„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Streita, kvíði og þunglyndi algeng hjá aðstandendum vímuefnasjúklinga

Streita, kvíði og þunglyndi algeng hjá aðstandendum vímuefnasjúklinga

Aðstand­endur ein­stak­linga með vímu­efna­röskun – hvort sem það voru for­eldrar, makar, upp­komin börn eða systk­ini – skora allir mjög hátt í streitu, kvíða og þung­lyndi.

Þetta er nið­ur­staða Jónu Mar­grétar Ólafs­dóttur, aðjúkt við félags­ráð­gjafa­deild Háskóla Íslands, sem hefur und­an­farna tvo ára­tugi unnið með ein­stak­lingum með áfengis- og vímu­efna­röskun. Hún og Hjalti Björns­son, áfengis-og vímu­efna­ráð­gjafi, eru með Lifandi ráð­gjöf og eru með aðstöðu hjá Lækninga- og sál­fræði­stof­unni. Þar koma í með­ferð og ráð­gjöf til þeirra bæði ein­stak­lingar sem nota áfengi eða önnur vímu­efni sem og aðstand­endur þeirra.

„Það sem ég hef rek­ist á í klínískri vinnu minni í gegnum árin er að aðstand­endum líður illa hvort sem það er maki, barn/börn, for­eldri/for­eldrar eða systk­ini þess sem er í neyslu. Ég ákvað í dokt­ors­rann­sókn minni að skoða fjöl­skyld­una í heild. Ég tók und­ir­kerfin sem eru para­sam­bandið, sam­band for­eldra og barna og systk­ina­sam­bandið og not­aði til þess tvær rannsa­ókna­að­ferðir, spurn­inga­lista og við­töl. Ég fékk að koma í fjöl­skyldu­nám­skeið hjá SÁÁ og leggja spurn­inga­lista fyrir um það bil 200 manns sem öll áttu það sam­eig­in­legt að eiga fjöl­skyldu­með­lim með vímu­efna­röskun. Ég varð að bera nið­ur­stöður mínar saman við aðrar rann­sóknir til þess að sjá hvort það að búa við vímu­efna­neyslu aðstand­anda á heim­ili hefði raun­veru­lega mæl­an­leg áhrif. Ég gat borið saman hvort ein­stak­lingar upp­lifðu meiri streitu, kvíða og þung­lyndi en þeir sem ekki búa við slíkt með því að bera saman við rann­sókn Embættis land­læknis „Heilsu og líðan Íslend­inga“.

Það má geta þess að þegar ég var að byrja að rann­saka þetta þá var horft á mig og sagt að það vissu nú allir að þetta hefði áhrif. Ég vissi það líka en maður verður að mæla það og þessar mæl­ingar voru ekki til hér á landi og þetta er í raun­inni fyrsta rann­sóknin sem nær til allrar fjöl­skyld­unnar í þessum mála­flokk hér á landi. Það er búið að rann­saka margt erlendis varð­andi þetta en það var alls staðar rann­sókn­ar­gat þegar kom að systk­inum; það var ekki hægt að finna rann­sóknir á systk­inum ein­stak­linga með vímu­efna­röskun, líðan þeirra og upp­lifun. Í heim­ilda­vinn­unni sem tengd­ist systk­inum varð ég því að líta til rann­sókna út frá öðrum geð­rösk­unum en vímu­efna­röskun þannig að það var svo­lítið gaman að geta lagt til þekk­ingu í fræða­sam­fé­lagið til þess að fylla upp í það rann­sókna­gat.“

Jóna Margrét segir að fyrir utan það að ein­stak­lingar upp­lifi meiri streitu, kvíða og þung­lyndi en fólk sem hefur ekki búið við vímu­efna­neyslu í fjöl­skyldu þá upp­lifi aðstand­endur þeirra sem eru í neyslu jafn­framt minni sam­skipti og fjöl­skyldu­á­nægju í eigin fjöl­skyldu en ella. „Til dæmis geta full­orðin börn og systk­ini ein­stak­ling­anna upp­lifað minni sam­skipti og fjöl­skyldu­á­nægju í eigin fjöl­skyldum sem þau eign­ast á full­orð­ins­árum vegna þess að þau fara með erf­iðar til­finn­ingar í fartesk­inu inn í sín full­orð­insár og hafa kannski alist upp við óvirk og óeðli­leg sam­skipti í grunn­fjöl­skyld­unni.“

Texti: Svava Jóns­dóttir   Myndir: Aðal­heiður Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins