„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Með harðri hendi

Með harðri hendi

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég var alltaf hrædd við móður mína, hún var nán­ast stöðugt í brjál­uðu skapi sem hún lét bitna á allri fjöl­skyld­unni. Ég var að verða fer­tug þegar ég loks komst að ástæð­unni fyrir því.

Stutt er á milli okkar systk­in­anna, Sigga systir er elst, ég í miðið og Gunni bróðir yngstur. Við munum eftir mömmu sífellt pirraðri og jafn­vel tak­andi æðisköst. Lengi vel, eftir að ég varð full­orðin, var ég viss um að eitt­hvað alvar­legt amaði að henni, þetta var svo yfir­gengi­legt. Við systk­inin urðum meist­arar í því að reyna að halda mömmu góðri en þráð­ur­inn var samt svo stuttur hjá henni að hún gat fuðrað upp við minnsta atvik.

Mamma hugs­aði vel um heim­ilið, við vorum alltaf hrein og fín systk­inin og út á við vorum við eflaust hin full­komna fjöl­skylda.

Við Sigga systir vorum fárán­lega ungar þegar við vorum látnar hjálpa til á heim­il­inu, ryk­suga, þrífa og slíkt. Bróðir okkar slapp nán­ast alveg en þannig var það bara á þessum tíma. Mér finnst sjálf­sagt að börn hjálpi til en þetta var óeðli­lega mikið. Jólin voru alltaf algjör martröð, eða des­em­ber­mán­uður i aðdrag­anda jól­anna, og þegar ég hugsa aftur, man ég bara eftir okkur Siggu á hnjánum með bursta og ræsti­duft að ham­ast á ósýni­legum blettum um húsið og strangt augna­ráð mömmu sem fylgdi okkur.

Þrifin urðu auð­veld­ari eftir því sem við elt­umst og gagn­rýni mömmu á vinnu­brögð okkar minnk­aði aðeins. Þótt við værum fljót­ari að þrífa sluppum við ekk­ert betur, mamma fann bara fleiri verk­efni; við að skrúbba bíl­skúrs­gólfið og annað slíkt. Desember skyldi vera martröð …

Kósí í kjallaranum

Við bjuggum í ein­býl­is­húsi og góður kjall­ari var undir því. Þar útbjó pabbi stórt en kósí her­bergi handa okkur, með gömlum sófa og stólum og auð­vitað hljóm­flutn­ings­græjum. Mamma var fegin að losna við okkur niður en við vorum enn fegn­ari … Svo fengum við leyfi til að flytja okkur alveg þangað niður, fyrst Sigga og ári seinna ég. Í fyrsta sinn fengum við að bjóða vinum og skóla­fé­lögum í heim­sókn en mamma hafði aldrei viljað sjá vini okkar á heim­il­inu. Hún kom þó reglu­lega niður til að fylgj­ast með okkur og athuga hvort væri ekki allt hreint og fínt.

„Við systk­inin urðum meist­arar í því að reyna að halda mömmu góðri en þráð­ur­inn var samt svo stuttur hjá henni að hún gat fuðrað upp við minnsta atvik.“

Eins og mörg ung­menni leyndum við for­eldra okkar því þegar við fórum að smakka vín og skjóta okkur í strákum. Við fundum góða felu­staði fyrir bæði vín og tóbak en við reyktum báðar á þessum tíma … út um kjall­ara­glugg­ann sem var einnig not­aður sem flótta­leið fyrir vini okkar ef  heyrð­ist í mömmu. Reykelsi voru mikið í tísku á þessum tíma, ilm­ur­inn af þeim kæfði alla tóbaks­lykt. Ef mamma hnus­aði og fann skrítna lykt sögðum við það reyk­elsi sem ilm­aði und­ar­lega.

Rekin að heiman

Sigga systir var ekki nema 17 ára þegar hún flutti að heiman en á þessum árum urðu krakkar sjálf­ráða 16 ára. Hún var í mennta­skóla og vann með skól­anum. Hún leigði fyrst her­bergi en seinna rúm­góða íbúð með vin­konu sinni.

Ég var orðin rúm­lega 16 ára þegar ég sofn­aði á vakt­inni og mamma kom niður. Hún tryllt­ist þegar hún sá að ég hafði leyft vini mínum að gista og auk þess var á sófa­borð­inu skál full af sígar­ettu­stubbum. Hún rak mig að heiman, eflaust til að hræða mig en ég fór og kom aldrei aftur heim til að búa þar. Ég flutti til Siggu og vin­konu hennar og leið ótrú­lega vel hjá þeim. Mamma reyndi að fá mig til að koma aftur, ég væri allt of ung til að standa á eigin fótum, en ég hafði kjark til að neita því. Átján ára kynnt­ist ég mann­inum mínum og við höfum verið saman síðan þá.

Við syst­urnar höfum alveg skipst í tvö horn á full­orð­ins­árum varð­andi þrifin, þessi sífelldu þrif sem ein­kenndu æsku okkar. Sigga heldur öllu hreinu og fínu hjá sér og á full­komið heim­ili á meðan ég hat­ast við hús­verk og leyfi ást­kærum eig­in­manni mínum að sjá um þau en hjálpa honum auð­vitað stundum. Ég sé um elda­mennsk­una og fjár­málin sem hann er dauð­feg­inn að sleppa við. Bæði hæstá­nægð.

Allt kemur í ljós

Ég var að verða fer­tug þegar pabbi lést. Það var mikið áfall. Pabbi gerði alltaf sitt besta til að verja okkur þegar mamma tók æðisköstin sín, sagði okkur að fara niður, hann skyldi ræða málin við mömmu. Hún varð stundum enn æst­ari við það en við systk­inin sluppum við skammir og jafn­vel bar­smíðar. Pabbi var vissu­lega ekki alltaf heima þegar mamma tryllt­ist en nógu oft samt. Hún var stundum enn leið­in­legri við pabba en okkur og eftir að hann dó komumst við að ástæð­unni. Pabbi hafði haldið fram hjá mömmu þegar Sigga var á fyrsta árinu og eign­að­ist barn með kon­unni, son sem var fæddur sama ár og ég. Mamma vissi af þessu frá upp­hafi og þetta eyði­lagði líf hennar. Við áttum sem sagt bróður sem pabbi hafði aldrei þorað að vera í sam­bandi við vegna mömmu.

Syni pabba var ekki boðið í útför­ina og ekki var orði minnst á fjórða barn pabba í ræðu prests­ins.

Fjarlægur bróðir og heilsuveil systir

Við Sigga urðum mjög spenntar þegar við fréttum að við ættum bróður en Gunni bróðir lét sér fátt um finn­ast. Hann hefur alltaf verið svo­lítið „fyrir sig“, eins og við systur orðum það, og vill sem minnst af öðrum vita. Hann og seinni konan hans kæra sig lítið um að vera í sam­bandi við okkur eða almennt annað fólk. Þau kjósa frekar að ferð­ast og njóta þess að vera bara tvö saman. Ég virði það alveg, fólk ræður lifi sínu sjálft en verst að þetta hefur bitnað á syni Gunna frá fyrra hjóna­bandi. Sá kærir sig svo sem koll­óttan, hann á auð­vitað góðar og hjálp­samar frænkur í okkur Siggu.

„Pabbi var vissu­lega ekki alltaf heima þegar mamma tryllt­ist en nógu oft samt. Hún var stundum enn leið­in­legri við pabba en okkur og eftir að hann dó komumst við að ástæð­unni.“

Sigga systir hefur alltaf verið frekar heilsu­veil og síð­ustu árin hefur hún ekki getað unnið. Ég er viss um að upp­eldið hjá erf­iðri móður hafi eitt­hvað með það að gera. Sigga hefur alltaf verið slæm á taugum og líka óstjórn­lega ábyrg. Hún er skap­góð, and­stæðan við mömmu, og vill allt fyrir alla gera, jafn­vel þótt hún hafi ekki orku í það. Líklega hef ég kom­ist best út úr æsk­unni af systkin­unum og er þakk­lát fyrir það.

Mamma er látin en síð­ustu árin hennar var hún út úr heim­inum og þekkti okkur ekki. Hún gat svo sem ekk­ert öskrað á okkur eða reynt að stjórna okkur eftir að við full­orðn­uð­umst en við gættum þess þó alla tíð að styggja hana ekki.

Nýi bróðirinn

Einn dag­inn, ekki löngu eftir lát pabba, hringdum við syst­urnar í hálf­bróður okkar sem tók okkur ekk­ert sér­stak­lega vel í fyrstu. Jú, hann vissi alltaf að hann ætti föður í Reykja­vík og þrjú hálf­systk­ini en ekki mikið meira en það. Hann mýkt­ist aðeins þegar ég útskýrði fyrir honum að við hefðum ekki vitað af til­veru hans fyrr en nýlega. Hann sam­þykkti að hitta okkur Siggu á kaffi­húsi.

Hann hafði alist upp á lands­byggð­inni, lengst fyrir norðan, og lítið verið í Reykja­vík þar til hann flutti í bæinn með fjöl­skyldu sinni fyrir ein­hverjum árum. Hann hafði búið í Svíþjóð á náms­ár­unum, ekk­ert skrítið þótt leiðir okkar hafi aldrei legið saman á pínu­litla Íslandi.

Hann virð­ist vera fínn maður og er alltaf indæll í þau fáu skipti sem ég hringi í hann eða hitti, en ég er ekki sér­lega von­góð um að sam­skiptin verði mikil eða náin. Allt of mörg ár liðu og nán­ast allan þann tíma fékk hálf­bróðir okkar að heyra að pabbi hans og systk­ini kærðu sig ekk­ert um að þekkja hann.

Ég vona þó að með tím­anum breyt­ist þetta. Ég hef sagt honum að það sé pláss fyrir hann og fjöl­skyldu hans hjá okkur, þó fyrr hefði verið. Hann veit nú að mamma gerði líf okkar ansi erfitt vegna þessa fram­hjá­halds pabba sem hún hélt leyndu fyrir okkur og öllum öðrum. Það hefur án efa orsakað þessa miklu van­líðan hennar sem bitn­aði svona illa á okkur.

Tíminn verður svo bara að leiða í ljós hvort sam­skiptin við hálf­bróð­ur­inn verða meiri en ég vona það af öllu hjarta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu