannski gera ráð fyrir að fá slíkt pláss líka? Við for­dæmum Stöð 2 fyrir að taka þátt í að gefa þessu fólki end­ur­tekið rými í fjöl­miðlum til þess að beita barn og konu sam­fé­lags­legu ofbeldi,“ var skrifað í færslu sem birt­ist á mánu­dag­inn.

Aktí­vist­inn og bar­áttu­konan Elísabet Ýr er einnig ein þeirra sem hefur gagn­rýnt umfjöllun Íslands í dag. „Mig langar bara segja það upp­hátt að Sindri Sindra­son og Frosti Logason tóku þátt í ofbeldi gegn þol­anda ofbeldis og barni hennar í kvöld. Með þætti Ísland í dag voru þeir að beita hana og barnið ofbeldi. Fokkið ykkur.“

Bryn­hildur Yrsa spyr hverjir ætla að segja upp áskrift­inni að Stöð 2 eftir umfjöllun Frosta.

Um 80 konur, stuðn­ings­hópur ó­lög­ráða barns, gáfu í gær út yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef Vísis þar sem við­talið var gagn­rýnt. „Að fjöl­mið­ill, með sitt vald, taki jafn skýra afstöðu í jafn við­kvæmu máli er eins­dæmi. Stöð 2 veitir hjón­unum sér­með­ferð sem varla nokk­urt annað sakað fólk hefur áður fengið,“ segir meðal ann­ars í þeirri yfr­lýs­ingu.

Þess má geta að upp­haf­lega stóð til að sýna þátt­inn 24. febr­úar.

„Í dag var tekin sú ákvörðun að fresta sýn­ingu þess­ari umfjöllun. Við höfum rætt við báða máls­að­ila og stefnum að því að fjalla um þetta mál síðar í vik­unni og þá munu báðir máls­að­ilar eiga þess kost að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi,“Sagði Frosti í svari sínu til Hring­brautar.

Þátt­ur­inn var þá á dag­skrá í gær­kvöldi og var tekið fram í lok hans að barns­móðir Ólafar hafi ekki viljað tjá sig fyrir þátt­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samféagsmiðlar

Stefán borðaði fyrir tæpar 300 þúsund krónur: „Ekki Kobe-nautasteik með truflumús og amfetamíni“
Innlentsamféagsmiðlar

Stefán borð­aði fyrir tæpar 300 þús­und krónur: „Ekki Kobe-nauta­steik með trufl­umús og amfetamíni“

Stefán Pálsson, sagn­fræð­ingur, greinir frá því að hann hafi borðað sína dýr­ustu mál­tíð í gær. Sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson greinir frá því á Facebook að hann hafi óvart greitt 285 þús­und krónur fyrir ýsu sem hann keypti í fisk­búð, sem hann borð­aði svo með bestu lyst. Bankinn hans sagði að þetta myndi hugs­an­lega lag­ast af sjálfu sér en ann­ars ætti hann...
Netverjar ólmir í hálsmenið sem Obama skartaði
Heimur

Net­verjar ólmir í háls­menið sem Obama skart­aði

Háls­menið sem Michelle Obama skart­aði í gær hefur vakið mikla athygli. Ávarpið sem Michelle Obama, fyrr­ver­andi for­seta­frú Banda­ríkj­anna, flutti á lands­fundi Demókra­ta­flokks­ins í gær hefur vakið athygli. Í ávarp­inu, sem var streymt á Netið, sagði Obama að Donald Trump væri rangur for­seta fyrir Banda­rísku þjóð­ina og að vont gæti versnað ef þjóðin mun ekki knýja fram breyt­ingar í næstu for­seta­kosn­ingum....
Hörð viðbrögð við niðurstöðu atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu: „Illt í hjartanu í dag“
Innlent

Hörð við­brögð við nið­ur­stöðu atkvæða­greiðslu um afglæpa­væð­ingu: „Illt í hjart­anu í dag“

Frumvarp þing­manna Pírata um afglæpa­væð­ingu vímu­efna­neyslu var fellt á Alþingi í nótt þegar 28 þing­menn greiddu atkvæði á móti frum­varp­inu, 18 þing­menn greiddu atkvæði með. Með frum­varp­inu var lagt til varsla á neyslu­skömmtum fíkni­efna yrði ekki lengur refsi­verð. Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hefur vakið mikli við­brögð og hefur mikil umræða um málið skap­ast á sam­fé­lags­miðlum í dag, not­endur Twitter hafa til að...
Guðmundur Franklín segir að allir vinstri menn séu hálfgerðir sóðar
Innlent

Guð­mundur Franklín segir að allir vinstri menn séu hálf­gerðir sóðar

Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi segir að allir vinstri menn séu hálf­gerðir sóðar, nátt­úru­vernd­ar­sóðar og krefst þess jafn­framt að kosn­inga­stjóri Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta biðj­ist afsök­unar á því að hafa kallað hann ras­ista. „Þarna í gær kemur mark­aðs­mað­ur­inn hans, kosn­inga­stjór­inn Sveinn Waage, þetta er mik­ill maður og hann er þarna í ein­hverjum þætti á einni stöð­inni, og hann gefur í skyn...
Dorrit segir Vigdísi vera merkasta forseta Íslands
Innlentsamféagsmiðlar

Dorrit segir Vigdísi vera merkasta for­seta Íslands

Vigdís Finn­boga­dóttir fyrr­ver­andi for­seti Íslands fagnar 90 ára afmæli í dag. Afmælis­kveðjum rignir yfir hana í til­efni dags­ins. Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú, eig­in­kona Ólafs Ragnars Gríms­sonar er ein þeirra sem sendir Vigdísi kveðju. Dorrit birtir mynd af Vigdísi á Instagram og óskar henni til ham­ingju með dag­inn. Í kveðj­unni segir Dorrit Vigdísi vera „Iceland’s greatest pres­ident“ eða merkasta for­seta Íslands....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins