„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Fólk sem elskar að borða eru bestu manneskjurnar“

„Fólk sem elskar að borða eru bestu manneskjurnar“
Julia Child.

Julia Child er mörgum kunn eftir að bíó­myndin vin­sæla Julia & Julia kom út þar sem hin óvið­jafn­an­lega Meryl Streep lék þessa sjar­mer­andi og áhuga­verðu konu. Julia Child skipar þó stóran sess í upp­eldi margra Banda­ríkja­manna en bók hennar Master­ing the Art of French Cooking olli straum­hvörfum og kveikti áhuga margra á því að elda fág­aðan franskan mat sem áður þótti með öllu óað­gengi­legur nema á fínum veit­inga­stöðum.

Julia Child var fædd Julia McWilliams árið 1912 í Kali­forníu. Fjöl­skyldan til­heyrði efri stéttum sam­fé­lags­ins og lifði þægi­legu lífi í borg­inni Pasadena. Julia gekk í Smith College sem þótti góður kvenna­há­skóli og þar lét hún sig dreyma um að verða rit­höf­undur. Hún var ævin­týra­gjörn, tók þátt í nán­ast öllum íþrótta­liðum skól­ans og þráði eitt­hvað annað en að útskrif­ast úr háskóla til þess eins að gift­ast álit­legum manni og ala upp börn.

Seinni heimsstyrjöldin og leyniþjónusta hersins

Svipt­ingar urðu í banda­rísku sam­fé­lagi í kjöl­far árás­ar­innar á Pearl Harbour árið 1941. Banda­ríkin helltu sér af öllum sínum hern­að­ar­lega krafti í heims­styrj­öld­ina og það skap­aði ýmis atvinnu­tæki­færi fyrir konur. Julia fékk ekki inn­göngu í kvenna­deild hers­ins þar sem hún þótti of hávaxin en hún var 1,86 m að hæð. Julia flutti því til Washington D.C. í leit að vinnu og fékk starf á skrif­stofu hjá leyni- og upp­lýs­inga­þjón­ustu hers­ins (The Office of Strategic Services).

Julia Childs: „Fólk sem elskar að borða eru bestu mann­eskj­urnar.“

Meðal þess sem hún vann við hjá leyni­þjón­ust­unni var að aðstoða vís­inda­menn við þróun á efni sem fæla myndi hákarla frá sprengjum sem ætl­aðar voru þýskum kaf­bátum en her­inn átti víst í tals­verðu basli með for­vitna hákarla sem ollu því að sprengj­urnar sprungu áður en þa náðu skot­marki sínu. Ævin­týra­þráin lét ekki á sér standa og Julia var fljót að sækj­ast eftir því að vinna erlendis. Í mars 1944 fór hún um borð í skip og sigldi til Ceylon, sem er nú Sri Lanka. Seinna fór hún til Kunming í Kína þar sem hún hélt áfram að hjálpa til við þróun á hákarla­fælum. Hún gant­að­ist seinna með að þarna hefði til­rauna­starf­semi hennar í eld­hús­inu haf­ist en hennar hlut­verk var að sjóða saman efni sem fæla áttu hákarl­ana frá þeim svæðum sem sprengj­urnar voru faldar.

Fann ástina á tímum styrjaldarinnar

Í Kína kynnt­ist Julia sam­starfs­manni sínum og til­von­andi eig­in­manni, Paul Child. Paul var lista­maður og ljóð­skáld sem hafði ferð­ast um heim­inn og tal­aði lýta­lausa frönsku. Fjöl­skylda hans hafði gríð­ar­legan áhuga á mat og það var í gegnum hann sem Julia kynnt­ist nýrri upp­lifun á heim­inum, í gegnum mat. Paul fékk seinna vinnu fyrir banda­rísku utan­rík­is­þjón­ust­una í París og hjóna­kornin fluttu til Frakk­lands. Í Frakk­landi kol­féll Julia fyrir frönskum mat og lýsti oft fyrstu mál­tíð sinni þar í landi sem ein­hvers­konar opin­berun, en hún gæddi sér á ostrum, sole Meunière (sól­kola í sítrónu- og smjörsósu) og hágæða víni. Hjónin nýttu frí­tíma sinn í að leita uppi vina­lega og metn­að­ar­fulla veit­inga­staði í Par­ís­ar­borg og Julia kynnti sér franskan mat af mik­illi ákefð. Julia hafði þó fyrir þennan tíma litla sem enga reynslu af matseld og eld­hús­störfum. Forvitni hennar var þó vakin og hún fór í mat­reiðslu­nám við hinn virta Cordon Bleu í París til að ná tökum á franskri mat­ar­gerð­ar­list.

Bókin Master­ing the Art of French Cooking var fyrst gefin út árið 1961.

Bókin um franska matargerðarlist

Í París kynnt­ist Julia tveimur frönskum konum, Simone Beck og Louisette Bert­holle, sem voru að vinna að franskri mat­reiðslu­bók fyrir banda­rískan markað. Þær sár­vant­aði banda­rískan með­höf­und og báðu Juliu um að taka það hlut­verk að sér. Julia sökkti sér í verk­efnið næstu tíu árin og próf­aði allar upp­skrift­irnar, breytti hlut­föllum og aðferðum og skrif­aði af miklum móð. Á þessum árum flökk­uðu hjónin á milli evr­ópskra borga sökum vinnu Pauls. Þrátt fyrir fjar­lægð­ina skrif­uð­ust Simone og Julia á og unnu hörðum höndum að því að klára bók­ina.

Þegar bókin var loks­ins til­búin gekk mjög treg­lega að sann­færa bóka­út­gáfur um að taka hana upp á arma sína. Bókin þótti of metn­að­ar­full, flókin og löng fyrir banda­rískar heima­vinn­andi hús­mæður og í reyk­mettum her­bergjum útgáfu­fé­lag­anna voru þær hvattar til að útvatna hug­mynd sína til að auð­veld­ara væri að selja og mark­að­setja bók­ina. Trú þeirra á verk sitt var þessum úrtölum yfir­sterk­ari og að lokum var það fyrir til­stilli Judith Jones, ungs rit­stjóra hjá Alfred Knopf, sem Master­ing the Art of French Cooking var gefin út árið 1961.

Julia Childs: „Ef þú hræð­ist smjör, not­aðu þá rjóma.“

Það var alls óvíst hvernig bók­inni yrði tekið og mörgum þótti Knopf taka ótrú­lega áhættu með því að gefa út þessa hnaus­þykku bók um franska mat­ar­gerð. Þetta voru þó nýir tímar í banda­rískri sögu. Banda­ríkja­menn ferð­uð­ust meira en þeir höfðu áður gert, Kennedy-hjónin voru í Hvíta hús­inu og franskur bak­grunnur for­seta­frúnnar var mörgum konum inn­blástur og Julia hóf feril sinn sem sjón­varps­kokkur. Allir þessir þættir eru taldir spila inn í þá miklu vel­gengni sem bókin átti eftir að fagna.

Í dag er Master­ing the Art of French Cooking löngu orðin klass­ísk og ætti að vera í bóka­hillum allra heima­kokka sem láta sig franska mat­ar­gerð varða. Upp­skriftir Juliu eru nákvæmar og auð­velt að fylgja þeim eftir og hún er frá­bær penni. Það hafa margir full­yrt að það var Julia Child sem gerði franska mat­reiðslu­list aðgengi­lega og fram­kvæm­an­lega fyrir Banda­ríkja­menn. Margir hafa sagt að hún hafi breytt því hvernig mæður þeirra, og í sumum til­fellum feður, eld­uðu heima hjá sér.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vín og Matur

Blackbox – „Furðulega áhugavert, ég get ekki lýst því öðruvísi“
Mannlífið

Blackbox – „Furðu­lega áhuga­vert, ég get ekki lýst því öðru­vísi“

Í nýjum hlað­varps­þætti af Sósa Fylgir Með var veit­inga­stað­ur­inn Blackbox tek­inn fyrir en stað­ur­inn sér­hæfir sig í pít­sa­gerð. „Stað­ur­inn var að selja á því að það væri hægt að velja álegg sjálfur eins og er hægt á öllum pít­sa­stöðum nema þú gast horft á starfs­fólkið setja áleggið á pít­s­una eins og á Subway. Afsakið en mér finnst það glatað dæmi...
Diddú finnst erfiðast að syngja yfir ungum börnum: „Því sorgin er svo áþreifanleg“
Mannlífið

Diddú finnst erf­ið­ast að syngja yfir ungum börnum: „Því sorgin er svo áþreif­an­leg“

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu. Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins...
Diddú var örugglega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mikilli matarást“
Mannlífið

Diddú var örugg­lega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mik­illi mat­ar­ást“

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu. Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins...
Blómkálshrísgrjón – Ljúffengt lágkolvetnameðlæti
Mannlífið

Blóm­káls­hrís­grjón – Ljúf­fengt lág­kol­vetna­með­læti

Þegar skipt er yfir í lág­kol­vetna­matar­æði getur reynst höf­uð­verkur að finna heitt með­læti sem arf­taka. Blóm­káls­hrís­grjón eru sað­söm, lág í kol­vetnum og frá­bær leið til að auka við græn­met­is­inn­tök­una. Kart­öflur, rót­ar­græn­meti og hrís­grjón eru rík í kol­vetnum og hafa tals­verð áhrif á blóð­sykur lík­am­ans. Blóm­káls­hrís­grjón eru ein­fald­ari í eldun en venju­leg hrís­grjón. Fljót­leg­asta leiðin er að steikja þau á pönnu,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður