„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Konur eru ekki uppá punt á Alþingi

Konur eru ekki uppá punt á Alþingi

„Það er stöðugt verið að reyna afvega­leiða umræð­una með beit­ingu þaul­reyndrar kúg­unar- og þögg­un­ar­að­ferð vald­haf­anna. Þeirri aðferð langar mig svo til að henda í ruslið því þar á hún heima,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sem í upp­hafi vik­unnar sagði sig frá störfum sem for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis. Þar vildi hún ekki vera upp á punt og seg­ist hafa fengið nóg af því skít­kasti sem við­gengst innan íslenskra stjórn­mála.

Í lýð­ræð­is­hús­inu Alþingi eru svona aðferðir ekki ásætt­an­legar, að hjóla alltaf í per­són­una. Þetta á ekki að vera við­ur­kennt sem ein­hver póli­tísk taktík. Að gera mótherjum sínum stöðugt upp illan hug og láta líta út eins og ann­ar­legar hvatir búi að baki því að fólk vinni
sína vinnu. Þvert á móti eigum við að vinna fag­lega með því að benda frekar á hvað er að gjörðum fólks en ekki huga fólks.“

Ann­ar­legar hvatir
Í for­mennsku sinni seg­ist Þór­hildur Sunna hafa reynt und­an­farið að skýra út betur hæfi Krist­jáns Þór Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra gagn­vart mál­efnum Samherja en í stað upp­lýstrar umræðu hafi hún mætt heift­úðri mót­spyrnu þar sem hún hafi verið sökuð um ann­ar­legar hvatir. Fljót­lega eftir fjöl­miðlaum­fjöllun um meintar mútur Samherja í Namibíu fór Þór­hildur Sunna fram á að ráð­herr­ann kæmi á opinn fund nefnd­ar­innar til að ræða um tengsl hans við sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið. Hún seg­ist ekki skilja mót­spyrn­una við því að ráð­herra mæti á fund til að skýra sín mál. „Ég mætti ein­fald­lega mik­illi mót­stöðu við að fá ráð­herra inn á fund. Ég fékk strax ásak­anir um að ekki væri heil­lyndi bak við beiðni mína og ég var sökuð um ann­ar­leg sjón­ar­mið. Svo byrj­aði ballið í fjöl­miðlum þar sem allt var reynt til að mála mig þessum sömu litum. Því var reglu­lega haldið fram að ann­ar­legar hvatir lægju að baki ósk okkar þriggja um að frum­kvæð­is­at­hugun færi fram,“ segir hún.

Vildi fá svör
Þór­hildur Sunna segir að of margt sé á gráu svæði þegar kemur að hæfi Krist­jáns Þór Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í rík­is­stjórn. „Stjórn­sýslu­rétt­ur­inn er þannig að ráð­herra metur hæfi sitt sjálfur og hann ákveður það greini­lega í upp­hafi að hann sé hæfur til þess að taka á málum tengdum Samherja sem „ekki varða veiga­mikla hags­muni“ – en það liggur ekk­ert fyrir um hvernig á að fram­kvæma þetta hags­muna­mat. Mér fannst líka mjög skrítið að ráð­herra geti sjálfur dregið þá ályktun að ekki hafi reynt á hæfi hans sem ráð­herra því þetta snerti ekki veiga­mikla hags­muni. Að hann geti slengt því fram að hann hafi engra, hvorki per­sónu­legra né fjár­hags­lega, hag­muna að gæta. Það sem ég vildi
fá svar við er hvernig eru þessir veiga­miklu hag­munir metnir en stjórn­ar­liðar hafa end­ur­tekið komið sér undan að svara því,“ segir hún.

„Kristján Þór upp­lýsti í Kast­ljósi að hann liti svo á að sím­talið sem hann átti við Þorstein Má, for­stjóra Samherja og vin sinni til margra ára um hvernig honum liði eftir upp­ljóstr­anir Kveiks væri af sinni athafna­skyldu sem ráð­herra. Óskráðar hæf­is­reglur stjórn­sýslu­réttar eiga einmitt við um athafna­skyldu ráð­herra. Í þessu til­felli virð­ist ráð­herr­ann eiga erfitt með að aðgreina hver er vinur hans og hver er for­stjóri Samherja. Hvernig getur það
verið að ráð­herra hafi ekki verið van­hæfur til að eiga þetta sím­tal? Af hverju var þetta sím­tal ekki skráð í mála­skrá ráð­herr­ans? Þetta eru hlut­irnir sem ég vildi skoða og satt best að segja skil ég ekki þessa heift gagn­vart því.“

Vilja fela andúð­ina
Þór­hildur Sunna telur sig aðeins hafa verið að sinna eft­ir­lits­hlut­verki nefnd­ar­innar þar sem hún hafi reynt að koma með hald­bærar ábend­ingar um hvernig megi betur fara með við­mið
á hæfi. „Í stað­inn þá er ég sökuð um vilja gera póli­tíska nefnd að rann­sókn­ar­rétti og mis­nota stöðu mína til að koma höggi á and­stæð­inga. Ég á bara að vera með ein­hverjar ann­ar­legar hvatir þarna að baki. Meiri­hlut­inn vill aðeins fela andúð sína á því að hæfi
ráð­herra sé athugað með því að gera mína per­sónu að ein­hverju aðal­at­riði. Þetta er þaul­reynd kúg­unar- og þögg­un­ar­að­ferð þeirra sem ekki vilja sæta gagn­rýni, aðhaldi og eft­ir­liti. Sér í lagi frá konu í stjórn­ar­and­stöðu sem er í leið­toga­hlut­verki,“ segir Þór­hildur
Sunna.

Aðspurð hvort konur eigi erf­ið­ara með störf innan þings­ins svarar hún að svo
sé. „Mér finnst eðli­legt að spyrja hvort það sé komið verr fram við komur heldur en karla á Alþingi. Það er ekki þannig að við séum þarna inni til að vera ein­hverjar dúkkulísur, heldur
betur ekki. Ég er stjórn­mála­kona sem er kosin til að viðra mínar skoð­anir, ég er kosin til þess að hafa eft­ir­lit og aðhald með fram­kvæmda­vald­inu.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Önnur afsökun
Þegar talið berst að afsögn Þór­hildar Sunnu sem for­manni þing­nefndar seg­ist hún ein­fald­lega hafa fengið nóg og og að hún hafi viljað upp­lýsa um og mót­mæla þess­ari lág­kúru­legu aðferð­ar­fræði sem meiri­hlut­inn var að nota til þess að koma sér undan eðli­legu
eft­ir­liti og aðhaldi. „Ég sá að ég var komin á þann stað að það stóð ekk­ert til að leyfa mér að hreyfa mig hænu­fet í þessu emb­ætti nema sæta enda­lausum ásök­unum og rugli. Ég ætl­aði ekki að vera ein­hver dúkkulísa í hönd­unum á þeim eða vera þarna upp á punt til þess að meiri­hlut­inn geti skreytt sig með því að þarna sé nú ung kona að leiða þessa
nefnd. Þetta er bara leik­rit sem ég tek ekki þátt í. Ég fékk bara nóg,“ segir
Þór­hildur Sunna ákveðin.

„Mér finnst ekk­ert gaman að standa í per­sónu­legum deilum um ein­hvern
titt­linga­skít. Ég er ekki í póli­tík til þess. Það var þess vegna sem ég ákvað að fjar­lægja sjálfa mig úr þessum aðstæðum. Meiri­hlut­inn var að nota mig sem skjöld fyrir því að nefndin sinnti ekkki sínu hlut­verki og nú verða þeir að finna sér ein­hverja aðra afsökun.“

Gas­lýs­ingar vald­hafa
Þór­hildur Sunna seg­ist sann­færð um að hún sé á réttri leið í stjórn­málum þegar hún mætir þess­ari heift og ofbeldi innan Alþingis. „Þegar við­brögðin eru svona rætin þá veit ég að ég er að hræra í ein­hverjum potti sem fólk vill ekki að ég hræri í. Það er ágætis stað­fest­ing á því að maður er á réttri leið en ég get samt ekki sagt að ég þrí­fist endi­lega vel í brjál­uðum átökum. Ég varð sjálf stundum reið yfir þess­ari ofbeld­is­menn­ingu sem þarna þrífst,“
segir Þór­hildur Sunna.

Aðspurð hvað það er einna helst sem reiti hana til reiði segir hún það vera þegar vald­haf­arnir spili með raun­veru­leik­ann. „Það sem einna helst reiðir mig er þegar réttu máli er hallað. Ég tala stundum um gas­lýs­ingar vald­haf­anna. Það virð­ist bara í lagi að þeir geri eitt­hvað brjál­æð­is­lega klikkað og svo dag­inn eftir geta þeir bara sagt: þetta gerð­ist ekki. Hvernig hægt er að end­ur­skrifa sög­una aftur og aftur.“

Alltaf eins
Þórhildi Sunnu finnst sorg­legt hversu illa gengur að breyta vinnu­stað­ar­menn­ing­unni á Alþingi. „Einhvern veg­inn helst þetta alltaf eins. Það eru margir sem hafa sagt við mig að þeir hafi brenn­andi áhuga á stjórn­málum en að fram­koma stjórn­mála­manna fæli frá þátt­töku. Ég hef ítrekað heyrt að fólk hræð­ist þetta af ótta við að þátt­taka í stjórn­mál­unum leiði til æru­missis. Það finnst mér mjög sorg­legt að þannig sé komið fyrir þing­inu. Við þurfum fleira fólk í stjórn­málin sem er mál­efna­legt, heið­virt og hjarta­hlýtt,“ segir hún.

„Í upp­vext­inum hugn­að­ist mér aldrei að fara út í íslenska póli­tík því mér fannst hún alltaf svo rætin og ómál­efna­leg. Við erum alltaf úti á túni og það er reynt að afvega­leiða umræð­una frá þeim hneykslum sem uppi eru þá stund­ina. Ég veit ekki hversu margar feitar smjör­klípur ég hef horft upp á á þessum fjórum árum sem ég hef verið á þessum vinnu­stað.“

Til­finn­inga­legur van­þroski
Þrátt fyrir að hafa ung að árum aldrei ætlað út í póli­tík ákvað Þór­hildur Sunna að láta slag standa þegar Píratar komu fram á sjón­ar­sviðið, flokkur sem talar fyrir borg­ara­rétt­indum og
lýð­ræði. Að hennar sögn skemmdi ekki fyrir að Píratar leggja áherslu á upp­lýsta ákvörð­un­ar­töku og að það sé í lagi að skipta um skoðun. „Mér finnst skipta máli að þú getir sagt, á grund­velli betri gagna sem fram koma, að þú hafir haft rangt fyrir þér. Það gerir venju­legt þroskað fólk. Umræðan á þing­inu er því miður ekki á þeim stað. Þar er rosa­leg karla-karla stemn­ing þar sem þú hefur aldrei rangt fyrir þér og meg­in­kost­ur­inn að vera stað­fastur. Mér finnst það bara sýna til­finn­inga­legan van­þroska, að geta ekki við­ur­kennt mis­tök og lært af þeim. Það er aldrei hægt að við­ur­kenna að hafa rangt fyrir sér heldur er bara hjólað í sendi­boð­ann. Þetta hefur mjög eyði­leggj­andi áhrif.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Barátta fyrir gæðum
„Það er erfitt að fylgj­ast með þjóð­fé­lags­um­ræð­unni þegar maður sér hvernig þing­menn tala um og koma fram hver við annan. Þá finnst mér vont að sjá hvernig við­stöðu­laust er verið að senda út þau skila­boð að almenn­ingur hafi ekki rétt á að hafa skoðun eða rétt á því að vera reiður. Hvaða skila­boð eru það til dæmis út í sam­fé­lagið þegar fjár­mála­ráð­herra segir að taki fræði­menn þátt í umræðu séu þeir að vinna sér sjálf­skaða,“ segir
Þór­hildur Sunna.

Aðspurð þá telur þing­mað­ur­inn mögu­legt að breyta vinnu­staða­menn­ing­unni á Alþingi. Að hennar mati er eitt af lyk­il­at­rið­unum að kjósa rétt. „Ég held að það sé hægt að breyta þessu en þá verður fólk að kjósa eitt­hvað annað en íhaldið. Það er í þeirra eðli að vilja engu
breyta þrátt fyrir fögur lof­orð. Þeim finnst fínt hvernig hlut­irnir eru, það er bara skil­grein­ingin á íhald­inu. Ég væri ekki í póli­tík­inni ef ég teldi ekki að það væri hægt að finna leið til að gera hlut­ina betur.“

Til að und­ir­strika hversu lengi sömu aðferð­unum hafi verið beitt á þingi vísar Þór­hildur Sunna í ræðu Vil­mundar Gylfa­sonar þing­manns frá árinu 1982. „Mér finnst svo sorg­legt að lesa þing­ræðu frá árinu 1982 sem lýsir varð­hundum valds­ins og hvað þeir gera til að þagga niður gagn­rýni og aðhald. Varð­hundar valds­ins muni ráð­ast að okkur með gíf­ur­yrðum, þeir muni loka fjöl­miðl­unum og þeir munu láta allt líta út fyrir að vera upp­hlaup eða gíf­ur­yrði. Því miður er þetta bara enn þá nákvæm­lega svona í dag.“

Skilur ekki leynd­ina
Eitt af bar­áttu­málum Pírata er að auka gegn­sæi í stjórn­sýsl­unni og koma þannig í veg fyrir spill­ingu sem þrífst í land­inu. Þór­hildur Sunna segir afar brýnt að styrkja varn­irnar hér­lendis. „Vegna þess hversu fámenn þjóðin er þurfum við sterkar spill­ing­ar­varnir. Baráttan gegn spill­ingu er bar­átta fyrir sam­fé­lags­legum gæðum. Að við sitjum öll við sama borð og höfum jöfn tæki­færi og jafnan rétt.“ Hún er þeirrar skoð­unar að vegna þess
að ekki sé tekið nægj­an­lega vel á spill­ing­ar­málum þá fái hún að við­gang­ast og skemma út frá sér. Hún bendir á að nýleg lög­gjöf gegn hags­muna­á­rekstrum sé gott dæmi.

„Mjög mik­il­vægt skref vissu­lega en samt tókst ekki að setja þar inn eft­ir­lit með því að ráð­herrar fylgi þessum reglum vel. Þvert á móti eru þeir sér­stak­lega und­an­skildir við­ur­lögum og eft­ir­liti. Af hverju? Að vilja ekki sjálf­stætt eft­ir­lit með sjálfum sér er dæmi um að vilja ekki sæta aðhaldi og eft­ir­liti,“ segir Þór­hildur Sunna.
„Nefnd­ar­fundir Alþingis eiga að vera opnir. Ég sé ekki af hverju þeir ættu að fara leynt. Vond vinnu­brögð þríf­ast í skjóli þess að það sem ger­ist inni á þessum fundum sé eitt­hvert
rík­is­leynd­ar­mál.“

Sterk taug
Þór­hildur Sunna sagði af sér for­mennsku þing­nefnd­ar­innar til þess að mót­mæla vinnu­brögðum meiri­hlut­ans í nefnd­inni, sér í lagi við fram­kvæmd frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­innar á hæfi Krist­jáns Þórs. Hún bendir á að hann hafi sjálfur lofað að láta meta hæfi sitt gagn­vart Samherja þegar hann tók við emb­ætti. Hún trúir því að breyt­ingar séu mögu­legar velji kjós­endur að hafna íhald­inu og þori að velja nýjan kost. „Taugin í okkur er mjög sterk að velja bara eitt­hvað sem maður þekkir þegar á hólm­inn er komið. Alveg sama þó það gamla sé frekar lélegt. Það er svo miklu auð­veld­ara heldur en að velja óviss­una. Það er skilj­an­legt að ótt­ast óviss­una en ef við veljum alltaf sama gamla kost­inn þótt hann hafi ekki endi­lega reynst okkur vel í gegnum tíð­ina að þá er aug­ljóst að við hökkum alltaf í sama gamla far­inu,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakkaskraut, ég er þurrskreyting.“
Innlentviðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakka­skraut, ég er þurr­skreyt­ing.“

Krist­berg Jónsson, betur þekktur sem Kibbi í Baulu, og Sigrún kona hans, ráku lengi vel áning­ar­stað­inn Baulu í Borg­ar­firði og en Kibbi ræddi meðal ann­ars þá reynslu sína í við­tali við Sjóarann á dög­unum. Kibbi er bæði yfir­lýstur sós­í­alisti og mik­ill vél­hjóla­maður. Sagan segir að hann hafi eitt sinn hafi hann eign­ast blátt mót­or­hjól en verið snöggur til að sprauta...
Elísabet Jökulsdóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.
Innlentviðtöl

Elísabet Jök­uls­dóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.

Elísabet Jök­uls­dóttir, skáld­kona og rit­höf­undur, fékk ígrætt nýtt nýra á laug­ar­dag­inn en hún var með nýrna­bilun á loka­stigi. Systir Elísa­betar, Unnur Þóra, birti færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún sagði frá þeim gleði­tíð­indum að Elísabet hafi fengið nýtt nýra í Svíþjóð og að allt hafi gengið eftir óskum. Elísabet var önnum kafin þegar blaða­maður náði á hana, enda...
Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkjugarðinum“
Innlentviðtöl

Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkju­garð­inum“

Þessi grein er brot úr við­tali Svövu Jóns­dóttur við séra Jónu Hrönn Bolla­dóttur. Viðtalið má í heild sinni lesa hér. Jóna Hrönn Bolla­dóttir fædd­ist í Hrísey 21. júlí árið 1964 og er dóttir hjón­anna Bolla Þóris Gúst­avs­sonar, fyrrum vígslu­bisk­ups að Hólum í Hjalta­dal, og Matt­hildar Jóns­dóttur hár­greiðslu­meist­ara og hús­móður. Jóna Hrönn er ein af sex systk­inum og þegar hún var...
Innlent

Simbi var á kafi í und­ir­heimunum en sneri við blað­inu: „Það er leið út úr þessu“

Þetta er brot úr við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Sig­mundur Geir Helgason, sem ávallt er kall­aður Simbi, var í harðri neyslu um ára­bil og lifði og hrærð­ist í und­ir­heimunum. Hann fram­fleytti sér með glæpum, lenti í fang­elsi og missti tengslin við það sem gæti talist eðli­legt líf. Simbi var djúpt sokk­inn í neyslu; fyrstu árin var það amfetamín,...
Ómar segir miðla og heilara oft verða fyrir fordómum: „Erum jafn misjöfn eins og við erum mörg“
Innlentviðtöl

Ómar segir miðla og heil­ara oft verða fyrir for­dómum: „Erum jafn mis­jöfn eins og við erum mörg“

Ómar Pét­urs­son starfar sem heil­ari og mið­ill. Hann seg­ist vera í sam­bandi við leið­bein­endur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitt­hvað óeðli­legt á heim­ilum sínum. Í helg­ar­við­tali Mannlífs við Ómar segir hann frá því sem hann fæst við á ein­lægan og opinn hátt. Ómar segir að fólk sem vinni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu