„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erfið vinkona

Erfið vinkona

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég og Emma kynnt­umst í sex ára bekk og urðum strax vin­konur. Þrjátíu árum seinna átt­aði ég mig hins vegar á að vin­áttan var ein­hliða því Emma naut góðs af mér en gaf lítið eða ekk­ert til baka.

Emma var einka­barn for­eldra sinna. Þau höfðu reynt lengi að eign­ast barn en ekk­ert gengið og voru búin að sætta sig við að verða barn­laus þegar mamma hennar varð ófrísk.  Gleðin og ham­ingjan var mikil þegar lítil stúlka komin í heim­inn og ekki minnk­aði hún neitt eftir því sem Emma stækk­aði. Um það leyti sem við gengum í fyrsta sinn inn í skóla­bygg­ingu með stórar töskur á bak­inu var Emma þegar sann­færð um að hún bæri af öðrum börnum.

Hún var ljós­hærð með þykkt liðað hár, öfur­lítið búldu­leit með spékoppa og stór blá augu. Mamma hennar hafði verið heima­vinn­andi frá því hún fædd­ist en þau hjónin voru mjög vel stæð. Mun betur stæð en for­eldrar mínir sem bjuggu í blokk og unnu bæði úti. Emma var læs þegar hún byrj­aði í skól­anum og mamma hennar hafði kennt henni ýmis­legt í reikn­ingi líka. Ég var aftur á móti ósköp venju­legur krakki. Emma var því langt á undan mér og öllum öðrum og hélt því for­skoti lengi.

Fyrir til­viljun sett­ist Emma við hlið­ina á mér og við fórum saman út í frí­mín­útur. Þegar hún komst að því að ég bjó í næstu götu við hana spurði hún hvort ég vildi ekki vera sam­ferða henni og mömmu hennar í bílnum heim. Brátt var það orðið að fastri venju að þær mæðgur sóttu mig á morgn­ana og ég fór heim með Emmu á dag­inn. Við unnum heima­vinn­una okkar við borð­stofu­borðið heima hjá henni og lékum okkur svo þangað til ég þurfti að fara heim í kvöld­mat.

Lokuð úti á svölum

Ein­hverju sinni þurfti mamma Emmu að skreppa frá og við urðum eftir einar heima. Emma vildi leika sér í Bar­bí­leik en ég var nið­ur­sokkin í púslu­spil sem ég hafði fundið í her­berg­inu hennar og hlýddi ekki þegar hún bað mig að hætta því. Hún horfði á mig svolitla stund og átt­aði sig á að ég ætl­aði ekki að gefa mig. Þá sagði hún: „Komdu með mér inn í her­bergið hennar mömmu. Ég ætla að sýna þér svo­lítið.“

„Ég hélt fyrst að þetta væri bara stríðni og bráðum myndi hún koma og hleypa mér inn aftur en tím­inn leið og ekki kom Emma. Ég kall­aði og bank­aði en fékk ekk­ert svar.“

Hjóna­her­bergi pappa hennar og mömmu var algjör ævin­týra­heimur og Emma vissi vel að ég myndi ekki neita þessu boði. Hjóna­rúmið var risa­stórt og fal­legt kín­verskt silki­teppi breitt yfir það. Stórt snyri­borð stór úti í horni og á því voru ótal fjár­sjóðir. Ilm­vatns­glös, krist­al­skrús með skart­gripum og silf­ur­kreytt bursta­sett. Ég fann alltaf fyrir lotn­ingu þegar ég gekk þangað inn og við höfðum stundum fengið að fara inn í fata­her­bergið og skoða pelsa, glæsikjóla, skó og töskur. En að þessu sinni stefndi Emma beint að svala­hurð­inni.

„Komdu,“ sagði hún. „Ég ætla að sýna þér.“ Hún opn­aði hurð­ina og ég elti hana út. Ég var ekki fyrr komin út á sval­irnar en hún stökk inn og læsti hurð­inni. Ég hélt fyrst að þetta væri bara stríðni og bráðum myndi hún koma og hleypa mér inn aftur en tím­inn leið og ekki kom Emma. Ég kall­aði og bank­aði en fékk ekk­ert svar. Þetta var að vetri til og snjór yfir öllu. Svala­gólfið var þakið krapi og ég á sokk­unum. Ég veit ekki hversu langur tími leið en ég var orðin mjög köld og hrædd. Frá svöl­unum á efri hæð­inni sást inn um stóran stofu­glugg­ann um nær allt rýmið á neðri hæð­inni. Allt í einu sá ég hvar Emma kom niður stig­ann og gekk beint inn í eld­hús. Hún opn­aði ísskáp­inn og fór að taka sér til eitt­hvað að borða og þá átt­aði ég mig á að ekki var á dags­skrá að hleypa mér inn á næst­unni.

Klifraði niður af annarri hæð

Óttinn og kuld­inn rak mig til að leita ann­arra leiða og ég klifraði því yfir hand­riðið og tókst ein­hvern veg­inn að láta mig síga niður með þak­renn­unni og niður í garð­inn. Ég hljóp að úti­dyra­hurð­inni og hringdi, ætl­aði að ná í skóna mína, úlpuna og skóla­dótið en Emma svar­aði ekki. Þetta end­aði með að ég gekk heim sokk­unum og peys­unni. Mamma var alveg brjáluð og fór til að sækja eigur mínar. Þegar hún kom til baka var hún alveg miður sín því mamma Emmu hafði neitað að hlusta á nokkuð af því sem mamma sagði og til­kynnti að dóttir hennar myndi ekki framar leika sér við barn eins og mig.

„Emma var reyndar snill­ingur í að öðl­ast vin­áttu og aðdáun hinna full­orðnu. Hún var hlýðin og eft­ir­lát þegar þeir voru nærri og færði til dæmis kenn­ar­anum reglu­lega blóm og alltaf páska­egg fyrir hverja páska.“

Í nokkrar vikur eftir þetta forð­að­ist ég Emmu og hún mig en svo fór hún að sækj­ast eftir félags­skap mínum aftur. Mamma var alltaf tor­tryggin út í hana og ekki að ástæðu­lausu. Ef ég gerði ekki eins og Emma vildi gerði hún alltaf eitt­hvað á hlut minn þótt það væri aldrei jafn­al­var­legt og í þetta fyrsta sinn. Blýantur með skrauti á sem mér þótti vænt um hvarf og fannst brot­inn á gólf­inu í skól­anum, húfa sem amma prjón­aði handa mér var klippt í sundur og margt fleira. Alltaf sagð­ist Emma sak­laus og ég vildi trúa henni þótt mamma gerði það aldrei.

Emma var reyndar snill­ingur í að öðl­ast vin­áttu og aðdáun hinna full­orðnu. Hún var hlýðin og eft­ir­lát þegar þeir voru nærri og færði til dæmis kenn­ar­anum reglu­lega blóm og alltaf páska­egg fyrir hverja páska. Þannig var þetta alla grunn­skóla­göngu okkar. Margt breytt­ist hins vegar þegar við komum í mennta­skóla. Saxast hafði á for­skotið sem Emma hafði í námi og nú stóð ég mig mun betur en hún. Emma fann sig aldrei í fram­halds­skóla því kenn­ar­arnir höfðu lít­inn áhuga á henni og hún var aldrei mið­punktur athygl­innar eins og áður. Emma hætti eftir tvö ár og fór í skóla út í Bret­landi. Mamma hennar flutti út og hélt heim­ili fyrir þær mæðgur á meðan.

Blómstraði án vinkonunnar

Meðan Emma var úti blómstr­aði ég.  Áður höfðum við verið að mestu tvær því flestar aðrar stelpur gáfust fljótt upp á Emmu en nú varð ég hluti af stórri stelpuklíku sem tók upp á mörgu skemmti­legu og ég kynnt­ist raun­veru­legri vin­áttu í fyrsta sinn. Á sumrin þegar Emma var heima vildi hún taka upp þráð­inn og að allt yrði eins og áður en ég var ekki til­búin til þess. Ég reyndi að draga Emmu inn í kík­una en hinum stelp­unum lík­aði ekki við hana og þoldu ekki stjórn­sem­ina í henni.

„Þarna átt­aði ég mig á að ég kærði mig ekki um þessa vin­áttu og sagði það hrein­skil­in­is­lega. Nokkrum sinnum í gegnum árin hefur Emma hringt í mig full og ýmist vælt um að hún vilji laga vin­áttu okkar eða ausið yfir mig sví­virð­ingum.“

Sam­veru­stundir okkar Emmu urðu því sífellt færri en þráð­ur­inn á milli okkar slitn­aði aldrei alveg. Hún hélt áfram í háskóla­nám í háskóla­nám í Bret­landi og kynnt­ist þar velefn­uðum manni sem hún gift­ist. Ég heyrði ekk­ert frá henni í ein fimm ár en kvöld eitt var hringt heim til mín. Það var orðið nokkuð áliðið og ég komin upp í rúm, enda mið vika. Emma var á lín­unni, nokkuð drukkin og nú átti að gera upp gamlar sakir. Hún hellti sér yfir mig og sagði mig sníkju­dýr sem notið hefði góðs af henni og hennar fjöl­skyldu og svo yfir­gefið hana þegar hún þurfti mest á mér að halda.

Ég sagð­ist ekki skilja hvað hún ætti við því ég kann­að­ist ekki við að hafa á nokkurn hátt haft hag af vin­átu við hana. Hún öskr­aði þá á mig ókvæð­is­orð og skellti síðan á. Mér leið hálf­illa dag­inn eftir og hringdi því í sam­eig­in­legan kunn­ingja sem sagði mér að Emma væri skilin og komin heim. Hann sagði að skiln­að­ur­inn hefði verið ljótur og lík­lega væri Emma þess vegna miður sín. Ég ákvað því að hringja og vita hvort ég gæti gert eitt­hvað fyrir gamla vin­konu sem ætti erfitt. Emma reynd­ist ekki í betra skapi en kvöldið áður þótt hún væri ódrukkin í þetta sinn og hún sagði ýmsa ljóta hluti um mig. Meðal ann­ars að ég hefði logið upp sög­unni af því þegar hún lok­aði mig úti á svöl­unum.

Þarna átt­aði ég mig á að ég kærði mig ekki um þessa vin­áttu og sagði það hrein­skil­in­is­lega. Nokkrum sinnum í gegnum árin hefur Emma hringt í mig full og ýmist vælt um að hún vilji laga vin­áttu okkar eða ausið yfir mig sví­virð­ingum. Ég bregst alltaf eins við. Ég segi: „Mér þykri vænt um þig Emma og óska þér alls hins besta en ég vil ekki umgang­ast þig. Þú notar fólk en kannt ekki að gefa af þér.“

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Áfengið var búið að taka allt frá okkur
Fólk

Áfengið var búið að taka allt frá okkur

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, hefur lengi barist fyrir því að börn alkó­hólista fái sál­fræði­þjón­ustu á vegum borg­ar­innar, en sú til­laga hefur ekki hlotið hljóm­grunn. Kolbrúnu er þetta hjart­ans mál enda þekkir hún sjálf afleið­ingar þess að alast upp við alkó­hól­isma á sjálfs­mynd og sjálfs­mat barna. Hún seg­ist hafa verið komin á full­orð­insár þegar hún loks fór að trúa því...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu