„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ómar Pétursson miðill sér víkinga: „Í þessum gömlu víkingafötum, með hjálm, góðan skjöld og sverð“

Ómar Pétursson miðill sér víkinga: „Í þessum gömlu víkingafötum, með hjálm, góðan skjöld og sverð“
(Mynd: Helgi Jónsson.)

Hann starfar meðal ann­ars sem heil­ari. Segist vera í sam­bandi við leið­bein­endur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitt­hvað óeðli­legt á heim­ilum sínum. Ómar Pét­urs­son leggur áherslu á kær­leik­ann. „Við megum ekki gleyma að njóta jarð­vist­ar­innar og læra eitt­hvað af henni vegna þess að þegar hún er svo búin þá hefur fólk alla eilífð­ina til að sinna hand­an­heim­inum.“

„Ég átti leik­fé­laga í æsku sem ég spáði þá ekki í að aðrir sáu ekki. Bróðir minn hafði orð á því löngu síðar að hann myndi eftir mér þar sem ég hafði setið úti í horni og verið að spjalla við ein­hvern sem eng­inn sá nema ég. Þetta var mér ein­hvern veg­inn svo eðli­legt. Þetta var ekk­ert sem trufl­aði mig.“

Hverja sá Ómar Pét­urs­son? Komu þeir honum fyrir sjónir eins og mann­anna börn?

„Já, og það var sér­stak­lega einn. Ég er nú búinn að hitta hann eftir það. Hann er álfur. Það er álfa­byggð við þorpið þaðan sem ég er, Bakka­firði.“

Ég sá stundum eitt­hvað sem ég vissi að eng­inn annar sá en spáði ekki mikið í þessa leik­fé­laga mína.

Ómar seg­ist ekki hafa spáð mikið í þetta fyrr en um ferm­ing­ar­aldur. „Ég sá stundum eitt­hvað sem ég vissi að eng­inn annar sá en spáði ekki mikið í þessa leik­fé­laga mína. Þegar ég var að nálg­ast ferm­ing­ar­ald­ur­inn þá sá ég nú hluti sem kannski eng­inn ætti að sjá; maður sér ekki alltaf allt fal­legt. Það fylgir stundum. Þá man ég eftir því að ég bað um að fá frið og þá í sjálfu sér sá ég ekk­ert að ráði í nokkur ár; ekki þannig að ég spáði neitt í það. Þetta er ekk­ert óal­gengt. Það er gjarnan sagt að lang­flest börn verði vör við eitt­hvað án þess kannski að átta sig á því og það dregur úr þessu þegar þau nálg­ast kyn­þroska­ald­ur­inn. Svo er spurn­ing hjá hverjum þetta kemur kannski aftur eftir kyn­þrosk­ann. Það hefur kannski að gera með sak­leysi barna. Þau eru bara opin. Það er ekki búið að búa neitt til í huga þeirra.“

Næmnin fór að gera aftur vart við sig á mennta­skóla­ár­unum. „Ég vissi alveg af þessu en var svo sem ekk­ert að sækj­ast eftir þessu. Maður var að hugsa um annað á þessum árum. En leið­bein­endur mínir sóttu svo­lítið á þetta. Ég fann alveg að ég gat hjálpað fólki; sem sagt heilað það. Ef fólki leið illa þá kannski fór ég og spjall­aði við það og því leið miklu betur á eftir þannig að með­vitað eða ómeð­vitað var ég sem sagt að nota hæfi­leik­ana en var aldrei að full­nýta þá ef ég get sagt sem svo. Það var ekki fyrr en árið 2007 en þá dreif ég mig á nám­skeið hjá Bjarm­anum á Dalvík og síðan hef ég unnið mark­visst að því að fara á nám­skeið, bæta þekk­ing­una og þjálfa mig.“

Ómar segir að á þessum tíma hafi fólk jafn­vel gengið að sér og spurt hann hvort hann gerði sér grein fyrir hvað hann væri mik­ill heil­ari. „Og áður en ég fór á nám­skeiðið fór ég á einka­fund þar sem mið­ill sagði að ég væri með fullt af fólki með mér og spurði hvort ég ætl­aði ekk­ert að nota fólkið til að hjálpa öðrum. Hún sagði svo að ég ætti eftir að læra það þegar ég væri til­bú­inn.“

Margfalt fleiri

Ómar segir að þetta snú­ist um að læra að stjórna teng­ing­unni við hand­an­heim og virkja rétt ork­una sem við­kom­andi hefur. „Maður getur til dæmis hjálpað fólki með höf­uð­verk en við erum ekki krafta­verka­menn. Þetta virkar ekki þannig. Þetta snýst fyrst og fremst um að læra og vinna svo­lítið mark­visst með ork­una. Þetta snýst líka um að skynja og þekkja vernd­ar­ana sem eru með manni til að virkja þá í að hjálpa manni. Þegar ég vinn í dag bið ég ein­hvern þeirra um að hjálpa ákveðnum aðila og ég bið annan um að hjálpa öðrum. Um það leyti sem ég var að fara á fyrstu nám­skeiðin átti ég ekk­ert auð­velt með að vera þar sem voru margir – svo sem að fara á manna­mót eða í versl­un­ar­mið­stöðvar af því að ég varð svo þreyttur á eftir. En þegar ég var búinn að fara á nám­skeið þá átt­aði ég mig og skildi þetta; fólk á svona fjöl­mennum stöðum er nátt­úr­lega bara mis­jafn­lega upp­byggt. Við heil­arar erum stundum kall­aðir ljós­berar; við erum kannski eins og 150 vatta pera og svo þegar við förum til dæmis í versl­un­ar­mið­stöðvar þá eru þar ein­hverjir sem eru kannski eins og 20 eða 50 vatta perur og orkan leitar sjálf­krafa að jafn­vægi. Og ef maður býr ekki til vernd í kringum sig eins og ég kalla það – passar upp á sína orku – þá fer orkan sjálf­krafa. Það er ekki það að sá sem stendur við hlið­ina á manni ætli að sér að taka hana; þetta er bara í raun­inni nátt­úran. Jafnvægi í nátt­úr­unni.

Ég bið um sér­staka vernd og loka mig af þannig að ég geti farið og verið venju­legur eins og ég segi stundum.

Þegar ég var í versl­un­ar­mið­stöðvum skynj­aði ég marg­falt fleiri heldur en voru þar. Í dag er þetta ekk­ert vanda­mál því ég er búinn að skil­greina vinnu­tíma minn; ég passa mig sér­stak­lega þegar ég fer á svona staði. Ég bið um sér­staka vernd og loka mig af þannig að ég geti farið og verið venju­legur eins og ég segi stundum. Eftir að ég virkj­aði þetta er miklu auð­veld­ara fyrir mig að fara á svona staði. Eitt af því skemmti­leg­asta sem ég geri í minni heilun er að fara kannski á kaffi­hús þar sem eru margir, setj­ast niður bara með minn kaffi­bolla og svo und­irbý ég mig og fer að vinna. Ég horfi í kringum mig og hendi svo orku­boltum í þá sem ég tel þurfa á að halda. Þetta er bara ég.“

Sá bara beinagrindina

Ómar byrj­aði að heila á Dalvík og svo á Akureyri hjá Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lag­inu á Akureyri. „Það var gríð­ar­lega mikil reynsla og maður þroskað­ist og þró­að­ist býsna hratt á þessum árum. Ég man eftir því þegar einn lagð­ist á bekk­inn hjá mér; mér brá mikið þegar ég sett­ist til fóta vegna þess að ég sá bara beina­grind­ina. Þá var verið að sýna mér að hann væri með skakkan hryggjar­lið.

Fyrst til að byrja með þegar var verið að kenna manni var mjög algengt að ég fann verki þess sem ég var að heila.

Þetta snýst hins vegar ekki alltaf um að sjá eitt­hvað heldur er þetta meira til­finn­ing; hvað ég fæ til mín. Hvað þeir sem eru með mér segja við mig. Þetta hefur verið allur skal­inn. Fyrst til að byrja með þegar var verið að kenna manni var mjög algengt að ég fann verki þess sem ég var að heila. Það er algengt til að byrja með en þá er verið að sýna manni og kenna og svo eftir því sem maður styrk­ist og gerir meira þá þroskast maður þannig að maður þarf ekki að finna verk­ina til að vita hvar þeir eru. Maður lærir það á nám­skeiðum hvernig maður getur unnið við þetta án þess að taka það endi­lega inn á sig. Þeir sem fara ekki á nám­skeið taka kannski hlut­ina of mikið inn á sig og vita svo ekki hvernig þeir eiga að losa sig við það. Það er mik­il­vægt að þeir sem vinna við þetta taki hlut­ina ekki inn á sig; það verður að koma því frá sér svo að við­kom­andi sitji ekki uppi með vanda­málið í stað þess sem verið er að hjálpa.“

„Fyrst til að byrja með þegar var verið að kenna manni var mjög algengt að ég fann verki þess sem ég var að heila.“ (Mynd: Helgi Jónsson.)

Seiðkarl

Ómar seg­ist geta lokað fyrir hæfi­leik­ann þegar hann vill. Og opnað. Hann fékk á sínum tíma kennslu eða þjálfun til að geta gert það.

„Það er mjög óhollt fyrir lík­amann að vinna í þess­ari orku allan dag­inn.“

Orkan. Það er þessi orka. Það er sagt að það sé sér­stök orka hjá heil­urum. Miðlum.

„Orkan getur farið svo­lítið eftir því hvað við­kom­andi þarf á að halda. Orkan hjá mér getur oft verið mjög köld en hún getur líka verið heit. Ég hef þrisvar farið á nám­skeið hjá Arthur Findlay College í Stansted í Bret­landi og eitt kvöldið var kenn­ar­inn með sýni­kennslu uppi á sviði. Ég sett­ist til­tölu­lega fram­ar­lega. Sá sem var á svið­inu hafði aðgang að orku allra í salnum og fann ég eins og það væru reknir pólar í gegnum mig; ég var í Sahara-eyði­mörk­inni öðrum megin og norð­ur­pólnum hinum megin.“ Ómar hlær. „Þetta er rosa­lega mis­jafnt, sér­stak­lega þegar ég fer í trans sem ég hef svo­lítið gert sem er bara hluti af þró­un­inni eða þrosk­anum en þá verð ég mjög kaldur. Það er bara hluti af því að mínir leið­bein­endur eru að passa mig.“

En það er mik­il­vægt að passa upp á kær­leik­ann og einnig trúna.

Hvað með þægi­lega orku sem sumir finna fyrir hjá miðlum?

„Það er ekki hægt að vinna við að hjálpa öðrum nema með kær­leika og það er þessi þægi­lega orka sem fólk finnur. Það er mik­il­væg­asti þátt­ur­inn. Og ef fólk ætlar að fara að vinna við þetta þá þarf það að sinna sjálfu sér. Við­kom­andi byrjar alltaf á því að taka sjálfan sig aðeins í gegn til þess að það sé ekk­ert hjá honum sem mögu­lega truflar þegar hann fer að hjálpa ein­hverjum öðrum. Þannig að það er heil­mikil sjálfs­vinna sem felst í því að fara þessa leið. Þetta er nátt­úr­lega mjög gott fyrir mann sjálfan því maður hreinsar til og maður á alltaf að horfa meira fram á við en í bak­sýn­is­speg­il­inn. En það er mik­il­vægt að passa upp á kær­leik­ann og einnig trúna. Ég segi oft að það skipti ekki öllu máli á hvað fólk trúir; það getur trúað á álfa og tröll og notað þau til að hjálpa sér eða það getur trúað á Jesú. Mér er sama hvað það er. Það er bara svo mik­il­vægt að við­kom­andi trúi og hafi þannig trúna og kær­leik­ann með sér í því sem verið er að gera. Þannig næst miklu betri árangur.“

Ómar talar um vernd­ara sína. Ingi­björg, dóttir hans, teikn­aði mynd af einum þeirra og hangir hún á vegg á heim­il­inu. Ómar segir að dóttir sín hafi séð verndar­ann vel. Hann kallar hann Valdimar, því hans rétta nafn sé svo erfitt og óþjált í fram­burði, og segir að hann hafi verið uppi í Bret­landi í kringum 1300-1400. „Ég kalla hann seið­skratta; honum finnst það ekki skemmti­legt. Hann var uppi á sama tíma og Merlin og þessir; þessar þjóð­sögur sem voru í Bret­landi. Hann er seið­karl eða galdra­karl, svo­lítið líkur Gandalf.“

„Valdimar.“ „Valdimar er annar af mínum tveimur aðal­leið­bein­endum sem eru búnir að vera með mér frá upp­hafi og í sjálfu sér miklu lengur en þennan tíma hérna en það er önnur saga.“ (Mynd: Helgi Jónsson.)

Ómar segir að öllu fólki fylgi tveir vernd­arar eða leið­bein­endur. „Þó þeir kall­ist vernd­arar þá mega þeir ekk­ert gera nema að maður biðji þá um aðstoð. Þeir mega ekki grípa fram fyrir hend­urnar á manni; ef maður talar ekki við þá eða skynjar þá ekki þá mega þeir það ekki. Valdimar er annar af mínum tveimur aðal­leið­bein­endum sem eru búnir að vera með mér frá upp­hafi og í sjálfu sér miklu lengur en þennan tíma hérna en það er önnur saga.“

Fordómar

Það er stundum sagt að trúin flytji fjöll. Getur það haft áhrif þegar fólk trúir því að heil­ari geti hjálpað?

Ég hef hitt marga og svo kemur fólk aftur til mín í heilun; það er svo þakk­látt af því að því líður svo vel.

„Það er ekki spurn­ing. Ég tengi þetta stundum við mál­tækið „guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir“ vegna þess að ef fólk hefur trú á því að það geti gert eitt­hvað þá er við­kom­andi að minnsta kosti kom­inn hálfa leið. Það skiptir svo miklu máli að hafa trú á sér sjálfum eða því sem verið er að gera. Ég hef hitt marga og svo kemur fólk aftur til mín í heilun; það er svo þakk­látt af því að því líður svo vel. Ég kem stundum með ráð, sér­stak­lega ef þetta er and­legt, um hvernig fólk getur unnið betur í sér og gert betur til að passa upp á sig. Maður sér fram­þró­un­ina. En svo kemur fólk stundum reglu­lega til mín og það ger­ist ekki neitt. Það er ein­fald­lega af því að það hefur ekki trú á því að eitt­hvað sé að ger­ast; það þarf að hafa trú á því sem verið er að gera fyrir við­kom­andi. Við erum rúm­lega 20 heil­arar og miðlar hérna norðan heiða sem sendum gjarnan á milli okkar tölvu­póst ef við fáum ein­hverjar beiðnir inn og ég get nefnt dæmi um fólk sem við höfum fengið inn á borð til okkar og ári síðar skildu læknar ekki hvað gerð­ist. Ég segi líka að þetta vinnur allt saman; Arthur Findlay College er aðal­skóli spír­itista­fé­lags­ins í Bret­landi og þeir eru með námskrá og þetta nám er við­ur­kennt í Bret­landi og þeir sem hafa útskrif­ast mega starfa við hlið lækna á sjúkra­húsum. Ég segi oft að ef við hugsum til ein­hvers í hreinum kær­leika þá getum við aldrei gert annað en að hjálpa eitt­hvað. Við getum aldrei skaðað.“

Ómar segir að hér á landi sé hins vegar stutt í for­dóma gagn­vart þeim sem vinna við þessi mál og nefnir hann hjúkr­un­ar­fræð­inga sem hann segir að noti hæfi­leika sína í starfi sínu án þess að hafa hátt um það.

Andarnir í húsunum

Ómar seg­ist bjóða upp á þjón­ustu sem felist í að aðstoða fram­liðna sem trufla fólk í híbýlum þess. Hann segir að sumir heyri hljóð; heyri til dæmis dyrum lokað eða umgang. Aðrir sjá eitt­hvað og skynja. „Stundum talar fólk um gamlan mann sem er að trufla en þá getur það verið ein­hver sem byggði húsið eða er afi eða langafi við­kom­andi sem ætlar bara að líta eftir. Þegar ætt­ingjar okkar falla frá eru þeir oft ein­hvers staðar nálægt og vilja halda áfram að passa upp á okkur.“

Ómar seg­ist hafa um 30 fram­liðna sér til aðstoðar við svona verk­efni.

„Fólk spyr hvort ég vilji hjálpa því að „hreinsa“ en þetta snýst ekki um að hreinsa. Ég skal segja þér sögu sem hjálp­aði mér til þess að skilja af hverju ég vil ekki kalla þetta því nafni. Ég var á sínum tíma feng­inn til að aðstoða fólk í húsi sem bjó í Reykja­vík og var ég búinn að mæla mér mót klukkan fimm. Ég var bara að rölta í bænum og var mættur um 20 mín­útum fyrir fimm. Ég sett­ist á stein úti í garði og horfði í kringum mig; þarna er mikið af gömlum húsum og eitt­hvað um hús sem höfðu verið færð þangað en höfðu staðið áður ann­ars staðar í borg­inni. Ég var kom­inn í gír­inn af því að ég ætl­aði að skoða umhverfið í kringum húsið og fór að vinna. Þá sá ég fjölda fram­lið­inna í hinum hús­unum sem voru að fylgj­ast með mér.“

yfir­gnæf­andi meiri­hluta til­fella eru það þeir sem eru nýfluttir í hús svo sem börn varir við ein­hverja en þá eru það kannski þeir sem eru að passa upp á húsin.

Þögn.

„Ég fór að velta því fyrir mér af hverju þeir væru að fylgj­ast með mér og þá sagði einn þeirra að hann kynni ekki við okkur sem værum að reka þá á milli húsa. Ég spurði hvað hann ætti við. Hann spurði hvort ég hafi ekki heyrt talað um góðan anda í húsum og að fólki fynd­ist vera mis­gott að koma í hús. Og það er akkúrat það sem þetta er: Í yfir­gnæf­andi meiri­hluta til­fella eru það þeir sem eru nýfluttir í hús svo sem börn varir við ein­hverja en þá eru það kannski þeir sem eru að passa upp á húsin. Þeir hafa kannski fengið það hlut­verk hinum megin eða þá að þeir byggðu húsið á sínum tíma og tengj­ast því þannig. Oftar en ekki snýst þetta um að semja við við­kom­andi, sér­stak­lega ef ung börn eiga í hlut sem eru nýflutt í húsið af því að sum börn eru næm. Þeir átta sig ekki endi­lega á því að börn eru næm­ari og skynja þá. Oft snýst þetta um að ræða við þá látnu og segja þeim að passa sig á að börnin verði ekki vör við þá. Þetta snýst ekki um að reka drauga út úr húsum.

Börn eru næm­ari en full­orðnir eins og ég hef nefnt og með til­tölu­lega sterkt ljós og draga þá oft að sér fólk að handan. Ég veit að maður á ekki að segja þetta en það er oft talað um að látnir fari beint í sum­ar­landið en það er ekki alltaf svo ein­falt; fólk lendir í slysi og áttar sig ekki alltaf á því að það er farið yfir. Svo líður sumum illa og finnst þeir ekki eiga skilið að fara yfir. Það eru svo margar hliðar á þessu. Þetta fólk dregst að svona ljós­verum í leit að hjálp og í þeim til­fellum þarf að hjálpa þeim að ná áttum og koma þeim alla leið yfir. Og þá er það farið. Ég gæti haft nóg að gera við að reka fram­liðna á milli húsa,“ segir Ómar og hlær, „en þetta snýst ekki um það. Þetta snýst að lang­mestu leyti um að við­kom­andi skilji það að hann sé að trufla börnin og þurfi þá að draga sig til baka. Í 95% til­fella er það ekk­ert annað. Þetta snýst um að hjálpa til.“

Ómar segir að þegar hann aðstoði fram­liðna yfir þá taki það stundum tíma. „Maður vill alltaf gera þetta í góðu og það er svo mik­il­vægt að gefa sér tíma í það og hugsa kannski til fólks tvo til þrjá daga í röð til þess að ná alveg í gegn eða ná að fara yfir allt saman. Fólkið sem býr í hús­unum skynjar oft frið og talar oft við mig um það eftir á að börnin séu farin að sofa betur og verða ekki hrædd. Svo fylgist ég stundum með og í einu til­felli hafði stelpa á heim­ili verið ómögu­leg og eftir að hafa aðstoðað við það heim­sótti ég einu sinni fjöl­skyld­una og því fylgir alltaf ákveðin heilun. Það var hundur á heim­il­inu og sótti hann svo­lítið í mig á meðan ég var þarna. Hús­móð­irin hafði sam­band við mig nokkrum dögum síðar og þakk­aði mér fyrir heim­sókn­ina og sér­stak­lega það að hund­ur­inn sem hafði verið haltur og ómögu­legur varð eins og stál­sleg­inn eftir heim­sókn­ina.“

„Ég gæti haft nóg að gera við að reka fram­liðna á milli húsa,“ segir Ómar og hlær, „en þetta snýst ekki um það.“ (Mynd: Helgi Jónsson.)

Víkingasveitin

Ómar seg­ist vera með heila vík­inga­sveit að handan sér til aðstoðar.

„Ég hitti á sínum tíma í veislu eina frænku mína í Reykja­vík og spjöll­uðum við saman. Það barst eitt­hvað í tal hvað ég væri að sýsla og hún spurði hvort ég gæti ekki heim­sótt hana og hjálpað henni. Ég heim­sótti hana dag­inn eftir og þá kom í ljós að það gat eng­inn sofið í einu  her­berg­inu á heim­ili hennar. Hund­ur­inn hennar gat ekki einu sinni verið þar inni. Ég fór inn í her­bergið og tengdi mig inn á það. Þar var stytta sem hún hafði fengið gef­ins sem hafði komið frá Bret­landi og það sem var inni í her­berg­inu hafði komið með stytt­unni. Ég bað við­kom­andi um að hætta að trufla og fór svo fram.

Ég fór að ræða við þessa þrjá og þá kom einn í við­bót og sá reynd­ist vera frá vík­inga­öld á Íslandi.

Eig­in­maður frænku minnar sagði svo að ég þyrfti að heim­sækja vina­fólk þeirra sem bjó ekki langt frá og við fórum þangað og sagði vin­kona þeirra að þau hjónin yrðu alltaf fyrir ákveð­inni truflun í svefn­her­berg­inu. Ég fór að skoða þetta og skynj­aði að það hafði mikið gengið á í þessu húsi. Ég sagði við hús­móð­ur­ina að þeir væru þrír sem væru að trufla þau og þá sagði konan að hún hefði aldrei sagt áður að hún hefði séð þrjá skugga þar inni. Ég fór að ræða við þessa þrjá og þá kom einn í við­bót og sá reynd­ist vera frá vík­inga­öld á Íslandi. Við verðum að átta okkur á því að farið er um víðan völl við bygg­inga­fram­kvæmdir og á vík­inga­tím­anum voru menn ekk­ert alltaf jarð­aðir á ákveðnum blettum þannig að það er búið að raska fleiri en einni vík­inga­gröf. Yfir­leitt ger­ist nú ekk­ert en í þessu til­felli voru þessir til­teknu aðilar ekk­ert sáttir við það. En það náð­ist sátt. Þegar ég var búinn að semja við þessa þrjá um að þeir skyldu hætta að trufla og athuga hvort þeir gætu ekki fundið frið ein­hvers staðar ann­ars staðar þá kom þessi fjórði til mín tveimur dögum síðar og spurði hvort hann mætti ekki bara vera með mér áfram og hjálpa mér. Hann og vinir hans. Og þar með eign­að­ist ég 14 manna vík­inga­sveit.“

Ómar seg­ist vera búinn að sjá þá alla. Hann segir að fyrsti vík­ing­ur­inn sem hann hitti heiti Hrærekur og að teikni­mið­ill hafi teiknað mynd af honum fyrir sig.

„Hann er í þessum gömlu, góðu vík­inga­fötum og með hjálm, góðan skjöld og sverð. Ég nota hann stundum; ef fólk verður fyrir ákveð­inni truflun fer hann stundum með sína menn. Mér finnst vera þægi­legt að biðja þá um vernd fyrir hús.“

Kærleikurinn

Ómar segir að fólk sem vinni sem miðlar eða heil­arar verði sumt fyrir for­dómum eins og þegar hefur verið minnst á. Nei­kvæðni. „Við sem störfum í þessu erum jafn mis­jöfn eins og við erum mörg og það verður alltaf. Það er alveg sama um hvaða atvinnu­grein er að ræða – það eru alltaf ein­hverjir óheið­ar­legir sem skemma fyrir hinum. Það er ekk­ert öðru­vísi í þessum geira. Ég hef svo­lítið talað um það að sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lög ættu að búa til námskrá því að það er eitt­hvað um að fólk mæti á eitt heil­un­ar­nám­skeið og er svo sjálft farið að kenna eða farið að vinna sem miðlar eftir stuttan tíma. Ég brýni fyrir fólki að taka hlut­unum rólega. Þetta er lang­hlaup. Það verður að gefa sér tíma í þjálfun­ina.“

Valdimar virð­ist fylgj­ast með við­tal­inu á strig­anum sem hangir á veggnum. Ómar er spurður hverjir séu í her­berg­inu þessa stund­ina.

„Valdimar er alltaf með mér og Wu, kín­verskur nála­stungu­læknir. Ég í raun­inni vinn aldrei neitt svona nema að þeir séu ein­hvers staðar nálægt. Það er eitt stykki grá­björn hérna líka. Svo er ég með indíána sem heitir Guli hundur; hann er svo­lítil teng­ing við björn­inn. Það er algengt að fólk sem er í and­legum málum teng­ist eitt­hvað indíánum. Indíánar og Inkarnir eru and­leg­ustu ver­urnar sem hafa gengið um jörð­ina á okkar tímum; svo ef við förum lengra aftur í tíma þá getum við talað um fólkið sem var í Atlantis.“

Ómar er spurður hvað það hafi gefið honum að aðstoða fólk á þennan hátt. „Mér er gef­inn þessi hæfi­leiki að hjálpa fólki og það gefur mér ótrú­lega mikið. Ég verð ekki ríkur af þessu. Það sem gefur mér ótrú­lega mikið er til dæmis að fara á kaffi­hús í jóla­ösinni og henda orku­bolta á þá sem ég tel þurfa á að halda. Það veit eng­inn hvað ég er að gera en mér er nákvæm­lega sama af því að ég tel mig vera að gefa fólki og senda því orku sem það þarf á að halda.“

Ómar stofn­aði á sínum tíma Facebook-síð­una „Tveggja heima tal“ þar sem fólk veltir fyrir sér and­ans málum. Síðan er opin þannig að það þarf ekki að sækja um að verða þar með­limur. „Fólk er kannski að spyrja spurn­inga og mér finnst vera í lagi að fólk geti haft þarna skoð­ana­skipti hvort sem það er að setja myndir af boll­unum sínum eða spyrja ráð­legg­ingar ef það á kannski erfitt með að sofa.“ Má segja að þetta sé þá hluti af heilun Ómars? „Já, það má segja það. Eins og allt annað á þetta að byggj­ast á kær­leika og að fólk tali saman og veiti hvert öðru ráð.“

Ómar stofn­aði á sínum tíma Facebook-síð­una „Tveggja heima tal“ þar sem fólk veltir fyrir sér and­ans málum. (Mynd: Helgi Jónsson.)
Við megum ekki gleyma að njóta jarð­vist­ar­innar og læra eitt­hvað af henni vegna þess að þegar hún er svo búin þá hefur fólk alla eilífð­ina til að sinna hand­an­heim­inum.

Hvað er dauð­inn í huga Ómars? „Hann er bara fram­hald. Simone Key, sem er breskur mið­ill, sagði að við megum ekki gleyma þessum jarð­neska tíma því að í sam­heng­inu er hann til­tölu­lega stuttur. Við megum ekki gleyma að njóta jarð­vist­ar­innar og læra eitt­hvað af henni vegna þess að þegar hún er svo búin þá hefur fólk alla eilífð­ina til að sinna hand­an­heim­inum.“

Ómar segir að kær­leik­ur­inn sé aðal­at­riðið.

Guðfinna Þor­steins­dóttir samdi ljóðið Lífs­reglur og fer Ómar með hluta eins erind­is­ins sem segir mikið.

Þerraðu kinnar þess er grætur.
Þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sér­hvert hjarta,
sól­ar­geisla kær­leik­ans.

„Þetta er búið að vera mitt mottó. Þetta er það sem menn verða að hafa að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins