„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Var lengi að sigrast á feimninni

Var lengi að sigrast á feimninni

„Ég skal koma í við­tal við Mannlíf en legg til að við göngum á Úlf­ars­fell og við­talið fari þar fram,“ svarar Guðni Th. Jóhann­es­son Mannlífi um við­tal fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar.

Þetta skil­yrði for­set­ans var í senn kær­komið og sjálf­sagt. Ég hafði tveimur árum fyrr farið þess á leit við for­set­ann að hann yrði eins­konar leynig­estur í göngu Fyrsta skrefs Ferða­fé­lags Íslands á fjallið. Það var með hálfum huga að ég bar upp erindið við hann þá daga en for­set­inn sam­þykkti mér til gleði. Guðni fór á kostum á efsta tindi þar sem hann flutti tölu fyrir 70 manna hóp og sagði frá næstum óbæri­legri feimni sinni á ung­lings­árum.

Við höfðum ákveðið að leggja upp frá skóg­rækt­inni í Mos­fellsbæ kl.12 á hádegi. Ég var mættur ásamt ljós­mynd­ara og hund­inum Tinna þegar for­set­inn sendi skila­boð á Messen­ger um að hann næði ekki að mæta fyrr en 12:15. Nokkru síðar sendi hann önnur um að þetta yrði lík­lega 12:17. Við biðum rólegir. Hvítur fjöl­skyldu­bíll birt­ist á bíla­stæð­inu. Út stígur Guðni okkur til undr­unar. Við höfðum reiknað með svörtu glæsi­bif­reið­inni með skjald­ar­merk­inu og einka­bíl­stjór­anum. Guðni brosti þegar ég lýsti undrun minni og sagð­ist njóta þess vel að aka sjálfur þegar því væri komið við og þar að auki tengd­ist við­talið fram­boð­inu frekar en emb­ætt­is­störfum.

Við göngum af stað inn í skóg­inn. Ég gorta mig af því að þetta sé göngu­ferð númer 1.140 á þessa úti­vistar­perlu í miðri borg­inni frá því ég hóf, þjak­aður af offitu, reglu­bundnar fjall­göngur fyrir 10 árum.

„Sjáðu hve miklu máli lýð­heilsa í víðum skiln­ingi skiptir. Ef þú skoðar þitt eigið lífs­hlaup liggur fyrir hvaða þýð­ingu hreyf­ing og hollt matar­æði hefur. Lýð­heilsa er eitt mik­il­væg­asta mál þjóð­ar­innar,“ segir Guðni. Ég stað­festi það og upp­lýsi að lík­ast til væri ég dauður eða kom­inn í kör ef breyt­ingin á lífs­stílnum hefði ekki komið til þegar ég var 140 kílóa reyk­inga­maður í starfi sem rit­stjóri DV sem var eitt það mest streitu­vald­andi á Íslandi. Ég sé að mér og bendi for­set­anum á að við­talið ætti að snú­ast um hann en ekki mig.

„Ég greip af hend­ingu buff sem þarna lá í hrúgu.“

Alzheimer-buffið

Við göngum áfram stíg­inn í gegnum skóg­inn, áleiðis á Hákinn. Það rignir dálítið en ekki þó telj­andi. Hallur ljós­mynd­ari er him­in­lif­andi með að fá for­set­ann öðru­vísi en upp­stilltan í spari­fötum með bindi. Því meiri rign­ing, því betra. Guðni er með Alzheimer-buffið fræga um háls­inn. Mynd Sigurðar Boga blaða­manns af for­set­anum með buffið varð fræg. Guðni segir það hafa verið til­viljun að einmitt þetta buff með áletrun þeirra frómu Alzheimersamtaka hafi orðið fyrir val­inu þegar hann valdi sér buffið á sínum tíma þar sem hann var við­staddur vígslu á upp­lýs­inga­skilti við Skansinn á Bessa­staða­nesi, í hvass­viðri og kulda.

„Ég greip af hend­ingu buff sem lá í hrúgu heima og las á það. Alzheimersamtökin, það er gott að styðja þau, hugs­aði ég. Ég var hepp­inn að hafa ekki dottið niður á buff með föllnu bönk­unum,“ segir hann og hlær.

Við viljum ólmir sjá hann með buffið í enn­is­hæð. Eftir nokkrar for­tölur fellst for­set­inn á að setja það upp sem höf­uð­fat gegn því þó að þetta verði ekki for­síðu­mynd.

„Hugsaðu þér þau gæði sem við höfum inni í borg­inni með þennan unaðs­reit sem Úlf­ars­fellið er. Svo er það auð­vitað Heið­mörkin og Álfta­nesið,“ segir Guðni þegar við göngum áfram í gegnum skóg­inn.

Guðni Th, Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Ástúð og öryggi

Ég spyr um bernsku Guðna. Hann ólst upp með tveim bræðrum, Patreki og Jóhann­esi. For­eldrar hans eru Jóhannes Sæmunds­son, íþrótta­kenn­ari við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og fræðslu­full­trúi hjá Íþrótta­sam­bandi Íslands, og Margrét Thorlacius barna­kenn­ari. Var hann ham­ingju­samt barn?

„Já, ég naut ást­úðar og öryggis. Lífið sner­ist um skól­ann þegar hann var í gangi og svo íþróttir og leiki utan­húss. Pabbi var íþrótta­þjálf­ari og fór meðal ann­ars með frjáls­í­þrótta­hóp okkar Íslend­inga á Ólymp­íu­leik­ana í München 1972. Hann var um tíma aðstoð­ar­lands­liðs­þjálf­ari í körfuknatt­leik hjá Einari Bolla­syni og í hand­bolt­anum með Jóhanni Inga Gunn­ar­syni. Við bræð­urnir ólumst því upp í heimi íþrótt­anna.“

Patrekur, yngri bróðir Guðna, varð þjóð­þekktur sem lands­liðs­maður í hand­bolta. Var ekk­ert erfitt fyrir Guðna að standa í skugga litla bróður síns?

„Allt sem hann kann í hand­bolta lærði hann af mér,“ segir Guðni og skelli­hlær.

Guðni stund­aði hand­bolta af kappi sem ung­lingur og stefndi langt í þeirri íþrótt.

„Þegar ég var á aldr­inum 16 til 17 ára og Patti 12 ára gerði ég mér grein fyrir að hann var orð­inn betri en ég í hand­bolta. Þá sá ég að það væri meira vit í að snúa mér að ein­hverju öðru. Ég get samt sagt með réttu að það varð mér sem tán­ingi mikið áfall þegar ég átt­aði mig á því að ég yrði aldrei lands­liðs­maður í hand­bolta. Þetta er eitt af því sem ég hef hug­leitt í emb­ætti mínu sem for­seti að við verðum að finna rétt jafn­vægi í líf­inu. Við viljum fá ung­menni til að hreyfa sig og hafa þau í skipu­lögðu æsku­lýðs- og íþrótta­starfi en við getum ekki ein­göngu búið til afreks­fólk. Hvað verður um fjöld­ann er það sem við þurfum að huga að. Íþrótta­fé­lögin verða að huga ögn meira að því að láta alla njóta sín í íþrótta­starfi á eigin for­sendum. Auðvitað viljum við hlúa að þeim sem skara fram úr en við sjáum of mikið brott­fall ung­linga, 15 til 16 ára. Þá verða skilin svo skörp milli þeirra sem ná lengst og hinna sem sjá að það er ekki þeirra braut. Það þarf að finna þeim far­veg. Þar að auki er nú alls ekki alltaf aug­ljóst hverjir munu í raun skara fram úr þegar á reynir.

Föðurmissir

Mikið áfall dundi á fjöl­skyldu Guðna þegar hann var á ung­lings­aldri. Faðir hans lést fyrir aldur fram, aðeins 42 ára. Þetta er stærsta áfallið sem Guðni hefur orðið fyrir á lífs­leið­inni. Hann segir það liggja í augum uppi að föð­ur­miss­ir­inn hafi verið sár.

„En það var ekk­ert annað í boði en að takast á við sorg­ina og þann vanda sem lífið kastaði í mann. Pabbi fékk krabba­mein og hann lést eftir stutta sjúk­dóms­legu. En ég á góðar minn­ingar sem gott er að ylja sér við. Allt sem ég hef afrekað get ég þakkað for­eldrum mínum en allt sem miður hefur farið er á mína eigin ábyrgð. Mamma lyfti grettistaki og sá um okkur strák­ana þrjá og að okkur skorti aldrei neitt. Hún tryggði að við gætum látið drauma okkar ræt­ast. Hún hljóp undir bagga þegar ég vildi halda til náms í útlöndum. Þá hjálp­aði hún mér fjár­hags­lega en ég gat bless­un­ar­lega greitt henni það til baka síðar. Hún ók Patta á allar mögu­legar og ómögu­legar æfingar og keppnir í hand­bolt­anum og var honum stoð og stytta. Sama gegndi um Jóa bróður. Við eigum móður okkar mikið að þakka. Mamma varð átt­ræð í maí og er enn í fullu fjöri. Hún fer í langa göngut­úra á hverjum degi.“

Utan trúfélaga

Við stöndum á hryggnum undir Hákinn, næst­hæsta tindi Úlf­ars­fells. Við okkur blasir Reykja­vík­ur­borg og raunar mest­allt höf­uð­borg­ar­svæðið. Bessa­staðir eru í fjarska í sudd­anum. Við tölum um dauð­ann og trúna. Guðni for­seti seg­ist ekki leiða hug­ann að enda­lok­unum dags­dag­lega.

„Ég leiði ekki hug­ann að því hvað ger­ist þegar kallið kemur og læt hverjum degi nægja sína þján­ingu og á ekk­ert svar við því hvað er hinum megin. Ég er ekki í neinu trú­fé­lagi. Ég var skírður til kaþ­ólskrar trúar. Pabbi og mamma voru bæði kaþ­ólsk. Mæður þeirra voru góðar vin­konur í æsku og fundu báðar styrk, trú og sálu­hjálp í kaþ­ólskri kirkju. Þetta átti kannski sér­stak­lega við um Sig­ur­veigu, föð­ur­ömmu mína, sem lengi lá í glímu við berkla og var mjög leit­andi í trú­málum. Atvikin hög­uðu því svo þannig að börnin þeirra, þessir tveir kaþ­ólikkar, felldu hugi saman og ég til­heyrði kaþ­ólskri kirkju. Ég sagði mig svo úr söfn­uð­inum í kyrr­þey vegna fram­göngu kaþ­ólsku kirkj­unnar í sam­bandi við kyn­ferð­is­brot innan hennar. Þar fyrir utan þótti mér kirkjan of íhalds­söm í jafn­rétt­is­málum og varð­andi getn­að­ar­varnir. Ég komst ein­fald­lega að þeirri nið­ur­stöðu að mér liði betur með að vera ekki skráður í söfn­uð­inn.“

Guðni Th, Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Á toppi Úlfarsfells

Gangan upp fjallið í borg­inni heldur áfram. Við fikrum okkur upp gil í vest­ur­enda Úlf­ars­fells. Ég spyr for­set­ann hvort ekki sé hægt að beita umbun af ein­hverju tagi til að fá fólk til að hreyfa sig.

„Öll stýr­ing af þessu tagi vekur upp umræðu og ágrein­ing í sam­fé­lag­inu. Tökum sem dæmi syk­ur­skatt eða áfeng­is­gjald eða skatta á tóbak. Þetta er ekki í verka­hring for­set­ans að hlut­ast til um. En þú nefnir ein­hvers konar umbun fyrir að stunda hreyf­ingu. Það gæti eflaust komið til álita. Jafnvel gæti þetta komið til í skóla­kerf­inu þar sem nem­endur fengju ein­ingar fyrir að fara í úti­legu eða fjall­göngur.“

Við nálg­umst topp­inn á Úlf­ars­felli. Það hefur að mestu stytt upp en vind­ur­inn gnauðar. Ég nefni for­set­ann Kristján Eldjárn, einn for­vera Guðna, sem ein­hvern tíma lýsti því hve ein­mana­legt væri stundum á Bessa­stöðum. Guðni segir að Krist­jáni hafi nú yfir­leitt liðið vel þar og und­an­farin ár hafi hann sjálfur síst glímt við ein­mana­leika. Fjöl­skyldu­lífið með ung börn sé fjörugt og nóg að gera í leik og starfi.

„Við hjónin erum undir þrýst­ingi frá börn­unum að fá okkur hund.“

Kalt á toppnum

Það er alltaf jafn­gaman að ná toppnum. En það er nap­urt á Háknum. Vind­ur­inn gnauðar sem fyrr. Hund­ur­inn Tinni skoppar í kringum okkur og bíður þess að fá hefð­bundin verð­laun fyrir að toppa. For­set­inn spyr um teg­und­ina. American cocker spaniel, upp­lýsi ég og bæti við að hann fari ekki úr hárum og sé ein­stak­lega geð­góður og hlýð­inn. Guðni horfir áhuga­samur á hund­inn og spyr hvort ég mæli með teg­und­inni. „Hiklaust“ er svarið.

„Við hjónin erum undir þrýst­ingi frá börn­unum að fá okkur hund. Strákana mína langar mikið í hund. Heldurðu að hund­ur­inn gæti verið í sátt við kött­inn okkar?“ spyr Guðni.

Ég upp­lýsi að Tinni sé gjarnan í nábýli við tvo ketti og þar ríki í versta falli afskipta­leysi, á meðan kett­irnir fari ekki inn fyrir einka­rými hunds­ins, en í besta falli algjör friður og kær­leikur.

„Mér líst vel á þetta. En best að lofa ekki neinu,“ segir Guðni og hlær. Ég býðst til að kanna mögu­leika þess að for­seta­fjöl­skyldan eign­ist amer­ískan cocker og for­set­inn þiggur aðstoð­ina með þökkum. Við höldum af stað niður fjallið í borg­inni. Guðni stoppar og tekur upp plast­poka með hunda­skít sem ein­hver hefur skilið eftir. „Á maður ekki að koma þessu á réttan stað?“ spyr hann. Ég segi það vera snyrti­mennsku og sýna umhverf­inu virð­ingu. Við höldum áfram nið­ur­leið­inni. For­set­inn með grænan poka í hend­inni.

Þótt Guðni hafi ekki lengur þennan kaleik, upp­reist æru, segir hann að sam­fé­lagið verði að gera upp við sig hvernig það taki á málum brota­manna sem hafi afplánað vegna glæpa sinna. Mynd / Hallur Karlsson

Uppreist æru barnaníðinga

Ég spyr Guðna hvert hafi verið erf­ið­asta málið á ferli hans. Hann svarar að bragði og segir að það sé málið með upp­reist æru þar sem um var að ræða barn­a­níð­inga. Stúlkur sem brotið hafði verið á settu sig í sam­band við emb­ættið.

„Ég fann fljótt í sál og sinni að ég yrði ekki sáttur við að skýla mér á bak við ábyrgð­ar­leysi for­seta eða að ákvörð­unin hefði verið tekin ann­ars staðar og hér hefði aðeins verið fylgt for­dæmum þótt sú hafi verið raunin. Þannig að ég bauð þolend­unum að koma á minn fund á Bessa­stöðum sem þær þáðu. Þar bað ég þær afsök­unar á því að þær þyrftu að þola að menn sem brutu á þeim hefðu fengið það sem kall­ast upp­reist æru. Ég veit ekki betur en að þær hafi kunnað að meta þann fund og það sem okkur fór í milli. Svo ein­setti ég mér líka, ásamt öðrum, að þessi staða kæmi aldrei upp aftur. Nú er ákvæðið um upp­reist æru horfið úr íslenskum laga­bók­staf. Ég var ekki fyrsti for­set­inn sem stað­festi ákvörðun ráðu­neytis um upp­reist æru en ég var sá síð­asti. Þeir eru til sem ekki vilja fyr­ir­gefa eitt eða neitt í þessum efnum. En við það verður að una.“

Þótt Guðni hafi ekki lengur þennan kaleik, upp­reist æru, segir hann að sam­fé­lagið verði að gera upp við sig hvernig það taki á málum brota­manna sem hafi afplánað vegna glæpa sinna.

„Við þurfum að svara því hvað við gerum and­spænis þeim sem hlotið hafa þunga dóma fyrir alvar­leg brot. Hvernig tök­umst við á við það þegar það fólk kemur út í sam­fé­lagið. Það er flókn­ara en svo að því verði svarað í hlíðum Úlf­ars­fells. Þau mál verða hvorki leyst hér né í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla.“

Inn á borð for­seta ber­ast ýmis mál og beiðni um aðstoð. Ljót mál tengj­ast því að deyfi­efnum er laumað í drykki, oft­ast kvenna, í þeim til­gangi að mis­nota þær. Guðni fékk beiðni um að ýta af stað átaki gegn þessum óþverra­skap.

„Ég var beð­inn að styðja átak gegn þeim ljóta verkn­aði að setja slæv­ing­ar­efni í drykki, oft­ast kvenna, á skemmti­stöðum. Lausnin átti að verða sú að fólk gæti fengið ein­hvers konar lok á glösin. Ég gerði þetta í góðri trú. En þá kom upp sú gagn­rýni að verið væri að varpa ábyrgð og skyldu yfir á sak­laust fólk. Fólk gæti ekki lengur notið drykkja sinna í friði. Þetta kenndi mér að þótt hug­ur­inn sé góður þá geta spurn­ingar vaknað og jafnan rétt að hafa var­ann á. Maður lærir jafn­framt í þessu emb­ætti að aldrei er hægt að gera öllum til hæfis og maður á reyndar ekki að reyna það.“

Guðni Th, Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Málskotsrétturinn

Í yfir­stand­andi kosn­inga­bar­áttu er Guðna legið á hálsi af mót­fram­bjóð­anda sínum að hafa ekki beitt mál­skots­rétt­inum. Hann hefur marg­sinnis svarað því hvað þurfi til þess að hann beiti því úrræði sem Ólafur Ragnar Grímsson, for­veri hans, gerði svo eft­ir­minni­lega varð­andi Icesave og þegar hann synj­aði fjöl­miðla­lögum stað­fest­ingar.

„Forseti hefur þetta úrræði en ég hygg að lang­flestir hljóti að sjá að þegar for­seta eru sendar áskor­anir kjós­enda þá verði þær að hafa þunga fjöld­ans með sér. Sú hefur verið raunin í tíð fyrri for­seta að áskor­anir nokk­urra þús­unda hafa ekki leitt til þess að málum hafi verið vísað í dóm kjós­enda. Mönnum hefur verið tíð­rætt um þriðja orku­pakk­ann. Þar ber til þess að líta að hann var inn­leiddur með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem kemur ekki á borð for­seta Íslands. Hins vegar þurfti í fram­hald­inu að breyta lögum um Orku­stofnun. Mér bár­ust sjö þús­und áskor­anir um að vísa þeim lögum til þjóð­ar­innar og varð ekki við þeim, meðal ann­ars vegna þess hversu fáar und­ir­skrift­irnar voru miðað við fyrri for­dæmi. Þessi umræða hefur síðan hjaðnað. Ég hef notið þess að hafa víð­tækan stuðn­ing í emb­ætti. Það væri örugg­lega þrúg­andi að sitja í svona tignu emb­ætti og njóta ekki stuðn­ings almenn­ings.“

Barnalán

Guðni og eig­in­kona hans, Eliza Reid, búa við mikið barna­lán. Þau eiga saman fjögur börn. Þau eru fædd með tveggja ára milli­bili, árin 2007, 2009, 2011 og 2013. Hann á eina dóttur frá fyrra hjóna­bandi. Hún er fædd árið 1994. Mikill ald­urs­munur er því á yngsta og elsta barni Guðna, eða 19 ár. Guðni segir að börnin tryggi ham­ingj­una. Það að yngri börnin eru fædd með tveggja ára milli­bili var ekki skipu­lagt.

„Við vissum að við vildum búa saman og eiga börn. Ég er þó ekki í félagi aldr­aðra feðra,“ segir hann og vísar til þess að hann var kom­inn á miðjan aldur þegar yngstu börnin fædd­ust.

Ekkert glæsilíf

Margir sjá emb­ætti for­seta Íslands í hyll­ingum og telja líf for­set­ans og fjöl­skyldu hans ein­kenn­ast af glæsi­leika og í flestu frá­brugðið því sem almenn­ingur lifir. Guðni segir að lífið á Bessa­stöðum sé í raun ósköp venju­legt fjöl­skyldu­líf barna­fjöl­skyldu. Þá njóti hann þess að geta óáreittur farið allra sinna ferða og blandað geði við fólk.

„Ég reyni að flétta saman starf mitt og fjöl­skyldu­líf eftir bestu getu. Það hefur oft­ast tek­ist bless­un­ar­lega vel en auð­vitað verður stundum eitt­hvað undan að láta. Börnin vita að ég hef skyldur og sýna því skiln­ing. Ég get nefnt sem dæmi að í gær­kvöld kom ég fram í sjón­varps­þætti en náði svo að bruna á fót­bolta­leik með einum syni mínum í Garðabæ. Ég náði síð­asta korter­inu. Svona kring­um­stæður gátu nú líka komið upp í mínu fyrra starfi en við Íslend­ingar búum við það lán að sá eða sú sem gegnir emb­ætti þjóð­höfð­ingja getur um frjálst höfuð strokið.“

Jafn­rétti ríkir á milli hjón­anna á Bessa­stöðum þegar kemur að heim­il­is­verkum og barna­stússi. Guðni seg­ist aðspurður kunna á þvotta­vél heim­il­is­ins og önnur þau tæki sem til staðar séu.

„Áður en ég fór á Bessa­staði skiptum við verk­unum sam­visku­sam­lega. Í dag höfum við starfs­fólk sem léttir undir með okkur eins og þörf krefur. Við höfum þó með­vitað reynt að láta þessa breyt­ingu á mínum starfs­högum ekki hafa of mikil áhrif á okkar dag­lega líf og höldum börnum okkar utan við sviðs­ljós fjöl­miðl­anna.“

Enn spurt um hund

Leiðin niður af Úlf­ars­felli gengur vel. Veðrið er þurrt og skóg­ur­inn veitir okkur aftur skjól. Guðni spyr meira um rakk­ann Tinna sem fylgir okkur fast eftir. Hann er enn með pok­ann með hunda­skítnum í hend­inni, rétt eins og hann sé að æfa sig. Ljós­mynd­ar­inn býðst til að taka pok­ann svo for­set­inn sé ekki á öllum myndum með pok­ann. For­set­inn lætur hann af hendi, að því er virð­ist með nokk­urri eft­ir­sjá. Við fikrum okkur áfram í gegnum skóg­inn. Kyrrð í bland við fuglat­íst rammar inn til­veru okkar.

Guðni er nú að ljúka sínu fyrsta kjör­tíma­bili. Ég spyr hvað hann telji eðli­legt að for­seti sitji lengi.

„Ég álít hent­ugt og far­sælt fyrir for­seta og þjóð að sá eða sú sem gegnir emb­ætt­inu sitji í tvö til þrjú kjör­tíma­bil. Þar berg­mála ég skoð­anir sumra for­vera minna og hef ekki breytt þeirri afstöðu minni. Ég veit að á vett­vangi stjórn­ar­skrár­nefndar er rætt um að setja slík tak­mörk á setu for­seta og jafn­vel má hugsa sér að lengja kjör­tíma­bilið í því sam­hengi. Finnar hafa til dæmis það fyr­ir­komu­lag að for­seti megi sitja í tvisvar sinnum sex ár.“

For­set­anum er tíð­rætt um lýð­heilsu sem hann segir vera ein­hverja mestu áskorun fyrir þjóð­ina. Það gildi um alla ald­urs­hópa. Mynd / Hallur Karlsson

Hreyfing mikilvæg

For­set­anum er tíð­rætt um lýð­heilsu sem hann segir vera ein­hverja mestu áskorun fyrir þjóð­ina. Það gildi um alla ald­urs­hópa.

„Ungmenni þurfa að temja sér lífs­stíl sem felur í sér gott matar­æði og hreyf­ingu. Eldri borg­arar þurfa að sama skapi að ástunda hreyf­ingu og huga að matar­æði sínu. Þetta er ekki aðeins spurn­ing um líf og heilsu fólks. Það er líka hægt að reikna inn í þetta hagnað í krónum og aurum,“ segir Guðni og vísar til með­ferðar við sjúk­dómum sem tengj­ast hreyf­ing­ar­leysi og óhollu matar­æði.

Við stöldrum við í brekkunni neðan við Hákinn. Guðni heldur áfram að ræða þá heilsu­bót sem felst í hreyf­ingu. Hann segir það vera umhugs­un­ar­efni í vel­ferð­ar­sam­fé­lag­inu á Íslandi þar sem ver­ald­leg gæði hafa auk­ist til muna ef miðað sé við fyrri kyn­slóðir, hve mörgum líður illa and­lega.

„Það verður að vera sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra að ráða á þessu bót. Sumt sjáum við sem ástæðu van­líð­unar. Það er sífelldur sam­an­burður á sam­fé­lags­miðlum. Til­finn­ingin er gjarnan sú að allir séu að gera það gott nema maður sjálfur. Þetta á kannski sér­stak­lega við um ung­linga sem spegla sig í fölskum myndum ann­arra á Snapchat, Instagram, Facebook og hvað þetta heitir allt saman. Það er eins brýnt að við hlúum að and­legri heilsu og þeirri lík­am­legu.“

Þunglyndi og innilokun

Þetta eru orð að sönnu, bendi ég Guðna á. Sam­starfs­maður minn hjá Ferða­fé­lagi Íslands hefur gjarnan sagt frá glímu sinni við þung­lyndi. Hann hefur þá lokað sig af, slökkt á síma, dregið glugga­tjöldin fyrir og fæst ekki til að tala við nokkurn mann. Er einn í myrkri. En með nán­ast ofur­mann­legu átaki hefur hann jafnan náð að rjúfa víta­hring­inn og fara í fjall­göngu. Þá var björn­inn unn­inn og hann losn­aði úr svart­nætt­inu. Guðni sam­sinnir þessu.

„Líkamleg áreynsla gerir lík­am­anum gott og kemur af stað ákveðnum boð­skiptum sem eru góð fyrir heila­búið. Þetta er vís­inda­lega sannað. En það sem mér finnst við þurfa að gera er að auka og styrkja sjálfs­mynd barna og ung­linga. Það má gera með því að leyfa öllum að njóta sín á eigin for­sendum. Þetta gerum við með því að við­halda aga og áreynslu en gera jafn­framt skóla­kerfið sveigj­an­legra. Í þessu felst að fólk þarf að leggja hart að sér til að upp­skera þannig ánægju og jafn­vægi. Fólk þarf að kunna að mæta mót­læti og ekki gef­ast upp í fyrstu brekku. Jafn­framt þurfum við að hjálpa þeim sem þess þurfa. Þetta hef ég séð. Röð og regla er eitt það mik­il­væg­asta í lífi fólks til að hamla gegn þung­lyndi, kvíða eða öðrum and­legum sjúk­dómum. Stundum þarf fólk aðeins smá­að­stoð við þetta en svo verður það nauð­syn­legur þáttur í líf­inu og eng­inn vill snúa til baka.“

Guðni hefur sjálfur séð hvernig fólki er hjálpað inn á rétt spor til að ná tökum á til­veru sinni.

„Ég hef verið við braut­skrán­ingu hjá Hringsjá, náms- og starfsend­ur­hæf­ingu í Reykja­vík fyrir fólk, mest ung­menni, sem hefur ekki fundið sig í fram­halds­skólum eða flosnað upp úr starfi. Mörg hver ná þau að blómstra á eigin for­sendum og eigin hraða, sjálfum sér og sam­fé­lag­inu til mik­ils gagns. Við útskrift­ina í síð­asta mán­uði kom fram að 86 pró­sent þeirra sem hafa lokið námi hjá Hringsjá und­an­farin ár, fóru ann­að­hvort í frekara nám eða eru komin með fasta vinnu. Maður spyr sig hvar þessi 86 pró­sent væru ef þetta úrræði væri ekki í boði. Þau væru ekki ánægð og ekki að skila sínu til sam­fé­lags­ins.“

Enginn nefndi Guðna

Þegar dró að kosn­ingum árið 2016 var vin­sæll sam­kvæm­is­leikur að benda á hugs­an­lega fram­bjóð­endur. Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hafði lýst yfir að hann myndi hætta eftir 20 ár á Bessa­stöðum. Ýmsir voru nefndir framan af en ekki þó Guðni.

„Mitt nafn var framan af nær aldrei nefnt í tengslum við for­seta­emb­ættið. Það er stundum sagt í gamni að í aðdrag­anda for­seta­kjörs sé það nán­ast móðgun ef maður er ekki orð­aður við fram­boð,“ segir Guðni í léttum dúr.

En svo breytt­ist allt og skyndi­lega var nafn Guðna komið í umræð­una. Í apríl 2016 komust upp­ljóstr­anir tengdar Panama-skjöl­unum í hámæli. Guðni var þá kall­aður til álits­gjafar í fréttum sem sagn­fræð­ingur og fékk þjóð­ar­at­hygli. Honum hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa notað Rík­is­út­varpið sem stökk­pall á Bessa­staði.

„Ég get aðeins svarað sann­leik­anum sam­kvæmt að ég sá ekki fyrir frekar en aðrir þessa upp­ljóstrun. Ég varð við beiðni ýmissa fjöl­miðla­manna, eins og margoft áður, um að segja skoðun mína á rás við­burða. Á þessum tíma í aðdrag­anda for­seta­kjörs höfðu margir stigið fram og lýst áhuga eða fram­boði til þessa emb­ættis. Enginn hafði fengið mik­inn byr í seglin. Ég var þarna í ákveðnu sviðs­ljósi og fékk áskor­anir og hvatn­ingu um að bjóða mig fram. Þarna stóð ég and­spænis því að ef ég myndi bjóða mig fram til for­seta væru ágætis líkur á því að ég hefði erindi sem erf­iði. Ég lét kanna jarð­veg­inn og við tóku ævin­týra­legir dagar. Eftir að ég til­kynnti fram­boð mitt sá þáver­andi for­seti, Ólafur Ragnar Grímsson, sig um hönd og sótt­ist eftir end­ur­kjöri. Davíð Oddsson, rit­stjóri og fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í hópi fram­bjóð­enda. Ég sá því fram á að keppa við þessar tvær stór­kanónur. Báðir áttu þeir að baki magn­aðan feril og mikla reynslu. Seinna hætti Ólafur Ragnar aftur við en margir öfl­ugir fram­bjóð­endur tók­ust á um emb­ættið.“

„Davíð á merkan feril í stjórn­málum að baki.“

Davíð og ósigurinn

Guðni sigr­aði með nokkrum yfir­burðum eða með rúm­lega 39 pró­senta fylgi. Athygli vakti að Davíð Oddsson, sem rak mjög harð­skeytta bar­áttu, sér­stak­lega gegn Guðna, fékk aðeins brot af því fylgi sem stuðn­ings­menn hans höfðu reiknað með. Fleyg urðu ummæli Guðna þegar hann spurði Davíð hvort hann hefði enga sóma­kennd. Guðni segir átök þeirra tveggja ekki hafa skilið eftir nein ör af sinni hálfu. Davíð hafn­aði í fjórða sæti með aðeins 13,75 pró­senta fylgi og stærsta tapið á ferli hans varð að veru­leika. Guðni segir Davíð hafa tekið ósigri sínum vel.

„Mér fannst Davíð rísa hátt á kosn­inga­kvöld­inu þegar ósigur hans blasti við. Okkar leiðir hafa ekki legið mjög saman síðan en við höfum þó hist og ég geri mér ekki far um að forð­ast hann. Davíð á merkan feril í stjórn­málum að baki. Þegar sagan verður skrifuð mun hann telj­ast í hópi þeirra stjórn­mála­manna sem mót­uðu okkar sam­fé­lag mest á seinni hluta 20. aldar og fram á þá 21.“

Sligandi feimni

Stíg­ur­inn í skóg­inum er þröngur. Rætur trjánna liggja víða fyrir fótum göngu­manna og hunds. Það stytt­ist í bíla­stæðið. „Er þetta ekki að verða komið hjá okkur?“ spyr for­set­inn sem þarf að mæta í mynda­töku fyrir annan fjöl­miðil innan skamms. Ég segi honum að þetta stytt­ist í annan end­ann. Ég rifja upp þegar hann gekk með Fyrsta skrefi Ferða­fé­lags Íslands á sama fjallið fyrir tveimur árum. Þá sagði hann frá feimn­inni sem lengi hafði hrjáð hann. Guðni segir að sem ung­lingur hafi feimnin plagað sig mjög. Hann rifjar upp bitra minn­ingu frá þeim tíma þegar hann ætl­aði að taka þátt í ræðu­nám­skeiði.

„Þetta kvöld tók ég strætó úr Garða­bænum. Ég kveið þessu mikið en ætl­aði að sigr­ast á feimn­inni. Þegar ég gekk upp tröpp­urnar í MR fann ég mátt minn þverra í hverju skrefi. Þetta var þrauta­ganga. En svo brast kjark­ur­inn og ég sneri við. Ég tók strætó­inn til baka og fór alla leið suður í Hafn­ar­fjörð til að mamma færi ekki að spyrja mig af hverju ég kæmi svona snemma heim. Ég hugs­aði allan tím­ann með mér hvers konar ræf­ill, vit­leys­ingur og asni ég væri að gef­ast upp. Þetta mót­aði mig og ég ákvað að gera aðeins það sem ég kynni best að meta, að fræð­ast um liðna tíð, lesa og grúska í friði fyrir öðrum. Þannig varð sagn­fræðin mitt skjól, minn heimur og síðan starfs­vett­vangur. Þá þurfti maður að flytja fyr­ir­lestra, kenna og stýra umræðum og smám saman öðl­að­ist maður dýr­mæta reynslu í þeim efnum, reynslu sem hefur svo sann­ar­lega komið að gagni í því emb­ætti sem ég gegni núna. En planið að vera ekk­ert í sviðs­ljós­inu, það hefur ekki beint gengið upp! Ég veit það líka úr heimi íþrótt­anna að maður þarf að halda réttu spennustigi til að allt gangi upp. Maður má hvorki vera á nálum né vera of væru­kær. Mik­il­væg­ast er að vera vel und­ir­bú­inn og búa að reynslu og heil­brigðu sjálfs­trausti, en ekki sjálfs­hóli eða drambi, það voru bann­orð í mínu upp­eldi.“

For­set­inn stundar sjálfur gjarnan úti­vist. Hann gengur mikið og hefur gaman að því að hlaupa og ganga. Svo sinnir hann nátt­úru­vernd með því að tína upp rusl.

„Ég hef kom­ist upp á lag með að plokka úti á Álfta­nesi. Það eykur kappið í hlaup­unum að tína upp rusl og auð­vitað eigum við öll að ganga hrein­lega um landið, hvar sem er og hvenær sem er.“

Heimur fræðanna

Guðni Th. Jóhann­es­son er ekki í vafa um hvað hann ætlar að fást við þegar for­seta­tíð hans lýkur.

„Þegar ferli mínum sem for­seta lýkur ætla ég að hverfa aftur í þann heim fræða sem ég fór úr. Þá mun ég sinna rann­sóknum og fræðum. Ég hef mik­inn áhuga á miðl­un­ar­leiðum sög­unnar og tel til dæmis löngu tíma­bært að við Íslend­ingar eign­umst vand­aða og íburð­ar­mikla sjón­varps­þátta­röð um sögu Íslands. Við getum horft til for­dæma svo sem History of Britain þar sem sögu Bret­lands eru gerð skil eða sögu Dan­merkur. Við getum svið­sett atburði og notað tölvu­tækni til að breyta umhverf­inu. Til dæmis gætum við breytt Reykja­vík, sem við horfum hér yfir, og fært hana til ann­arra tíma­skeiða og yfir í ónumið land. Þannig gætum við séð hvernig Ísland blasti við Ingólfi Arn­ar­syni, Hall­veigu Fróða­dóttur, konu hans, og öllu þeirra föru­neyti, þar með talið þrælum og amb­áttum. Við þurfum að segja sögu okkar í sem víða­stri mynd. Í því felst að við segjum frá því sem hefur sam­einað okkur og ekki síður því sem sundraði okkur. Við segjum frá því sem miður fór og því sem vel gekk. Þetta á að vera saga almúga­fólks ekki síður en fyr­ir­menna. Hér renna kannski saman for­set­inn og sagn­fræð­ing­ur­inn og vil ég þó ekki tala um sjálfan mig í þriðju per­sónu! En sagan er marg­slungin og stjórn­samir vald­hafar freist­ast gjarnan til að nota hana eða mis­nota í eigin þágu, hampa eigin sýn á for­tíð­ina og saka þá sem eru á annarri skoðun um að vinna gegn hags­munum eða heiðri ríkis og þjóðar. Sagan er öfl­ugt vopn í sam­tím­anum og ég hef reyndar oft komið inn á þetta í ræðum og ávörpum und­an­farin ár.

Við kveðjum for­set­ann þar sem gangan hófst rúmri klukku­stund fyrr, á bíla­stæð­inu við skóg­inn. Hund­ur­inn sem heill­aði for­set­ann dinglar róf­u­nni, eins og í kveðju­skyni. Hann ber hér með tign­ar­heitið For­seta­hund­ur­inn. Við snúum baki við Úlf­ars­felli og höldum heim­leiðis með við­tal við for­set­ann í fartesk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

L.A. Times styður ekki Harris í forsetakosningunum: „Við drögum línuna við þjóðarmorð“
Heimur

L.A. Times styður ekki Harris í for­seta­kosn­ing­unum: „Við drögum lín­una við þjóð­ar­morð“

Dóttir eig­anda Los Angeles Times segir að dag­blaðið hafi ákveðið að lýsa ekki yfir stuðn­ingi við fram­boð Kamölu Harris í for­seta­kosn­ing­un­inum sem fara fram í næstu viku, vegna afstöðu hennar til þjóð­ar­morðs­ins á Gaza. Dóttirin, Nika Soon-Shiong sagði í til­kynn­ingu: „Fjöl­skylda okkar tók þá sam­eig­in­legu ákvörðun að styðja ekki for­seta­fram­bjóð­anda. Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég hef...
Billie Eilish lýsir yfir stuðningi við Harris: „Við getum ekki látið öfgamenn stjórna lífi okkar“
Menning

Billie Eilish lýsir yfir stuðn­ingi við Harris: „Við getum ekki látið öfga­menn stjórna lífi okkar“

Súper­stjörnu­systk­inin Finneas og Billie Eilish lýstu yfir stuðn­ingi við Kamölu Harris í gær. Tón­list­ar­dúóið og systk­inin Finneas og Billie Eilish birtu í gær mynd­band á Instagram í til­efni af Degi kosn­inga­skrán­ingar Banda­ríkj­anna sem var í gær. Þar kvöttu systk­inin fólk til að skrá sig og jafn­vel kjósa snemma, eins og þau gerðu. „Við kjósum Kamölu Harris og Tim Walz af...
Biden táraðist á landsfundi Demókrata: „Hún er hörð, hún hefur reynslu og hefur gríðarleg heilindi“
Heimurforsetakosningar

Biden tárað­ist á lands­fundi Demókrata: „Hún er hörð, hún hefur reynslu og hefur gríð­ar­leg heil­indi“

Joe Biden tárað­ist þegar hann steig á sviðið á lands­fundi Demókra­ta­flokknum í Chicago-borg í gær­kvöldi. Biden hélt ræðu fyrir troð­fullum sal í Chicago fyrsta kvöld lands­þings Demókrata, þar sem hann varði for­seta­tíð sína og snerti á mörgum þeirra mála sem hann barð­ist fyrir árið 2020 og aftur á þessu ári áður en hann ákvað að stíga til hliðar um miðjan...
Tim Walz er varaforsetaefni Kamala Harris
Heimurforsetakosningar

Tim Walz er vara­for­seta­efni Kamala Harris

Tim Walz, rík­is­stjóri Minnesota-fylkis í Banda­ríkj­unum, hefur verið val­inn sem vara­for­seta­efni Kamala Harris í kom­andi for­seta­kosn­ingum Banda­ríkj­anna en frá þessu greina fjöl­miðlar vest­an­hafs. Valið á Walz hefur þótt lík­legt um nokk­urt skeið en Walz er gríð­ar­lega vin­sæll stjórn­mála­maður en hann er fyrr­ver­andi kenn­ari og her­maður. Walz hefur verið rík­is­stjóri Minnesota frá 2019 og telja margir ljóst að hann mun draga...
Ásdís Rán stendur með Höllu forseta: „Það er nú í lagi að gera smá forseta díl í bílakaupum“
Innlentforsetakosningar

Ásdís Rán stendur með Höllu for­seta: „Það er nú í lagi að gera smá for­seta díl í bíla­kaupum“

Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­sæta og fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi, virð­ist standa með Höllu Tóm­as­dóttur, verð­andi for­seta Íslands, á þeim erf­iðu tímum sem hún er að ganga í gegnum en Halla hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir hegðun sína. For­set­inn verð­andi fékk ríf­legan afslátt á bíla­kaupum hjá Brimborg og sat fyrir í aug­lýs­ingu fyrir fyr­ir­tækið en hún hefur sagt að mynd­birt­ingin af henni með...
Biden þótti óskýr og kraftlaus í kappræðunum: Sagði Trump hafa „siðferði á við villikött“
Heimurforsetakosningar

Biden þótti óskýr og kraft­laus í kapp­ræð­unum: Sagði Trump hafa „sið­ferði á við villi­kött“

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti þótti ekki standa sig vel í kapp­ræð­unum á CNN í gær en hann þótti óskýr í máli og kraft­laus. Kate Bed­ing­fi­eld, fyrr­ver­andi sam­skipta­stjóri Biden, var á CNN strax eftir kapp­ræð­urnar og hún var skýr: „Það eru ekki hægt að neita því, þetta var ekki góð kapp­ræða fyrir Joe Biden.“ Sagði hún að aðal­málið fyrir hann hafi verið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu