„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Í þriggja ára baráttu við fordóma heilbrigðiskerfisins

Í þriggja ára baráttu við fordóma heilbrigðiskerfisins

Eva Ásrún Alberts­dóttir hefur aldrei verið hrædd við að taka u-beygjur í líf­inu, hefur starfað lengi sem ljós­móðir, verið þátta­stjórn­andi í útvarpi og sjón­varpi, rekstr­ar­stjóri Jarð­bað­anna við Mývatn auk þess að vera vin­sæl söng­kona og er nú, rúm­lega sex­tug, að ljúka masters­námi sem RIM-leið­bein­andi. Þessi síð­asta kúvend­ing er afleið­ing af alvar­legum veik­indum sonar hennar sem stóðu yfir í þrjú ár og mættu for­dómum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þá sögu segir Eva Ásrún í nýút­kominni bók, Women Who Rise, þar sem þrjá­tíu konur víða að úr heim­inum segja reynslu­sögur af atburðum sem breyttu lífi þeirra til hins betra.

„Það er eng­inn annar á Íslandi með þessi rétt­indi,“ segir Eva Ásrún spurð út í hvað hún sé að læra. „Ég er sú fyrsta og RIM er alveg stór­merki­legt, skal ég segja þér. Það er sam­tals­tækni sem gengur út á að vinna með til­finn­ingar og leysa þær upp á lík­ams­basis. RIM stendur fyrir Regener­at­ing Images in Memory, eða að end­ur­nýja minn­ingar í frumuminn­inu. Til­finn­ingar okkar vegna þeirra áfalla sem við lendum í sitja allar í lík­am­anum og svo erum við alltaf að reyna að tala okkur út úr þessu en það gengur ekk­ert vegna þess að okkur líður svo illa. Í RIM er unnið með bæði hægra og vinstra heila­hvelið, að nota sem sagt bæði rök­hugs­un­ina og ímynd­un­ar­aflið til þess að tengj­ast niður í und­ir­með­vit­und­ina og eyða nei­kvæðum til­finn­ingum, leysa þær upp og búa til jákvæðar til­finn­ingar. Þetta er ekki með­ferð heldur byggir aðferðin á sam­bandi skjól­stæð­ings­ins við sjálfan sig og við getum sagt að aðferðin sem beitt er sé lík­amsmiðuð tækni sem byggir á þeirri trú að hver ein­stak­lingur sé heill. Við erum nefni­lega ekki brotin, við erum heil og þegar við hreinsum út þetta til­finn­inga­lega rusl, ef svo má segja, þá er það bara eins og að dusta burt rykið sem sest á hús­gögnin okkar. Þegar því er lokið getum við nálg­ast okkur eins og við erum. Við búum yfir miklu fleiri úrræðum en við gerum okkur grein fyrir.“

„Hélt ég væri að missa son minn“

Spurð hvernig leið hennar hafi legið yfir í þessi fræði segir Eva Ásrún að það sé nú aldeilis saga að segja frá því. Þetta hafi allt haf­ist þegar sonur hennar veikt­ist árið 2015. „Ég hef aldrei verið hrædd við að takast á við áskor­anir og fara út fyrir þæg­ind­ara­mman, sem er svo skemmti­legt vegna þess að maður býr mjög vel að því,“ segir hún. „Ég á fimm syni og það sem gerð­ist var að árið 2015 veikt­ist mið­sonur minn, sem þá var tví­tugur, alvar­lega. Hann hafði alltaf verið hraustur, er afreks­maður í íþróttum, var í topp­formi lík­am­lega og algjör nagli. Flottur og kraft­mik­ill ungur maður. Eitt kvöldið var hann að fara að sofa og kall­aði í mig að eitt­hvað væri að. Ég fór með hann upp á bráða­mót­töku með blóð­þrýst­ing sem var lífs­hættu­lega hár. Þar héldu lækn­arnir fyrst að hann væri með flysjun á ósæð, sem reynd­ist síðan ekki vera, en allt í einu stóð ég þarna yfir drengnum mínum um miðja nótt og hélt að ég væri að missa hann. Eftir að lækn­arnir komust að þeirri nið­ur­stöðu að þetta væri senni­lega ekki flysjun á ósæð var hann fluttur niður á hjarta­gátt. Það var ekki vitað hvað var að. Ég gerði mér strax grein fyrir því að ég yrði að vera á varð­bergi, taka fulla ábyrgð á því að um hann yrði hugsað og að hann fengi þá þjón­ustu sem hann þyrfti. Ég er nátt­úr­lega heil­brigð­is­starfs­maður og það kom sér heldur betur vel í þessu ferli.“

Inn og út af gjörgæslu, engin greining, stanslaus barátta

Ekki tókst að greina veik­indi son­ar­ins og nú tók við langt og strangt ferli sem Eva Ásrún segir hafa verið með því versta sem hún hefur þurft að takast á við. „Þarna tók við sex vikna inn­lögn, þar af um það bil þrjár vikur á gjör­gæslu,“ heldur hún sög­unni áfram. „Engin sjúk­dóms­grein­ing fékkst og þetta var bara algjör martröð. Sonur minn fékk þessi hræði­legu verkja­köst sem stóðu upp undir fimm tíma og engin lyf virk­uðu á og á end­anum þurfti að flytja hann inn á gjör­gæslu og svæfa hann. Ég lenti þarna strax í bar­áttu þar sem við upp­lifðum for­dóma innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Tek það fram að hann hafði alveg ynd­is­legan, ábyrgan lækni sem er algjör­lega frá­bær, en það voru ansi miklir for­dómar fyrir þessum veik­indum vegna þess að það vissi eng­inn hvað olli þeim og sumir drógu þá ályktun að þetta væri eitt­hvað geð­rænt. Á einum punkti var hann sendur heim en var svo kom­inn sam­dæg­urs aftur niður á gjör­gæslu, til dæmis. Ég átt­aði mig á því að ég var komin í stans­lausa bar­áttu og gat ekki vikið frá honum, ég gisti margar nætur á spít­al­anum. Lækn­arnir voru allir af vilja gerðir að leita en þeir bara fundu ekki neitt. Og þegar ekki er vitað hvað er að verða hlut­irnir fyrst vanda­samir því þá veit eng­inn hvað á að gera við hann. Eftir að hann hafði lent inn og út af gjör­gæsl­unni nokkrum sinnum end­aði það með því að einn lækn­ir­inn þar bara snapp­aði og ákvað að það ætti að leggja dreng­inn inn á bráða­geð­deild. Það hefur aldrei verið neitt að honum geð­rænt svo við for­eldr­arnir sögðum bara þvert nei og hann sam­þykkti það heldur ekki sjálfur. Lækn­ir­inn hans var erlendis á þessum tíma og lækn­ir­inn sem var á vakt á hjarta­deild­inni, eftir að hann var sendur þangað, tók ekki vel á móti honum þannig að honum fannst hann vera óvel­kom­inn, enda fékk hann þau skila­boð að hann tæki pláss frá öðrum og ætti bara að vera á geð­deild­inni. Hann vildi eðli­lega ekki vera þarna og fór heim dag­inn sem hann var útskrif­aður af gjör­gæslu, sem ger­ist auð­vitað aldrei. Í fram­hald­inu var hann svo inn og út af bráða­mót­tök­unni og var mjög alvar­lega veikur í þrjú ár.“

„Hann fékk and­lits­lömun, það leið yfir hann, hann var með gríð­ar­leg hjart­slátt­ar­köst og óreglu­legan hjart­slátt, mikla brjóst­verki og óbæri­legan höf­uð­verk, allt of háan blóð­þrýst­ing en ekk­ert fannst að.“

Sonur Evu Ásrúnar varð veik­ari og veik­ari, ein­kenn­unum fjölg­aði og ráða­leysi heil­brigð­is­starfs­fólks var, að hennar sögn, algjört. „Hann fékk and­lits­lömun, það leið yfir hann, hann var með gríð­ar­leg hjart­slátt­ar­köst og óreglu­legan hjart­slátt, mikla brjóst­verki og óbæri­legan höf­uð­verk, allt of háan blóð­þrýst­ing en ekk­ert fannst að. Hann svaf ekki heila nótt í þrjú ár og gat engan veg­inn verið. Ég vakn­aði á hverjum morgni og ótt­að­ist að hann væri ekki á lífi. Við vorum í eilífum ferðum upp á bráða­mót­töku en þar vildi eng­inn neitt fyrir hann gera. Ég og aðrir í fjöl­skyld­unni þurftum að æsa okkur til þess að hann fengi ein­hverja hjálp. Það eru eig­in­lega engin orð til að lýsa því hvernig upp­lifunin var sem aðstand­andi og móðir með hann svona veikan og mæta því við­móti sem okkur var boðið upp á. Það var alveg með ólík­indum. Hann þurfti aftur að leggj­ast inn á gjör­gæslu í nokkra daga 2016, en fékk alltaf þau skila­boð að þetta væri „bara“ and­legs eðlis. Hann fékk sýk­ingu í nýra og það bætt­ist enda­laust við ein­kennin. Ég setti í þann gír­inn að leita að orsökum og leit­aði og leit­aði. Heilsu­gæslan reynd­ist okkur vel á þessum tíma en engin skýr­ing fannst og ég hélt áfram að leita. Eftir því sem tím­inn leið var nokkuð ljóst að það hlyti að vera eitt­hvað í ósjálf­ráða tauga­kerf­inu, en honum var alltaf hent út af bráða­mót­tök­unni án þess að það væri neitt skoðað, hann hafði engan ábyrgan lækni og ekk­ert plan. Það end­aði með því í eitt­hvert skiptið að ég neit­aði að fara heim fyrr en ég fengi sam­tal við lækn­inga­for­stjóra, sem ég fékk og í fram­haldi af því var hann tengdur verkjateym­inu á sjúkra­hús­inu en það var ekki það sem hann þurfti.“

Var greind með áfallastreituröskun

Í ferl­inu var feng­inn sænskur sér­fræð­ingur til að kíkja á son Evu Ásrúnar og hann vildi fá hann út til rann­sókna, en það var ekk­ert gert með það, segir hún, og dreng­ur­inn varð sífellt veik­ari og veik­ari og það end­aði með því að hún sjálf fékk áfall sem leiddi til veik­inda­leyfis. „Hann var með við­var­andi allt of háan blóð­þrýst­ing, 135 í neðri mörkum sem er lífs­hættu­legt,“ útskýrir Eva Ásrún. „Ég sagð­ist myndu gera spít­al­ann ábyrgan ef hann fengi hjarta­á­fall eða heila­blóð­fall og þá fengum við okkur lög­fræð­ing. Eftir það fóru sam­skiptin við spít­al­ann fram í gegnum lög­mann og sonur minn fór út til Sví­þjóðar til fyrr­nefnds sér­fræð­ings. Það hafði hins vegar ansi margt gerst í milli­tíð­inni og þegar við komum út sögðu lækn­arnir þar að miðað við upp­lýs­ingar um ferlið hefðu þeir gert þetta öðru­vísi. Þegar við komum heim aftur fór ég til heim­il­is­lækn­is­ins og bað hann um að koma drengnum til inn­kirtla­sér­fræð­ings, en þar fannst ekk­ert heldur. Eftir inn­lögn­ina, 2016, fékk ég áfall. Ég hélt alltaf áfram að vinna, fjöl­skyldan var öll í áfalli, einn sonur minn hætti í skól­anum, lok­aði sig inni og spil­aði tölvu­leiki og þyngd­ist um tutt­ugu og fimm kíló. Það hugs­aði eng­inn um fjöl­skyld­una á þessum tíma, okkur var aldrei boðin nein hjálp. Og, já, ég end­aði sem sagt  þarna í áfalli og var send í veik­inda­leyfi vegna áfallastreiturösk­unar og var frá vinnu í rúmt ár.“

Fékk ekki að snúa aftur til vinnu

Eva Ásrún seg­ist hafa ríg­haldið í þá hugsun að hún yrði að halda sér á floti og kom­ast í gegnum þetta og hafi því leitað allra leiða til að finna úrræði sem gætu nýst henni sjálfri. Það hafi leitt hana á slóðir RIM. „Ég hef alltaf hugsað mikið um and­lega líðan og haft mik­inn áhuga á heila- og tauga­vís­indum,“ útskýrir hún. „Þannig að á þessum tíma var ég dálítið að stúd­era það og hvernig maður notar hug­ann til að halda sér á floti í svona ástandi og rakst í þeim pæl­ingum á Jack Canfield á Netinu. Hann er árang­urs­þjálfi númer eitt í Ameríku og það sem ég sá hjá honum var nákvæm­lega það sem mér fannst ég eiga að vera að gera. Aðferð hans var akkúrat það sem mig vant­aði til að verða hæf­ari til þess að hjálpa öðrum. Ég hafði auð­vitað gert fullt af því sem hann ráð­leggur í þess­ari bar­áttu minni; tekið hund­rað pró­sent ábyrgð, vitað hvað ég vildi, ekki gef­ist upp og spurt enda­lausra spurn­inga. En þessi aðferð hreif mig svo mikið að ég ákvað að fara í nám hjá Canfield og gerði það mitt í þessu öllu. Útskrif­að­ist reyndar ekki fyrr en haustið 2017 og þá hafði auð­vitað enn þá meira gengið á.“

„Ég sagð­ist myndu gera spít­al­ann ábyrgan ef hann fengi hjarta­á­fall eða heila­blóð­fall og þá fengum við okkur lög­fræð­ing. Eftir það fóru sam­skiptin við spít­al­ann fram í gegnum lög­mann og sonur minn fór út til Sví­þjóðar til fyrr­nefnds sér­fræð­ings.“

Bar­átt­unni var hvergi nærri lokið því þegar Eva Ásrún ætl­aði að snúa aftur til vinnu sinnar sem ljós­móðir eftir veik­inda­leyfið var búið að ráða í stöð­una hennar og henni var sagt að hún fengi enga vinnu. „Þegar ég ætl­aði að fara að vinna aftur var ég bara ekk­ert vel­komin í vinn­una,“ segir hún. „Ég var fast­ráðin og ein reynslu­mesta ljós­móð­irin á deild­inni, það var gróf­lega brotið á mér. Mér var sagt að það hefði alltaf verið mjög óljóst um mín veik­indi, að ég hefði verið of mikið fjar­ver­andi vegna veik­inda ann­arra sem var fjar­stæða. Þessi nið­ur­staða var ekki til að bæta ástandið og kaldar kveðjur til ljós­móð­ur­innar sem stofn­aði Styrkt­ar­fé­lagið Líf fyrir Kvenna­deild­ina. Ég tal­aði við lög­mann BHM, hann gekk í málið og það end­aði auð­vitað með því að Land­spít­al­inn þurfti að greiða mér laun í ár vegna þess að það hafði verið brotið á mér. Það er alveg með ólík­indum að heil­brigð­is­stofnun komi svona fram við starfs­fólkið, ég er því miður ekk­ert eins­dæmi.“

Fylgdi innsæinu og lífið tók u-beygju

Eva Ásrún hélt áfram í nám­inu og í sam­bandi við það fékk hún tölvu­póst sem varð til þess að líf hennar tók alveg nýja stefnu og vanda­málin fóru að leys­ast. „Ég fékk póst þar sem ég var hvött til þess að sækja um áfram­hald­andi nám, í aðferð­ar­fræði Canfields,“ útskýrir hún. „Ég er mjög næm, með sterkt inn­sæi og ég fann það strax að ég átti að sækja um þetta nám. Staðan var ekki glæsi­leg, sonur minn enn hund­veikur, ég hafði ekk­ert efni á þessu og svo fram­vegis og ýtti þessu frá mér en þessi tölvu­póstur hélt áfram að toga í mig. Það eru bara fimm­tíu manns í heim­inum sem kom­ast inn í þetta nám og ég vissi svo sem ekk­ert hvort ég yrði sam­þykkt, en ég ákvað að fylgja inn­sæ­inu og sækja um. Ein spurn­ingin á umsókn­ar­eyðu­blað­inu var sú hver væri helsta hindr­unin fyrir mig og það voru auð­vitað veik­indi sonar míns. Tveimur dögum seinna hringdi í mig ynd­is­leg kona og sagði mér að hún hafi áður verið að vinna hjá lækni sem allir leit­uðu til þegar eng­inn vissi hvað væri að og bauð mér að tengja mig við hann. Sá læknir, dr. Darren Clair er svæf­ing­ar­læknir og sér­fræð­ingur í lífs­stíls­lækn­ingum, sem er ný sér­grein innan lækn­is­fræð­innar. Ég starði bara á sím­tólið og hugs­aði: Vá! Þetta er ástæðan fyrir því að ég fann svona sterkt að ég ætti að sækja um.“

„Ef ég hefði þekkt RIM á þeim tíma sem sonur minn var veikur hefði það sparað mér mikla van­líðan. Nú stend ég í þeim sporum að geta nýtt alla mína þekk­ingu, reynslu og menntun til þess að hjálpa öðrum.“

Í fram­hald­inu fund­uðu Eva Ásrún og sonur hennar með dr. Clair á Netinu og hann hvatti son hennar til að koma út til Kali­forníu til sín og fara í stofn­frumu­með­ferð. Þau mæðgin ákváðu að láta slag standa og skelltu sér til Kali­forníu í byrjun des­em­ber 2017. Þau sáu ekki eftir því. „Sonur minn fór í með­ferð hjá dr. Clair og eftir tvær vikur var hann búinn að ná sjö­tíu til átta­tíu pró­sent bata,“ segir Eva Ásrún og hljómar enn ofandottin yfir þessum stór­kost­lega árangri. „Meira að segja lækn­ir­inn átti varla orð, þetta var framar hans björt­ustu vonum. Þannig að hann hvatti okkur til að koma aftur í jan­úar, sem við og gerðum, og í lok jan­úar var dreng­ur­inn lækn­aður og hefur ekki kennt sér meins síðan. Þetta var bara eins og krafta­verk.“

Verkfæri til að verða hæfari að hjálpa öðrum

Til að auka enn á gleð­ina komst Eva Ásrún inn í námið sem leiddi til náms á enn nýju sviði, RIM, Regener­at­ing Images in Memory, hjá the RIM Institute. Hún útskrif­að­ist í júlí sl. sem RIM-leið­bein­andi og er nú í masters­námi og stefnir að því að ljúka því á þessu ári, ef guð og kór­ónu­veiran lofa. „Ég var nátt­úr­lega algjör­lega í henglum,“ segir hún. „Þetta er ekk­ert venju­legt álag sem maður er undir í svona aðstæðum, eins og fólk þekkir, þetta var allra erf­ið­asta verk­efni sem ég hef tek­ist á við á lífs­leið­inni. Eitt er að vera með greindan alvar­legan sjúk­dóm en fólk veit þó alla vega við hvað er að glíma eftir grein­ingu. Þegar maður veit ekk­ert reynir á mann að treysta á inn­sæið, standa með sér og gef­ast ekki upp og það er meira en að segja það. En, já, ég sem sagt fór í þetta áfram­hald­andi nám hjá Canfield og þar kynnt­ist ég dr. Deborah Sandrella sem er stofn­andi RIM Institute og sú sem þró­aði þessa RIM-tækni. Hún er marg­verð­laun­aður geð­með­ferð­ar­að­ili, með meistara­gráðu í geð­hjúkrun, háskóla­pró­fessor og nýtur mik­illar virð­ingar á sínu sviði. Ég fann að RIM-tæknin væri nýtt verk­færi fyrir mig til þess að verða enn hæf­ari til þess að hjálpa öðrum og ákvað að læra hana líka. Ég útskrif­að­ist í júní í fyrra og er núna í masters­námi í þessum fræðum. Mér finnst algjör­lega frá­bært að geta boðið upp á þetta núna í þessu ástandi, algjör­lega nýja nálgun til þess að glíma við van­líðan. Það er númer eitt í líf­inu að hafa hund­rað pró­sent stjórn á sínu lífi, en við stjórnum auð­vitað ekki því sem fyrir okkur kemur. Það eina sem við höfum stjórn á eru við­brögðin og það sem við hugsum, gerum og sjáum fyrir okkur. Stundum upp­lifum við að við höfum ekki stjórn á neinu en við stjórnum því alltaf hvernig við tökum á málum. Við erum einmitt að upp­lifa þetta núna með kór­ónu­vírus­inn; eitt­hvað ósýni­legt stoppar allan heim­inn og við þurfum að bregð­ast við því með því að tengj­ast nátt­úr­unni og okkar eigin til­finn­ingum.“

„Ég grín­ast stundum með það að ég hafi engan áhuga á því að kom­ast á eft­ir­laun. Ég hef bara áhuga á því að takast á við næsta verk­efni og hafa gaman af því að vera til.“

Eva Ásrún vinnur sjálf­stætt sem ljós­móðir, fer í heima­vitj­anir eftir fæð­ingu og notar m.a. RIM-tækn­ina til að hjálpa mæðrum að takast á við það sem því fylgir að eign­ast nýjan ein­stak­ling. Hún ætlar síðan að víkka út starf­sem­ina og er að opna heima­síð­una evaal­berts.is þar sem hægt verður að bóka tíma, fá ráð­gjöf og svo fram­vegis. Hún segir veik­indi son­ar­ins hafa orðið til þess að hún tók enn eina u-beygj­una í líf­inu og sé nú betur til þess búin en nokkru sinni fyrr að hjálpa öðrum. „Ef ég hefði þekkt RIM á þeim tíma sem sonur minn var veikur hefði það sparað mér mikla van­líðan. Nú stend ég í þeim sporum að geta nýtt alla mína þekk­ingu, reynslu og menntun til þess að hjálpa öðrum,“ segir hún. „Það var líka þess vegna sem ég greip tæki­færið til að segja sögu mína í bók­inni Women Who Rise, bók þar sem konur segja frá eigin reynslu í þeim til­gangi að hjálpa öðrum að takast á við vanda­mál sín í líf­inu. Bókin fæst á Amazon og á evaal­berts.is, ég mæli sann­ar­lega með því að fólk lesi hana, þetta eru magn­aðar sögur magn­aðra kvenna og ég held stað­fast­lega að þessi bók geti hjálpað mörgum. Sagan mín heitir Trust Your Intuition – Your Feelings Are Smarter Than You Think – Treystu inn­sæ­inu, til­finn­ingar þínar eru klár­ari en þú heldur. Ég er svo þakk­lát fyrir að það að ég hafi treyst inn­sæi mínu hafi leitt til þess að sonur minn fékk heils­una aftur og allir séu búnir að jafna sig. Það er bara dásam­legt.“

Óteljandi möguleikar í boði óháð aldri

Eva Ásrún er rúm­lega sex­tug en hún er óhrædd við að hefja nýtt tíma­bil í líf­inu, með nýja reynslu og þekk­ingu í fartesk­inu. Hún segir aldrei of seint að byrja á ein­hverju nýju. „Það sagði eng­inn að lífið væri auð­velt,“ segir hún og hlær. „Það snýst auð­vitað alltaf um að takast á við þau verk­efni sem maður fær og halda áfram. Ég býð upp á fyr­ir­lestra, nám­skeið og RIM-tíma og sinni svo auð­vitað mínu starfi líka sem ljós­móðir í heima­þjón­ustu og nýti þessa tækni í öllu sem ég geri. Mér finnst alveg frá­bært að vera að byrja nýjan kafla í líf­inu rúm­lega sex­tug. Ég grín­ast stundum með það að ég hafi engan áhuga á því að kom­ast á eft­ir­laun. Ég hef bara áhuga á því að takast á við næsta verk­efni og hafa gaman af því að vera til. Ég hef alltaf unnið mörg störf og ég myndi alls ekki vilja hætta að vinna, þótt það sé svo sem frá­bært að geta gert það að því leyt­inu að þá fer fólk oft að gera það sem það langar til. En það er ekk­ert til­hlökk­un­ar­efni fyrir alla, síður en svo. Það er ekk­ert sem segir að þú eigir að vera veik þegar þú ert orðin gömul. Náttúran virkar þannig að við eigum að geta haldið heils­unni þangað til við deyjum, en við þurfum að skapa okkur skil­yrði til þess og lifa þannig. Heim­ur­inn er svo opinn í dag að þú getur gert hvað sem þig langar til og fundið nýjar leiðir og prófað eitt­hvað nýtt. Þetta er ekki lengur eins og það var í gamla daga þegar fólk kláraði gagn­fræða­skóla, fór að vinna í banka og vann þar alla ævina. Það eru ótelj­andi mögu­leikar í boði, alveg sama hvað maður er gam­all.“

Myndir: Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu