„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Pabbi minn drap mann“

„Pabbi minn drap mann“
Erla Rós Bjarka­dóttir þurfti að öðl­ast allt annan skiln­ing á líf­inu en önnur börn þegar hún var aðeins níu ára. Þá gerð­ist faðir hennar sekur um mann­dráp eftir mikla neyslu og óreiðu til fjölda ára.

Erla Rós Bjarka­dóttir var aðeins níu ára þegar pabbi hennar gerð­ist sekur um mann­dráp.

„Barinn með bús­á­haldi“ og „Eins og að ganga inn í slát­ur­hús“ eru meðal fyr­ir­sagna sem birt­ust í fjöl­miðlum dag­inn eftir að Bjarki Freyr Sig­ur­geirs­son varð Braga Frið­þjófs­syni að bana við Dals­hraun í Hafn­ar­firði þann 17. ágúst 2009.

Þann 15.  nóv­em­ber síð­ast­lið­inn var fjallað um málið í þætt­inum Ummerki á Stöð 2 og segir Erla það hafa tekið mikið á sig og fjöl­skyldu sína að heyra fjallað um þetta í sjón­varp­inu og ekki hafa fengið neinar ábend­ingar um það.

„Það var ákveðið að taka mig upp í sveit í viku eftir atburð­inn því mamma var hrædd við hvað þetta myndi hafa mikil áhrif á mig. Þetta var út um allt í fjöl­miðlum og and­litið hans á öllum blöðum.“

Móðir hennar, stjúp­faðir, amma og afi sett­ust niður með henni dag­inn eftir kvöldið örlaga­ríka og greindu frá stöðu mála. „Pabbi þinn er að fara í fang­elsi – hann drap mann,“ var Erlu sagt. „Þau fengu ráð­legg­ingu frá presti að segja mér strax frá þessu en ekki fara djúpt í það. Þau sögðu mér svo að pabbi væri búinn að vera veikur og ekki ganga vel í líf­inu.“

„Þetta var mjög mikið sjokk. Ég vissi ekki almenni­lega hvernig mér átti að líða, ég varð bæði reið og sár og fannst ég ekki þekkja hann á sama hátt og áður. Þetta breytti þeirri mynd sem ég hafði búið til af pabba.“

Hélt að hann ynni úti í sveit

Erla ólst að mestu upp með móður sinni og stjúp­föður en saman eiga þau litla bróður Erlu. Móðir hennar og Bjarki slitu sam­vistum þegar Erla var tveggja ára eða frá því að Bjarki féll aftur í áfengis- og vímu­efna­neyslu eftir hafa verið edrú í nokkur ár.

„Sam­skiptin voru mjög tak­mörkuð, ég hitti hann stundum þegar hann var edrú og þá alltaf með ömmu minni og afa, aldrei ein, honum var ekki treyst. Það var alltaf bara fínt, þetta var bara pabbi minn sem ég hitti stundum. Ég vissi aldrei að hann væri í neyslu, mér var alltaf sagt að hann væri að vinna úti í sveit og þess vegna hitti ég hann svona sjaldan.“

Mikil neysla og óregla

Bjarki hafði verið í mik­illi langvar­andi áfengis- og fíkni­efna­neyslu áður en hann ban­aði Braga Frið­þjófs­syni. Í dóms­skýrsl­unni kemur fram að Bjarki hafi verið háður fíkni­efnum og hafi verið í óreglu frá ung­lings­árum. Hann hefði sprauti sig með hinum ýmsu efnum sem hann næði í. Þá þótti hugs­an­legt að hann hafi fengið heilaskaða á tán­ings­aldri vegna sniff­neyslu og að hann glímdi við kvíða og þrá­hyggju.

Morðið þótti hið óhugn­an­leg­asta en sjón­ar­vottur sem kom fyrst á vett­vang glæps­ins lýsti aðkom­unni sem algjörum hryll­ingi.

Áfall og skömm

Á þessum tíma var Erla að byrja í fjórða bekk í Sjá­lands­skóla. „Ég man þegar ég kom í skól­ann í fyrsta skipti eftir þetta, það voru öll augu á mér og ég skamm­að­ist mín mjög mikið. Það var búið að ræða við krakk­ana um hvað hefði gerst og þau beðin um að tala ekki um þetta og fara var­lega í að tala um pabba sína.“

Á sama tíma var Bjarki, pabbi hennar að trappa sig niður eftir langvar­andi vímu­efna­neyslu í fanga­klefa á Litla Hrauni. „Þetta var auð­vitað líka mikið áfall fyrir hann að hafa get þetta. Þetta var ekki bein­línis slys, alls ekki, en hann varð samt að fá tíma til að átta sig á hvað hann hafi gert.“

Atburð­ur­inn tók mikið á Erlu þrátt fyrir fyrir að tengslin við föður hennar hefðu verið lítil frá tveggja ára aldri. „Ég hugs­aði bara að allir krakk­arnir ættu venju­lega for­eldra en ég væri barnið sem ætti pabba sem hafði drepið mann. Það var samt alltaf verið að minna mig á að ég þyrfti ekki að skamm­ast mín. Þetta væri ekki mér að kenna að pabbi minn hafi gert þetta. Ég komst samt held ég frekar fljótt yfir þetta, þegar maður er krakki pælir maður minna í hlut­unum en þetta var mjög erfitt fyrsta árið.“

Feðginin Erla Rós og Bjarki Freyr

Samskipti hófust á ný ári eftir atvikið

Bjarki var dæmdur í sextán ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­nes þann 30. nóv­em­ber 2009, hann áfrýj­aði ekki dómum. Fyrsta árið eftir atvikið að Dals­hrauni hitti Erla aldrei föður sinn. „Mig minnir að hann hafi stundum hringt og heyrt í mér en ég fór ekki í heim­sókn til hans á Litla Hraun fyrr en eftir ár.“

Heim­sókn­irnar urðu svo reglu­legar á tveggja mán­aða fresti að ráði prests sem lagði til að hún fengi að sjá hvernig aðstæður væru. Það var gert til að taka þá ímynd sem börn kunna að hafa af fang­elsum. „Það var gott að sjá að Litla Hraun væri ekki eins hræði­legur staður og ég hélt.“ Erla hefur gegnum þetta allt haldið góðu sam­bandi við föð­ur­fjöl­skyld­una sína. Fjöl­skyldan er sam­heldin og heil­steypt og sótti hún heim­sóknir til föður síns með föð­ur­ömmu sinni og afa. Heim­sókn­irnar fóru í fyrstu fram á Litla Hrauni og eftir nokkra mán­uði fengu þau að hafa heim­sókn­irnar í sér­stöku sam­veru­hús fyrir fanga. „Þar gátum við borðað saman, spilað og bondað aðeins meira.“

„Ég var Rósin hans, hann var með rós­artattú fyrir mig og sagði alltaf hvað honum þætti vænt um mig þegar við hitt­umst, mér þykir mjög vænt um þær minn­ingar í dag.“

Unglingsárin erfið

Eftir því sem Erla nálg­að­ist ung­lings­árin varð hún æ for­vitn­ari að vita hvað hefði nákvæm­lega gerst í íbúð föður hennar að Dals­hrauni og hvers vegna hann sæti inni á Litla Hrauni og átti eftir að gera í nokkur ár í við­bót. „Ég fór að fletta upp nafn­inu hans á net­inu og fann þar rétt­ar­dóms­skýrslu og Neyð­ar­línu þátt. Ég horfði á þátt­inn og fór að hágráta, ég hafði ekki hug­mynd um að þetta hefði verið svona ótrú­lega gróft.“

Á þessum tíma var Erla að byrja átt­unda bekk í Garða­skóla. „Ég var bara þrettán ára, að byrja að átta mig á hvernig lífið virk­aði. Ég varð ótrú­lega sár og reið út í hann að hafi gert þetta. Ég hafði ekki hug­mynd um að þetta hafði verið svona ótrú­lega gróft. Ég fór strax að minnka sam­skiptin við hann og fór svo smám saman að hætta að heim­sækja hann.“

Erla sagði engum frá því að hverju hún hefði kom­ist þegar hún fletti upp nafni pabba síns á net­inu og reiðin og skömmin magn­að­ist innra með henni. Þetta braust út í miklu óör­yggi sem hafði áhrif á skóla­göng­una. „Í átt­unda bekk fór sjálfs­myndin mín bara að brotna og óör­yggið fór á hæsta stig. Ég setti á mig risa skjöld og átti mjög erfitt þessi sein­ustu þrjú ár í grunn­skóla. Ég var bara algjört vesen og fór mikið út af braut­inni.“

Fjöl­skyldan árið 2002

Hún ein­angr­að­ist og hætti nán­ast alfarið að mæta í skól­ann í níunda bekk sem end­aði með því að móðir hennar og stjúp­faðir báðu um hjálp frá barna­vernd­ar­nefnd. „Ég var bara reið og leið­in­leg við aðra, aðal­lega á net­inu, það var auð­veld­ast. Mér leið ömur­lega en bar mig svaka­lega hátt, innst inni var ég bara brotin sál.“

„Ég reyni að skamm­ast mín sem minnst fyrir það hvernig ég var, ég veit að ég var að ganga í gegnum mikið, þetta voru erf­iðir tímar. Margir krakkar láta svona, þú ert að ganga í gegnum eitt­hvað og það brýst út í vondri hegðun. Þú ert bara að fela hver þú ert í raun og veru og ert vond við fólk sem á það ekki skilið.“

Erlu fór að líða betur þegar hún byrj­aði í fram­halds­skóla. Þar eign­að­ist hún nýja vini en hætti svo eftir þrjár annir. „Ég fann mig ekk­ert í skóla eftir allt sem hafði gengið á í Garða­skóla svo ég fór bara að vinna. Mér leið ekki vel.“

Flóknar tilfinningar

Í vor tók Erla ákvörðun að fara vinna úr áföll­unum og fór að huga að sjálfs­upp­bygg­ingu.

„Í maí á þessu ári fékk ég ógeð af líf­inu, ég bara varð að taka mig á. Ég sagði frá vanda­málum mínum, fór vinna í sjálfri mér og styrkja mig sem mann­eskju. Ég byrj­aði að opna mig fyrir fjöl­skyld­unni og ját­aði mig sigr­aða. Ég fékk ótrú­lega mik­inn stuðn­ing sem ég er svo þakk­lát fyrir. Það var erfitt þegar pabbi dó í síð­asta mán­uði. Ég var búin að vinna mikið í sjálfri mér og það var mik­ill skellur að fá frétt­irnar um að pabbi væri dáinn. Þetta voru flóknar til­finn­ingar, því það er svo margt sem vekur sorg og reiði. Ég varð mjög reið yfir því að hann hafi aldrei verið þessi pabbi sem alla dreymir um að eiga en svo fann ég líka fyrir sam­visku­biti yfir því að hafa ekki gefið honum meiri tíma,“ segir Erla.

Bjarki Freyr fannst lát­inn á heim­ili sínu 4. októ­ber síð­ast­lið­inn. Erla og hann höfðu átt í svolitlum sam­skiptum áður en hann dó. Hún segir stund­ina þegar mamma hennar kall­aði hana fram í stofu að tala við sig, stjúp­föður hennar og ömmu, sem voru komin í heim­sókn, hafa vakið upp gamlar minn­ingar frá því þegar henni var til­kynnt að faðir hennar væri á leið í fang­elsi.

„Þetta var mjög mikið sjokk. Ég vissi ekki almenni­lega hvernig mér átti að líða, ég varð bæði reið og sár og fannst ég ekki þekkja hann á sama hátt og áður.“

„Ég spurði hvort ég mætti giska hvað hefði skeð, „pabbi er dáinn““ og það reynd­ist rétt hjá henni. „Ég hitti hann lítið á þessum tíma en hafði verið dug­leg að hringja og ég tal­aði oft við hann með SMSum. Ég var farin að taka eftir því að sam­skiptin voru farin að vera svo­lítið skrýtin og fann ein­hverja vonda til­finn­ingu. Hann hafði ekki svarað SMSunum mínum í þrjá daga og mig grun­aði að eitt­hvað væri að – hann var örugg­lega bara dáinn. Amma og afi fundu hann svo dáinn heima hjá sér.“

„Ég hélt alltaf í von­ina um að hann myndi kom­ast á góðan stað, ég hafði trú á honum. Ég sá fyrir mér að ég væri styrkja mig og hann líka og við gætum svo mæst á betri stað í líf­inu.“

Þátturinn á Stöð 2

„Ég sat við mat­ar­borðið með mömmu og Ísland í dag var að klár­ast og þá birt­ist mynd af sen­unni sem ég þekkti úr Neyð­ar­línu­þætt­inum. Ég þekkti setn­ing­una úr sím­tals­klipp­unni „bux­urnar voru alblóð­ugar“ og horfði á mömmu og hún sagði bara við mig „já ég held að þetta sé um hann“ og ég varð svo reið. Ég skil ekki af hverju eng­inn lét okkur vita.“

Mál Bjarka var tekið fyrir í þætt­inum Ummerkjum á Stöð 2 þann 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Í þætt­inum er rann­sókn morð­mála krufin og atburða­rásin end­ur­leikin. Fjöl­skyldan var slegin að hafa ekki fengið ábend­ingu um umfjöll­un­ina.

„Ég hugs­aði svo bara strax til fjöl­skyldu manns­ins sem dó. Þetta var nógu erfitt fyrir okkur en ég get ekki ímyndað mér hvernig þetta var fyrir þau og ég vona inni­lega að þau hafi verið látin vita. Amma varð alveg miður sín og það var sér­stak­lega erfitt að sjá þetta svona stuttu eftir að sonur hennar deyr.“

„Pabbi var góður maður“

Bjarki Freyr átti enga sögu um ofbeld­is­brot áður en hann varð Braga Frið­þjófs­syni að bana. Hann hafði gerst sekur um ýmiss inn­brot en hann hafði meðal ann­ars stolið lyf­seð­ils­skyldum lyfjum.

„Þetta kom öllum mjög mikið á óvart. Hann átti ekki sögu um ein­hver ofbeld­is­brot og flestir sem þekktu pabba minn vita að hann var aldrei ofbeld­is­maður. Þetta var ekk­ert líkt honum. Hann var auð­vitað í neyslu svo maður veit ekki allt en hann var eng­inn ofbeld­isaf­brota­maður. Hann var undir áhrifum mik­illa lyfja þetta kvöld og það var mikil neysla og óreiða í lífi hans.“

„Ég sagði við hann í jarð­ar­för­inni, „ég fyr­ir­gef þér pabbi“ og ég vona að hann sé á betri stað núna. Honum leið ekki vel.“

Erla segir huggun í því þegar fólk segir henni góðar sögur af föður hennar. „Það er gott að heyra hvernig fólk leit hann sem mann­eskju. Ég held að fjöl­skyldan mín hefði líka aldrei leyft honum að umgang­ast mig ef hann væri ekki góður maður sem meinti vel. Honum þótti ótrú­lega vænt um mig. Ég var Rósin hans, hann var með rós­artattú fyrir mig og sagði alltaf hvað honum þætti vænt um mig þegar við hitt­umst, mér þykir mjög vænt um þær minn­ingar í dag.“

Fyrirgaf honum í jarðarförinni

„Ég hefði viljað gefa honum meiri tíma meðan hann lifði, hann til að sanna sig og ég til að treysta honum. Hann sat inni í ein­hver níu ár upp­fullur af skömm. Ég get ekki ímyndað mér hvað hann var sár út í sjálfan sig og það var örugg­lega erfitt að halda sér edrú og halda áfram þegar þú hefur gert eitt­hvað svona“.

Maður getur ekki verið reiður enda­laust. „Ég sagði við hann í jarð­ar­för­inni, „ég fyr­ir­gef þér pabbi“ og ég vona að hann sé á betri stað núna. Honum leið ekki vel.“

Erla veit að hún getur nýtt reynslu sína til góðs og tekst óhrædd við áföllin sem lífið hefur fært henni.

Fram­tíðin er björt og Erla er á góðum stað í dag. Hún er byrjuð í förð­un­ar­námi í Makeup studioi Hörpu Kára. Nám­skeiðið hefur að vísu setið á hak­anum út af COVID en Erla sér fram á að starfa við förðun í fram­tíð­inni.

Aðspurð hvort hún haldi að hún geti nýtt reynslu sína sér til fram­dráttar seg­ist hún vona það. „Mig langar að geta hjálpað öðrum sem hafa upp­lifað eitt­hvað svipað og ég. Ég veit hvernig það er að líða illa og vita ekk­ert hvert maður stefnir. Ég gæti alveg hugsað mér að vinna á ein­hvers­konar stofnun fyrir ung­linga eins og á Stuðlum. Ég ætla að byrja á að klára stúd­ent­inn eftir ára­mót og ég er búin að setja mér mark­mið um næstu skref.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu