„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Krabbameinsfélagið krefst þess að frétt verði fjarlægð

Krabbameinsfélagið krefst þess að frétt verði fjarlægð

Krabba­meins­fé­lagið hefur kraf­ist þess að Mannlíf fjar­lægi frétt um fyrr­ver­andi starfs­mann félags­ins sem félagið hefur sagt bera ábyrgð á mis­tökum við frumu­grein­ingar hjá félag­inu. Mannlíf mun ekki verða við þeirri kröfu.

Í stjórn Krabba­meins­fé­lags­ins sitja Val­gerður Sig­urð­ar­dóttir, Árni Ein­ars­son, Halldóra Björg Sæv­ars­dóttir, Kristín Hall­dórs­dóttir, Sigríður Zoëga, Sigurður Hann­es­son og Þor­steinn Pálsson.

Starfs­mað­ur­inn hafði orð á því í fyrr­nefndu við­tali að sér sárn­aði mjög sá varn­ar­leikur félags­ins að benda á hana eina til saka. Í til­kynn­ingu félags­ins er fram­koma félags­ins rétt­lætt.

„Félagið hefur legið undir ámæli fyrir að greina frá því að mis­tökin hafi verið gerð af einum starfs­manni. Það var ekki gert til að koma sök á starfs­mann­inn, heldur til að skýra í hverju mis­tökin fólust,“ segir þar.

Félagið full­yrðir að það hafi staðið við bakið á Þórdísi. Hún sagði þó sjálf að fram­koma félags­ins hafi bætt gráu ofan á svart. „Ég gerði mann­leg mis­tök en það er líka hvernig var staðið að þessu og fjöldi sýna á dag sem maður þurfti að greina. Að félagið bendi bara á mig finnst mér sár­ast og erfitt að kyngja. Ég er enn með kökk­inn í háls­inum,“ sagði starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi í gær.

Sjá einnig: Einka­við­tal við Þórdísi hjá Krabba­meins­fé­lag­inu: „Enn með kökk­inn í háls­inum“

Um þetta segir Krabba­meins­fé­lagið: „Undir engum kring­um­stæðum hefur Krabba­meins­fé­lagið eða stjórn­endur þess haldið því fram að starfs­mað­ur­inn bæri þessa ábyrgð. Skýrt hefur verið tekið fram að Krabba­meins­fé­lagið beri ábyrgð á mis­tök­unum. Krabba­meins­fé­lagið hefur verið í góðum sam­skiptum við starfs­mann­inn alveg frá því að málið kom upp í sumar og veitt honum stuðn­ing. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins ræddi aftur við hann í dag til að biðja hann afsök­unar á því að hann hafi dreg­ist inn í umfjöllun um málið með þessum hætti og til að upp­lýsa hann um hvernig það kom til.“

Líkt og fyrr segir þá hefur Krabba­meins­fé­lagið kraf­ist þess að við­tal við Þórdísi verði fjar­lægt. Þess má geta að rit­skoðun og þöggun félags­ins var það sem kom Mannlífi á sporið um hvaða starfs­mann ræddi. Félagið fjar­lægði til­kynn­ingu á eigin vef sem fjall­aði um að hún væri að láta af störfum. Sú til­kynn­ing var fyrst birt í sumar en er enn aðgengi­leg á Google. Í þeirri til­kynn­ingu var haft eftir Ingi­björgu Guð­munds­dóttur, yfir­lækni á frumu­rann­sókn­ar­stofu:

„Hún reynd­ist fyr­ir­mynd­ar­starfs­maður sem hefur unnið störf sín af mik­illi kost­gæfni og við kveðjum hana með miklu þakk­læti – þó svo að við munum nú von­andi hitt­ast á öðrum vett­vangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Krabbameinsfélagið

Bleikur dagur í dag – keyptu til góðs
InnlentKrabbameinsfélagið

Bleikur dagur í dag – keyptu til góðs

Krabba­meins­fé­lagið heldur bleika dag­inn ár hvert „þar sem lands­menn eru hvattir til þess að bera bleiku slauf­una, klæð­ast bleiku og lýsa skamm­degið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabba­mein finni stuðn­ing og sam­stöðu.“ Í til­efni dags­ins eru nokkur fyr­ir­tæki sem bjóða uppá afslætti og mörg hver láta hluta upp­setts verðs renna til Krabba­meins­fé­lags­ins. Það er...
Krabbameinsfélagið í ímyndarkreppu: Auglýsir eftir eldhuga
InnlentKrabbameinsfélagið

Krabba­meins­fé­lagið í ímynd­ar­kreppu: Auglýsir eftir eld­huga

„Langar þig að finna nýjar leiðir til að takast á við nýjar áskor­anir?,“ segir í aug­lýs­ingu Krabbba­meins­fé­lags Ísland sem leitar nú eftir nýjum kynn­ing­ar­full­trúa félags­ins. Starfið er sagt mjög spenn­andi og fjöl­breytt. Krabba­meins­fé­lagið lýsir eftir hæfi­leik­a­ríkum eld­huga til að stýra og vinna að kynn­ing­ar­málum félags­ins í öfl­ugu teymi sér­fræð­inga við fræðslu, fjár­öflun og miðlun af öllu tagi. Starfið er mjög...
Mistök í greiningu ná mögulega mörg ár aftur í tímann – Tvær konur látnar
InnlentKrabbameinsfélagið

Mistök í grein­ingu ná mögu­lega mörg ár aftur í tím­ann – Tvær konur látnar

Grunur leikur á að mis­tök við grein­ingu krabba­meins­sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu nái aftur til árs­ins 2013. Málum tveggja kvenna sem nú eru látnar af völdum leg­hálskrabba­meins verður vísað til emb­ætti land­læknis. Sævar Þór Jónsson lög­maður er með fimm mál sem tengj­ast skimunum á sínu borði en alls hafa honum borist um 20 fyr­ir­spurnir vegna slíkra mála. Vís­bend­ingar eru um að mis­tök...
Einkaviðtal við Þórdísi hjá Krabbameinsfélaginu: „Enn með kökkinn í hálsinum“
InnlentKrabbameinsfélagið

Einka­við­tal við Þórdísi hjá Krabba­meins­fé­lag­inu: „Enn með kökk­inn í háls­inum“

Þórdís Björg Krist­ins­dóttir, líf­einda­fræð­ingur og fyrr­ver­andi starfs­maður Krabba­meins­fé­lags Íslands, hefur ferð­ast um dimman dal eftir að upp komst um mis­tök hennar við frumu­grein­ingar hjá félag­inu. Hún gengst við því í sam­tali við Mannlíf að hafa gert mann­leg mis­tök en sárnar mjög sá varn­ar­leikur félags­ins að benda á hana eina til saka. Stjórn­endur Krabba­meins­fé­lags­ins sögðu frá mis­tökum hennar í yfir­lýs­ingu og...
Kristján rekinn frá Krabbameinsfélaginu – Margvaraði við lélegri skimun – „Hræðilegt að þetta kosti mannslíf“
InnlentKrabbameinsfélagið

Kristján rek­inn frá Krabba­meins­fé­lag­inu – Margvar­aði við lélegri skimun – „Hræði­legt að þetta kosti manns­líf“

„Ég margvar­aði við þessu og það er hrika­lega sorg­legt að þetta kosti alvar­leg veik­indi og manns­líf,“ segir Kristján Oddsson, kven­sjúk­dóma­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands, sem telur sig hafa verið rek­inn fyrir að vara við þeim alvar­legu afleið­ingum sem fyr­ir­komu­lag krabba­meins­skimunar kvenna gæti haft í för með sér. Hann getur alls ekki glaðst yfir að hafa haft rétt fyrir sér....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins