„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau vilja nú vekja athygli á van­þekk­ingu stjórn­valda á fíkni­sjúk­dómnum og skelfi­legum afleið­ingum ópíóíða­fíknar.

„Magnús var frá byrjun stór­gáf­aður, flottur, hress – mjög hress – og skemmti­legur strákur. Afskap­lega blíður og góður, en fékk því miður þennan fíkni­sjúk­dóm,“ segir Guðrún.

Samband Magnúsar og for­eldra hans var sterkt, hann stóð sig vel í námi og sinnti mörgum áhuga­málum. Lífið virt­ist leika við hann þar til fíkni­efnin tóku yfir.

„Í kringum 14 til 15 ára ald­ur­inn fórum við að taka eftir því að eitt­hvað var í gangi, en það varð aldrei neitt alvar­legt fyrr en síð­ustu tvö ár lífs hans. Þetta þró­að­ist út í þessa ópíóíða. Þetta byrj­aði með fikti, eins og hjá mjög mörgum ung­lingum, bara að prófa eitt­hvað. Plan hans var lík­lega ekki þetta. Hann var bara að prófa.“

Magnús Andri var bráð­gáf­aður og vin­margur.

Magnús byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá.

„Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um hvaða neysla væri í gangi. Ég var sú sem hringdi á með­ferð­ar­stofn­anir, pant­aði fyrir hann á Vogi og var stans­laust með honum í þessu. Það var fyrst núna í jan­úar sem hann vildi virki­lega fara í með­ferð og þá langvar­andi með­ferð. Tíu dagar inni á Vogi, að koma úr ópíóíða­fíkn, eru ekki neitt. Maður sá hvað þetta var orðið mikið svart­nætti,“ segir Guðrún.

Systk­inin Magnús Andri, María Margrét og Jón Davíð.

Hjónin sáu miklar breyt­ingar á syni sínum síð­ustu tvo mán­uð­ina sem hann lifði en úrræði fyrir þá sem glíma við ópíóíða­fíkn voru ekki til staðar.

„Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum auð­vitað tölu­vert erf­iðir, en hins vegar var hann kom­inn á þann stað að hann vildi leita sér lækn­ingar.“

Grátbað um að fá að vera lengur inni á fíknigeðdeild

„Hann var inni á fíknig­eð­deild og óskaði þess að vera lengur. Hann grát­bað um að fá að vera lengur.“

„hann gat ekki bara farið heim og gert þetta sjálfur“

Magnús var inni á fíknig­eð­deild Land­spít­al­ans í um tvær vikur. Upp­haf­lega átti að útskrifa hann á föstu­degi, en ákveðið var að leyfa honum að vera til mánu­dags. Magnús lést rúmri viku síðar.

„Hann var ekki nógu geð­veikur til þess að vera þarna inni. Ég hef aldrei séð neinn svona veikan, í svita­kófi, ískalt, grát­andi, í frá­hvörfum.“

Guðrún hafði sam­band við hjúkr­un­ar­fræð­ing á geð­deild sem sagði henni að Magnús yrði inniliggj­andi eins lengi og þörf væri. „Það kom okkur rosa­lega á óvart þegar honum var hent út. Hann var í fjóra eða fimm daga, hann var svo einn dag á Vogi og svo í rúma viku inni á fíknig­eð­deild.“

Feðgarnir Sæmundur og Magnús.

Magnús hafði farið fjórum sinnum inn á Vog og í með­ferð á Vík. Það dugði þó ekki til í bar­átt­unni við ópíóíða, Magnús þurfti lang­tíma­með­ferð, en þar eru biðlist­arnir langir. Hann réð ekki við ástandið.

„Það var ekk­ert og er ekk­ert fyrir þessa ungu krakka sem eru í þessu. Þau geta farið á Hlað­gerð­ar­kot, við reyndum að koma honum þar inn. Neyslan var orðin þannig að hann gat ekki bara farið heim og gert þetta sjálfur.“

Hjónin gagn­rýna úrræða­leysi stjórn­valda og segja fíkni­sjúk­dóm­inn ekki vera í sama flokki og aðra sjúk­dóma.

„Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin skil­greinir þetta sem fíkni­sjúk­dóm. Sem íslenskt sam­fé­lag höfum við aðra sjúk­dóma eins og syk­ur­sýki tvö, sem er áunn­inn sjúk­dómur. Ein­stak­ling­ur­inn hefur gert eða ekki gert ein­hverja hluti sem hafa orðið til þess að hann er veikur. Hann fær alla sína ævi stöðuga, langvar­andi með­ferð.“

Raunin er ekki sú hjá þeim sem þjást af fíkni­sjúk­dómi eins og skýrt er í sögu Magnúsar.

„Þó að það hafi ekki tek­ist að lækna hann í fyrsta skiptið, þá er ekki þar með sagt að hann sé von­laus.“

Guðrún barð­ist lengi fyrir rétt­indum sonar síns og hefur aldrei skamm­ast sín fyrir veik­indi hans. Hún segir rétt­indi hennar hafa verið tak­mörkuð eftir að hann varð 18 ára og litla hjálp að fá.

„Ég hef alltaf verið mjög opin með það að ég á barn með fíkni­sjúk­dóm og hef aldrei skamm­ast mín fyrir það, en hann skamm­að­ist sín. Hann vildi ekki að ömmur sínar og afar vissu að hann væri svona veikur. Fíkni­sjúk­dómur er eins og hver annar sjúk­dómur nema það er bara erfitt að fá hjálp. Ég skráði mig í fíkni- og ráð­gjaf­ar­skól­ann til þess að ég gæti lært hvernig ég gæti hjálpað barn­inu mínu.“

Fordómar enn ríkjandi

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“

Hjónin vilja segja sögu sonar síns til að aðrir þurfi ekki að ganga í gegnum sömu sorg. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að breyta örlögum Magnúsar getur vit­und­ar­vakn­ing hjálpað öðrum fjöl­skyldum.

„Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili. Engin áföll sem hann lenti í eða ollu því að hann leidd­ist út í fíkni­efni. Hann var bara með þennan sjúk­dóm. Það er hræði­legt að vera for­eldri og geta ekki gert neitt. Þú getur ímyndað þér það versta og marg­faldað það með þús­und, þá ertu kannski ein­hvers staðar nálægt því sem okkur líður. Við fáum ekki breytt því sem gerð­ist.

Guðrún og Magnús Andri.

Það eru svo margir búnir að fara núna svo ungir. Dagurinn sem við fundum son okkar, er sá versti sem nokk­urt for­eldri gengur í gegnum. Í hvert skipti sem við heyrum af barni deyja á þennan hátt upp­lifum við það með for­eldr­unum,“ segir Guðrún, en eftir að hún opn­aði sig um sögu Magnúsar hefur hún heyrt af mörgum ung­mennum sem hafa hlotið sömu örlög.

Komu að syni sínum látnum

Magnús flutti að heiman seint á síð­asta ári. Þegar Guðrún hafði ekki heyrt í syni sínum í heilan dag bað hún Sæmund um að koma með henni til þess að athuga með Magnús. Hún seg­ist hafa fundið á sér að ekki væri allt í lagi, enda hefði hún aldrei áður beðið mann­inn sinn um að fylgja sér til Magnúsar. Til­finn­ingin reynd­ist rétt, þar fundu þau son sinn lát­inn.

„Við töl­uðum saman oft á dag. Hann lét mig alltaf vita þegar hann var að fara að sofa, nema svo heyrði ég ekk­ert í honum á sunnu­deg­inum. Ég fann hann þarna og hringdi strax í Neyð­ar­lín­una.“

Guðrún er þakk­lát lög­regl­unni fyrir þá nær­gætni sem hún sýndi við þessar hörmu­legu aðstæður. „Lög­reglan og sjúkra­liðar komu. Ég hef oft síðan hugsað til lög­regl­unnar í Kópa­vog­inum. Þetta eru bara ungir strákar, þeir voru stór­kost­legir. Lög­reglan kom inn í aðstæður sem eru þær verstu í lífi ein­stak­lings. Ég ætla að þakka lög­regl­unni í Kópavogi fyrir að hafa verið þarna þegar þetta gerð­ist. Ég hef hugsað til þeirra svo oft. Þetta starfs­fólk er stór­kost­legt,“ segir Guðrún. Hjónin segja til­felli sonar þeirra sé langt frá því eins­dæmi og eiga erfitt með að ímynda sér álagið sem fylgir því að koma inn í slíkar aðstæður.

Bræð­urnir á yngri árum.

Þörf á breytingum

Sæmundur og Guðrún vilja breyt­ingar innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. „Við þekkjum það hvernig þetta kerfi virkar alls ekki. Ég sendi tölvu­póst á land­lækni og óskaði eftir því að fá fund og útskýra fyrir honum að það væri ópíóíða­far­aldur – það virð­ist ekki vera vit­neskja um það innan land­lækn­is­emb­ætt­is­ins. Ég ítrek­aði tölvu­póst­inn viku seinna og fékk ekki svar. Ég hringdi, en fékk ekk­ert svar. Aðstoð­ar­maður hjá land­lækni sendi tölvu­póst á okkur tveimur vikum eftir upp­haf­lega fund­ar­beiðni og sagði að Alma væri í orlofi og að hann mundi ræða fund­ar­beiðn­ina við hana þegar hún kæmi úr fríi. Í kjöl­farið sendi ég póst á þrjá ráð­herra og óskaði eftir fundi. Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra svör­uðu strax og gáfu sér tíma til að hitta okkur og kanna okkar hlið á þessum málum,“ segir Sæmundur.

Hjónin fóru á fund for­sæt­is­ráð­herra.

Hann bendir á að þegar um er að ræða slys í sam­göngum séu þau rann­sökuð í þaula.

„Það er rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa, hvert bílslys og öll slys eru rann­sökuð, en þetta vekur enga eft­ir­tekt. Flestir í dag þekkja ein­hvern sem þekkir ein­hvern sem hefur fallið úr þessu.“

Afeitrun er gerð á tveimur stöðum, fíknig­eð­deild Land­spít­al­ans og á sjúkra­hús­inu Vogi. Biðlistar á Vog hafa árum saman verið langir.

„Það er eitt sjúkra­hús hérna – Vogur. Það er ekk­ert af rúmum fyrir allt þetta veika fólk sem er hérna, þessa ungu krakka. Hvað þá fyrir for­eldra sem standa í því að eiga börn sem eru svona veik. Við hvern eigum við að tala?“

Efnin orðin sterkari

Hjónin segja mik­inn mun vera á því að hætta í neyslu lyfja og ann­arra fíkni­efna. Frá­hvörfin séu lengri og end­ur­hæf­ing flókn­ari. Þau sáu á Magnúsi að með­ferð­ar­úr­ræði virk­uðu mun betur áður en hann hóf neyslu ópíóíða.

„Þetta er far­aldur sem er rétt að byrja“

„Þegar hann fór fyrst í með­ferð þá var hann í grasneyslu. Það var allt annað. Þetta er margra mán­aða ferli. Hann var gjör­sam­lega búinn and­lega. Þetta eru krakkar sem eru að prófa þessar töflur, taka of margar og það verður ekki aftur snúið. Svo er búið að blanda þetta og pressa, þú veist ekk­ert hvað þú ert að taka inn. Það er fjöldi ungs fólks að deyja, sonur okkar var ekki sá eini. Þetta er far­aldur sem er rétt að byrja og Ísland er ekki búið undir þetta. Þessi lyf grípa fólk svo sterkt.“

Magnús með fjöl­skyldu sinni.

Sæmundur segir þær með­ferðir sem í boði eru hér á landi vera hugs­aðar út frá áfeng­is­neyslu. Það séu ekki til úrræði fyrir þá sem eru háðir sterkum verkja­lyfjum.

„Þessir ópíóíðar og fíkni­efni eru sett í undir sama hatt. Kerfið í dag snýr að afeitrun af áfengi. Þetta er eins og að bera saman gul­rót og lamba­kjöt, sem er hvort tveggja matur, en það vita allir að þetta er ekki sami matur. Það er ekki hægt að setja þetta, sem er komið núna, undir sama hatt.“

„fólk deyr við að bíða“

Guðrún birti færslu um and­lát Magnúsar á Facebook. Hún hefur fengið fjölda skila­boða frá öðrum sem misst hafa ást­vini úr ópíóíða­neyslu. Færslan vakti mikla athygli og var henni dreift víða um sam­fé­lags­miðla. Hún segir skort á eft­ir­fylgni fyrir þennan hóp.

„Við viljum sjá að það sé eitt­hvað gert í þessu. Þetta leggur líf gríð­ar­lega margra fjöl­skyldna í rúst. Það þarf eft­ir­fylgni og utan­um­hald þegar svona ungir ein­stak­lingar eru að fara í með­ferð. Það virkar ekki það sama og þegar um er að ræða afeitrun af áfengi. Þeir sem vilja kom­ast aftur út í sam­fé­lagið verða að eiga ein­hverja von og það þurfa að vera úrræði sem hjálpa þeim.

Magnús Andri.

Elsku dreng­ur­inn okkar, hann Magnús, óskaði eftir með­ferð­ar­úr­ræði, það var ekki til staðar. Það þarf að vera lækn­ing í boði. Fólk þarf bara að kom­ast í með­ferð og á ekki að þurfa að bíða, fólk deyr við að bíða. Tíu daga afeitrun af ópíóíðum er ekk­ert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Dísella missti röddina sama dag og hún fór í mikilvægt inntökupróf: „Það kom ekki píp út úr mér“
Innlentforsíðuviðtal

Dísella missti rödd­ina sama dag og hún fór í mik­il­vægt inn­töku­próf: „Það kom ekki píp út úr mér“

Dísella Lár­us­dóttir hefur í mörg ár starfað hjá Metropolit­anóp­eru­hús­inu í New York og fékk í vor ásamt Grammy-verð­laun ásamt sam­starfs­fólki fyrir upp­setn­ingu Metropolitan-óper­unnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Dísella hefur þó mest verið heima frá því að Covid-far­ald­ur­inn skall á og hér býr fjöl­skyldan. Í við­tali við Reyni Trausta­son talar hún meðal ann­ars um tón­list­ina, verð­launin, ráð­legg­ing­inum sem hún vildi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins