„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lúxusbrauðterta með reyktum laxi

Brauðtertur eru sívin­sælar og slá alltaf í gegn. Það er bara eitt­hvað við majónes og brauð sem fólki líkar. Svo eru þær líka svo fal­legar og girni­legar. Hér er flott útfærsla á einni með reyktum laxi.

Lúxusbrauðterta með reyktum laxi

Lúxusbrauðterta með reyktum laxi

fyrir 12-14

1 brauðtertu­brauð
150 g rjóma­ostur
100 g 18% sýrður rjómi
1-2 msk. majónes
rækjusósa (sjá upp­skrift)
½ gúrka, skorin í þunnar sneiðar
u.þ.b. 6 msk. mjúkt smjör
u.þ.b. 150 g reyktur lax, þunnt skor­inn
sinn­epssósa (sjá upp­skrift)
4-6 msk. majónes
3-4 stk. harðsoðin egg, skorin í sneiðar

Ofan á
1-2 stk. harðsoðin egg, skorin í báta
ferskt dill
sítrón­u­sneiðar
rækjur
reyktur lax
fersk stein­selja
blóm ef vill, hér voru notuð blóm af blað­sal­ati

Skerið skorpuna af brauð­inu og setjið til hliðar (skorpan er notuð í brauð­stangir sem rað­ast utan um brauðtert­una). Hrærið saman rjóma­ost, sýrðan rjóma og majónes þar til blandan er slétt og felld. Þetta er gott að gera í hræri­vél eða mat­vinnslu­vél. Setjið brauð­sneið á disk og dreifið rækjusósu ofan á. Raðið þunnum gúrku­sneiðum ofan á og leggið aðra brauð­sneið yfir. Smyrjið hana með smjöri og raðið reyktum laxi ofan á. Dreifið sinn­epssósu yfir lax­inn. Setjið brauð­sneið ofan á, smyrjið hana með majónesi og raðið eggja­sneiðum ofan á. Leggið aðra brauð­sneið ofan á og end­ur­takið frá byrjun. Smyrjið alla brauðtert­una með rjóma­osta­blönd­unni og setjið hana gjarnan í kæli í 1-2 klst. Raðið rist­uðum skorpu­bitum utan um kök­una og skreytið að vild.

Sinn­epssósa
2 msk. dijon-sinnep, við stofu­hita
1 msk. sykur
1 tsk. sinn­eps­duft
1 dl bragð­lítil olía

Setjið sinnep, sykur og sinn­eps­duft saman í skál (gott að nota nokkuð víða skál) og pískið saman. Hellið olíu saman við í dropa­tali til að byrja með og pískið af fullum krafti, látið þá olí­una út í í lít­illi bunu og haldið áfram að píska. Þetta er sama aðferð og notuð er þegar búið er til majónes.

Rækjusósa
400 g rækjur
1 dl majónes
1 dl sýrður rjómi
1 msk. saxaður rauð­laukur
safi úr ½ límónu
2-3 msk. saxaður gras­laukur og/
eða dill
gróft sjáv­ar­salt
hvítur pipar

Takið gjarnan nokkrar rækjur frá til þess að skreyta með. Kreistið eins mikið vatn úr rækj­unum og hægt er. Setjið allt saman í mat­vinnslu­vél og látið ganga þar til allt er slétt og fellt.

Brauð­stangir
skorpan af brauð­inu
2 msk. ólífu­olía
3-4 msk. pestó að eigin vali

Hitið ofn í 200°C. Setjið olíu og pestó saman í skál og veltið skorp­unni létt upp úr leg­inum. Raðið á bök­un­ar­papp­írs­klædda ofn­plötu og bakið í 5-10 mín. eða þar til skorpan hefur rist­ast fal­lega. Látið kólna. Skerið í hæfi­lega langa bita til þess að raða utan um brauðtert­una.

Umsjón: Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir: Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brauðtertur

Myndband: Skinkubrauðterta sem allir elska
Mannlífið

Myndband: Skinku­brauðterta sem allir elska

Eflaust hefur það ekki farið fram hjá neinum að við á Gest­gjaf­anum höfum verið í sann­köll­uðu brauðtertu­stuði und­an­farnar vikur, enda gott að henda í brauðtertur til að hvíla köku­átið en köku­blað Gest­gjafans var einmitt að koma í versl­anir. Þessi brauðterta er afar fersk og góð en samt nokkuð klass­ísk og því finnst eig­in­lega öllum hún góð. Brauðtert­una er afar auð­velt að gera eins og sést vel á mynd­band­inu sem fylgir með. Veði ykkur að góðu.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður