„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ræningjar æstir í köku Siggu Eyrúnar

Ræningjar æstir í köku Siggu Eyrúnar
Sigríður Eyrún Frið­riks­dóttir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Söng- og leik­konan Sigríður Eyrún Frið­riks­dóttir, eða Sigga Eyrún eins og hún er kölluð, nýtur þess að eiga góðar stundir með fjöl­skyld­unni á aðvent­unni og um jólin og ef tími gefst veit hún fátt skemmti­legra en að baka.

„Mér þykir mjög gaman að baka og hef tekið mig til og gert jóla-biscotti, pip­ar­kökur, jóla­konfekt og séð um eft­ir­rétt­ina á jól­unum á meðan mað­ur­inn minn eldar, hins vegar hef ég oft ekki tíma til að baka fyrir jólin. Tón­leika­hald kemur svona yfir­leitt í stað­inn fyrir bakstur og maður rétt nær að hafa næga orku til að þrífa og skreyta tréð,“ játar Sigga Eyrún, spurð hvort mikið sé bakað á heim­il­inu í aðdrag­anda jóla.

Og það er ekki ofsögum sagt að und­an­farnar vikur hafi Sigga Eyrún haft í nægu að snú­ast því hún tekur þátt í upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins á Kar­demommu­bænum og það vill svo skemmti­lega til að þar fer hún með hlut­verk bak­ar­ans – fyrst kvenna Íslandi. „Það er svo­lítið gaman að vera braut­ryðj­andi,“ segir hún. „Ég mætti líka vel und­ir­búin fyrir hlut­verkið. Ég vann nefni­lega hjá Sveini bak­ara þegar ég var 14-18 ára, bæði í afgreiðslu og í fram­leiðslu þannig að ég veit hvernig er að vakna snemma og baka brauð, þótt ég muni reyndar ekki til þess að hafa þurft að kljást við ræn­ingja, sem betur fer,“ segir hún og skellir upp úr.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Þú tókst for­skot á sæl­una og bak­aðir möndluköku með app­el­sínusósu fyrir Vikuna. „Já, hún er alveg geggjuð á bragðið,“ segir Sigga Eyrún spennt, „og svo hefur hún til­finn­inga­legt gildi fyrir mig því Lilja vin­kona mín bakar hana oft og ég elska Lilju mikið og hef mikla mat­ar­ást á henni. Þessi kaka er það góð að ég efast ekki um að Kasper, Jesper og Jónatan myndu brjót­ast inn til að gæða sér á henni,“ segir hún og hlær.

Sigga Eyrún er í lengra við­tali í köku­blaði Vikunnar, sem fæst á næsta sölu­stað eða í áskrift. Auk þess gefur hún okkur upp­skrift að ljúf­fengu möndlukök­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kökur

Kökublað Gestgjafans er komið út – gullfallegt og stútfullt af skuggalega góðum kökum
Mannlífið

Kökublað Gest­gjafans er komið út – gull­fal­legt og stút­fullt af skugga­lega góðum kökum

Nú geta allir sæl­kerar lands­ins tekið gleði sína því glæsi­legt köku­blað Gest­gjafans er komið út. Blaðið er stærra en gengur og ger­ist, heilar 164 síður, og kennir ýmissa grasa, þar sem lúf­fengar kökur, tertur og smákökur eru í aðal­hlut­verki. Fjöl­breyttar súkkulaði­köku­upp­skriftir, allt frá hinni klass­ísku skúffuköku upp í djöfla­tertu fyrir lengra komna er að finna í blað­inu. Smákökur eru órjúf­an­legur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu