„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hannes skilur ekki viðbrögðin vegna ummæla hans um Hildi – „Þær ganga fram með frekju og ofsa“

Hannes skilur ekki viðbrögðin vegna ummæla hans um Hildi – „Þær ganga fram með frekju og ofsa“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor við Háskóla Íslands furðar sig á hörðum við­brögðum vegna ummæla hans um Hildi Lil­lendahl. Hann segir öfga­femínista með tvö­falda sið­ferð­is­mæli­kvarða spilla umræðu­menn­ingu á Íslandi.

„Pró­fessor við Háskól­ann, Kristín Björns­dóttir, hvetur Hildi í athuga­semd við Twitter færslu hennar til að senda kæru á hendur mér til deild­ar­for­seta í stjórn­mála­fræði­deild. Kæru fyrir hvað? Að spyrja, hvort ein­hverjar skýr­ingar séu til á þess­ari ólíku með­ferð og afgreiðslu mál­anna tveggja? Er ekki kom­inn tími til að afhjúpa hræsni og öfgar þessa fólks,“ segir Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, á Facebook.

Segist hann á dög­unum ein­fald­lega hafa beðið Facebook um skýr­ingar á því hvers vegna Kristinn Sig­ur­jóns­son var rek­inn frá Háskól­anum í Reykja­vík vegna til­tölu­lega sak­lausra ummæla sinna um konur á meðan Hildur hélt sínu starfi hjá Reykja­vík­ur­borg þrátt fyrir mein­leg ummæli.

„Ég bað hér á Facebook um skýr­ingar á því, væru ein­hverjar til, væru ein­hverjar til, að Kristinn Sig­ur­jóns­son væri rek­inn frá Háskól­anum í Reykja­vík fyrir til­tölu­lega sak­laus (en ef til vill óheppi­leg) almenn ummæli um konur undir fullu nafni í lok­uðum spjall­hópi á net­inu, en Hildur Lilli­endahl héldi starfi sínu hjá Reykja­vík­ur­borg fyrir ótrú­lega meið­andi árásir og ofbeld­is­hug­renn­ingar á net­inu undir dul­nefni um nafn­greinda ein­stak­linga. Spurning mín var um hina ólíku með­ferð og afgreiðslu mál­anna tveggja,“ skrifar Hannes og vísar þar eldri Facebook-færslu sína.

Í eldri færsl­unni seg­ist Hannes telja að það sem Kristinn skrif­aði sé mein­laust, á meðan það sem sem Hildur skrif­aði hafi verið mein­legt. Munurinn sé líka sá að Reykja­vík­ur­borg sé kostuð af fé skatt­greið­enda, en ekki Háskól­inn í Reykja­vík þótt mögu­lega hafi ákveðnir starfs­menn hans rétt­ar­stöðu opin­berra starfs­manna eftir sam­ein­ingu við Tækni­skól­ann.

Þessi fyrri færsla Hannesar vakti tals­verða athygli og deildi Hildur henni sjálf á twitter. „Jæja. Þetta kom mjög out of nowhere. Ég er nem­andi við stjórn­mála­fræði­deild HÍ. Hvað geri ég í þessu,“ spurði hún þar og fékk ýmsar ráð­legg­ingar, þar á meðal frá Kristínu Björns­dóttur pró­fessor sem segir bréf á deild­ar­for­seta vera fyrsta skrefið sam­kvæmt ferlunum. Svar Krist­ínar er nú til­efni þess að Hannes tjáir sig aftur um málið á Facebook.

„Eru allir orðnir hræddir við þessa öfga­femínista með sinn tvö­falda sið­ferð­is­mæli­kvarða, þar sem sumum leyf­ist allt og öðrum ekk­ert? Þær ganga fram með frekju og ofsa og spilla stór­kost­lega umræðu­menn­ingu á Íslandi,“ skrifar Hannes á Facebook og deilir frétt Stund­ar­innar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Feminíski aðgerðarhópurinn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar framlagi“
Innlent

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar fram­lagi“

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur. Stjórn­endur Öfga sendu frá sér til­kynn­ingu á Instagram þar sem sagt er frá því að hóp­ur­inn sé hættur. Hópurinn hefur inni­haldið ýmsar konur en sem dæmi má nefna um þær sem hafa komið fram undir nafni Öfga má nefna Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, Helgu Bene­dikts­dóttur, Ninnu Körlu Katrín­ar­dóttur, Huldu Hrund Guðrúnar Sig­munds­dóttur, Tönju Mjöll Ísfjörð Magn­ús­dóttur...
Femínismi – um hvað ræðir?
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

Femín­ismi – um hvað ræðir?

„Femínisti er mann­eskja sem veit að jafn­rétti kynj­anna hefur ekki verið náð og vill gera eitt­hvað í því.“ Þessa skil­grein­ingu er að finna á heima­síðu Femínista­fé­lags­ins. Mikið hefur verið rætt um femín­isma síð­ustu ára­tugi, en hvað stendur þessi póli­tíska og hug­mynda­fræði­lega stefna fyrir? Einhvers staðar voru umræður á þessa leið: „þeir eru leið­in­legir og gera lítið úr konum með öfga...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur
Innlentfemínismi

Fem­inískar stúd­ínur knýja fram ókeypis tíða­vörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti. Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki...
„Lúserar landsins“ reyna að stöðva samfarakennslu Sólborgar
Innlentfemínismi

„Lúserar lands­ins“ reyna að stöðva sam­fara­kennslu Sól­borgar

„Einhver segja útópía. Þetta er hins vegar 100% mögu­leg staða. Snýst bara um for­gangs­röðun fjár­magns og að drulla þessu af stað. Getið þið plís verið fólkið sem tekur þetta risa­stóra skref til að vernda næstu kyn­slóðir?“ tísti Sólborg Guð­brands­dóttir tón­list­ar­kona, fyr­ir­les­ari, bar­áttu­kona gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og stofn­andi Instagram-síð­unnar Fávitar fyrir fáeinum dögum en tíst Sól­borgar rataði í fjöl­miðla og vakti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins