„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Starfsmaður íþróttahúss á að hafa slegið 9 ára dreng – „Mamma. Hann lamdi mig. Hann er fullorðinn“

Starfsmaður íþróttahúss á að hafa slegið 9 ára dreng – „Mamma. Hann lamdi mig. Hann er fullorðinn“
Reykja­nes­bær. Mynd / skjá­skot RÚV

Starfs­maður íþrótta­húss Holta­skóla í Reykja­nesbæ er sak­aður um að hafa slegið níu ára gamlan nem­anda skól­ans í vor. Móðir drengs­ins, Kristín Helga Magn­ús­dóttir, segir að hún sjálf, skól­inn og kerfið hafi brugð­ist syni hennar eftir að starfs­mann­inum sé leyft að halda áfram starfi sínu án afleið­inga. Dreng­ur­inn er hræddur við að fara í íþróttir í skól­anum. 

Mistök urðu til þess að starfs­mað­ur­inn var ekki kærður fyrir verkn­að­inn. Því heldur Kristín Helga fram í færslu sinni á Facebook og hefur hún áhyggjur af þeim fjölda barna sem sækja þurfi íþróttir í skól­anum í vetur. Vísir greindi frá. „Hann var sleg­inn í framan af starfs­manni, full­orðnum manni. Starfs­mað­ur­inn hringdi í mig og sagð­ist hafa „aðeins gripið í hann“. Hann var ekki að hringja til að biðjst afsök­unar. Seinna heyrði ég sann­leik­ann. Að hann hafi slegið son minn utan­undir og það sæist á honum. Sár og mar á kinn,“ segir Kristín Helga.

Móðir drengs­ins unga segir að heim­ur­inn hafi skyndi­lega brotnað saman vegna tíð­ind­anna. „Hver slær 9 ára gam­alt barn utan­undir fyrir fífla­læti í klefa eftir íþróttir? Það er ekk­ert sem rétt­lætir það að vera full­orð­inn og leggja hendur á barn. Ábyrgðin er ekki hjá barn­inu. Stuttu seinna horfir hann á mig og segir „mamma. Hann lamdi mig. Hann er furll­orð­inn! Og hann bara lamdi mig“. Það er ekk­ert eðli­legt við þetta.“

Að sögn Krist­ínar Helgu var starfs­maður íþrótta­húss­ins vik­inn tíma­bundið úr starfi í vor á meðan málið var rann­sakað. Nú í haust er við­kom­andi aftur snú­inn til starfa eftir að hafa hlotið áminn­ingu í starfi. „Áminn­ingu fyrir að slá 9 ára gam­alt barn utan­undir. Það varð ein­hver mis­skiln­ingur á milli skól­ans og for­stöðu­manns­ins til þess að engin kæra barst. Stungið var upp á því að lausnin væri að við færum á fund með þessum manni og hann myndi biðj­ast afsök­unar og allt yrði í góðu. Ég var beðin um að láta barnið mitt í aðstæður með full­orðnum manni sem beitti hann ofbeldi,“ segir Kristín Helga og bætir við:

„Ég varð orð­laus. Mér fannst ég hafa brugð­ist barn­inu mínu. Mér fannst skól­inn og for­stöðu­maður hafa brugð­ist barn­inu mínu.“

Kristín Helga hefur hafnað því að sonur hennar fari í íþróttir í skól­anum og bjóða honum þannig að rekast á við­kom­andi starfs­mann. Hún vill vara alla for­eldra við. „Ég skrifa þetta sem móðir 9 ára drengs sem er hræddur í dag að fara í íþróttir þar sem hann gæti mögu­lega rek­ist á þennan mann. Ég skrifa þetta því það eru hund­ruði barna á suð­ur­nesjum sem sækja þetta íþrótta­húss og innan veggja þess er maður sem hefur enga stjór á skapi sínu og slær börn utan undir ef þau láta ekki nógu vel. Maður spyr sig hvort hann ætti að starfa með börnum?,“ segir Kristín Helga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skólamál

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“
Innlent

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“

Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. Kennarar eru í áfalli eftir að Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­til­lögu sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram í kenn­ara­deil­unni. Einn þeirra, Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla, birti í gær mynd­skeið á Facebook þar sem hann seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. „Hvað gerir maður á...
Dómur hefur fallið – Verkfallsboðun kennara lögleg
Innlent

Dómur hefur fallið – Verk­falls­boðun kenn­ara lög­leg

Verk­falls­boðun kenn­ara er lög­leg, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Félags­dóms. Kenn­ara­sam­band Íslands var sýknað í morgun í Félags­dómi af kröfu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er taldi verk­falls­boðun kenn­ara ólög­lega. Vísir segir frá mál­inu. SÍS stefndi boðun verk­falls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfu­gerð lág fyrir í kjara­deil­unni en for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefn­una ekki hafa áhrif á boðuð verk­föll...
Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara: „Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta?“
Innlent

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara: „Gætu veik­indi vegna myglu skýrt þetta?“

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara og kemur með áhuga­verðan punkt varð­andi aukin veik­indi í stétt­inni. Grínist­inn og fram­bjóð­andi Við­reisnar í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum, Jón Gnarr, skrif­aði Facebook-færslu í gær en með færsl­unni birtir hann skjá­skot af frétt mbl.is sem fjall­aði um úttekt Við­skipta­ráðs á skóla­málum. Þar kemst Við­skipta­ráð meðal ann­ars að þeirri nið­ur­stöðu a veik­inda­hlut­fall kenn­ara vera almennt mun...
Dóra Björt var lögð í einelti af kennurum: „Við megum ekki skera niður okkar fegurstu blóm“
Innlentskólamál

Dóra Björt var lögð í ein­elti af kenn­urum: „Við megum ekki skera niður okkar feg­urstu blóm“

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir var lögð í ein­elti af kenn­urum á sínum yngri árum. Um þetta opn­aði hún í Facebook-færslu rétt í þessu. Pírata­fram­bjóð­and­inn Dóra Björt Guð­jóns­dóttir segir frá því í nýrri Facebook-færslu að hún hafi hlotið þann heiður að ávarpa ráð­stefnu ADHD-sam­tak­anna nýlega og segir frá því í leið­inni að hún sjálf sé með ADHD. „Ég hlaut þann heiður að...
Magnús Þór um úttekt Viðskiptaráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjónarhorn þau hafa valið sér“
Innlent

Magnús Þór um úttekt Við­skipta­ráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“

Magnús Þór Jónsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands ætlar að fara yfir úttekt Við­skipta­ráðs, í róleg­heit­unum og „sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“. Við­skipta­ráð segir meðal ann­ars í úttekt sinni að íslenska grunn­skóla­kerfið sé dýrt í alþjóð­leg­um sam­an­b­urði, kennslu­skylda lít­il og fjöldi nem­enda á hvern kenn­ara er einn sá lægsti þekk­ist. Þá er veik­inda­hlut­fall kenn­ara sagt vera almennt mun hærra en...
Svarar ekki hvernig verkfallsskólarnir átta voru valdir: „Ég dáist að hugmyndarflugi fólks“
Innlent

Svarar ekki hvernig verk­falls­skól­arnir átta voru valdir: „Ég dáist að hug­mynd­ar­flugi fólks“

Mjöll Matth­í­as­dóttir, for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara kann­ast ekki við að börn fólks í samn­inga­nefnd rík­is­ins séu nem­endur í þeim átta skólum sem kosið er nú um hvort loka þurfi vegna verk­falla kenn­ara. Mannlífi barst ábend­ing þar sem full­yrt var að þeir átta skólar sem valdir hafa verið fyrir verk­föll kenn­ara og kosn­ing stendur nú yfir um, séu skólar þar sem börn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins