„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Trylltur trúðaköttur ræðst á heimilisfólk í Laugarneshverfi með kjafti og klóm

Trylltur trúðaköttur ræðst á heimilisfólk í Laugarneshverfi með kjafti og klóm
Svartur köttur hrellir íbúa hverf­is­ins. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Kol­svartur högni hefur hrellt íbúa Laug­ar­nes­hverf­is­ins um nokk­urt skeið með ógn­andi til­burðum. Dýrið, sem er með trúða­kraga og bjöllu, hefur sært bæði dýr og menn í hverf­inu og nú geta íbú­arnir ekki lengur við unað.

Háværa umræðu um högn­ann má finna á hverf­is­síðu Laug­ar­nes­ins á Facebook. Það var Ingi Vífill nokkur sem hóf þar umræð­una. „Ég vil vekja máls á efni sem hefur legið þungt á mér frá því við fjöl­skyldan fluttum hingað í hverfið í lok sum­ars. Svartur högni hér í hverf­inu, með trúða­kraga og bjöllu, hefur sýnt af sér ógn­andi til­burði um all­nokk­urt skeið. Húskött­ur­inn okkar hefur ítrekað komið heim eftir hann særður og illa leik­inn. Hingað til hef ég horft í gegnum fingur mér með þetta, og gert það sem í mínu valdi hefur staðið – skorist í leik­inn með vatns­gusum þegar þeir hafa mæst í garð­inum, og haldið kett­inum okkar inni,“ segir Ingi og bætir við:

„Í morgun vökn­uðum við fjöl­skyldan við hvæs og kvein innan úr íbúð­inni okkar. Þá hafði umræddur högni gert sér leið, ekki aðeins inn á stiga­gang­inn, heldur inn í íbúð­ina okkar, til þess að ógna kett­inum okkar. Ég skarst í leik­inn og vildi fæla hann burt, en læsti svarti högn­inn þá klóm og tönnum á bólakaf í fót­inn á mér og gerði sig lík­legan til að ráð­ast til atlögu á annað heim­ils­fólk, m.a. fjög­urra ára dóttur okkar, sem stóð dauð­skelfd og skælandi. Tókst mér að fæla hann á brott með vatns­gusu. Svarti högn­inn er mannýgur og fer ég þess á leit að eig­endur, hverjir sem þeir eru, gangi úr skugga um að gælu­dýrið þeirra sé ekki að ráð­ast á fólk.“

Halldóra Malin Pét­urs­dóttir hefur svip­aða sögu að segja. „Úfff, því miður hef ég sömu sögu að segja af þessu bless­aða dýri, hann hefur líka komið hérna inn til okkar og er afar illur og tuskar læð­una okkar alveg hrylli­lega til. En mér þykir mjög skelfi­legt að heyra að hann geri atlögu að fólki, því hér eru börn,“ segir Halldóra.

„ Svarti högn­inn er mannýgur og fer ég þess á leit að eig­endur, hverjir sem þeir eru, gangi úr skugga um að gælu­dýrið þeirra sé ekki að ráð­ast á fólk.“

Gréta Jóna Vign­is­dóttir segir högn­ann alræmda hafa oft komið heim til sín og ráð­ist á bæði heim­il­is­kött­inn og dóttur sína. „Þessi köttur hefur oft komið til okkar og ráð­ist á kött­inn okkar hann réð­ist á dóttur mína lika stökk á hana með þeim afleið­ingum að hún var öll klóruð á höfði. Við höfum tvisvar talað við eig­endur og þau vilja ekk­ert gera og segja að þessi köttur sýni ekki þessa hegðun. Við höfum sprautað á hann þegar hann kemur nálægt,“ segir Gréta. 

Svala Jóhanns­dóttir blandar sér í umræð­una og seg­ist hafa lengi ætlað sér að tala um kol­svartan trúða­högn­ann við aðra íbúa í hverf­inu. „Læðan mín hefur lent illa í honum líka og hann hefur ítrekað komið inn í íbúð­ina til okkar og vakið okkur um miðjar nætur. Ég hafði sjálf hugsað mér að pósta hérna varð­andi þennan högna en það er greini­legt að við erum ekki ein í þessu!,“ segir Svala.

Sjöfn nokkur von­ast til að lausn finn­ist á mál­inu fljótt. „Vonandi finnst lausn á þessu máli en lítur út fyrir að það sé bara því miður ekki hægt að leyfa þessum ketti að ganga lausum fyrst að hann er hættu­legur bæði öðrum dýrum og fólki.“

Eva Bald­urs­dóttir er því hjart­an­lega sam­mála. Hún hefur verið að glíma við dýrið und­an­farið. „Það hefur bara ekk­ert annað virkað til að fæla hann burt þegar hann ryðst inn á stiga­gang­inn okkar eða jafn­vel íbúð­ina og ræðst bæði á dýr og fólk! Maður getur ekki látið svona yfir sig ganga og þurfa eig­endur að taka ábyrgð í þessu máli, sér­stak­lega í ljósi þess að það hafa greini­lega mjög margir sömu sögu að segja af þessum til­tekna ketti,“ segir Eva. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gæludýr

Hundaeigandi í Los Angeles fann hvolpinn sinn eftir fimm daga aðskilnað – MYNDSKEIÐ
Heimur

Hunda­eig­andi í Los Angeles fann hvolp­inn sinn eftir fimm daga aðskilnað – MYNDSKEIÐ

Hunda­eig­andi í Los Angeles fann hund sinn aftur eftir fimm daga leit í miðjum elds­voð­anum sem nú skekur borg englanna. Vít­islogarnir sem brennt hafa heilu hverfin í Los Angeles til grunna síð­ustu daga hafa haft áhrif á þús­undir borg­ar­búa en dán­ar­talan er komin upp í 24. Blessuð gælu­dýrin hafa einnig fundið fyrir eyð­ing­ar­mætti elds­ins en í fjöl­miðlum vestra er sagt...
Venus Vala varð orðlaus í miðbænum: „Ég var kölluð dýraníðingur af einhverri kellingu niðrí bæ“
Innlentgæludýr

Venus Vala varð orð­laus í mið­bænum: „Ég var kölluð dýra­níð­ingur af ein­hverri kell­ingu niðrí bæ“

„Það er ekki í lagi með fólk, ég sver það,“ segir Venus Vala nokkur í færslu sem hún skellir inn í fjöl­mennt sam­fé­lag hunda­eig­enda á Facebook, Hunda­sam­fé­lagið. Ástæðan fyrir gremju hennar er athuga­semd sem veg­far­andi gerði á dög­unum við hunda­hald hennar í mið­borg­inni. Venus Vala lýsir því sem fram fór þeirra á milli í færsl­unni: „Ég var kölluð dýra­níð­ingur af...
Ráða fólki frá hundum með „klesst“ andlit: „Allir hundar eiga skilið að fæðast við góða heilsu“
Menning

Ráða fólki frá hundum með „klesst“ and­lit: „Allir hundar eiga skilið að fæð­ast við góða heilsu“

Dýra­læknar í Bret­landi hvetja fólk til þess að „staldra við og hugsa sig um“ áður en það kaupir sér hrein­rækt­aða enska bola­bíta. Þetta er vegna umtals­verðra heilsu­farskvilla sem hrjá teg­und­ina í miklum mæli. Fólki sem þegar á slíka hunda er ráð­lagt að fylgj­ast vel með heilsu­fari dýr­anna og leita sér ráð­legg­inga sér­fræð­inga ef þeir verða varir við ein­kenni. Samkvæmt nið­ur­stöðum...
Aðstæður of hættulegar fyrir leit að labradortíkinni sem féll í Seljadalsá
Innlentgæludýr

Aðstæður of hættu­legar fyrir leit að labrador­tík­inni sem féll í Selja­dalsá

Beiðni um aðstoð sjálf­boða­liða við leit að svartri labrador­tík í nágrenni við Hafra­vatn hefur verið aft­ur­kölluð. Aðstæður á svæð­inu þykja of hættu­legar fyrir aðra en vana leit­ar­menn. Eins og Mannlíf sagði frá í gær er nú leitað að svartri labrador­tík sem féll í straum­harða Selja­dalsá í fyrra­kvöld. Tíkin barst með straumnum í ánni yfir í Hafra­vatn þar sem hún hvarf...
Eigendur loka ketti úti eða yfirgefa þá: „Allar kisur eiga skilið að fá annað tækifæri“
Innlentgæludýr

Eigendur loka ketti úti eða yfir­gefa þá: „Allar kisur eiga skilið að fá annað tæki­færi“

Fjölgað hefur til­fellum þar sem eig­endur katta losa sig við þá með því að loka þá úti eða yfir­gefa þá. Félagið Villi­kettir, sem sjá um að taka inn villta ketti eða ketti á ver­gangi og manna þá fyrir ný heim­ili, greindi frá ástand­inu á Facebook síðu sinni. „Sjálf­boða­liðar Villikatta hafa fundið fyrir því und­an­farið að á meðan villi­köttum virð­ist hafa...
Húðflúr til styrktar heimilislausum dýrum: „Yfir 7000 dýr fengið heimili“
Innlentgæludýr

Húðflúr til styrktar heim­il­is­lausum dýrum: „Yfir 7000 dýr fengið heim­ili“

Húðflúrs- og göt­un­ar­stofan Blek­smiðjan býður við­skipta­vinum að fá sér flúr til styrktar Dýra­hjálp. 11 des­em­ber næst­kom­andi verður boðið upp á bæði húð­flúr og lík­ams­götun og rennur allur ágóði söl­unnar óskertur til styrktar Dýra­hjálp Íslands. Við­skipta­vinum er boðið að koma án þess að panta sér tíma og styrkja gott mál­efni í leið­inni. 28 dýr eru á vegum Dýra­hjálpar þessa stund­ina en...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins