„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvað segir fyrsti stafurinn í nafninu þínu um þig?

Hvað segir fyrsti stafurinn í nafninu þínu um þig?

Hér getur þú fundið út hvaða orka býr að baki fyrsta stafnum í nafn­inu þínu. Ekki er gerður grein­ar­munur á A og Á, O og Ó, U og Ú eða I og Í. Ef sami stafur kemur oftar en einu sinni fyrir í nafni þínu skaltu kíkja á hann líka og þess vegna fær Ð-ið að fylgja með (fyrir Guðríðar þessa lands) þótt ekk­ert nafn byrji á þeim staf. Í nafn­inu Anna eru tvö N svo hún ætti að skoða N-in líka og Halla ætti ekki bara að skoða H-ið, heldur líka A og L og svo fram­vegis.

A: Sjálf­stæður frum­kvöð­ull og leið­togi sem þarfn­ast breyt­inga og ævin­týra til að blómstra. Þú býrð yfir þrjósku og lærir af reynsl­unni.

B: Þú ert við­kvæm, kurt­eis og hjálp­söm mann­eskja, vinnur vel í hóp og gefur mikið af þér. Þú þarft að hafa jafn­vægi í líf­inu.

C: Skapandi kraftur ein­kennir þig og þú ert mikil félags­vera. Innsæi þitt er mikið og þú getur verið við­kvæm/ur.

D: Þú ert vinnu­söm og stöð­ug­lynd mann­eskja, skipu­lögð og þol­in­móð, heið­ar­leg og sjálfri þér sam­kvæm.

Ð: Róleg­heit, ábyrgð, stöð­ug­leiki og skipu­lagn­ing fylgja stafnum Ð.

E: Hrein­skilni, lífs­gleði og frels­is­þörf ein­kennir þig. Þú sæk­ist ekki eftir athygli og það dul­ar­fulla höfðar til þín.

F: Þú ert heima­kær félags­vera og hefur ást­vini þína í fyrsta sæt­inu. Þú ert list­ræn/n, ákveðin/n og þolir illa gagn­rýni.

G: Þú hefur mikið ímynd­un­ar­afl, ert bóka­ormur og líður best í eigin félags­skap, vertu ein/n í við­skiptum eða slepptu þeim. 

H: Þú ert leið­togi með við­skipta­vit, vinnur kerf­is­bundið og ert með smá­at­riðin á hreinu. Þú ert frum­leg/ur en jarð­bundin/n.

I: Þú ert fórn­fús ein­fari og býrð yfir frum­kvæði og virkni. Einnig list­rænn og gef­andi nátt­úru­unn­andi.

J: Þú býrð yfir ágætum leið­toga­hæfi­leikum, ert frum­legur og bjart­sýn/n. Þú ert afar sterk/ur þegar á þarf að halda.

K: Þú hefur mik­inn metnað, ert mik­ill spek­ingur og opin/n fyrir mörgu. Þú gefur mikið af þér þegar þú treystir við­kom­andi. 

L: Skörp rök­hugsun, frum­kvæði og sköpun ein­kennir þig. Þú ert ljúf og sjar­mer­andi mann­eskja en stundum hvöss.

M: Þú býrð yfir hag­sýni, stað­festu og góðri stjórn­un­ar­tækni. Þú ert vinnu­söm, þjón­ustu­lunduð og vernd­andi mann­eskja.

N: Þú vilt kryfja málin, aðhyllist heim­speki og þarft mikla fjöl­breytni og hreyf­ingu í lífi þínu en ert eng­inn áhættu­fík­ill.

O: Þú vilt sjá ávöxt erf­iðis þíns strax, ert hag­sýn/n og íhalds­söm/samur. Þú ert gef­andi, ábyrgð­ar­full/ur og jarð­bundin/n.

P: Þú getur verið lokuð mann­eskja en hefur mik­inn skiln­ing á málum. Þú ert ákveðin/n og vilja­sterk/ur.

Q: Viska, sér­viska og metn­aður ein­kenna þig, ásamt því að þú vilt ná langt í líf­inu. Þú ert líka gjaf­mild/ur og glað­lynd/ur.

R: Þú ert skap­andi til­finn­inga­vera með frest­un­ar­áráttu. Einnig þol­in­móð/ur og skiln­ings­rík/ur og gefur mikið af þér.

S: Þú ert ein­læg, til­finn­inga­rík og frum­leg mann­eskja, góður stjórn­andi og gott að vinna með þér. Andleg mál­efni/trú höfða til þín.

T: Þú tekur fjöl­skyld­una fram yfir fram­ann, ert kurt­eis félags­vera og mik­ill diplómat. Þú þarfn­ast ástar.

U: Þú ert íhalds­samur ein­stak­lingur, list­rænn og hæverskur. Sam­úð­ar­fullur, hvetj­andi og hefur mikla tján­ing­ar­þörf.

V: Þú ert hag­sýnn vinnu­þjarkur sem kannt að koma þér á fram­færi. Þú getur orðið þekk/ur á þínu sviði. 

W: Þú ert leit­andi, ást­ríkur og djarfur ein­stak­lingur, þorir að taka áhættu en ert eng­inn glanni. Þú hefur mikla sölu­manns­hæfi­leika.

X: Þú ert mik­ill lista­maður í þér og getur orðið þekkt/ur sem slík/ur. Þú hefur ein­faldan smekk, býrð yfir ábyrgð og fórn­fýsi.

Y: Lærðu að hlusta á inn­sæi þitt og treysta á hæfi­leika þína. Leitaðu inn á við og miðl­aðu af visku þinni til ann­arra. 

Z: Þú ert mik­ill leið­togi, dug­leg/ur og kraft­mikil/l og býrð yfir sjálfs­trausti. Þú getur náð langt og ert fyrir munað.

Þ: Þú hefur and­lega hæfi­leika, ert félags­vera en þarft líka ein­veru. Kurteisi og hjálp­semi ein­kenna þig, einnig sjálf­stæð­is­þörf.

Æ: Þú hefur við­skipta­vit en þarft að sýna var­kárni. Ferðalög höfða til þín og þótt þú sért ein­fari áttu marga vini.

Ö: Þú ert vin­gjarn­leg félags­vera með list­ræna hæfi­leika. Ef þú vinnur bug á skipu­lags­leysi og opnar þig betur nærðu meiri frama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu