„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ómar segir miðla og heilara oft verða fyrir fordómum: „Erum jafn misjöfn eins og við erum mörg“

Ómar segir miðla og heilara oft verða fyrir fordómum: „Erum jafn misjöfn eins og við erum mörg“
(Mynd: Helgi Jónsson.)

Ómar Pét­urs­son starfar sem heil­ari og mið­ill. Hann segist vera í sam­bandi við leið­bein­endur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitt­hvað óeðli­legt á heim­ilum sínum. 

Í helg­ar­við­tali Mannlífs við Ómar segir hann frá því sem hann fæst við á ein­lægan og opinn hátt.

Ómar segir að fólk sem vinni sem miðlar eða heil­arar verði sumt fyrir for­dómum. Nei­kvæðni. „Við sem störfum í þessu erum jafn mis­jöfn eins og við erum mörg og það verður alltaf. Það er alveg sama um hvaða atvinnu­grein er að ræða – það eru alltaf ein­hverjir óheið­ar­legir sem skemma fyrir hinum. Það er ekk­ert öðru­vísi í þessum geira. Ég hef svo­lítið talað um það að sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lög ættu að búa til námskrá því að það er eitt­hvað um að fólk mæti á eitt heil­un­ar­nám­skeið og er svo sjálft farið að kenna eða farið að vinna sem miðlar eftir stuttan tíma. Ég brýni fyrir fólki að taka hlut­unum rólega. Þetta er lang­hlaup. Það verður að gefa sér tíma í þjálfun­ina.“

„Ég verð ekki ríkur af þessu“

Ómar er spurður hvað það hafi gefið honum að aðstoða fólk á þennan hátt. „Mér er gef­inn þessi hæfi­leiki að hjálpa fólki og það gefur mér ótrú­lega mikið. Ég verð ekki ríkur af þessu. Það sem gefur mér ótrú­lega mikið er til dæmis að fara á kaffi­hús í jóla­ösinni og henda orku­bolta á þá sem ég tel þurfa á að halda. Það veit eng­inn hvað ég er að gera en mér er nákvæm­lega sama af því að ég tel mig vera að gefa fólki og senda því orku sem það þarf á að halda.“

Ómar stofn­aði á sínum tíma Facebook-síð­una „Tveggja heima tal“ þar sem fólk veltir fyrir sér and­ans málum. Síðan er opin þannig að það þarf ekki að sækja um að verða þar með­limur. „Fólk er kannski að spyrja spurn­inga og mér finnst vera í lagi að fólk geti haft þarna skoð­ana­skipti hvort sem það er að setja myndir af boll­unum sínum eða spyrja ráð­legg­ingar ef það á kannski erfitt með að sofa.“ Má segja að þetta sé þá hluti af heilun Ómars? „Já, það má segja það. Eins og allt annað á þetta að byggj­ast á kær­leika og að fólk tali saman og veiti hvert öðru ráð.“

Viðtalið við Ómar í heild sinni má lesa hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakkaskraut, ég er þurrskreyting.“
Innlentviðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakka­skraut, ég er þurr­skreyt­ing.“

Krist­berg Jónsson, betur þekktur sem Kibbi í Baulu, og Sigrún kona hans, ráku lengi vel áning­ar­stað­inn Baulu í Borg­ar­firði og en Kibbi ræddi meðal ann­ars þá reynslu sína í við­tali við Sjóarann á dög­unum. Kibbi er bæði yfir­lýstur sós­í­alisti og mik­ill vél­hjóla­maður. Sagan segir að hann hafi eitt sinn hafi hann eign­ast blátt mót­or­hjól en verið snöggur til að sprauta...
Elísabet Jökulsdóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.
Innlentviðtöl

Elísabet Jök­uls­dóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.

Elísabet Jök­uls­dóttir, skáld­kona og rit­höf­undur, fékk ígrætt nýtt nýra á laug­ar­dag­inn en hún var með nýrna­bilun á loka­stigi. Systir Elísa­betar, Unnur Þóra, birti færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún sagði frá þeim gleði­tíð­indum að Elísabet hafi fengið nýtt nýra í Svíþjóð og að allt hafi gengið eftir óskum. Elísabet var önnum kafin þegar blaða­maður náði á hana, enda...
Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkjugarðinum“
Innlentviðtöl

Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkju­garð­inum“

Þessi grein er brot úr við­tali Svövu Jóns­dóttur við séra Jónu Hrönn Bolla­dóttur. Viðtalið má í heild sinni lesa hér. Jóna Hrönn Bolla­dóttir fædd­ist í Hrísey 21. júlí árið 1964 og er dóttir hjón­anna Bolla Þóris Gúst­avs­sonar, fyrrum vígslu­bisk­ups að Hólum í Hjalta­dal, og Matt­hildar Jóns­dóttur hár­greiðslu­meist­ara og hús­móður. Jóna Hrönn er ein af sex systk­inum og þegar hún var...
Innlent

Simbi var á kafi í und­ir­heimunum en sneri við blað­inu: „Það er leið út úr þessu“

Þetta er brot úr við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Sig­mundur Geir Helgason, sem ávallt er kall­aður Simbi, var í harðri neyslu um ára­bil og lifði og hrærð­ist í und­ir­heimunum. Hann fram­fleytti sér með glæpum, lenti í fang­elsi og missti tengslin við það sem gæti talist eðli­legt líf. Simbi var djúpt sokk­inn í neyslu; fyrstu árin var það amfetamín,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins