„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Framboð Helgu Völu kom Heiðu á óvart: „Ég tel mig vera betri varaformann“

Framboð Helgu Völu kom Heiðu á óvart: „Ég tel mig vera betri varaformann“
Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður og borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Þeir sem til mín þekkja vita að ég er ann­ars meira fyrir að fram­kvæma hlut­ina en að tala um þá eins og sést kannski bara þegar fólk skoðar þau verk­efni sem ég held utan um […] Ég læt verkin tala,“ segir Heiða Björg Hilm­is­dóttir. Heiða hefur gegnt emb­ætti vara­for­manns Sam­fylk­ingar síð­ustu ár og verið við­loð­andi flokk­inn um ára­bil. Það kom því mörgum á óvart að þing­mað­ur­inn Helga Vala Helga­dóttir skyldi skora Heiðu á hólm með því að bjóða sig fram til emb­ætt­is­ins – ekki síst Heiðu sjálfri. Fram undan er lands­fundur þar sem tek­ist verður á um stól­inn og fram­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar.

Helga Vala hefur lýst yfir fram­boði sínu til vara­for­manns Sam­fylk­ingar. Þar með tekur hún slag­inn við þig, sem hefur gegnt emb­ætt­inu síð­ustu þrjú ár. Líturðu á fram­boð hennar sem van­traust við þitt starf?
„Auðvitað mega allir gefa kost á sér ef þeir telja sig betur til for­ystu fallnir en þeir sem eru fyrir. Hins vegar kom þetta fram­boð frá Helgu Völu mér á óvart,“ játar Heiða. „Ég hef ekki fengið neina gagn­rýni frá henni á mín störf eða ráð um hvað mætti gera öðru­vísi. Hún hefur vissu­lega rétt á þessu. Hún hefur verið öflug í þing­inu og mér finnst hún eiga fullt erindi þar. Það verður síðan bara lands­fundar að ákveða hvora okkar þeir vilja hafa í þessu hlut­verki. En ég tel mig vera betri vara­for­mann og ég vona að fólki finn­ist það líka.“

„Ég hef ekki fengið neina gagn­rýni frá henni á mín störf eða ráð um hvað mætti gera öðru­vísi.“

Óheppilegt að varaformaður krefjist þess að fá athygli

Hvað kosti tel­urðu þig hafa fram yfir Helgu Völu?
„Mér finnst ég hafa marga kosti sem hafa nýst í þessu starfi, þótt aðrir hafi örugg­lega sína kosti líka,“ svarar Heiða, eins og sannur póli­tíkus. „Ég tel til dæmis skipta máli að for­ysta Sam­fylk­ing­ar­innar hafi breidd sem end­ur­speglist meðal ann­ars í því að for­maður og vara­for­maður starfi ekki á sama vett­vangi, þing­inu. Stjórn­mála­flokkum hættir nefni­lega til að vera mjög upp­teknir af störfum þings­ins og það vill gleym­ast að einn þriðji af hinu opin­bera fer fram á sveita­stjórn­ar­stig­inu. Þaðan kem ég. Ég gegni hlut­verki vara­for­manns Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og ég tel það mik­il­vægt á meðan for­mað­ur­inn er á þingi.“

Heiða Björg hefur verið vara­for­maður flokks­ins síð­ustu þrjú ár. Hún telur að það væri óheppi­legt að vera vara­for­maður sem er alltaf að krefj­ast þess að fá athygli þegar það er í raun for­mað­ur­inn sem á að vera and­lit flokks­ins og tala út á við.

Heiða kveðst lítt gefin fyrir að hreykja sér en segir þó liggja í augum uppi að mikil upp­bygg­ing hafi átt sér stað innan flokks­ins síð­ustu ár. „Við Logi [Ein­ars­son] tókum auð­vitað við Sam­fylk­ing­unni á skrítnum tíma. Flokk­ur­inn hafði nán­ast þurrkast út af þingi og við unnum dag og nótt við að byggja hann upp ásamt breiðum hópi af góðu fólki. Núna ríkir sam­staða innan flokks­ins og gleði. Fólk er sam­mála um að stefnan, jafn­að­ar­manna­stefnan skipti máli, ekki hvaða fólk gegni hvaða stöðum. Mér finnst áríð­andi þegar svona mik­il­væg ár eru fram undan, þar sem kosið verið í alþing­is­kosn­ingum og borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, að við höldum í þennan sam­stöðu­anda og þennan bar­áttu­anda fyrir jafn­að­ar­manna­stefn­unni.“

Hún tekur fram að sam­starfið við Loga sé gott. Þau séu sam­stiga og skipti með sér verkum. „For­mað­ur­inn er auð­vitað tals­maður okkar á meðan vara­for­mað­ur­inn hefur mik­il­vægu hlut­verki að gegna, sér­stak­lega innan flokks­ins. Ég tel að það væri óheppi­legt að vera vara­for­maður sem er alltaf að krefj­ast þess að fá athygli þegar það er í raun for­mað­ur­inn sem á að vera and­lit flokks­ins og tala út á við.“

Lætur verkin tala

En hvar greinir hana og Helgu Völu á – svona mál­efna­lega séð? Um hvað mun þessi slagur snú­ast?
Heiða hugsar sig um. „Ég er ekk­ert endi­lega viss um að það sé munur á skoð­unum okkar,“ segir hún svo. „Við erum auð­vitað báðar í sama flokki og fylgjum sömu stefnu og það verður engin stefnu­breyt­ing hjá Sam­fylk­ing­unni sama hvor okkar vinnur. En við leggjum áherslu á mis­mun­andi hluti og hvað við teljum vera mik­il­væg­ast. Ég held að fólk sjái það með hlið­sjón af okkar mál­flutn­ingi. Ég hef lagt mikla áherslu á vel­ferð­ar­málin, á mann­rétt­indi. Að við séum öll jöfn í sam­fé­lag­inu. Þar hef ég lagt mig mikið fram. Þeir sem til mín þekkja vita að ég er ann­ars meira fyrir að fram­kvæma hlut­ina en að tala um þá eins og sést kannski bara þegar fólk skoðar þau verk­efni sem ég held utan um, til dæmis hjá borg­inni. Ég læt verkin tala.

En ætli mun­ur­inn á okkur Helgu Völu felist ekki í okkar ólíku þekk­ingu og ólíka per­sónu­leika,“ heldur hún áfram. „Ég sá ein­hvers staðar að hún líkti okkur við söng­kon­urnar í ABBA, sem mér fannst reyndar ekki alveg við­eig­andi. Ég vona í það minnsta að ég hafi átt að vera Agnetha, því hún var alltaf vin­sælli,“ segir hún og hlær.

Blöskraði óréttlætið

Það er auð­heyrt að Heiða brennur fyrir sam­fé­lags­málum. Voru þau ástæða þess að hún sneri sér að póli­tík?
„Algjör­lega,“ segir hún hik­laust. Mér finnst mik­il­vægt að þeir sem fari út í stjórn­mál brenni fyrir því að breyta, því sam­fé­lagið er að mörgu leyti órétt­látt. Það eru stórar hópar sem ekki fá sömu tæki­færi og aðrir. Það var ein ástæða þess að ég hætti í mínu ann­ars ágæta starfi hjá Land­spít­al­anum, þar sem ég rak stóra ein­ingu, mál­tíð­ar­ein­ingu starfs­manna og sjúk­linga, með 150 starfs­menn og fór út í stjórn­málin. Ég var bara ekki til­búin að sætta mig við að það tæki ein­hver hund­rað ár að konur fengju sömu tæki­færi og karlar í sam­fé­lag­inu. Ég vildi breyta því. Þess vegna gekk ég til liðs við kvenna­hreyf­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Svo á ég á barn með fötlun og ég fann að hans tæki­færi í líf­inu voru skert­ari en ann­arra. Ég upp­lifði þetta á eigin skinni. Þegar hann var í grunn­skóla sagði þar starfs­maður við mig: „Heiða, ég hef engar áhyggjur af syni þínum, hann hefur svo sterkt bak­land.“ Þetta sat í mér og ég fór að hugsa: „Hvað með öll börnin sem ekki eiga sterkt bak­land? Því það skiptir ekki bara máli fyrir mig að mitt barn hafi tæki­færi í líf­inu,“ segir hún, „það skiptir máli fyrir mig að öll börn fái tæki­færi.

Sjálf er ég alin upp af strang­heið­ar­legu verka­fólki, sem átti óskap­lega lít­inn pen­ing þegar það var búið að borga af hús­næð­is­lán­unum sínum. Ég þekki því af eigin raun hvernig er að hafa bara ekk­ert allt of mikið á milli hand­anna og veit að getur tekið á, sér­stak­lega börn. Þess vegna langar mig að vinna að því að sem fæst börn alist upp við skort og að börn í erf­iðum heim­il­is­að­stæðum trúi að þau geti unnið sig úr þeim og hafi tæki­færi til að mennta sig og eiga öðru­vísi líf. Þetta skiptir mig miklu mál og ég finn að ég get gert gagn. Það heldur mér gang­andi í þessu, þessi til­hugsun um að ég geti gert gagn. Ef ég tryði því ekki gæti ég bara hætt í stjórn­málum.“

„Þetta var ekkert mjög úthugsað hjá mér“

For­eld­arnir sem Heiða talar um eru Hilmir Helgason vinnu­vél­stjóri og Lovísa Snorra­dóttir sem starf­aði í heim­il­is­hjálp, en Heiða er fædd og upp­alin á Akureyri, elst fjög­urra barna. Bróðir hennar kom í heim­inn þegar hún var þriggja ára og tæpu ári síðar bætt­ust við tví­bura­systur. Á þeim tíma voru engin dag­vist­un­ar­úr­ræði þannig að móð­irin hafði oft í nógu að snú­ast ein heima með fjögur börn, í 30 fer­metra íbúð á tíma­bili.

„Á þessum tíma var ég svona 10-12 ára og ég tók hlut­verk mitt sem elsta barn mjög alvar­lega, reyndi eftir fremsta megni að hjálpa for­eldrum mínum og vera ábyrg. Mamma skúraði á kvöldin og ég eld­aði kvöld­mat­inn. Mér fannst bara sjálf­sagt að leggja hönd á plóg og auð­vitað lærði maður hell­ing á þessu, eins og að elda. Eftir á hyggja má hins vegar segja að ég hafi alið með mér svo­lít­inn afkomu­ótta við það að alast upp við að fara spar­lega með hverja krónu og ég var óhóf­lega spar­söm fram á full­orð­insár. Ótta sem ég þurfti svo að tækla þegar ég eign­að­ist seinna eigin fjöl­skyldu og maka sem horfði allt öðru­vísi á hlut­ina.“

Heiða segir að for­eldrar sínir hafi verið og séu enn rót­tækt fólk. Faðir hennar hafi alltaf verið í verka­lýðs­fé­lag­inu og hún hafi sem barn alltaf verið með­vituð um að þau fjöl­skyldan væru að berj­ast fyrir betri heimi. Það sé því kannski ekki skrítið að leiðin hafi legið í Sam­fylk­ing­una þegar komið var fram á full­orð­insár. Í raun hafi eng­inn annar flokkur komið til greina. En leiðin í flokk­inn hafi þó verið svo­lítið óvenju­leg.

„Ég kem inn í flokk­inn í gegnum kvenna­hreyf­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar, en ekki í gegnum háskólapóli­tík­ina eins og margir,“ útskýrir hún. „Enda fór ég, þessi sjálf­stæða týpa sem ég var þarna orðin, út í háskóla til Sví­þjóðar að læra nær­ing­ar­fræði þar sem hún var ekki kennd á Íslandi. Eftir heim­komu gekk ég svo til liðs við kvenna­hreyf­ingu flokks­ins og hvatti Hrafn­hildi Ragn­ars­dóttur til að bjóða sig fram til for­mennsku og lof­aði á móti að gefa kost á mér í stjórn. Seinna þegar við hvöttum konur til for­ystu í stjórn­málum var skorað á mig að gefa kost á mér, það varð eig­in­lega til þess að ég ákvað að taka þetta skref og hef ekki séð eftir því.“

Heiða segir að með hliðj­són af sínum bak­grunni sé kannski ekki skrítið að leiðin hafi legið í Sam­fylk­ing­una þegar komið var fram á full­orð­insár.

Heiða er gift Hrannari Birni Arn­ars­syni sem á sjálfur stjórn­mála­feril að baki. Þau kynnt­ust 2003 og gengu í hjóna­band 2006 en hann hafði þá verið áber­andi innan Sam­fylk­ing­ar­innar og þurft að takast á við ýmis krefj­andi verk­efni. Það hefur ekki dregið úr löngun Heiðu að fara út í pólítík? „Góð spurn­ing,“ segir hún. „Nei, veistu, í raun hugs­aði ég ekki út í það, þótt ég hafi auð­vitað fylgst með Hrannari vinna með Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, að því að bjarga Íslandi úr þeirri kreppu sem ríkti, með öllu því álagi sem því fylgdi. Nei, ég ein­blíndi í raun á þá hugsun að við eigum helst öll að gefa kost á okkur í stjórn­málum, alla vega í ein­hvern tíma á lífs­leið­inni og reyna að gefa til sam­fé­lag­ins.“

Reyndust stjórn­málin vera í lík­ingu við það sem hún hafði hugsað sér þegar á hólm­inn var komið?
„Ég við­ur­kenni að ég vissi kannski ekk­ert ofboðs­lega mikið hvað ég var að fara út í. Ég var bara áhuga­söm að taka þátt og ákvað þess vegna að gefa kost á mér. Þetta var ekk­ert mjög úthugsað hjá mér,“ segir hún og brosir.

„Hins vegar hefur komið skemmti­lega á óvart hvað heimur stjórn­mála getur verið góður, í raun betri en ég bjóst við. Í borg­inni þar sem ég er borg­ar­full­trúi er auð­vitað tek­ist hart á um stór mál og utan frá séð geta stórn­málin virkað eins og víg­völlur. Þar spilar inn í að leið­in­legu málin fá oft­ast meira pláss í fjöl­miðlum. En mér hefur alltaf verið vel tekið og ég hef eign­ast góða sam­starfs­menn bæði innan Sam­fylk­ing­ar­innar og í öðrum flokkum. Almennt vinnum við þétt saman og erum að ná árangri saman. Enda tel ég að ef við ætlum að gera það þá eigum við að horfa meira í það sem við eigum sam­eig­in­legt og hvar við getum unnið saman og eyða minni tíma í að reyna að klekkja á fólki eða segja ljóta hluti um það.“

„Engin óráðsía í gangi“

Ég bendi á að margir upp­lifi samt mikla ólga innan borg­ar­stjórnar. Störf meiri­hlut­ans hafa verið umdeild. Bragga­málið, pálma­trén, fram­úr­keyrsla Sorpu. Sumir telja stjórn­leysi og óráðsíu ríkja í Ráð­hús­inu.

„Mér finnst sjálf­sagt að gagn­rýna það sem má betur fara,“ svara Heiða yfir­vegað. „Fram­kvæmd Braggans var til dæmis klár­lega ekki eins og á að vera. Við höfum ekki reynt að hylma yfir það. En það er engin óráðsía í gangi. Borgin stendur vel og henni er vel stjórnað. Og vegna þess hvernig kerfið er upp­byggt þá gætum við ekki, ekki einu sinni þótt við vildum, stjórnað borg­inni jafnilla og sumir vilja láta í veðri vaka.

„Fram­kvæmd Braggans var til dæmis klár­lega ekki eins og á að vera. Við höfum ekki reynt að hylma yfir það. En það er engin óráðsía í gangi.“

En auð­vitað leggjum við okkur fram um að stjórna vel og mér finnst ég sjá jákvæðar breyt­ingar á borg­inni. Sem dæmi erum við að byggja upp þjón­ustu fyrir fólk með fatl­anir. Erum að opna fleiri hjúkr­un­ar­rými. Erum að gjör­bylta þjón­ustu vel­ferð­ar­sviðs. Erum meira að horfa í að veita þjón­ustu sem fólk óskar eftir heldur en að ákveða þjón­ustu fyrir það í ein­hverju excel-skjali, eins og var kannski meira áður fyrr. Eins og bara þegar ekklar, menn sem voru í sorg, leit­uðu til félags­þjón­ust­unnar og var þá boðið þrif, en vant­aði kannski ann­ars konar aðstoð. Við erum að vinna í því að snúa kerf­inu. Hlusta á fólkið, frekar en að ákveða hlut­ina fyr­ir­fram. Þetta eru bara nokkrar breyt­ingar og ég er ánægð með þær og stolt af þeim.“

Átök Eflingar og borgarinnar tóku á

Hérna gríp ég fram í og bendi á að ekki deili nú allir þeim skoðun með Heiðu að hlut­irnir séu að þró­ast í rétta átt í Reykja­vík. Kaupmenn í mið­bænum hafi sem dæmi sett út á meiri­hlut­ann einmitt fyrir að hlusta ekki á þá með því að fjölga göngu­götum í borg­inni. Meiri­hlut­inn hafi líka verið gagn­rýndur fyrir úrræða­leysi í mál­efnum heim­il­is­lausra og þegar kjara­við­ræður stóðu yfir sak­aði Efling hann um hræsni og óbil­girni.

„Varðandi mið­bæ­inn og Lauga­veg­inn þá sjáum við sam­kvæmt könn­unum að Reyk­vík­ingar eru ánægðir með þá þróun sem á sér stað,“ bendir Heiða á. „Hverf­is­gatan er orðin frá­bær­lega flott. Þar hafa sprottið upp mörg fyr­ir­tæki. Og ekki má gleyma nýja Hafn­ar­torg­inu. Fyrir utan það veit ég að þau hjá umhverfis- og skipu­lags­sviði hafa lagt sig fram um að vera í góðu sam­tali og eru opin fyrir marg­vís­legum lausnum, því að sjálf­sögðu viljum við sem blóm­leg­asta mið­borg. Það skiptir máli fyrir mann­lífið. Við þurfum bara ein­hvern veg­inn að finna leið þarna á milli þannig að Reyk­vík­ingar séu ánægðir og kaup­menn­irnir líka.

Hvað varðar heim­il­is­lausa, þá þurfti að bæta þjón­ust­una og við höfum sett tvö­falt meira fjár­magn í þann mála­flokk.“

Hvað með gagn­rýni Eflingar? Hvernig fannst þér, með þinn bak­grunn, að vera sökuð um að tala niður til verka­lýðs­stétta?
„Ég styð alltaf bar­áttu verka­lýðs­fé­laga fyrir bættum kjörum og mér fannst mikið af kröfum Eflingar skilj­an­legar. Mér fannst þetta hins vegar mjög erf­iður tími,“ játar Heiða fús­lega. „Mér fannst mjög miður að það þyrfti að koma til þess að það þyrfti að fara í verk­fall. Ég hefði á allan hátt viljað að við gætum komið í veg fyrir það.

Ég hefði líka viljað geta haft meiri áhrif á samn­inga­við­ræð­urnar. Stjórn­mála­menn hafa hins vegar ekki umboð til þess heldur samn­inga­nefndir og við urðum að leggja traust okkar á það að þær næðu saman. Sem betur fer gerð­ist það og ég held að samn­ing­ur­inn sem náð­ist loks sé ásætt­an­legur fyrir báða aðila þótt við í Reykja­vík séum svo­lítið gagn­rýnd fyrir það að hafa samið of vel við Eflingu. Við eigum bara að vera stolt af því og standa við þann samn­ing. Þarna eru stórar og mik­il­vægar kvenna­stéttir sem eru á of lágum launum. Þannig að þetta var mik­il­vægt skref, sem ég er ánægð með að við skyldum taka. En af hverju þetta tók svona langan tíma skal ég ekki segja. Þeir sem sátu við samn­inga­borðið eiga svar við því.“

Flokksmenn og kjósendur dæma um ábyrgð Ágústs Ólafs

Ég minni á að flokk­ur­inn hefur líka sætt harðri gagn­rýni fyrir að taka ekki nógu vel á öðru máli, máli þing­manns sem fór í tveggja mán­aða leyfi í kjöl­far þess að trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar veitti honum áminn­ingu vegna „ósæmi­legrar hegð­unar hans í garð konu“, eins og það var orðað í fjöl­miðlum.

„Þetta mál sem kom upp með Ágúst [Ólaf Ágústs­son] var gríð­ar­lega erfitt,“ segir Heiða alvar­leg. „Ég reyndi að svara því jafn­heið­ar­lega og ég gat. Ég stend alltaf með þolendum í svona málum. Hann vann úr þessu eins og hann taldi best og axl­aði ábyrgð á því sjálfur.“

Hún segir að öllum flokkum sé hollt að fá gagn­rýni og aðhald í svona málum. „Borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar, sem er vara­for­maður jafn­að­ar­manna­flokks­ins í Danmörku, var til dæmis að segja af sér vegna þess að hann hafði áreitt konur. Þar er ráð­herra kom­inn með ákæru. Það er svo mik­il­vægt að við [stjórn­mála­menn] sýnum sam­fé­lag­inu að svona mál eru ekki létt­væg. Að við sýnum að við tökum svona mál alltaf alvar­lega.

Hvort Sam­fylk­ingin hefði getað gert eitt­hvað meira í þessu máli … Við fylgdum því ferli sem við höfðum sett upp innan flokks­ins. Ég held að það hafi sýnt sig hversu mik­il­vægt það var. Þetta var nið­ur­staðan. Núna mun flokk­ur­inn velja aftur hverja hann vill bjóða fram til Alþingis. Ég geri ráð fyrir að Ágúst ætli að sækj­ast aftur eftir þing­setu. Það verður í höndum flokks­fólks og kjós­enda hver nið­ur­staðan verður, hver tekur sæti á Alþingi.“

Lítt gefin fyrir sviðsljósið en samt ekki hlédræg

Þegar ég bendi á að sumum hafi þótt Heiða halda sig helst of mikið til hlés í þessu máli er hún fljót til svars. „Í þessu máli veitti ég ansi mörg við­töl og fékk þá gagn­rýni að ég hefði haft mig of mikið í frammi,“ segir hún.

En getur verið að henni hætti stundum til að vera of … hlé­dræg? „Nei, það myndi ég nú ekki segja og í raun alls ekki,“ bætir hún við ákveðin. „En mér hefur ekki fund­ist mik­il­væg­ast að fá hrós fyrir mín verk eða þegar ég get látið gott af mér leiða. Mér finnst mik­il­væg­ara að láta verkin tala heldur en að vera í sviðs­ljós­inu.“

Spurð hvort hún nái almennt að brynja sig fyrir gagn­rýni af þessu tagi, seg­ist Heiða almennt geta það. „Ef ég veit að ég hef staðið mig eins vel og ég get þá geri ég það, en auð­vitað tek ég rétt­mætri gagn­rýni á kerfið okkar, því mér finnst leið­in­legt að við skulum ekki hafa náð lengra á ákveðnum sviðum en raun ber vitni. Ég tek til dæmis nærri mér að við skulum ekki vera komin lengra á veg í þjón­ustu við fatl­aða,“ nefnir hún. „Ef gagn­rýni er hins vegar ósann­gjörn, þá getur manni sárnað í smá­stund,“ játar hún og brosir dauft.

Sótti sér handleiðslu

Nærðu alltaf að skilja að vinnu og einka­líf?
Nei, ég er ekki alveg nógu góð í því. En ég er að vinna í því. Ég hef sótt mér hand­leiðslu til að skilja betur að „vinnu­týpuna“ og „Heiðu-týpuna“ svo ég geti líka verið góða mamma, dóttir og vin­kona. En þetta er stundum svo­lítið flókið af því mér finnst svo ótrú­lega gaman í stjórn­málum og brenn fyrir því sem ég er að gera.

Ég reyni auð­vitað að kúpla mig frá vinnu öðru hvoru,“ tekur hún fram. „Stundum förum við fjöl­skyldan eitt­hvert í burtu, kannski bara í einn dag, til að brjóta upp rútín­una. Stundum skelli ég mér í þakk­læt­is­göngu, sem er nokkuð sem ég lærði af Sirrý Arn­ar­dóttur fjöl­miðla­konu. Þá geng ég um og þakka fyrir það sem á vegi mínum verður, nátt­úr­una, fugl­ana. Svo elda ég. Ég er svo­lít­ill ástríðu­kokkur og get gleymt mér í eld­hús­inu. Reyndar nenni ég því alls ekki alltaf en það fær mig til að slaka á. Síðan á ég tvær dætur, 12 og 14 ára og get dottið inn í lífið með þeim. Það getur verið skemmti­legt og mikil núvit­und fólgin í því,“ segir hún og kímir.

Heiða kveðst lítt gefin fyrir að hreykja sér en segir þó liggja í augum uppi að mikil upp­bygg­ing hafi átt sér stað innan flokks­ins síð­ustu ár.

Spurð hvort hún sé ham­ingju­söm, seg­ist Heiða vera það. Hún segir það til dæmis gef­andi að koma í gegn málum sem breyta lífi fólks til hins betra. „Sem dæmi var frá­bært að stofna ofbeld­is­varna­nefnd sem „móni­terar“ ofbeldi í borg­inni. Við höfum hrint úr vör fullt af verk­efnum sem styðja við fólk sem verður fyrir ofbeldi og draga úr líkum á að fólk verði fyrir ofbeldi. Bjark­ar­hlíð var til dæmis verk­efni sem við keyrðum af stað nokkrar konur og varð að veru­leika,“ bendir hún á. „Það eru svona hlutir sem skipta máli.“

Erfitt að horfa upp á fullorðið fólk ljúga

Heiða játar þó að vinnan sé ekki alltaf dans á rósum. „Auðvitað tekur sumt á. Eins og inn­an­flokksá­tök. Fólk sem sýnir minni kær­leika til sam­stöð­unnar og meiri kær­leika til sjálfs sín. Það þekk­ist í öllum flokkum. Ég er líka ósátt við ósann­gjarna gagn­rýni og ósann­gjarnar yfir­lýs­ingar. Eins og þegar borg­ar­full­trúi stígur í pontu og segir ósatt,“ segir hún, án þess að nefna nokkur nöfn. „Ég, mið­aldra konan, á bara enn erfitt með að horfa upp á full­orðið fólk segja ósatt og trúa því að það vilji það. Þetta teng­ist bara upp­eld­inu þar sem for­eldrar mínir lögðu áherslu á að maður ætti fyrir sínum útgjöldum og segði alltaf satt.“

Hún við­ur­kennir líka að það hafi var áskorun að taka við sæti vara­for­manns í Sam­fylk­ing­unni á sínum tíma, þótt það hafi verið gef­andi. „Við sem komum inn í þetta unnum dag og nótt þar sem flokk­ur­inn átti ekki pen­ing og sjálf­boða­liðar héldu úti heima­síð­unni okkar. Nú erum við komin með starfs­menn, nýja skrif­stofu, lógó og heima­síðu og til­búin í þessi tvö ár sem eru fram undan. Nú þurfum við bara að ná trausti almenn­ings og fylgi, svo að við eigum rödd á Alþingi og von­andi í rík­is­stjórn líka.“

Reynslan af borgarmálum gæti nýst í ríkisstjórn

Finnst þér koma til greina að vinna með hvaða flokki sem er í rík­is­stjórn?
„Þegar ég fór út í stjórn­mál hugs­aði ég að maður ætti aldrei að úti­loka neitt og vinna með öllum. En í rík­is­stjórn verður maður auð­vitað að vinna með fólki sem vill vinna að sömu mark­miðum og maður sjálfur. For­mað­ur­inn hefur sagt að Sam­fylk­ingin fari ekki í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Mið­flokki. Ég bakka hann upp í því. Ég get ekki séð að stefnu­á­herslur þess­ara flokka séu það líkar okkar að það sé til árang­urs að starfa með þeim.“

En er ekki hættu­legt að gefa út svona yfir­lýs­ingar, getur ekki allt gerst í póli­tík? Það voru til dæmis ekki margir sem sáu fyrir sér að Vinstri græn færu í rík­is­stjórn með Sjálf­stæði­flokki eftir að þau höfðu gagn­rýnt flokk­inn linnu­laust í aðdrag­anda kosn­inga.

„Jú, eflaust er það hættu­legt. En mér finnst þá mik­il­vægt að maður standi við yfir­lýs­ing­arnar sem maður gefur. Kjós­endur vilja vita með hverjum maður hyggst starfa. Fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar síð­ast lögðum við það til dæmis í hendur kjós­endum hvort þeir vildu áfram­hald­andi sam­starf Sam­fylk­ingar í meiri­hluta eða hvort þeir vildu Sjálf­stæð­is­flokk­inn,“ minnir Heiða á.

„Hvað varðar rík­is­stjórn­ar­sam­staf, þá er starf­andi rík­is­stjórn búin að gera alls konar ágæta hluti en hún er ekki að breyta sam­fé­lag­inu og ég tel að það væri ekki rétt fyrir Sam­fylk­ing­una að taka þátt í rík­is­stjórn sem skil­aði engum breyt­ingum.“

„For­mað­ur­inn hefur sagt að Sam­fylk­ingin fari ekki í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Mið­flokki. Ég bakka hann upp í því. Ég get ekki séð að stefnu­á­herslur þess­ara flokka séu það líkar okkar að það sé til árang­urs að starfa með þeim.“

Þannig að þú telur að sam­starfi við hina flokk­ana kæmi frekar til greina?
„Já, og ég held að reynsla okkur úr Reykja­vík­ur­borg gæti reynst vel. Við erum búin að starfa þar í fjög­urra flokka meiri­hluta og það gengur ljóm­andi vel. Ef fólk á í hrein­skiptum sam­skiptum þá getur verið hollt fyrir meiri­hluta að vera sam­settur úr fleiri flokkum. Þetta gamla fyr­ir­komu­lag að einn flokkur stjórni öllu er ekk­ert endi­lega málið. Þótt ég myndi auð­vitað ekki hafna því ef fólk fæli Sam­fylk­ing­unni það,” segir hún og hlær.

Útilokar ekkert

Það er farið að síga á seinni hluta sam­tals okkar. Ég beini tal­inu aftur að lands­fund­inum sem er framundan og spyr með hvaða hug­ar­fari Heiða ætli í slag­inn við Helgu Völu.
„Ég er auð­vitað vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Ég er búin að vera það í svo­lít­inn tíma og er nokkuð bjart­sýn og kát með árang­ur­inn af starf­inu sem við höfum unnið hingað til og und­an­farið hef ég fundið mikið traust. Þannig að ég fer inn í þetta allt saman með opnum hug og kær­leika. Síðan verðum við bara að sjá hvernig úr því spil­ast. Ég vona bara að út úr þessum lands­fundi komi það allra besta,“ segir hún og brosir.

Hverju ætlarðu að beita þér sér­stak­lega fyrir ef þú sigrar?
„Að við höldum áfram að efla innra starf í Sam­fylk­ing­unni og auð­velda aðgengi hins almenna flokks­fé­laga að því. Eiga í góðu sam­tali við fólk um land allt og sjá til þess að það upp­lifi flokk­inn sem sinn sama­stað. Síðan mun ég beita mér fyrir því að stilla upp ásamt for­mann­inum lista öfl­ugra tals­manna flokks­ins fyrir þing- og borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Við þurfum svo að móta stefnu flokks­ins í mars og apríl á næsta ári. Þannig að það eru mjög spenn­andi hlutir og stór verk­efni fram undan. Þetta er mikil vinna og ég er til í hana.“

Muntu starfa áfram innan flokks­ins ef þú lýtur í lægra haldi fyrir Helgu Völu?
„Ég er auð­vitað kosin borg­ar­full­trúi og ég mun halda því starfi áfram óháð þessu hlut­verki,“ svarar hún rólega. „Hingað til hef ég sinnt þeim hlut­verkum sem flokk­ur­inn hefur falið mér og ég mun gera það áfram.“

Ef þú værir ekki í póli­tík hvað vær­irðu þá að gera?
„Ég held að mínir hæfi­leikar liggi svo­lítið á sviði stjórn­unar. Það teng­ist eflaust upp­eld­inu þegar ég var að stúss­ast með yngri systk­ini mín,“ segir hún bros­andi. „Þannig að ég hugsa að ég væri ein­hvers staðar í stjórn­un­ar­stöðu.“ Hún seg­ist líka vel geta hugsað sér að vera með ein­hvers konar ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki seinna meir og stuðlað að því að þjóðin borði holl­ari og umhverf­is­vænni mat. Þar sé svo sann­ar­lega verk að vinna.

En þing­seta, spyr ég. Kæmi hún ein­hvern tím­ann til greina?
„Það er ekki það sem ég er að stefna að núna, alls ekki,“ svarar hún. „Enda finnst mér við vera að ná árangri í Reykja­vík. En hvað fram­tíðin ber í skauti sér … Það verður bara að koma í ljós. Ég úti­loka ekk­ert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu