„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fannst ég þurfa að elta mína hæfileika

Margir afrek­s­í­þrótta­menn, sér­stak­lega í ein­stak­lings­í­þróttum, standa höllum fæti fjár­hags­lega þegar ferl­inum lýkur og hafa ekki áunnið sér þau launa­tengdu rétt­indi og þá stöðu á vinnu­mark­aði sem jafn­aldrar þeirra hafa gert. Júd­ó­kapp­inn Þormóður Árni Jónsson seg­ist m.a. hafa unnið mikið á sumrin til að láta dæmið ganga upp.

Fannst ég þurfa að elta mína hæfileika
|zvddvdv

Þormóður Árni fór á þrenna Ólymp­íu­leika fyrir Íslands hönd. Spurður hvernig hann hafi fjár­magnað æfingar og þátt­töku í mótum seg­ist hann alla tíð hafa unnið mikið á sumrin. Hann hafi svo tekið ströng æfinga­tíma­bil fyrir stór­mót. „Í aðdrag­anda Ólymp­íu­leika helg­aði ég mig alveg íþrótt­inni og hætti í vinn­unni,“ útskýrir hann.

Þormóður segir að fjöl­skyldan hafi lagt mikið á sig til að styðja við bakið á honum. Styrkir úr Afreks­sjóði hafi hins vegar alveg staðið undir keppn­is­út­gjöldum. Hann seg­ist alltaf hafa vitað að hann yrði aldrei hálaun­aður atvinnu­maður í júdó. Það gefi hins vegar auga­leið hann hefði getað ein­beitt sér meira að íþrótt­inni hefði hann ekki þurft að vinna svona mikið inn á milli. Ást hans á júdó hafi dregið hann áfram. „Mér fannst ég þurfa að elta mína hæfi­leika.“

Greiddi ekki í lífeyrissjóð í 10 ár

Þormóður seg­ist vita að fjár­mögnun sé erfið fyrir marga íþrótta­menn. Hann hafi til að mynda brugðið á það ráð að búa lengi í Austur-Evrópu, þar sem ódýr­ara var að lifa. Sjálfur hafi hann svo rekið sig á það þegar ferl­inum lauk að hafa ekki lokið háskóla­námi sem þurfti til að geta sótt um þau störf sem hann hafði auga­stað á. Í ofaná­lag hafði hann enga alvöru­starfs­reynslu.

„Ég er ágætis náms­maður og hefði senni­lega útskrif­ast með master 25 ára, ef ég hefði ekki verið í júdó.“ Hann skellti sér í meist­ara­nám í mark­aðs­fræði- og alþjóða­við­skiptum, að lok­inni þátt­töku á Ólymp­íu­leik­unum 2016, og lauk því námi. Áður hafði hann lokið BA-námi. Þormóður er í dag fram­kvæmda­stjóri Júd­ósam­bands Íslands.

Þormóður Árni Jónsson.

Styrkir eru ekki skil­greindir sem launa­tekjur. Þó að Þormóður hafi verið dug­legur að vinna sam­hliða æfingum seg­ist hann hafa farið á mis við heilan ára­tug þegar kemur að því að greiða í líf­eyr­is­sjóð, sem hann hefði ann­ars gert sem launa­maður. „Það er umtals­verður biti,“ segir hann og bætir við: „Ég á líka þrjú börn en fór aldrei í fæð­ing­ar­or­lof.“ Rétt til fæð­ing­ar­or­lofs hafa aðeins þeir sem hafa verið í vinnu. „Ég lét mig aldrei dreyma um að geta farið í fæð­ing­ar­or­lof.“ Hann seg­ist vita að þetta reyn­ist mörgum íþrótta­mönnum erfitt.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins