„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“

„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Ana Markovic, íþrótta­kona, fit­ness, hlaup, mara­þon, gigt, vefja­gigt, sigur

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda vaxt­ar­rækt með góðum árangri og hefur margoft keppt fyrir Íslands hönd í alþjóð­legum mótum vaxt­ar­rækt­ar­fólks. Nú er hún útlærður einka­þjálf­ari og hefur stofnað eigin vaxt­ar­rækt­ar­stöð þar sem hún leggur áherslu á að sinna fólki með vefja­gigt og svefn­vanda­mál.

„Ég ólst upp í stríðs­hrjáðri Júgóslavíu, nánar til­tekið í Serbíu, en eftir að hafa klárað skóla­göng­una þar flutti ég til fjöl­skyldu minnar sem flúið hafði til Íslands,“ útskýrir Ana þegar hún er spurð um bak­grunn sinn og ástæðu þess að hún gerð­ist Íslend­ingur. „Ég fór í Háskóla Íslands í véla­verk­fræði, með áherslu á vél- og orku­tækni­fræði, og hélt síðan áfram í hátækni­verk­fræði. Vann í mörg ár sem tækni­teikn­ari hjá verk­fræði­fyr­ir­tækjum en svo kom að því að ég var orðin nógu sjálfsör­ugg til að stofna mitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki sem ég rak í mörg ár.“

Ana Markovic Mynd / Hallur Karlsson

Hélt að flugvélin hefði lent á tunglinu

Ana hafði nokkrum sinnum heim­sótt fjöl­skyldu sína á Íslandi áður en hún sett­ist hér að og hún seg­ist aldrei gleyma þeirri upp­lifun að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli í fyrsta skipti.

„Ég hélt að vélin hefði óvart flogið of hátt og hefði neyðst til að lenda á tungl­inu vegna elds­neyt­is­skorts,“ segir Ana og skelli­hlær. „Enda­lausar hraun­breiður, engar bygg­ingar sjá­an­legar, það rauk úr jörð­inni og allir töl­uðu eitt­hvert geim­verutungu­mál. Ég þurfti sífellt að vera að minna mig á að loka munn­inum sem var galop­inn af undrun.“

Eftir að hafa flutt alfarið til Íslands segir Ana að þessi upp­lifun hafi breyst smám saman og hún hafi smátt og smátt farið að kunna vel að meta nýju heim­kynnin, fyrir utan kuld­ann.

„Fyrsta eitt og hálfa árið var mér alltaf kalt,“ segir hún og hryllir sig. „En ég lærði smátt og smátt að meta feg­urð lands­ins og hvað fólkið var vin­gjarn­legt, þótt það gerði enda­laust grín að mér þegar ég reyndi að tala íslensku. Umhverfið var svo gjör­ó­líkt því sem ég átti að venj­ast og ég var yfir mig hrifin af því að geta farið í langar göngu­ferðir í ferska loft­inu og upp­götvað nýja hluti við hvert skref. Ég var lengi að venj­ast því að lög­reglan væri ekki með byssur og að það virt­ist vera mjög lítið um glæpi. Ég gat skilið bíl­inn minn og húsið eftir ólæst án þess að nokkuð gerð­ist. Þetta var svo ólíkt því sem ég hafði van­ist, algjör­lega nýr heimur, og mér fannst í alvöru að ég væri komin á aðra plánetu.“

Læknirinn hélt að sársaukinn væri hugarburður

Eftir að hún setti á stofn sitt eigið fyr­ir­tæki var Ana komin á góðan stað í líf­inu, fyr­ir­tækið gekk vel og þrátt fyrir ýmsa erf­ið­leika var hún nokkuð ánægð með sjálfa sig og lífið. Það kom því eins og þruma úr heið­skíru lofti þegar hún, árið 2010, fór að finna fyrir miklum verkjum, stirð­leika og erf­ið­leikum við að ráða við ein­föld­ustu dag­legar athafnir.

„Á þeim tíma var mikið álag á mér,“ útskýrir hún. „Ég man að mér fannst mér hafa mis­tek­ist hrapa­lega í til­raunum mínum til að þókn­ast öllum. Einn morg­un­inn vakn­aði ég síðan með svo mikla verki að ég gat varla stigið fram úr rúm­inu og staðið upp­rétt. Í fimm daga átti ég erfitt með að klæða mig, ég hafði svo mikla verki í lóf­unum og fót­unum. Ég man að pabbi skar mat­inn minn í örsmáa bita því ég hafði ekki orku til að halda á hníf og gaffli. Það var líka nán­ast von­laust að liggja út af vegna verkja í mjöðmum og hrygg og ef ein­hver snerti mig fannst mér ég hafa brennt mig. Að kvöldi sjötta dags­ins var ég orðin örmagna, svefn­vana og leið svo illa að ég sam­þykkti loks að fara til læknis.“

Þrátt fyrir alvar­leg ein­kennin vafð­ist það nokkuð fyrir lækn­unum að finna skýr­ingu á ástand­inu og koma með grein­ingu á sjúk­dómnum og Ana segir að lækn­ir­inn sem hún fór til fyrst hafi í upp­hafi litið svo á að veik­indin væru fyrst og fremst hug­læg.

„Sá læknir gekk út frá því að sárs­auk­inn væri bara hug­ar­burður en vildi þó fá álit ann­ars læknis,“ útskýrir hún. „Þegar tauga­lækn­ir­inn sem hann kall­aði til gekk inn stóð ég var­lega á fætur til að sýna honum virð­ingu, þótt ég þyrfti að styðja mig við sól­bakið og vegg­inn til að geta staðið upp­rétt. Þegar hann kynnti sig fyrir mér og tók í hönd­ina á mér var hand­takið svo sárs­auka­fullt að ég bók­staf­lega féll á kné. Ég man ekki eftir því að hafa grátið en and­litið á mér var vott, ég veit ekki hvort það var af tárum eða svita. Hann sagði að þetta sem hrjáði mig væri ekki á sviði tauga­lækn­ing­anna heldur skyldi ég fara til gigt­ar­læknis. Hann gaf mér heim­il­is­fangið á stofu gigt­ar­læknis og skip­aði mér að fara beint þangað. Þar fór ég í blóðprufu og fékk skoðun hjá gigt­ar­lækni sem rann­sak­aði hreyfi­getu mína, ástand lið­anna og svo fram­vegis. Síðan kvað hann upp þann úrskurð að ég væri með liða­gigt í öllum liðum, bæði í þeim minni í höndum og fótum og í þeim stærri í hnjám og oln­bogum og sömu­leiðis í hryggnum.“

Ana Markovic Mynd / Hallur Karlsson

„Þú verður komin í hjólastól þrjátíu og fimm ára“

Eftir grein­ingu á sjúk­dómnum byrj­aði Ana í verkja­með­ferð og seg­ist fljót­lega hafa farið að finna mik­inn mun á sér.

„Ég fékk verkja­með­ferð sem sló á alla verk­ina,“ segir hún bros­andi. „Ég gat dansað, hoppað og gengið hjálp­ar­laust og mér leið stór­kost­lega. Sú gleði ent­ist því miður ekki lengi. Fyrst fóru lið­irnir að bólgna, síðan fékk ég slæman hósta sem hvarf ekki á fimm vikum og til að bæta gráu ofan á svart fór ég að fitna mikið. Í sam­tali við gigt­ar­lækn­inn komst ég að því að þessi verkja­með­ferð sem ég var í var engin lækn­ing og það sem verra var, lyfin bældu ónæm­is­kerfið sem útskýrði enda­lausan hóst­ann. Hann sagði mér að með tím­anum myndu þessi lyf skemma bæði lifr­ina og nýrun auk þess sem liða­gigtin sjálf væri þess eðlis að vef­irnir sem hlífðu hjarta og lungum rýrn­uðu. Hann sagði að sjúk­dóm­ur­inn væri á það háu stigi hjá mér að ég yrði senni­lega komin í hjóla­stól um þrjá­tíu og fimm ára aldur og það væri hætta á að ég myndi ekki lifa það að fagna fjöru­tíu og fimm ára afmæl­inu mínu. Eftir þessar upp­lýs­ingar fannst mér það of dýru verði keypt að vera verkja­laus þannig að ég kláraði það sem ég átti eftir af lyfja­skammt­inum en end­ur­nýj­aði aldrei lyf­seð­il­inn. Ég hef alltaf haft mikið álit á og borið virð­ingu fyrir heil­brigð­is­geir­anum og var alveg sann­færð um að það væri ein­hvers staðar verið að vinna að því hörðum höndum að finna lækn­ingu við sjúk­dómnum sem ég var með, ég yrði bara að vera þol­in­móð og reyna að lifa eins heil­brigðu lífi og ég mögu­lega gæti.“

„Ég var gyðja þess heims sem ég skapaði“

Það reynd­ist hæg­ara sagt en gert að halda í von­ina um betri tíma. Ana missti fóstur, gekk í gegnum skilnað og seg­ist hafa verið orðin fátæk, ein­stæð, atvinnu­laus og þung­lynd ofan á liða­gigt­ina. Það var bara eitt sem henni fannst hjálpa sér í gegnum dag­ana.

„Ég fór að skrifa,“ segir hún og ljómar öll. „Ég skrif­aði vís­inda­skáld­sögur, fantasíur og ást­ar­sögur og lét þær allar enda vel, þótt í þeim væri líka fullt af sárs­auka, við­bjóði og gaura­gangi. Ég var mjög ánægð með sög­urnar sem ég skrif­aði, rit­höf­undar sem ég þekkti og hjálp­uðu mér að skrifa voru líka mjög ánægðir með þær og allt í einu átti ég hlið­ar­veru­leika þar sem ég gat gert allt sem mig lang­aði til en gat ekki gert í raun­veru­leik­anum. Ég var gyðja þess heims sem ég skap­aði og per­són­urnar mínar gátu gert allt sem þeim datt í hug. Það var alltaf til lausn við öllum vanda, alltaf von um betri tíma. Skrifin breyttu við­horfi mínu til sjálfrar mín og ég varð harð­á­kveðin í að gera það besta úr því lífi sem ég ætti eftir. Ég átti enn tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tækið og þegar mér bauðst samn­ingur við fyr­ir­tæki á Aust­ur­landi sam­þykkti ég hann og flutti austur á land. Ég leigði út íbúð­ina mína í Reykja­vík og leigan og launin mín gerðu mér kleift að borga niður skuld­irnar sem höfðu hrann­ast upp eftir skiln­að­inn. Það besta af öllu var þó að ég fór að hafa efni á að fara á bók­mennta­há­tíðir og bóka­messur erlendis. Þar hitti ég marga af upp­á­halds­höf­und­unum mínum og tókst meira að segja að kynna bók­ina mína svo vel að átta for­lög sýndu áhuga á að gefa hana út. Og allt í einu var ég ekki sjúk­ling­ur­inn Ana lengur, nú var ég orðin Ana, rit­höf­undur á upp­leið.“

Ana Markovic Mynd / Hallur Karlsson

Greind með vefjagigt í ræktinni

Ana var þó enn illa haldin af liða­gigt­inni og lagði ekki á sig neitt lík­am­legt erf­iði að óþörfu. Hefði ekki dottið í hug að fara að stunda lík­ams­rækt á þessum tíma. Það var raunar í gegnum ást­ina sem leið hennar lá inn í heim lík­ams­rækt­ar­innar, nán­ast fyrir hel­bera til­viljun.

„Meðan ég bjó fyrir austan fann ég huggun og skiln­ing í sam­bandi sem ég var í við íslenskan mann,“ segir hún og brosir leynd­ar­dóms­full. „Við vorum svo ást­fangin að við vorum alltaf saman. Því fylgdi nátt­úru­lega að hann tók mig með sér í rækt­ina. Ég var með kind­il­inn minn og sat og las á meðan hann stund­aði lík­ams­rækt­ina. Hann æfði oft með besta vini sínum sem fyrir utan það að vera frá­bær lyft­inga­maður er líka læknir. Einu sinni tók hann eftir því að ég átti í erf­ið­leikum með að standa upp og bauðst til að prófa þrýsti­punkt­ana mína. Hann sagð­ist vera nokkurn veg­inn viss um að ég væri með vefja­gigt, þótt ég liti ekki út fyrir að vera með hana. Hann skrif­aði upp á svefn­lyf fyrir mig, enda var ég stöðugt svefn­vana, og lyfin áttu að hjálpa vöðv­unum að slaka á auk þess að draga úr verstu verkj­unum. Ég hélt áfram að fara með lækn­inum og kærast­anum mínum í rækt­ina og einn dag­inn sýndi lækn­ir­inn, sem ég kall­aði doksa, mér hvernig ég ætti að lyfta lóðum. Fyrst setti hann fjöru­tíu kíló á stöng­ina og þegar mér gekk ágæt­lega að lyfta þeim bætti hann um betur og setti níu­tíu kíló næst. Ég varð upp­numin, ég gat þetta, ég fór að gleyma bók­inni heima þegar ég fór með þeim í rækt­ina og þeir sýndu mér alls kyns æfingar sem ég gæti gert á meðan þeir voru að æfa, senni­lega aðal­lega til að ég væri ekki fyrir þeim,“ segir Ana og skellir aftur upp úr. „Þrátt fyrir að þetta kost­aði mig mik­inn sárs­auka jafn­að­ist það út vegna þeirrar upp­lif­unar að ég gæti gert eitt­hvað með þennan lík­ama minn og það án hjálpar. Ég var í sjö­unda himni! Því miður hjálp­uðu svefn­töfl­urnar lítið, en ég ákvað að ímynda mér að liða­gigtin hefði verið rang­lega greind og ég væri „bara“ með vefja­gigt. Það hélt mér gang­andi. Ég vissi að ég gæti aldrei sigr­ast á liða­gigt­inni og sú hugsun var að buga mig and­lega, en ég gæti byggt upp vöðva þótt ég væri með vefja­gigt.“

„Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég var að koma út úr rækt­inni, einu og hálfu ári eftir að ég hafði fyrst prófað að lyfta, og upp­götv­aði að ég var ekki með neina verki á því augna­bliki.“

Lyftingarnar unnu á verkjunum

Ást­ar­sam­bandi Önu við íslenska huldu­mann­inn lauk, en hún hélt þó ótrauð áfram að mæta í rækt­ina og smátt og smátt fór hún að finna fyrir stór­kost­legum breyt­ingum á líðan sinni.

„Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég var að koma út úr rækt­inni, einu og hálfu ári eftir að ég hafði fyrst prófað að lyfta, og upp­götv­aði að ég var ekki með neina verki á því augna­bliki. Verkirnir voru auð­vitað komnir aftur þegar ég kom að bílnum mínum, en ég sett­ist inn í hann, lok­aði aug­unum og reyndi að end­ur­upp­lifa þessar verkja­lausu mín­útur. Ég hafði ekki verið svona ham­ingju­söm í óra­tíma og ég sat bara þarna í bílnum og hágrét. Eftir það fór ég að lyfta á hverjum degi, nema á sunnu­dögum, og einn dag­inn var ég verkja­laus allan dag­inn. Mánuði síðar var ég verkja­laus í tvo daga í röð og fjórum mán­uðum síðar vakn­aði ég sjö daga í röð án þess að finna fyrir verkjum. Ég fór í alls kyns lík­ams­rækt­ar­hópa til að læra fleiri æfingar og því meira sem ég þjálf­aði lík­amann því minni verkjum fann ég fyrir og eftir því sem ég styrkt­ist varð ég verkja­laus í lengri og lengri tíma í einu. Ég hafði ekki áhuga á að breyta matar­æði mínu á þeim tíma því ég hafði prófað að ger­ast vegan, sleppa öllum mjólk­ur­vörum, sleppa glút­eni, fara á ketó­fæði, en ekk­ert hjálp­aði til við að lina verk­ina. Ég fór hins vegar að finna fyrir því að með því að æfa reglu­lega hætti ég að fitna og það var enn ein ástæðan til að gleðj­ast.“

Ana Markovic Mynd / Hallur Karlsson

Gaf pabba fyrstu verðlaunin í afmælisgjöf

Nú hefur Ana keppt fyrir Íslands hönd á alþjóð­legum vaxt­ar­rækt­ar­mótum í nokkur ár og staðið sig frá­bær­lega. Hvernig þró­að­ist það að hún fór að keppa í vaxt­ar­rækt?

„Ég veit ekki almenni­lega hvað kom yfir mig,“ segir hún bros­andi. „en einn morg­un­inn var ég að drekka morg­un­kaffi með pabba og sagði honum upp úr þurru að ég ætl­aði að fara að keppa í vaxt­ar­rækt. Hann varð svo hissa að kaffið spýtt­ist út úr honum og yfir hann allan. Ég hafði enga hug­mynd um út í hvað ég var að fara, vildi bara fá að keppa einu sinni til að segj­ast hafa getað það. Lífið virt­ist svo stutt með ímynd­aðan hjóla­stól við hverja bugðu á veg­inum. En ég lét þennan draum ræt­ast og árið 2015 stóð ég á svið­inu með sumum af fal­leg­ustu kon­unum á Íslandi. Ég var svo ham­ingju­söm, þótt fjöl­skyldan hefði miklar áhyggjur af mér og nöldr­aði heil ósköp í mér, en hún studdi mig líka dyggi­lega og sýndi mér mik­inn kær­leika. Ég vissi ekki nóg um það sem ég var að gera til að sann­færa þau um að þetta væri allt í lagi og útskýra hvers vegna mér fannst þetta vera akkúrat það rétta fyrir mig. Ég, sem fimm árum fyrr hafði ekki getað skorið mat­inn á disk­inum mínum, stóð nú sviði í hæla­háum skóm og hnykl­aði vöðvana. Ég heyrði ekki tón­list­ina, ég sá ekki neitt og hjartað ham­að­ist eins og blikk­tromma, en ég fékk verð­laun og þar sem þetta var á afmæl­is­degi pabba gaf ég honum verð­launin í afmæl­is­gjöf.“

Þótt Ana hefði upp­haf­lega ein­ungis ætlað að taka þátt í keppn­inni í þetta eina sinn náði hún svo góðum árangri og hlaut svo mikla athygli að það varð ekki aftur snúið.

„Ég man að ég dró and­ann djúpt til að halda tár­unum í skefjum, ég vildi ekki skemma þetta stór­kost­lega „mei­köpp“ sem ég hafði fengið fyrir keppn­ina.“

„Einn af dóm­ur­unum tók eftir mér, sagði mér að ég hefði staðið mig vel og hvatti mig til að halda áfram,“ segir hún. „Ég sá fyrir mér tauga­lækn­inn og mundi eftir óbæri­legum sárs­auk­anum þegar hann tók í hönd­ina á mér. Munurinn á því augna­bliki og því sem ég upp­lifði þarna var svo gígantískur. Ég man að ég dró and­ann djúpt til að halda tár­unum í skefjum, ég vildi ekki skemma þetta stór­kost­lega „mei­köpp“ sem ég hafði fengið fyrir keppn­ina,“ segir Ana og skelli­hlær einu sinni enn. Seinna komst ég að því að þessi dóm­ari sem hafði hvatt mig áfram var líka þjálf­ari og þar sem ég þekkti ekki marga í þessum geira hafði ég sam­band við hann sum­arið 2016 og bað hann að hjálpa mér að finna rétt matar­æði. Hann gekk út frá því að það þýddi að ég vildi halda áfram að keppa og ég var svo­lítið hrædd við hann svo áður en ég vissi af höfðum við skrifað undir samn­ing. Það var mjög langur samn­ingur; ég bað hann að segja engum að ég væri með sjúk­dóm og hann bað mig að ljúga ekki að sér, nota engin lyf, svelta mig ekki, fá mér ekki húð­flúr og svo fram­vegis. Þennan samn­ing höfum við haldið og síðan við gerðum hann höfum við unnið til tutt­ugu og fimm verð­launa saman. Ég varð þess heið­urs aðnjót­andi að vera útnefnd íþrótta­maður árs­ins í félag­inu mínu. Dómarar í öllum alþjóð­legum keppnum gáfu mér góða dóma og það gerði það að verkum að nú er ég á alþjóð­legum úrvalslista yfir fram­úr­skar­andi vaxt­ar­rækt­ar­fólk. Ég get þakkað þjálf­ar­anum mínum og for­manni íþrótta­fé­lags­ins míns að ég hef ferð­ast um allan heim sem full­trúi Íslands. Ég er stolt af því að vera íslensk vaxt­ar­rækt­ar­kona og ég hef engin áform um að hætta því.“

Ana Markovic Mynd / Hallur Karlsson

Stoltust af einkaþjálfaragráðunni

Þessi glæsi­legi árangur varð til þess að Önu lang­aði að hjálpa öðrum að upp­götva vaxt­ar­rækt­ina og hjálpa þeim sem ættu við vefja­gigt og svefn­vanda­mál að stríða að ná tökum á sjúk­dómnum. Hún hefur því stofnað sína eigin lík­ams­rækt­ar­stöð, Sentinel Fitness, og leggur sig í líma við að koma því sem hún hefur lært á fram­færi við aðra í sömu sporum. Hvernig kvikn­aði sú hug­mynd?

„Ég get séð það á lík­ams­á­standi þeirra og hör­und­s­lit and­lits­ins hversu mik­ill vand­inn er. Það er svo ótrú­lega algengt að fólk glími við svefn­vanda­mál, ég þarf meira að segja stundum að taka sjálfa mig í þjálfun þegar ég leyfi slæmum venjum úr for­tíð­inni að læð­ast aftan að mér.“

„Þegar ég var að keppa var alltaf verið að spyrja mig um hvernig ég þjálf­aði mig,“ útskýrir Ana. „Ég ber virð­ingu fyrir þjálf­ar­anum mínum og því sem hann hefur gert fyrir mig svo ég gat ekki upp­ljóstrað því við aðra hvernig æfingaplanið sem hann gerði fyrir mig er. Ég gat bara bent fólki á að leita til hans og hann réði því svo hvort hann gaf þeim ráð­legg­ingar eða ekki. Ég ákvað hins vegar að læra einka­þjálfun til að skilja betur gald­rana á bak við það sem hann gerir. Á þeim tíma var ég orðin nógu hress til að vinna fulla vinnu jafn­framt því að keppa og læra. Ég vissi að þjálfunin átti stóran þátt í bata mínum en að matar­æðið skipti líka miklu máli. Í nám­inu jókst virð­ing mín fyrir útlærðum einka­þjálf­urum mjög mikið og ég vissi að ég vildi verða ein af þeim. Ég var að keppa á heims­meist­ara­mót­inu í vaxt­ar­rækt þegar ég fékk tölvu­póst um að ég hefði útskrif­ast sem einka­þjálf­ari og ég verð að segja að af þeim fjórum próf­gráðum sem ég hef er ég stolt­ust af þess­ari.

Ég bætti svo við mig námi í með­höndlun á svefnerf­ið­leikum því ég hafði átt í svo miklum erf­ið­leikum með að sofa á meðan ég var með stöðuga verki. Ég skil núna hvers vegna svefn­töfl­urnar hjálp­uðu ekk­ert við þann vanda. Svefn­venjur okkar eru reyndar yfir­höfuð ekki til fyr­ir­myndar, um það bil þriðja hver mann­eskja sem kemur í þjálfun til mín sefur hvorki nógu vel né nógu lengi. Ég get séð það á lík­ams­á­standi þeirra og hör­und­s­lit and­lits­ins hversu mik­ill vand­inn er. Það er svo ótrú­lega algengt að fólk glími við svefn­vanda­mál, ég þarf meira að segja stundum að taka sjálfa mig í þjálfun þegar ég leyfi slæmum venjum úr for­tíð­inni að læð­ast aftan að mér. Fram­far­irnar eru greini­legar, bæði and­lega og lík­am­lega, þegar svefn­inn batnar. Íþrótta­menn þurfa ekki bara að passa upp á góðan hvíld­ar­tíma, heldur er svefn­inn nauð­syn­legur til að losna við fitu svo ekki sé nú minnst á það að ef við erum svefn­laus í lengri tíma erum við í meiri hættu á að lenda í slysum, verða veik, detta í þung­lyndi og skaða tauga­kerfið, bara til að nefna nokkur dæmi.

Þjálf­ar­inn minn og ég skráðum alltaf sam­visku­sam­lega niður allt sem lík­ami minn gekk í gegnum og þegar ég skoð­aði þær skrán­ingar marga mán­uði aftur í tím­ann átt­aði ég mig á því að ég gæti hjálpað öðrum að takast á við vefja­gigt. Þannig varð nafnið á fyr­ir­tæk­inu mínu til – Sentinel er vörður sem varar við hættum á sama hátt og ónæm­is­kerfið okkar verndar lík­amann og varar hann við. Vefja­gigt og liða­gigt eru hvort tveggja sjálfsof­næm­is­sjúk­dómar.“

Er það ein­hver sér­stakur hópur fólks sem leitar til þín með einka­þjálfun?

Ég tek að mér þjálfun fólks í alls kyns íþrótta­greinum, fólk sem hefur mis­mun­andi mark­mið og stefnu og ég vinn með hverjum og einum á þann hátt sem gagn­ast honum eða henni best til að ná sínu mark­miði. Sérsvið mitt er samt sem áður að hjálpa fólki að ná tökum á líf­inu með vefja­gigt. Stöðin mín er lítil og hver og einn fær einka­tíma sem gerir það að verkum að fólki sem hefur ótt­ast að fara í rækt­ina vegna þess að því finnst það ekki vera í nógu góðu ásig­komu­lagi miðað við aðra finnst það vera öruggt hjá mér. Ég fylgist vel með kúnn­unum mínum og mörg þeirra hafa náð frá­bærum árangri sem ég er mjög stolt af. Ein konan sagði mér, til dæmis, að lækn­ir­inn hennar hefði trappað hana niður af lyfj­unum eftir að hún byrj­aði hjá mér og í dag er hún verkja­laus, lyfja­laus, aktífur og ham­ingju­samur ein­stak­lingur sem gjarnan sendir mér myndir af sér og fjöl­skyld­unni í skíða­ferðum eða annarri íþrótta­iðkun sem hún gat áður ekki tekið þátt í.“

„Ég hef nú þegar getað hjálpað mörgum til að öðl­ast sama frelsi og ég upp­lifi og ég er sann­færð um að ég á eftir að hjálpa mörgum í við­bót.“

Hver verða svo næstu skref hjá þér, bæði per­sónu­lega og sem einka­þjálf­ari?

„Eftir með­mæli frá lækn­inum mínum stefni ég að því að vinna innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sem einka­þjálf­ari í sam­ráði við lækna,“ útskýrir Ana. „Ég hef sjálf rekið mig á það hvað virkar og virkar ekki fyrir fólk með þennan sjúk­dóm og hef mik­inn skiln­ing á því sem fólk með vefja­gigt gengur í gegnum, auk þess að hafa upp­lifað það á eigin skinni hvað þarf að leggja á sig til að kom­ast á þann stað sem ég er á í dag. Ég hef nú þegar getað hjálpað mörgum til að öðl­ast sama frelsi og ég upp­lifi og ég er sann­færð um að ég á eftir að hjálpa mörgum í við­bót. Ég er að fara af stað með mán­að­ar­legan stuðn­ings­hóp þar sem þeir sem þjást af vefja­gigt geta hist, fengið sér te eða kaffi og deilt reynslu sinni með öðrum í sömu stöðu. Ég hlakka mikið til þess verk­efnis og vona að sem flestir vefja­gigt­ar­sjúk­lingar nýti sér þennan mögu­leika. Að öðru leyti veit ég ekki alveg hvað stendur fyrir dyrum í nán­ustu fram­tíð. Ég hef yfir­leitt haft allt árið mjög vel skipu­lagt í kringum keppnir sem ég tek þátt í en 2020 hefur byrjað ansi und­ar­lega og ég veit ekk­ert hvenær ég mun standa á svið­inu næst. En ég er vel und­ir­búin og spennt fyrir þeim tíma þegar aftur verður leyfi­legt að ferð­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu