„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hótað lífláti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn

Hótað lífláti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn
Þórdís Björk Þor­finns­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Leikkon­unni Þórdísi Björk Þor­finns­dóttur var hótað líf­láti og nauðg­unum vegna ummæla hennar um veð­ur­far á Kópa­skeri og Rauf­ar­höfn. Leik­konan ætlar að kæra hót­an­irnar til lög­reglu.

„Ég er ýmsu vön þegar kemur að gagn­rýni en þær hót­anir sem mér hafa borist vegna þessa máls eru við­bjóðs­legar. Það er eig­in­lega óhugn­an­leg­ast að sumar gróf­ustu hót­an­irnar voru frá ein­stak­lingum undir fullu nafni,“ segir Þórdís Björk Þor­finns­dóttir, leik­kona og með­limur í leik­hópnum Lottu, í sam­tali við Frétta­blaðið, um morð­hót­anir og hót­anir um að vera nauðgað vegna ummæla sem hún lét falla um veð­ur­farið á Kópa­skeri og Rauf­ar­höfn. Bárust henni á annan tug skila­boða frá nafn­greindu fólki og ætlar hún að kæra hót­an­irnar til lög­reglu.

„Það er eig­in­lega óhugn­an­leg­ast að sumar gróf­ustu hót­an­irnar voru frá ein­stak­lingum undir fullu nafni.“

Leik­hóp­ur­inn Lotta, sem hefur verið að ferð­ast um landið með barna­leik­rit um Bakka­bræður, var staddur á aust­an­verðu land­inu um helg­ina og kom við á Rauf­ar­höfn og Kópa­skeri. Þar lét Þórdís Björk eft­ir­far­andi orð falla á Instagram: „Jæja þá erum við búin að koma á helv.. Kópasker. Keyrðum á Kópasker og Rauf­ar­höfn bara til að geta krossað það út af list­anum, mæli alls ekki með að koma hingað, bara alls ekki gera það.“

Sjá einnig: Kolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Þórdís, sem hafði líka fjallað með jákvæðum hætti um stað­ina tvo og þar á meðal hrósað mál­tíð á Rauf­ar­höfn og hrósað Heima­skauta­gerð­inu á staðnum, að um brand­ara hafi verið að ræða en hann hafi mislukk­ast. „Það sýnir sig kannski best að brand­ari hafi mislukk­ast þegar maður þarf að útskýra hann og sam­hengið. Ég hafði rætt við vini mína um að ég hlakk­aði til að skoða þessa bæi í fyrsta sinn, en svo tók ógeðs­legt veður á móti okkur. Hitinn rétt yfir frost­marki og hvín­andi rok og rign­ing.”

Skájskot af ummæl­unum fór í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum og ollu fjaðrafoki á Facebook-síðu Lottu. Voru þau for­dæmd og auk þess bár­ust Þórdísi Björk fyrr­nefndar hót­anir um morð og nauðg­anir.

„Þessi tvö skjá­skot í engu sam­hengi litu mjög illa út. Að ein­hverju leyti er það ósann­gjarnt, þetta er eins og að taka langa máls­grein úr bók, en svo átt­aði ég mig á því að þetta virt­ist raun­veru­lega særa fólk og það þótti mér afar leitt,“ segir Þórdís, sem baðst afsök­unar á færsl­unni og Leik­hóp­ur­inn Lotta líka.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Þórdís að fyrr­nefndar hót­anir megi ekki líð­ast og því muni hún kæra þær til lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

deilur

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir
Landið

Ósætti vegna dróna­mynda­töku lög­manns við stjórn­sýslu­hús Ísa­fjarðar – Sakaður um njósnir

Und­ar­legt mál er komið upp á Ísafirði en í síð­ustu viku kvört­uðu starfs­menn í stjórn­sýslu­hús­inu í bænum kvört­uðu til lög­reglu vegna dróna­mynda­töku lög­manns­ins Braga Axels­sonar við stjórn­sýslu­húsið. Eig­in­kona Braga er bæj­ar­rit­ari Ísa­fjarða­bæjar og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra. Í frétt bb.is stað­festir Bragi Axelsson, lög­maður, að hann sé sá sem var stað­inn að verki við dróna­mynda­töku við stjórn­sýslu­húsið á Ísafirði í síð­ustu viku....
Ósætti vegna úthýsingu Glímudeildar Njarðvíkur: „Staðfestir illvilja þess einstaklings“
Innlentdeilur

Ósætti vegna úthýs­ingu Glímu­deildar Njarð­víkur: „Stað­festir ill­vilja þess ein­stak­lings“

Mikill styr hefur staðið um ákvörðun Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúa Reykja­nes­bæjar um að úthýsa Glímu­deild Njarð­víkur úr bar­daga­höll­inni á Iða­völlum. Í gær birt­ist færsla á Facebooksíðu Glímu­deild­ar­innar þar sem farið er ofan í saumana á mál­inu. Færsla sem birt­ist á Facebook-síðu Glímu­deildar Njarð­víkur í gær hefur vakið athygli en þar er sagt frá því hvernig Íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi Reykja­nes­bæjar með stuðn­ingi...
Sólveig lætur Björn heyra það: „Aumkunarverð kvenfyrirlitning“
Innlentdeilur

Sólveig lætur Björn heyra það: „Aumk­un­ar­verð kven­fyr­ir­litn­ing“

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar hjólar í Björn Bjarna­son fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og sakar hann um and­legt ofbeldi. „Það er ein­hver partur af mér orð­inn vanur þessu, reyndar hefur hann dregið aðeins í land, til dæmis með þær ásak­anir að ég hafi kom­ist til valda í Eflingu til að mis­nota sjóð­ina, en þessa strengja­brúðu pæl­ing er mjög lif­andi og mér finnst...
Kolbrún blandar sér í umræðuna um Kópasker og Raufarhöfn
Innlent

Kolbrún blandar sér í umræð­una um Kópasker og Rauf­ar­höfn

Fjöl­miðla­konan Kolbrún Berg­þórs­dóttir segir það hafa verið vibúið að ummæli Þórdís Bjarkar Þor­f­inssdóttur leikkonu yrðu til þess að hópur fólks myndi móðg­ast gríð­ar­lega fyrir hönd Kópa­skers og Rauf­ar­hafnar. „Í sam­tíma okkar er rík hneigð hjá fólki til að láta aðra vita hvað það er að hugsa og hvað það er að aðhaf­ast hverju sinni. Þetta borgar sig svo sann­ar­lega alls...
Þórdís Björk tjáir sig um ummæli sín og eftirmála: „Hegðum okkur með ábyrgum hætti á samfélagsmiðlum“
Innlentdeilur

Þórdís Björk tjáir sig um ummæli sín og eft­ir­mála: „Hegðum okkur með ábyrgum hætti á sam­fé­lags­miðlum“

Sam­fé­lags­miðlar hafa logað eftir að Þórdís Björk Þor­finns­dóttir, leik- og söng­kona, við­hafði ummæli um Kópasker og Rauf­ar­höfn og veð­ur­farið þar eftir ferð hennar þangað með leik­hópnum Lottu. Þótti mörgum orð Þórdísar Bjarkar niðr­andi og hvöttu fólk til að snið­ganga leik­sýn­ingar hóps­ins, sem alla jafna hafa fallið vel í kramið hjá barna­fjöl­skyldum. Þórdís Björk, sem og leik­hóp­ur­inn, baðst afsök­unar á ummælum...
Framleiðendur svara Guðmundi Þór: „Fjöldi af mjög alvarlegum rangfærslum og rógburði“
Innlentdeilur

Fram­leið­endur svara Guðmundi Þór: „Fjöldi af mjög alvar­legum rang­færslum og róg­burði“

Anton Máni Svansson, aðal­fram­leið­andi myndar nýrrar íslenskrar kvik­myndar sem gengur undir vinnu­heit­inu Ber­dreymir og er nú í vinnslu, svarar gagn­rýni Guð­mundar Þórs Kára­sonar kvik­mynda­gerð­ar­manns, en Guð­mundur Þór er harð­orður í garð Antons Mána og Guð­mundar Arnars Guð­munds­sonar, leik­stjóra Ber­dreymis, og segir þá hafa svikið 14 ára son sinn, eftir hálfs ár vinnu fyrir aðal­hlut­verk í nýrri kvik­mynd þeirra. Segir hann...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins