„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bílferðir með börnum

Bílferðir með börnum

Hvort sem þú ætlar að keyra hring­inn eða bara í bústað þá getur bíl­ferð með litlum börnum reynst bæði erfið og ynd­is­leg. Lyk­il­at­riði er að und­ir­búa sig og börnin vel.

Verið leið­sögu­menn barn­anna ykkar. Fyrir ferð­ina er gott að afla sér upp­lýs­inga um merki­lega eða sögu­lega staði á leið­inni svo þið getið sagt börn­unum frá þeim. Setjið markið ekki of hátt hvað varðar dag­leiðir og látið börnin ráða för, þau gætu þurft að teygja oftar úr sér en í upp­hafi var gert ráð fyrir. Nýtið stoppin í smá­hreyf­ingu. Enginn hefur gott af því að sitja of lengi kyrr. Þegar þið farið út úr bílnum hlaupið aðeins um, farið í bolta­leik, sipp­keppni eða stoppið á leik­velli.

Gott nesti
Það getur verið fremur tak­markað úrval af holl­ustu í vega­sjoppum lands­ins og því er snið­ugt að útbúa nesti. Nið­ur­skorið græn­meti og ávextir, rús­ínur og hnetur, sam­lokur, vefjur og jógúrt eru mjög þægi­legar nest­is­lausnir.

Sniðugt er að taka með vatns­brúsa sem þið getið fyllt í stoppum. Það er miklu betra en að reiða sig á safa eða gos­drykki. Reynið að kom­ast hjá því að borða í bílnum, takið frekar stutt hlé á keyrsl­unni. Það er mun meiri hætta á því að það subb­ist niður og ekki er skemmti­legt þegar börn og sæti eru útötuð í ban­ana, kex­mylsnu eða súkkulaði. Fyrir utan hvað það er skemmti­legra að sitja við borð undir berum himni með fal­legt íslenskt lands­lag í bak­runni.

Und­ir­bún­ingur
• Mik­il­vægt er að leyfa börn­unum að taka þátt í und­ir­bún­ingnum. Látið þau til dæmis pakka niður í litla tösku fyrir sig og ekki skipta ykkur af því sem þau taka, jafn­vel þótt þau taki ein­hverja skrýtna hluti með sér.
• Fyrir lengri bíl­ferðir er gott að útbúa sér­staka hirslu fyrir barna­dótið í bílnum eða vagn­inum, til dæmis er hægt að fá slíkar sem hengdar eru aftan á fram­sæti. Þannig er auð­velt að finna dótið og ganga frá því að bíl­ferð lok­inni.
• Merkið bangsa og tusku­dýr vel með far­síma­núm­eri. Það er ekki skemmti­legt að þurfa að keyra til baka og leita að týndum bangsa.
• Ræðið við börnin þannig að þau viti hvað sé vændum, að nú þurfi þau að sitja í bíl í lengri tíma, og spyrjið þau hvernig þau vilji helst hafa ofan af fyrir sér.

Styttum okkur stundir
• Til er fjöld­inn allur af skemmti­legum leikjum sem koma sér vel í bíl­ferðum: Hver er mað­ur­inn? ekki þarf að taka neitt spil með heldur hugsar hver sér fræga mann­eskju og aðrir far­þegar giska á hvern hann hugsar um.
Frúin í Hamborg, klass­ískur leikur sem allir kunna. Einn er spurður hvað hann gerði við pen­ing­inn sem frúin í Hamborg gaf honum en ekki má segja já, nei, svart og hvítt.
Telja bíla­teg­undir eða liti, þá velur ver og einn sér bíla­teg­und eða lit og telur alla bíla af þeirri teg­und sem keyra fram hjá. Þið veljið tíma og þann sem finnur flesta bíl­ana af sinni teg­und vinnur.
Núm­era­plötu­leik­ur­inn, þá giska allir á fyrsta bók­staf­inn á núm­era­plötu á næsta bíl sem keyrir fram hjá. Sá sem giskar á rétt vinnur.
• Syngið með börn­unum.
• Leikja- eða spjald­tölvur geta komið að mjög góðu gagni þegar þol­in­mæðin er á þrotum hjá öllum í bílnum en reynið að halda þeim til haga þangað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu