„Út frá þessari reynslu okkar ákváðum við að kynna töfra gelato-íssins fyrir Íslendingum en hann er frábrugðinn hefðbundnum rjómaís. Gelato-ísinn okkar er ávallt nýlagaður, gerður bæði úr íslensku úrvalshráefni svo sem mjólk, rjóma og skyri sem og ítalskri gæðavöru líkt og pistasíum frá Sikiley og heslihnetum frá Piemonte.“
Michele flutti til Íslands fyrir einu ári, að hans sögn til að dvelja í þessu frábæra landi í samfélagi við fólk sem hefur sömu gildi og hann sjálfur. Hann rak áður eigið fyrirtæki á Ítalíu með keppnishjólreiðahluti en langaði í nýjar áskoranir eftir fimm ára rekstur, seldi fyrirtækið og fór til Íslands. Ísbúðin er staðsett við Aðalstræti 6 í Reykjavík.
Lengra viðtal er við Michele í nýjasta tölublaði Gestgjafans, 7. tbl. 2020.
Tryggðu þér áskrift að Gestgjafanum í vefverslun




















Athugasemdir