„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fylgdist með Suðurlandinu farast á jólanótt

Fylgdist með Suðurlandinu farast á jólanótt

Anna Krist­jáns­dóttir hefur oftar en ekki verið að vinna um jólin en heldur ann­ars hefð­bundin íslensk jól í faðmi fjöl­skyld­unnar. Hún býr nú á Tenerife og sér fram á að jólin í ár verði ansi ólík fyrri jólum. Eft­ir­minni­leg­ustu jól sem hún hefur átt voru í höfn í Ríga jólin 1986 þegar skip­verjar fylgd­ust með síð­ustu sam­skiptum Suð­ur­lands­ins við land áður en það fórst.

„Ég reyni yfir­leitt að halda upp á jólin á fremur hefð­bund­inn hátt, ef hægt er að tala um hefð­bund­inn hátt fyrir mann­eskju sem oftar en ekki hefur verið í vinnu um jólin, og þá með nákomnum ætt­ingjum ef mögu­legt er,“ segir Anna spurð hvernig hún haldi jólin. „Maturinn hefð­bund­inn, gjarnan með ham­borg­ar­hrygg á aðfanga­dags­kvöld og hangi­kjöt á jóla­dag.“

Spurð hvort jólin í ár verði að ein­hverju leyti öðru­vísi en hún er vön segir Anna að auð­vitað verði þau það.

„Þessi jólin verð ég að miklu leyti ein, hugs­an­lega þó með nágranna­konu minni og syni hennar,“ útskýrir hún. „Það er þó erfitt að skipu­leggja neitt ennþá þar sem lítið er um flug­ferðir frá Íslandi, en einnig að við eigum á hættu að sett verði á útgöngu­bann yfir jólin dragi ekki úr smiti hér á eyj­unni.“

Þótt Anna bússt við því að jólin í ár verði eft­ir­minni­leg vegna aðstæðn­anna eru þó ein jól sem eru henni eft­ir­minni­legri en nokkur önnur.

„Ætli þessi jól verði ekki bara með minn­is­stæð­ustu jólum, í skugga kór­ónu­veirunnar,“ segir hún.  „Mörg jól sem voru frá­brugðin gleði­legum jólum eru venju­lega minn­is­stæð­ust, þá gjarnan jól sem haldin voru á sjó fjarri fjöl­skyld­unni, en ég var ell­efu jól á sjó. Ég nefni jólin 1972 sem dæmi þar sem ég hafði farið jóla­túr á gömlum síðu­tog­ara og háset­arnir á kvöld­vakt­inni eyddu aðfanga­dags­kvöldi við troll­við­gerðir úti á dekki í leið­inda­veðri, en var sjálf á vakt niðri í vél.

Eft­ir­minni­leg­ust voru samt jólin 1986, sem ég tel með jólum á sjó þótt við hefðum verið í höfn í Riga í Lett­landi, enda fer eng­inn í land á aðfanga­dags­kvöld jóla í erlendri höfn. Við vorum að hringja heim í gegnum Nesradíó þegar slitið var á öll sam­töl. Íslenskt skip var að far­ast og við fylgd­umst með síð­ustu sam­skiptum skips við land. Það var engum svefn­samt þá nótt þótt við værum óhult í höfn. Þarna fórst Suð­ur­landið og sex skip­verjar fór­ust en fimm komust naum­lega af með fræki­legri björgun frá danska varð­skip­inu Vædderen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu