„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

3800 nemendur skráðir í sumarnám háskólanna

3800 nemendur skráðir í sumarnám háskólanna

Íslenskir háskólar bjóða upp á fjöl­breytt sum­ar­nám í sumar og fer skrán­ing í námið afar vel af stað, en sam­kvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins hafa rúm­lega 3800 nem­endur skráð sig í sum­ar­nám hjá háskól­unum sjö. Enn er opið fyrir umsóknir og því má ætla að þeim fjölgi.

Fjöldi fram­halds­skóla býður einnig upp á sum­ar­nám.

Á háskóla­stigi eru yfir 200 náms­leiðir á öllum fagsviðum í boði. Flest nám­skeið­anna eru ein­inga­bær eða nýt­ast til frekara náms. Þær náms­leiðir henta meðal ann­ars nem­endum sem ljúka námi úr fram­halds­skóla og vilja sækja und­ir­bún­ings­nám fyrir háskóla­nám, öðrum fram­tíðar háskóla­nemum, núver­andi háskóla­nemum, sem og ein­stak­lingum sem vilja styrkja stöðu sína á vinnu­mark­aði, brúa færni­bil eða skipta um starfs­vett­vang.

Lengd sum­ar­nám­skeið­anna er frá einni og upp í 10 vikur og er bæði stað- og fjar­nám í boði og er skrán­inga­gjöldum haldið í lág­marki.

„Þetta eru gleði­fréttir! Markmið stjórn­valda er að efla menntun og virkni í sam­fé­lag­inu og aðgerðir í þá veru vegna COVID-19 skila góðum árangri. 800 millj­ónum kr. er varið til að fjölga náms­kostum í fram­halds- og háskólum og fram­boðið er virki­lega spenn­andi. Ég tel að snör við­brögð Lána­sjóðs íslenskra náms­manna hafi einnig hjálpað en lág­marks­fram­vindu­krafan fyrir sum­ar­námið er ein­ungis ein ein­ing,“ segir Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Lána­sjóður íslenskra náms­manna hefur brugð­ist við áhrifum COVID-19 með marg­vís­legum aðgerðum til hags­bóta fyrir náms­menn, meðal ann­ars með því að rýmka reglur um mat á und­an­þágum og lengja umsókna­fresti. Umsókn­ar­frestur vegna lána fyrir sum­ar­námi er til 15. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nám

Erlendir nemar hætta við komu vegna COVID-19
Innlent

Erlendir nemar hætta við komu vegna COVID-19

Er­lend­ir nem­end­ur sagðir hætta við að koma í nám í HÍ í haust vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Starfs­fólk á skrif­stofu alþjóða­sam­skipta Há­skóla Íslands hefur orðið vart við að erlendir nem­endur séu að hætta við nám við skól­ann vegna heims­far­ald­urs­ins. „Marg­ir skól­ar hafa þegar tekið þá ákvörðun að taka fyr­ir skipti­nám, að minnsta kosti á haust­miss­eri, og heim­ila hvorki sín­um nem­end­um að...
Sniðug og ódýr sumarnámskeið Listaháskólans
Innlentnám

Sniðug og ódýr sum­ar­nám­skeið Lista­há­skól­ans

Lista­há­skóli Íslands býður upp á gott úrval sum­ar­nám­skeiða og kostar aðeins þrjú þús­und krónur að sækja þau. Nám­skeiðin eru fyrir 18 ára og eldri en þeir sem eru með stúd­ents­próf geta tekið nám­skeiðin til ECTS-ein­inga. Á meðal þess sem í boði er má nefna nám­skeiðið Frum­kvöðla­starf innan skap­andi greina: Hvernig skapa ég fyr­ir­tæki í kringum list­ina? Það er hugsað fyrir...
Innlent

Ódýr og ókeypis sum­ar­nám­skeið – frá­bært úrval

Það eru ýmsir mögu­leikar á að gera gott úr sumr­inu 2020. Til að mynda gefst þeim sem bæta vilja við þekk­ingu sína ein­stakt tæki­færi til að sækja ódýr og líka ókeypis nám­skeið á vegum End­ur­mennt­unar Háskóla Íslands og edX.org. Mennta­mála­ráðu­neytið nið­ur­greiðir nám­skeiðin og kosta fólk því aðeins 3000 krónur en þau nám­skeið sem eru ókeypis eru í formi net­nám­skeiða af...
Innlent

800 millj­ónir í sum­ar­nám – „Óvenju­legar aðstæður kalla á óhefð­bundnar lausnir“

Stjórn­völd hafa ákveðið að veita 800 millj­ónum króna til fram­halds- og háskóla svo hægt sé að bjóða náms­mönnum upp á sum­ar­nám á kom­andi sumri. Er þetta gert til að sporna gegn atvinnu­leysi meðal ungs fólks og efla menntun. Gert er ráð fyrir 500 millj­ónum kr. í sum­ar­nám á háskóla­stigi og 300 millj­ónum kr. í sum­ar­nám á fram­halds­skóla­stigi. „Óvenju­legar aðstæður kalla...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins