„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Netverslun með grænmeti færist í aukana. Lífrænt í forgrunni.

Netverslun með grænmeti færist í aukana. Lífrænt í forgrunni.
Vallanes, Eymundur Magn­ús­son, Eygló Ólafs­dóttir, Móðir Jörð

Að minnsta kosti þrír aðilar hér á landi starf­rækja Net­verslun með Grænmeti. Það eru Bændur í Bænum, Móðir Jörð og Aust­ur­lands Food Coop.

Athygli vekur að allir ein­beita þeir sér nær ein­göngu að líf­rænt vott­uðu græn­meti enda er líf­ræn ræktun orðin mjög útbreidd víð­ast hvar í Evrópu.

Aust­ur­lands Food Co byrj­aði sem sam­fé­lags­legt verk­efni á Seyð­is­firði fyrir fáum árum síðan. Á bak við fyr­ir­tækið standa Jonathan Moto Bisagni og Ida Fel­ten­dal ásamt þéttum hópi vina. Jonathan segir að lítið úrval af fersku græn­meti í versl­unum á Aust­ur­landi hafi rekið þau út í að hefja rekst­ur­inn, sem svo sann­ar­lega hefur undið upp á sig.

Við­skipta­vinir geta nú pantað græn­metiskassa á nýrri heima­síðu foodcoop.is og valið um að fá sent heim að dyrum eða sækja í dreif­ing­ar­mið­stöð nærri heim­ili sínu. Kassinn er 8 til 10 kíló, kostar 8.500 krónur, og inni­heldur blöndu af fersku og sér­lega lit­ríku græn­meti og ávöxtum.

„Græn­metið er 90-95% líf­rænt ræktað og kemur frá Ítalíu, Spáni, Frakk­landi og Hollandi, í gegnum Danmörku. Fyrst um sinn kom græn­metið með Norrænu til Seyð­is­fjarðar frá Danmörku en þegar Covid skall á hætti ferjan að sigla um tíma og þá tókum við upp á að sigla með það til Reykja­víkur,“ segir Jonathan og bætir við að Fjarð­ar­heiði hafi oft á tíðum reynst rekstr­inum fjötur um fót á vet­urna.

Aust­urands Food Coop er mikið í mun að sinna dreifð­ari byggðum lands­ins þar sem lítið úrval er af fersku græn­meti í versl­unum, en jafn­framt eru þau með víð­tæka dreif­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Ef við værum bara í þessu fyrir pen­inga þá myndum við ein­göngu sinna höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir Jonathan.

„Við keyrum sjálf græn­meti norður til Siglu­fjarðar og suður á Djúpavog. Svo erum við með starfs­stöð í Reykja­vík sem sinnir allt frá Vest­manna­eyjum til Vest­fjarða“, segir Jonathan en með dreifi­kerfi sínu ná þau að dekka allt landð.

Jonathan og félagar eru í góðu sam­starfi við nokkra íslenska fram­leið­endur við að koma sínum vörum á fram­færi. Jafn­framt eiga þau í góðu sam­starfi við aðra Net­verslun, Bændur í Bænum. „Bændur í bænum eru algjörir frum­kvöðlar í þess­ari starf­semi og við erum í góðu sam­starfi við þau. Þórður og Karólína eru sann­kall­aðir guð­for­eldrar líf­rænnar versl­unar hér á landi og við reynum að sam­eina krafta okkar,“ segir Jonathan.

Girni­legur græn­metiskassi frá Aust­ur­lands Food Coop

Bændur í bænum hafa um langt skeið boðið upp á viku­lega áskrift­ar­kassa sem notið hafa mik­illa vin­sælda. Hægt er að velja milli fjög­urra mis­mun­andi kassa og mis­mun­andi stærðir fyrir hvern kassa. Afgreiðsla fer fram á mið­viku­dögum og eru kass­arnir afgreiddir á sér­valda afhend­ing­ar­staði eða sendir hvert á land sem er. Hægt er að velja um nokkrar teg­undir af græn­metis- og ávaxta­kössum og er verðið frá 4.490 til 6.990 krónum.

Eymundur og Eygló á Vallnesi

Móðir jörð á Fljóts­dals­hér­aði er meðal öfl­ug­ustu rækt­enda á líf­rænu græn­meti hér á landi. Eygló Björk Ólafs­dóttir og Eymundur Magn­ús­son, bændur á Valla­nesi, eru lík­lega hvað þekkt­ust fyrir ræktun á líf­rænu banka­byggi en jafn­fram rækta þau og nýta um 100 teg­undir af plöntum og státa af breiðri vöru­línu af eigin fram­leiðslu. Net­verslun Móður jarðar er í smíðum en þangað til hún lítur dags­ins ljós er hægt að panta í gegnum tölvu­póst­inn [email protected] og fá sent heim eftir sam­komu­lagi.

„Við höfum boðið upp á þá þjón­ustu í nokkur ár að fólk getur pantað græn­metiskassa úr okkar upp­skeru, umbúða­laust. Fyrst um sinn þjón­u­st­uðum við ein­göngu íbúa Aust­ur­lands en höfum nú fram­lengt okkar dreif­ingu til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins,“ segir Eygló sem meðal ann­ars notar inn­an­lands­flugið við dreif­ingu á pönt­unum og getur fólk þá sótt á Reykja­vík­ur­flug­völl.

Um er að ræða allt að 5 kílóa kassa sem kosta 3.500 krónur beint af bónda en 5.000 krónur lentur í Reykja­vík. „Græn­metiskass­arnir end­ur­spegla breið­ara úrval en við höfum boðið upp á í versl­unum, allt upp í æt blóm og grasker,“ segir Eygló og bætir við að fjöldi fólks leggi jafn­framt leið sína í Asp­ar­húsið á Valla­nesi til þess að sækja sitt græn­meti. Í kort­unum hjá Móður Jörð er að opna nýja heima­síðu með Net­verslun á græn­meti.

Uppskera á Valla­nesi

SPE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

netverslun

Boozt seldi fyrir tæpan milljarð. Tískudrottningin Svava Johansen fagnar samkeppni
Innlentnetverslun

Boozt seldi fyrir tæpan millj­arð. Tísku­drottn­ingin Svava Johansen fagnar sam­keppni

Tísku­drottn­ingin Svava Johansen, eig­andi NTC, fagnar sam­keppni og segir net­versl­un­ina Boozt ekki vera fyrstu áskor­un­ina. Svava hefur rekið tísku­versl­anir í ára­tugi og lítur út fyrir að hún sé hvergi nærri hætt. Segir Svava í við­tali við Vísi borg­ar­yf­ir­völd ekki taka nægi­lega sterka stöðu með verlun­ar­mönnum og atvinnu­rek­endum. Það séu þeir sem geri borg­ina skemmti­lega og haldi henni lif­andi með versl­unum...
Afsláttardagurinn Svartur föstudagur: „Fólk mun geta gert góð kaup þennan dag“
Innlent

Afslátt­ar­dag­ur­inn Svartur föstu­dagur: „Fólk mun geta gert góð kaup þennan dag“

Black Friday eða Svartur föstu­dagur eins og það kall­ast er dagur sem hefur tekið sér fastan sess hér á landi síð­ustu ár. Um er að ræða dag þar sem versl­anir bjóða upp á hina ýmsu afslætti og til­boð. Sjá má á vef­versl­unum og heima­síðum fyr­ir­tækja að mörg hver hafa fram­lengt afslátt­ar­dag­inn vin­sæla og bjóða upp á til­boðin alla vik­una sem...
Amazon rukkar neytendur án leyfis – Þóra í sjokki:„Allt í einu var ég búin að borga teygjuhelvítin“
Innlentnetverslun

Amazon rukkar neyt­endur án leyfis – Þóra í sjokki:„Allt í einu var ég búin að borga teygju­hel­vítin“

„Hæ. Ég er í hálf­gerðu sjokki. Í fyrsta sinn var ég að lenda í því að það var dregið af kort­inu mínu rétt á meðan ég var að skoða vöru og athuga hver send­ing­ar­kostn­að­ur­inn væri. Ég var ekki búin að stað­festa neitt hvað þá heim­il­is­fang, ég er með tvö. Svo þegar ég skoða á síð­unni, Amazon, þá er þessi vara...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins