„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jól, börn og áfengi eiga ekki samleið

Jóna Margrét Ólafs­dóttir er aðjúkt við félags­ráð­gjafa­deild Háskóla Íslands og kennir aðal­lega um áfengis- og vímu­efna­mál auk þess sem hún og Hjalti Björns­son, áfengis-og vímu­efna­ráð­gjafi, eru með Lifandi ráð­gjöf og eru með aðstöðu hjá Lækninga- og sál­fræði­stof­unni. Þar koma í með­ferð og ráð­gjöf til þeirra bæði ein­stak­lingar sem nota áfengi eða önnur vímu­efni sem og aðstand­endur þeirra.

„Ég byrj­aði að vinna með ein­stak­lingum með áfengis- og vímu­efna­röskun hjá SÁÁ fyrir rúmum 20 árum síðan og fór svo að vinna hjá Götu­smiðj­unni þar sem ég vann í nokkra mán­uði. Ég heill­að­ist af þessum mála­flokki. Ég þekkti þetta ekki sjálf; ég hafði hvorki alist upp við þessar aðstæður né búið við þær síðar þannig að þetta var nýr mála­flokkur sem vakti athygli mína og mér fannst þurfa að gera svo mikið fyrir ein­stak­linga í þess­ari stöðu.“

Jóna Margrét hóf síðar BA-nám í félags­ráð­gjöf. „Þegar leið á námið gerði ég mér grein fyrir að það er svo mikið verið að vinna með ein­stak­ling­inn sem á við vand­ann að stríða en fjöl­skyldan kom hvergi þar inn í en félags­ráð­gjafa­námið gengur út á að sjá heild­ina. Ég rann­sak­aði konur og áfeng­is­neyslu í BA-rit­gerð­inni en svo ákvað ég að snúa mér alfarið að öðrum fjöl­skyldu­með­limum og lagði áherslu á para­sam­bönd og vímu­efna­neyslu í meist­ara­verk­efn­inu mínu,“ segir Jóna Margrét sem útskrif­að­ist með meist­ara­próf í félags­ráð­gjöf árið 2007. Hún lauk auk þess meist­ara­námi í áfengis- og vímu­efna­ráð­gjöf árið 2017 frá NAADAC, sam­tökum áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafa í Banda­ríkj­unum.

Hún hóf svo dokt­ors­nám í félags­ráð­gjöf við Háskóla Íslands árið 2010 en var ráðin sem aðjúnkt við sömu deild árið 2013 og tók sér þá tveggja ára hlé frá námi. Árið 2015 hélt Jóna Margrét áfram dokt­ors­námi sínu við Háskól­ann í Lapp­landi í Finn­landi. Jafn­hliða dokt­ors­nám­inu hefur hún kennt við félags­ráð­gjaf­ar­deild Háskóla Íslands. Dokt­ors­rann­sóknin fjallar um áhrif áfengis- og vímu­efna­rösk­unar ein­stak­lings í fjöl­skyldum á aðra fjöl­skyldu­með­limi. Hún mældi með spurn­inga­listum upp­lifun á sam­skiptum innan fjöl­skyldu og fjöl­skyldu­á­nægju hjá fjöl­skyldu­með­limum ein­stak­linga með vímu­efna­röskun sem og hvort ein­stak­lingar upp­lifðu meiri streitu, kvíða og þung­lyndi en þeir sem búa ekki við vímu­efna­röskun aðstand­anda. Hún gat borið saman sam­skipta- og fjöl­skyldu­á­nægju við erlendar rann­sóknir og þung­lyndis-, kvíða- og streitu­spurn­inga­lista við rann­sókn sem gerð var á vegum Embættis lands­læknis sem kall­ast „Heilsa og líðan Íslend­inga“. Nið­ur­staðan var að hóp­ur­inn sem Jóna Margrét skoð­aði skor­aði mun lægra á öllum spurn­inga­list­unum en stóru úrtökin sem ekki skimuðu sér­stak­lega fyrir til­gangs­hópi hennar, það er fjöl­skyldu­með­limir ein­stak­linga með vímu­efna­röskun. Hún tók 16 við­töl – við fjóra for­eldra barna með vímu­efna­röskun, fjóra maka, fjögur systk­ini og fjögur upp­komin börn for­eldra með vímu­efna­röskun. 

Jóna Margrét skoð­aði fjöl­skyld­una sem heild eða eitt kerfi og und­ir­kerfin undir því og segir hún að það sé frekar ný nálgun sem hafi sér vit­andi ekki verið skoðuð mikið áður í Evrópu eða Banda­ríkj­unum í tengslum við vímu­efna­röskun og þá sér­stak­lega með til­liti til und­ir­kerf­is­ins systk­ina, það er ef bróðir eða systir er í neyslu. „Þar er rann­sókn­ar­gat sem rann­sóknin mín er að byrja að fylla.“

Ég ákvað í dokt­ors­rann­sókn minni að skoða fjöl­skyld­una í heild

Jóna Margrét varði síðan í októ­ber dokt­ors­rit­gerð síða í félags­ráð­gjöf. Heiti rit­gerð­ar­innar er Addiction within families – The impact of substance use dis­order on the family system (Fjöl­skyldur og fíkn: Áhrif vímu­efna­rösk­unar á fjöl­skyldu­kerfi). Dokt­ors­rit­gerðin er til sam­eig­in­legrar dokt­ors­gráðu við félags­ráð­gjaf­ar­deild Háskóla Íslands og félags­vís­inda­deild Háskól­ans í Lapp­landi.

Jóna Margrét segir að fyrir utan það að ein­stak­lingar upp­lifi meiri streitu, kvíða og þung­lyndi en fólk sem hefur ekki búið við vímu­efna­neyslu í fjöl­skyldu þá upp­lifi aðstand­endur þeirra sem eru í neyslu jafn­framt minni sam­skipti og fjöl­skyldu­á­nægju í eigin fjöl­skyldu en ella.

Streita, kvíði og þunglyndi

„Það sem ég hef rek­ist á í klínískri vinnu minni í gegnum árin er að aðstand­endum líður illa hvort sem það er maki, barn/börn, for­eldri/for­eldrar eða systk­ini þess sem er í neyslu. Ég ákvað í dokt­ors­rann­sókn minni að skoða fjöl­skyld­una í heild. Ég tók und­ir­kerfin sem eru para­sam­bandið, sam­band for­eldra og barna og systk­ina­sam­bandið og not­aði til þess tvær rannsa­ókna­að­ferðir, spurn­inga­lista og við­töl. Ég fékk að koma í fjöl­skyldu­nám­skeið hjá SÁÁ og leggja spurn­inga­lista fyrir um það bil 200 manns sem öll áttu það sam­eig­in­legt að eiga fjöl­skyldu­með­lim með vímu­efna­röskun. Ég varð að bera nið­ur­stöður mínar saman við aðrar rann­sóknir til þess að sjá hvort það að búa við vímu­efna­neyslu aðstand­anda á heim­ili hefði raun­veru­lega mæl­an­leg áhrif. Ég gat borið saman hvort ein­stak­lingar upp­lifðu meiri streitu, kvíða og þung­lyndi en þeir sem ekki búa við slíkt með því að bera saman við rann­sókn Embættis land­læknis „Heilsu og líðan Íslend­inga“. Nið­ur­staðan var að aðstand­endur ein­stak­linga með vímu­efna­röskun – hvort sem það voru for­eldrar, makar, upp­komin börn eða systk­ini – skor­uðu allir mjög hátt í streitu, kvíða og þung­lyndi miðað við sam­an­burð­ar­hóp­inn. Það má geta þess að þegar ég var að byrja að rann­saka þetta þá var horft á mig og sagt að það vissu nú allir að þetta hefði áhrif. Ég vissi það líka en maður verður að mæla það og þessar mæl­ingar voru ekki til hér á landi og þetta er í raun­inni fyrsta rann­sóknin sem nær til allrar fjöl­skyld­unnar í þessum mála­flokk hér á landi. Það er búið að rann­saka margt erlendis varð­andi þetta en það var alls staðar rann­sókn­ar­gat þegar kom að systk­inum; það var ekki hægt að finna rann­sóknir á systk­inum ein­stak­linga með vímu­efna­röskun, líðan þeirra og upp­lifun. Í heim­ilda­vinn­unni sem tengd­ist systk­inum varð ég því að líta til rann­sókna út frá öðrum geð­rösk­unum en vímu­efna­röskun þannig að það var svo­lítið gaman að geta lagt til þekk­ingu í fræða­sam­fé­lagið til þess að fylla upp í það rann­sókna­gat.“

Jóna Margrét segir að fyrir utan það að ein­stak­lingar upp­lifi meiri streitu, kvíða og þung­lyndi en fólk sem hefur ekki búið við vímu­efna­neyslu í fjöl­skyldu þá upp­lifi aðstand­endur þeirra sem eru í neyslu jafn­framt minni sam­skipti og fjöl­skyldu­á­nægju í eigin fjöl­skyldu en ella. „Til dæmis geta full­orðin börn og systk­ini ein­stak­ling­anna upp­lifað minni sam­skipti og fjöl­skyldu­á­nægju í eigin fjöl­skyldum sem þau eign­ast á full­orð­ins­árum vegna þess að þau fara með erf­iðar til­finn­ingar í fartesk­inu inn í sín full­orð­insár og hafa kannski alist upp við óvirk og óeðli­leg sam­skipti í grunn­fjöl­skyld­unni.“

Rannsókn Jónu Mar­grétar er í raun­inni fyrsta rann­sóknin sem nær til allrar fjöl­skyld­unnar í þessum mála­flokk hér á landi.

Jóna Margrét setti fram líkan eftir að hún var búin að vinna úr gögn­unum í dokt­ors­rann­sókn­inni sem lýsir and­rúms­lofti í fjöl­skyldum þar sem einn aðili eða fleiri eru með vímu­efna­röskun og er þar dregin upp mynd af breyttum sam­skiptum, til­finn­ingum, hlut­verkum og sam­loðun innan fjöl­skyld­unnar. „Þetta líkan þarf auð­vitað að prófa meira með frek­ari rann­sóknum en það gefur vís­bend­ingar um hvað ger­ist í fjöl­skyldum sem búa við þessar aðstæður og getur verið tæki í fjöl­skyldu­með­ferð fyrir fag­að­ila sem vinna með þennan hóp skjól­stæð­inga. 

Með því að breyta nálgun í með­ferð fyrir ein­stak­linga með vímu­efna­röskun og bjóða um leið með­ferð fyrir alla fjöl­skyld­una aukast líkur á að árangur vímu­efna­með­ferð­ar­innar verði betri fyrir þann sem er með vand­ann og hlut­verk und­ir­kerfa innan fjöl­skyld­unnar séu rétt af. Þetta sýnir nauð­syn þess að bjóða upp á sér­tæka fjöl­skyldu­með­ferð.“

Rofinn þríhyrningur

Jóna Margrét segir að til­finn­ingar á milli for­eldra og barns, og þá skipti ekki máli hvor eigi við vímu­efna­röskun að stríða, séu jákvæð­ari almennt heldur en þegar til dæmis um systk­ini eða maka er að ræða. „Systkini þess sem er í neyslu slíta frekar tengsl við við­kom­andi eða taka til­fin­ingar sínar úr sam­bandi ef þau geta og mikil reiði ein­kennir sam­skipti þeirra á milli. Systkinið sem ekki er í neyslu upp­lifir að búið sé að særa og meiða for­eldra sína og taka afstöðu með þeim og er jafn­vel komið í umönn­un­ar­hlut­verk gagn­vart for­eldrum sínum og eru þar með farin að axla ábyrgð sem ekki hæfir aldri þeirra né þroska. 

For­eldr­arnir ein­blína gjarnan á það barn sem er eða var í neyslu á meðan barnið sem er ekki í neyslu ein­blínir á erf­ið­leika for­eldr­anna og kennir systk­in­inu um sem er í neyslu. Svo eru kannski við­kom­andi ein­stak­lingar ennþá í sama til­finn­inga­mynstr­inu á full­orð­ins­árum. Systk­inin sem voru ekki í neyslu upp­lifa jafn­vel að þau hafi verið skilin út undan og öll reiðin bein­inst að systk­in­inu sem var í neyslu frekar en for­eldr­unum sem voru orðnir óvirkir í því að geta sinnt for­eldra­skyldum sínum.

Makinn getur þróað eins til­finn­ingar gagn­vart maka sínum sem er í neyslu og til­finn­ingar breyt­ast. Þannig að það er meira um nei­kvæðar til­finn­ingar að ræða hjá þessum tveimur hópum og þá á ég við skömm, reiði, fyr­ir­litn­ingu, vor­kunn­semi og skort á virð­ingu. Þessir ein­stak­lingar eru þó ennþá í fjöl­skyld­unni en eru að burð­ast með þessar erf­iðu til­finn­ingar og mak­inn getur meðal ann­ars upp­lifað sig eins og í umönn­un­ar­hlut­verki. Mann­eskjan sem við­kom­andi hafði kynnst er bara horfin og mak­inn situr nú uppi með sjúk­ling og sinnir honum af skyldu­rækni; ekki út af vænt­um­þykju og góðum til­finn­ingum.“

Eftir því sem vímu­efna­rösk­unin eykst hjá þeim sem er veikur í fjöl­skyld­unni því óeðli­legri verða sam­skiptin og þá vex með­virknin í fjöl­skyld­unni. 

„Það þurfa allir að hafa sam­skipti. Sam­skiptin eru rofin á milli systk­in­anna og makanna og ein­kenn­ast af nei­kvæðum og óhelgum til­finn­ingum en eru nokkuð heilli á milli for­eldra og barns en þar ein­kenn­ast til­finn­ingar meira af til­finn­ingum svo sem vænt­um­þykju, kær­leika, sorg og von alveg sama hvort er í neyslu. Svo þarf mak­inn sem er ekki í neyslu að hafa sam­skipti við barnið sitt sem ein­kenn­ast af helg­uðum og jákvæðum til­finn­ingum á meðan að það eru nei­kvæðar til­finn­ingar og sam­skipti gagn­vart maka og barnið er tengt báðum for­eldrum sínum. Þannig að þrí­hyrn­ing­ur­inn er rof­inn,“ segir Jóna Margrét og vísar í líkanið.

„Fagfólk getur í með­ferð­ar­vinnu sett þetta svona upp og notað þetta sem verk­færi. Og í svona fjöl­skyldu­með­ferð ætti það að hjálpa fag­að­ilum að raða hlut­verkum upp á nýtt. Þetta er kallað „óvirkar fjöl­skyldur og rofin tengsl“; það þarf að hjálpa fólki að rað­ast aftur í rétt hlut­verk og byrja að tala saman og skilja hvað er í gangi. Þannig að sam­skipti lag­ast og um leið til­finn­ingar og líðan.“

Aðstoð hjá fagaðilum

Jóna Margrét segir að það sé mjög erfitt að ná í fjöl­skyldur vímu­efna­sjúkra því þeim finn­ist oft vanda­málið vera eitt: Sá sem er með vímu­efna­röskun. „Það tekur tíma að kom­ast í gegnum þann vegg þangað til fólk fer að átta sig á því hverju þarf að breyta til að fjöl­skyldan geti vaxið, orðið eðli­leg og náð bata. Meðal ann­ars vegna þess að sá sem fer í með­ferð kemur heim fullur af hug­myndum og visku um út á hvað vímu­efna­röskun gengur og hvernig hann eigi að geta náð bata en svo er kannski ekk­ert breytt heima svo sem sam­skipti sem verður að vera til þess að styðja við ein­stak­ling­inn til að hann nái heilsu.

Þessi van­líðan ýtir undir að fólk nýtur sín ekki í dag­legu lífi; fjöl­skyldu­með­lim­irnir njóta sín ekki í leik og starfi. Þetta ógnar and­legri og lík­am­legri heilsu þeirra sem og félags­lega og þetta er falið í sam­fé­lagi okkar. Þetta er í öllum lögum sam­fé­lags­ins og spyr ekki um stétt eða stöðu. Það eina sem spyr um stétt eða stöðu eru þeir sem hafa tök á því að sækja sér aðstoð hjá fag­að­ilum eins og hjá mér úti í bæ en við­tölin hjá mér eru ekki til dæmis nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Það stóð til og var umræða um að greiða niður þjón­ustu fag­að­ila en því miður er ég nú að heyra að það sé verið að draga það til baka sem þýðir að þá er ekki verið að veita öllum þeim tæki­færi til að leita sér þá aðstoðar sem þess þyrftu. Það eiga auð­vitað ekki allir þennan pen­ing afgangs til að hlúa að þess­ari heilsu sinni. Þetta ætti hins vegar að vera aðgengi­legt öllum eins og hver önnur heil­brigð­is­þjón­usta.“

Sjálfstraust, sjálfsvirðing og sjálfsmynd

Jóna Margrét segir að þegar um neyslu for­eldris sé að ræða og þó það hafi náð tökum á neyslu sinni þá sé oft ekki unnið í sár­inu þegar kemur að barni eða börnum við­kom­andi. „Það kemur bara hrúður og þá fer fólk út í lífið með lærð sam­skipti og ein­hverja líðan og hegðun sem það heldur að eigi að vera en er alltaf ónógt sjálfu sér og jafn­vel reitt út í allt og alla; kenn­ar­inn er ómögu­legur, yfir­mað­ur­inn er ómögu­legur og mak­inn er ómögu­legur. Það er ekki ástæðan; þetta er bara topp­ur­inn á ísjak­anum. Undir niðri er fjallið sem þarf að lyfta upp og vinna með. Og um leið og það ger­ist þá breyt­ast sam­skiptin í fjöl­skyld­unni sem er verið að vinna með. Það hafa margir karlar og konur komið til mín vegna þess að makar þeirra hafa óskað eftir því að þau leiti sér aðstoðar vegna svona upp­lif­unar og reynslu úr barn­æsku.“

„Þetta líkan þarf auð­vitað að prófa meira með frek­ari rann­sóknum en það gefur vís­bend­ingar um hvað ger­ist í fjöl­skyldum sem búa við þessar aðstæður og getur verið tæki í fjöl­skyldu­með­ferð fyrir fag­að­ila sem vinna með þennan hóp skjól­stæð­inga.“

Neysla fjöl­skyldu­með­lims getur haft áhrif til fram­búðar á sjálfs­s­traust, sjálfs­virð­ingu og sjálfs­mynd aðstand­enda.

„Það er talað um að þeir sem eru með­virkir geti ekki sett mörk. Þetta eru „já-ein­stak­lingar“ sem láta vaða yfir sig. Það er stað­reynd að þetta er ákveðin hegðun sem þýðir að ein­stak­ling­ur­inn hefur litla sjálfs­virð­ingu, getur ekki sagt „nei“ og getur ekki staðið með sjálfum sér. Þannig að sjálfs­traustið er lítið og við­kom­andi treystir sér jafn­vel ekki til að taka eigin ákvarð­anir. 

Ein­stak­ling­arnir eru alltaf að refsa sér sem hefur áhrif á sjálfs­virð­ing­una. „Hvernig get ég búið við þetta?“ „Ég hefði ekki átt að…“  „Ég hefði átt að segja nei.“ „Ég ætl­aði að segja nei.“ „Ég gat ekki sagt nei.“ „Ég er alger aum­ingi.“ Þannig að þetta nið­ur­rif er alltaf inni í við­kom­andi þó hann segi það kannski ekki upp­hátt. Það sama ger­ist hjá barn­inu sem verður vitni að óeðli­legri hegðun, jafn­vel ofbeldi. Það er van­rækt vegna þess að annað for­eldrið er í neyslu og hitt for­eldrið er alger­lega óvirkt í hlut­verki sínu vegna þess að ein­stak­ling­ur­inn er upp­tek­inn af mak­anum. Barnið fer að bera ábyrgð eins og full­orð­inn ein­stak­lingur sem passar engan veg­inn við þroska þess og aldur. Og með það fer ein­stak­ling­ur­inn með hlut­ina inn í sitt full­orð­ins­líf og þarf jafn­vel að geta sér til um hvenær hann á að vera glaður. Ég hef lesið rann­sóknir þar sem fólk sem hafði alist upp við vímu­efna­röskun náði ekki að tengj­ast börnum sínum af því að eðli­leg tengsla­myndun getur rofnað yfir höfuð.“

Sýnt hefur verið fram á með rann­sóknum að vímu­efna­röskun getur verið erfða­fræði­legur áhættu­þáttur og að vímu­efna­röskun liggur meira í sumum fjöl­skyldum en öðrum. „Ef for­eldri er með vímu­efna­röskun er hætta á að barn þess þrói með sér vímu­efna­röskun þegar það byrjar að neita vímu­efna. 

Síðan er það félags­legi þátt­ur­inn en ef for­eldrið er í neyslu þá er eng­inn til þess að passa barnið. Heimilið er opið og það er áfengi eða önnur vímu­efni á borðum og mjög aðgengi­legt. Það er jafn­vel eng­inn að fylgj­ast með barn­inu  eða ung­lingnum til þess að koma í veg fyrir að það eða hann byrji að prófa til dæmis að drekka áfengi. Eða þá að þó að for­eldri banni barn­inu eða ung­lingnum að snerta áfengið þá er ekki staðið við það bann. Barnið lærir þannig að nota vímu­efni af for­eldr­inu hvort sem það er áfengi, lyf eða ólög­leg vímu­efni. Það notar til þess að láta sér líða betur; for­eldrið er kannski að fagna ein­hverju eða láta sér líða betur af því að við­kom­andi er svo þreyttur eða illt í höfð­inu þannig að barnið fer með þessi við­horf og gildi gagn­vart vímu­efnum út í lífið og byrjar jafn­vel snemma út af van­líðan sinni að nota áfengi eða önnur vímu­efni. Svona börn og ung­lingar eru ber­skjölduð. 

Það er ákveðin van­ræksla þegar barn horfir upp á neyslu for­eldris og þarf jafn­vel að hjálpa for­eldri sínu upp í rúm, sjá um að það nær­ist, sinna hrein­læti fyrir utan að þurfa að bera ábyrgð á skóla­göngu sinni og tóm­stundum. Það hefur ekki þann stuðn­ing sem flest börn hafa. Þetta er ákveð­inn baggi að bera og sorg­legt fyrir ein­stak­ling­inn að hafa ekki upp­lifað að vera barn. Og þegar þessi ein­stak­lingur fer sjálfur snemma í neyslu fer hann að upp­lifa full­orð­ins­heim­inn sem getur verið það skelfi­legur að hann verður fyrir alvar­legu áfalli. Ég fjall­aði ekki sér­stak­lega um þetta í rit­gerð­inni en þetta er bara mín klíníska reynsla og það þarf að ræða um þetta, skilja hvers vegna aðstæð­urnar hafa verið svona og hjálpa fólki til að ná bata. Reiðin minnkar þegar skiln­ing­ur­inn kemur á því sem gerð­ist og átti sér stað.“

Jólin

Jólin nálg­ast og þeir eru margir sem fá sér í glas yfir hátíð­irnar og segir Jóna Margrét að jól, börn og áfengi eigi ekki saman.

„Jólin hafa verið mér hug­leikin í gegnum árin en jól, börn og áfengi eiga ekki sam­leið. Ég get tekið sem dæmi að sumt fólk fær sér for­drykk á aðfanga­dags­kvöld, það fær sér svo rauð­vín með steik­inni og svo er kannski boðið upp á Irish Coffee á eftir. Barnið elst upp við þetta og fer út í lífið með þau við­horf og gildi að jólin teng­ist bein­línis áfeng­is­drykkju. Það sér for­eldra sína kannski verða hálf­slomp­aða yfir mat­ar­disk­unum og jóla­pakk­arnir eru kannski opn­aðir undir rifr­ildi for­eldr­anna af því að annar mak­inn er far­inn að ríf­ast við hinn og segja að hann eigi ekki að drekka svona mikið og svo fram­vegis. Hátíð­irnar eru tími barn­anna.“

Jóna Margrét segir að barnið geti upp­lifað kvíða tengt þessu og hlakki ekki til jól­anna ef það hefur upp­lifað ein svona jól. „Svo ger­ist þetta aftur um næstu jól og þá skapar þetta djúp­stæðan kvíða, streitu og van­líðan gagn­vart því sem á að vera hátíð barn­anna sem og ljóss og friðar. Börn sem hafa alist upp við þetta þekkja ekk­ert annað og fara kannski út í lífið með þau við­horf og gildi að jólin teng­ist áfengi eða öðrum vímu­efnum. Þegar við­kom­andi er orð­inn ung­lingur er hann kannski far­inn að fá sér í glas með for­eldr­unum til þess að líða betur og slá á kvíða sinn og van­líðan.“

Verkfæri fyrir fagaðila

Jóna Margrét segir að draumur sinn sé að geta þróað líkanið áfram og að það geti orðið verk­færi fyrir fag­að­ila og að við­tals­þjón­usta við fag­að­ila verði nið­ur­greidd og sjálf­sögð heil­brigð­is­þjón­usta fyrir aðstand­endur vímu­efna­sjúkra og fjöl­skyld­una í heild.

„Það eru svo margir sem hafa dottið út af vinnu­mark­aði vegna streitu­tengdra sjúk­dóma og eru í virkni­úr­ræðum svo sem starfsend­ur­hæf­ingu. Ég er líka að sinna ein­stak­lingum frá starfsend­ur­hæf­ingum og er einn og einn sem er vísað til mín með í fartesk­inu svona sögu eins og ég hef verið að tala um. Draumur minn er líka að það yrði farið dýpra í starfsend­ur­hæf­ing­unni en það að efla sjálfs­traustið; það fara allir í gegnum lífið og verða fyrir áföllum en það lenda ekki allir í að þróa með sér vímu­efna­röskun eða fara í starfsend­ur­hæf­ingu. Það þarf að skoða hlut­ina með opnum huga. Þessi reynsla um neyslu í fjöl­skyldu er eitt­hvað sem fólk gæti verið að burð­ast með og þarf að ávarpa og vinna með á réttum stað til dæmis hjá fag­að­ila. Það þarf að hafa þetta í huga út frá lýð­heilsu almennt. Það tekur tíma að þróa svona heild­stæða með­ferð­ar­nálgun en ætti að vera alveg mögu­legt því fag­að­il­arnir eru til staðar. Það er auð­vitað dýrt að fjár­magna þetta en til lengri tíma litið væri þetta gríð­ar­legur sparn­aður fyrir ríkið, vinnu­mark­að­inn og auð­vitað fólkið og fjöl­skyld­urnar sjálfar. Miðað við hversu tak­mörkuð þjón­usta er í boði fyrir aðstand­endur ein­stak­linga með vímu­efna­röskun, og þrátt fyrir að það standi í lögum um sjúk­linga að það eigi að bjóða upp á með­ferð og aðstoð fyrir fjöl­skyld­una í heild, þá er ekki verið að bjóða upp á það. Ástæðan er kannski vegna kostn­aðar en það er líka dýrt að kasta krón­unni en hirða aur­inn fyrir sam­fé­lagið. Þegar við­eig­andi þjón­usta er ekki í boði af hendi mennt­aðra fag­að­ila með starfs­leyfi er hætta á að ein­stak­lingar með litla fag­lega þekk­ingu og menntun í mála­flokknum bjóði ódýra aðstoð til fjöl­skyldna ein­stak­linga í vímu­efna­neyslu og það getur oft gert hlut­ina ennþá verri fyrir alla í fjöl­skyld­unni. Það þarf til dæmis að fræða kenn­ara og íþrótta­þjálf­ara en það eru þeir sem sjá fyrstu merki ef barn eða ung­lingur er í neyslu eða býr við vímu­efna­röskun og van­rækslu á heim­ili. Svo þurfa allir að vinna saman – for­eldrar og skólar. Það þarf líka að grípa inn í og hjálpa fólki í para­sam­bandi þegar virð­ingin er farin og sam­bandið er orðið skylda og íþyngj­andi en þá er lítið eftir annað en skiln­aður. Þeir eru auð­vitað algengir en koma samt ekki fram í rann­sókn­inni minni sér­stak­lega. Þannig að þegar upp er staðið þá þarf að hugsa aðeins stærra upp á lýð­heilsu að gera. Það á að vera hægt að grípa fyrr inn í og grípa fjöl­skyldu­með­limi þannig að þeir þrói ekki með sér van­líðan og aðra streitu­tengda sjúk­dóma og jafn­vel lendi síðar sjálfir í vanda með áfengi eða önnur vímu­efni.“

Texti: Svava Jóns­dóttir   Myndir: Aðal­heiður Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu