„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég er þó ekki í félagi aldraðra feðra“

„Ég er þó ekki í félagi aldraðra feðra“
Guðni Th Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, og eig­in­kona hans, Eliza Reid, búa við mikið barna­lán. Þau eiga saman fjögur börn. Þau eru fædd með tveggja ára milli­bili, árin 2007, 2009, 2011 og 2013. Hann á eina dóttur frá fyrra hjóna­bandi. Hún er fædd árið 1994. Mikill ald­urs­munur er því á yngsta og elsta barni Guðna, eða 19 ár. Guðni segir að börnin tryggi ham­ingj­una. Það að yngri börnin eru fædd með tveggja ára milli­bili var ekki skipu­lagt.

„Við vissum að við vildum búa saman og eiga börn. Ég er þó ekki í félagi aldr­aðra feðra,“ segir hann og vísar til þess að hann var kom­inn á miðjan aldur þegar yngstu börnin fædd­ust.

Guðni tók fjall­göngu með rit­stjóra Mannlífs og segir frá æsku­ár­unum, fjöl­skyld­unni og föð­ur­miss­inum, for­seta­fram­boð­inu og emb­ætt­inu, mik­il­vægi lýð­heilsu og mörgu fleira.

Ekkert glæsilíf

Margir sjá emb­ætti for­seta Íslands í hyll­ingum og telja líf for­set­ans og fjöl­skyldu hans ein­kenn­ast af glæsi­leika og í flestu frá­brugðið því sem almenn­ingur lifir. Guðni segir að lífið á Bessa­stöðum sé í raun ósköp venju­legt fjöl­skyldu­líf barna­fjöl­skyldu. Þá njóti hann þess að geta óáreittur farið allra sinna ferða og blandað geði við fólk.

„Ég reyni að flétta saman starf mitt og fjöl­skyldu­líf eftir bestu getu. Það hefur oft­ast tek­ist bless­un­ar­lega vel en auð­vitað verður stundum eitt­hvað undan að láta. Börnin vita að ég hef skyldur og sýna því skiln­ing. Ég get nefnt sem dæmi að í gær­kvöld kom ég fram í sjón­varps­þætti en náði svo að bruna á fót­bolta­leik með einum syni mínum í Garðabæ. Ég náði síð­asta korter­inu. Svona kring­um­stæður gátu nú líka komið upp í mínu fyrra starfi en við Íslend­ingar búum við það lán að sá eða sú sem gegnir emb­ætti þjóð­höfð­ingja getur um frjálst höfuð strokið.“

Jafn­rétti ríkir á milli hjón­anna á Bessa­stöðum þegar kemur að heim­il­is­verkum og barna­stússi. Guðni seg­ist aðspurður kunna á þvotta­vél heim­il­is­ins og önnur þau tæki sem til staðar séu.

„Áður en ég fór á Bessa­staði skiptum við verk­unum sam­visku­sam­lega. Í dag höfum við starfs­fólk sem léttir undir með okkur eins og þörf krefur. Við höfum þó með­vitað reynt að láta þessa breyt­ingu á mínum starfs­högum ekki hafa of mikil áhrif á okkar dag­lega líf og höldum börnum okkar utan við sviðs­ljós fjöl­miðl­anna.“ segir Guðni, í við­tali við Mannlíf.

Ólafur Darri Ólafsson Mynd / Hallur Karlsson

Í helg­ar­blaði Mannlífs er einnig við­tal við Ólaf Darra Ólafsson leik­ara, sem við­ur­kennir að hann sé for­dekraður, feitur og frægur mið­aldra karl sem geti grátið yfir BYKO-aug­lýs­ingum. Hann seg­ist þola illa frekju og hroka og vill halda í sak­leysið í sjálfum sér. Í við­tali við Mannlíf ræðir hann sveifl­urnar á leik­ara­ferl­inum, meðal ann­ars prufu fyrir stór­mynd­ina Hobbit­ann þar sem hann seg­ist hafa gert upp á bak

Herra Hnetu­smjör. Mynd / Hallur Karlsson

Séð og Heyrt skoðar flúr fræga fólks­ins.

Í Mannlíf má einnig finna góm­sætar upp­skriftir úr eld­húsi Gest­gjafans, lífstíls­efni frá Vikunni, heim­ili og hönnun frá Hús og hýbýli, við­töl við tón­list­ar­menn í Albumm, tísku, skoð­anapistil og margt margt fleira.

Gríptu Mannlíf með þér á föstu­dag og eigðu nota­lega helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Dagur Kristjáns Eldjárns haldinn hátíðlegur á morgun – Skrautbúningur eiginkonunnar til sýnis
Menning

Dagur Krist­jáns Eldjárns hald­inn hátíð­legur á morgun – Skraut­bún­ingur eig­in­kon­unnar til sýnis

Til heið­urs Krist­jáns Eldjárns á fæð­ing­ar­degi hans á morgun 6. Desember mun Félag forn­leifa­fræð­inga og Þjóð­minja­safnið standa fyrir hátíð­ar­dag­skrá. Börn Krist­jáns munu afhenda skaut­bún­ing móður sinnar, Halldóru Eldjárn. Bún­ing­ur­inn verður upp­settur á gínu meðan á við­burð­inum stendur. Dag­skráin hefst kl. 12 í fyr­ir­lestr­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins. Harpa Þórs­dóttir Þjóð­minja­vörður ávarpar gesti og Guðrún Hildur Ros­enkjær og Ragn­heiður Trausta­dóttir flytja erindi. Af yðar...
Halla sendi Spánarkonungi samúðarkveðju vegna hamfaraflóðanna
Innlent

Halla sendi Spán­ar­kon­ungi sam­úð­ar­kveðju vegna ham­fara­flóð­anna

Halla Tóm­as­dóttir sendi Spán­ar­kon­ungi sam­úð­ar­kveðju sína í dag vegna ham­fara­flóð­anna í Valensía-hér­aði í suð­ur­hluta Spánar. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu að for­seti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir hafi sent í dag sam­úð­ar­kveðju sína og íslensku þjóð­ar­innar til Fil­ippusar VI Spán­ar­kon­ungs vegna þeirra ham­fara­flóða sem orðið hafa í Valensía-hér­aði í suð­ur­hluta Spánar. Hátt á annað hund­rað manns hefur lát­ist í flóð­unum og...
Segir ekki sjálfgefið að Halla veiti Bjarna forystu: „Ef meirihluti á þingi vill annað ræður hann“
InnlentForseti Íslands

Segir ekki sjálf­gefið að Halla veiti Bjarna for­ystu: „Ef meiri­hluti á þingi vill annað ræður hann“

Össur Skarp­héð­ins­son segir stjórn­skipu­lega skyldu for­seta Íslands að ræða við alla for­menn flokka áður en hún tekur ákvörðun um fram­haldið. Segir hann meiri­hluta á Alþingi ráða, ekki Bjarni Bene­dikts­son. Nú bíða Íslend­ingar með önd­una í háls­inum eftir að fundi Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Höllu Tóm­as­dóttur for­seta á Bessa­stöðum ljúki en hann hófst um klukkan 16:00 í dag. Össur Skarp­héð­ins­son fyrrum...
Forseti Íslands segist þurfa leggjast undir feld: „Mun svo gera grein fyrir ákvörðun minni síðar“
InnlentForseti Íslands

Forseti Íslands seg­ist þurfa leggj­ast undir feld: „Mun svo gera grein fyrir ákvörðun minni síðar“

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu í sam­bandi við mögu­legt þing­rof og kom­andi kosn­ingar. Hægt er lesa til­kynn­ing­una hér fyrir neðan. „Nú í morgun gekk Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á minn fund og lagði fram til­lögu um þing­rof og í kjöl­farið almennar kosn­ingar til Alþingis í lok nóv­em­ber. Samkvæmt til­lögu ráð­herra situr rík­is­stjórnin fram til kosn­inga. Fallist ég...
Auður ver Höllu forseta: „Að tala dönsku með slælegum framburði gerir mann frekar þreytandi“
InnlentForseti Íslands

Auður ver Höllu for­seta: „Að tala dönsku með slæ­legum fram­burði gerir mann frekar þreyt­andi“

Auður Jóns­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands, sem hefur verið gagn­rýnd und­an­far­inn sól­ar­hring. Gagn­rýnin snýr að dönsku­kunn­áttu for­set­ans, eða skort á henni. Halla Tóm­as­dóttir og eig­in­maður hennar eru í opin­berri rík­is­heim­sókn í Kaup­manna­höfn um þessar mundir, ásamt sendi­nefnd og utan­rík­is­ráð­herra. Það vakti tals­verða athygli á sam­fé­lags­miðl­unum að Halla skyldi hafa að mestu talað ensku við kon­ungs­hjónin dönsku...
Forsetahjónin í ríkisheimsókn til Danmerkur – Styrkja söguleg tengsl og efla náið samband þjóðanna
InnlentForseti Íslands

For­seta­hjónin í rík­is­heim­sókn til Dan­merkur – Styrkja sögu­leg tengsl og efla náið sam­band þjóð­anna

Forseti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, og Björn Skúlason, eig­in­maður hennar, halda í dag til Dan­merkur vegna rík­is­heim­sóknar sem hefst í Kaup­manna­höfn á morgun, þriðju­dag­inn 8. októ­ber. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dótttir utan­rík­is­ráð­herra verður með í för ásamt opin­berri sendi­nefnd. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að hefð sé fyrir því að fyrsta rík­is­heim­sókn nýs for­seta í emb­ætti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins