„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gómsæt og tignarleg súkkulaðikaka í tilefni af afmæli Frú Vigdísar Finnbogadóttur

Ein virtasta og flottasta kona Íslands­sög­unnar á afmæli í dag, Frú Vigdís Finn­boga­dóttir. Hún var fyrsta konan í heim­inum til að verða kjörin for­seti lýð­veld­is­ríkis og veitti konum um heim allan inn­blástur. Vigdís er frá­bær fyr­ir­mynd og var flottur leið­togi í for­seta­tíð sinni og er reyndar enn. Við hér á rit­stjórn Gest­gjafans óskum henni inni­lega til ham­ingju með 90 árin og deilum um leið einni for­seta­legri og afar bragð­góðri súkkulaði­köku­upp­skrift í til­efni dags­ins.

Gómsæt og tignarleg súkkulaðikaka í tilefni af afmæli Frú Vigdísar Finnbogadóttur
Vigdís Finn­boga­dóttir.

Súkkulaði­kaka með ljósu súkkulaði­kremi
u.þ.b. 12-16 sneiðar

 Botnar:
75 g smjör
315 g sykur
180 g hveiti
60 g kakó
1 tsk. lyfti­duft
1 tsk. mat­ar­sódi
¼ tsk. salt
175 ml mjólk, við stofu­hita
2 egg, við stofu­hita
175 ml heitt vatn

Hitið ofn í 175°C. Smyrjið tvö 15 cm köku­form með mjúku smjöri og dustið með örlitlu hveiti. Bræðið smjör og setjið til hliðar. Setjið sykur, hveiti, kakó, lyfti­duft, mat­ar­sóda og salt í hræri­vél­ar­skál og hrærið saman. Bætið við smjöri, mjólk og eggjum. Hrærið saman á miðl­ungs­hraða þar til allt er vel sam­lagað. Bætið heita vatn­inu saman við og hrærið. Deigið verður þunnt, engar áhyggjur, það á að vera þannig. Skiptið deig­inu á milli for­manna. Bakið í 30-40 mín. Stingið tann­stöngli í miðj­una á formunum, ef hann kemur hreinn út er kakan til­búin. Látið kök­urnar kólna í formunum í 15 mín. og látið þær kólna alveg á vír­rekka.

Ljóst súkkulaði­krem:
150 g mjólk­ursúkkulaði,saxað gróft
150 g 70% súkkulaði, saxað gróft
450 g smjör, við stofu­hita
140 g flór­sykur
½ tsk. salt
½ tsk. vanillu­dropar

Bræðið súkkulaði í örbylgju­ofni eða í vatns­baði. Setjið til hliðar og látið súkkulaðið ná stofu­hita. Setjið smjör í hræri­vél­ar­skál og hrærið þar til smjörið er ljóst og létt. Bætið flór­sykri, salti og vanillu­dropum saman við og hrærið saman í 1 mín. Bætið súkkulaði saman við og hrærið í 1 mín., eða þar til kremið er orðið létt.

Notið hníf til að jafna botn­ana örlítið ef þeir hafa risið mikið í miðj­unni. Skerið í tvennt, þannig að þið endið með fjóra þynnri köku­botna. Setjið einn köku­botn á köku­disk og smyrjið með ljósu súkkulaði­kremi. End­ur­takið ferlið þar til allir botn­arnir eru komnir saman með kremi á milli. Smyrjið þunni lagi af kremi yfir alla kök­una með löngum spaða. Setjið kök­una inn í kæli í 10 mín. en hafið skál­ina með krem­inu í stofu­hita. Smyrjið rest­inni af krem­inu yfir alla kök­una og dreifið vel úr. Til að fá slétta áferð á kremið er gott að dýfa spað­anum í volgt vatn, þurrka spað­ann og smyrja krem­inu. Setjið kök­una í kæli á meðan súkkulað­hjúp­ur­inn er gerður. Það auð­veldar súkkulaði­hjúpnum að harðna fljótt eftir að hann er settur á kök­una eftir að hún kemur úr kæli, þannig að ekki sleppa því að setja kök­una inn í kæli á milli.

 Súkkulaði­hjúpur:
75 g af 70% súkkulaði
45 g smjör
Maltes­ers-kúlur til skauts

Setjið súkkulaði og smjör saman í pott og bræðið saman á lágum hita. Setjið til hliðar þar til blandan nær stofu­hita. Hjúp­ur­inn á ekki að vera orð­inn stífur í pott­inum. Hellið súkkulaði­hjúpnum yfir kök­una þannig að hann leki eftir hlið­unum. Ef það er afgangur af ljósa súkkulaði­krem­inu er gott að setja það í sprautu­poka með stjörnu­laga stút og skreyta kök­una með krem­inu. Myljið Maltes­ers-kúlur yfir kök­una og berið fram.

Upp­skrift/Folda Guð­laugs­dóttir
Stílisti/Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gestgjafinn

Geggjuð uppskeruhandbók Gestgjafans er komin út
Mannlífið

Geggjuð upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans er komin út

Í þessu blaði er fjöld­inn allur af góm­sætum og spenn­andi réttum úr upp­sker­unni ásamt góðum fróð­leik og ráðum til dæmis um það hvernig á að grilla fisk. Stór þáttur með ein­stak­lega góðum og áhuga­verðum laxa og sil­unga­upp­skriftum allt frá bök­uðum engi­fer og soja­laxi til bleikju með möndlum og blóm­káli. Að auki er að finna í blað­inu súpur úr upp­sker­unni, græn­met­is­bökur,...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður