„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir meðalveginn bestan: „Allar öfgar geta verið vafasamar“

Linda Hilm­ars­dóttir hefur rekið heilsu­rækt­ar­stöð­ina Hress í Hafn­ar­firði ásamt eig­in­manni sínum um ára­bil og þar vinnur öll fjöl­skyldan. Hún segir ánægju­leg­ustu stund­irnar þeirra vera við mat­ar­borðið og að fiskur og pasta­réttir séu í upp­á­haldi.

Segir meðalveginn bestan: „Allar öfgar geta verið vafasamar“
Linda Hilm­ars­dóttir

Rétt­ur­inn sem Linda útbjó fyrir okkur er fljót­legur og hún notar hann stundum þegar hún er með dög­urð eða sem for­rétt. Linda tekur flat­kökur upp á annað plan og finnst að fólk ætti að nota þær meira spari og setja eitt­hvað gott á þær eins og hún gerir hér. Linda borðar allan mat en leggur áherslu á fersk­leik­ann.

„Ég legg mikið upp úr því að borða morg­un­mat og salat verður oft­ast fyrir val­inu í hádeg­inu eða afgangar frá kvöld­inu áður. Ég elda nán­ast alltaf kvöld­mat og reyni að sýna kjark og þor með því að vinda mér í alls konar til­raunir með nýja rétti. Stelp­urnar mínar æfa íþróttir og koma svangar heim og því nauð­syn­legt að elda góðan mat á kvöldin. Ég legg áherslu á nýtni og gott hrá­efni og vil fara vel með það sem keypt er inn fyrir heim­ilið. Ég er farin að leggja meira upp úr því að nýta afganga en áður,“ segir Linda.

Næring nauðsynleg fyrir átökin

Hún segir með­al­veg­inn alltaf bestan og að öfgar geti verið vara­samar. Sem dæmi notar hún kókosolíu mest sem raka­gef­andi smyrsl en minna í mat­ar­gerð en notar hins­vegar ólífu­olíu meira. Chia-fræ notar Linda í hina og þessa rétti og seg­ist hafa trú á að þau séu góð fyrir okkur.

„Við verðum að nær­ast vel fyrir átökin í rækt­inni. Ég fylgist vel með öllu varð­andi matar­æði og slíkt en tel að með­al­veg­ur­inn sé alltaf bestur. Borða fjöl­breyttan mat, sem minnst unna vöru og elda frá grunni. Allar öfgar geta verið vafa­samar. Það þarf eðal­bensín í kropp­inn ef vel á að ganga. Hreyfing er, að mínu mati, alltaf dýr­mæt ein og sér upp á hreyfi­getu, heilsu og and­legt ástand að gera.

„Við verðum að nær­ast vel fyrir átökin í rækt­inni.“

Matar­æðið fylgir fast á eftir með öllum sínum fjöl­breyti­leika. Ég reyni að virða allar leiðir sem fólk vill fara með matar­æði sitt. Mat­ar­kúrar telj­ast oft ekki af hinu góða, þeir henta kannski sumum en þeir eru ekki fyrir mig. Ég vil borða og njóta en hreyfi mig þeim mun meira á móti. Bestu með­mælin varð­andi árangur í rækt­inni er heil­brigður verkja­laus lík­ami. Það verða allir að hreyfa sig, ungir sem aldnir. Enda fyr­ir­byggj­andi fyrir flesta sjúk­dóma. Hollt og gott matar­æði skilar fólki síðan að mark­miðum sínum,“ segir Linda. „Sér­stak­lega ef fólk vill grenn­ast og byggja upp góðan vöðvamassa.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Flatkaka í hæstu hæðum

dugar fyrir 2 flat­kökur

„Fyrir þá sem eru vegan hentar þessi réttur vel, en þá mæli ég með vegan-smjöri eða smjör­líki til steikja upp úr og smá­vegis salti. Vegan-rjóma­ost­ur­inn frá Oatly er góður til að steikja svepp­ina upp úr. Hægt er að fá vegan-flat­kökur svo allir ættu að ganga glaðir að borði,“ segir Linda.

3-4 msk. smjör eða olía til steik­ingar
200 g sveppir, gott að blanda saman tveimur teg­undum af sveppum
1 ½ dl rjómi eða pip­arostur
1/2 grænt epli, smátt skorið
2 dl bals­a­mikediks­gljái
½ msk. hun­ang
pipar og salt eftir smekk
radísu­spírur til skreyt­ingar

Skerið hverja flat­köku í þrjá hluta. Steikið upp úr smjöri á pönnu á báðum hliðum og leggið á á disk. Skerið svepp­ina frekar smátt niður og steikið upp úr smjöri eða olíu í um 4 mín.

Hellið rjóm­anum yfir og sjóðið niður með svepp­unum. Látið krauma í smá­stund eða þar til rjóm­inn hefur þykknað. Bætið eplunum saman við, bragð­bætið með pipar, salti eða smá­vegis sojasósu eftir smekk.

Bætið bals­a­mikediki og hun­angi saman við og hrærið vel saman, passið að blandan verði ekki of þykk. Setjið sveppa­rétt­inn á flat­köku­sneið­arnar. Hellið gljá­anum yfir og allt um kring. Skreytið með radísu­spír­unum.

Texti / Bergþóra Jóns­dóttir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gestgjafinn

Geggjuð uppskeruhandbók Gestgjafans er komin út
Mannlífið

Geggjuð upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans er komin út

Í þessu blaði er fjöld­inn allur af góm­sætum og spenn­andi réttum úr upp­sker­unni ásamt góðum fróð­leik og ráðum til dæmis um það hvernig á að grilla fisk. Stór þáttur með ein­stak­lega góðum og áhuga­verðum laxa og sil­unga­upp­skriftum allt frá bök­uðum engi­fer og soja­laxi til bleikju með möndlum og blóm­káli. Að auki er að finna í blað­inu súpur úr upp­sker­unni, græn­met­is­bökur,...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður