„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Opnar dyr inn í heim myrkraverka

Opnar dyr inn í heim myrkraverka
Mynd / Pexels

Margrét Björns­dóttir fjallar um íslenska glæpi og ýmis dul­ar­full mál í hlað­varp­inu Icelandic True Crimes.

Margrét Björns­dóttir.

„Þótt ég hafi hvorki aðgang að lok­uðum skjölum né öðrum heim­ildum sem íslensk upp­lýs­inga­lög kveða á um aðgangs­tak­mark­anir þá hef ég upp­götvað ýmis­legt áhuga­vert,“ segir Margrét leynd­ar­dóms­full þegar blaða­maður spyr hvort hún hafi kom­ist að ein­hverju nýju við gerð þátt­anna, Icelandic True Crimes.

Margrét segir að málin sem hún hefur fjallað um og mun fjalla um í þátt­unum, sem eru þegar orðnir nokkrir tals­ins, séu byggð á opin­berum heim­ildum, eins og frétta­greinum, skjala­söfnum, dóm­skjölum, sögu­legu efni og öðrum til­tækum gögnum, sem eru aðgengi­legar almenn­ingi. Þótt hún hafi kom­ist að ýmsu áhuga­verðu séu samt sumar upp­lýs­ingar betur geymdar.

„Það er mik­il­vægt að vanda til verka þegar verið er að fjalla um saka­mál, sér­stak­lega á litla Íslandi þar sem allir þekkja alla. Ég reyni því að fjalla um málin með virð­ingu fyrir þeim sem tengj­ast þeim og með skiln­ingi fyrir aðstæðum þeirra,“ segir hún. „Aðgát skal höfð í nær­veru sálar.“

Erfitt að gera upp á milli mála

Spurð hvernig hún velji efni þátt­anna seg­ist Margrét oft eiga erfitt með að gera upp á milli mála því það séu svo ótrú­lega mörg áhuga­verð saka­mál og dul­ar­full mál sem hafa komið upp á Íslandi.

„Mestu skiptir að til sé nóg af heim­ildum til að vinna úr fyrir fullan þátt þar sem ég fer ítar­lega í hvert mál og byggi á opin­berum heim­ildum, en sumu þarf ég að bók­staf­lega liggja yfir, rekja sporin og grafa mig niður í „kan­ínu­holu“ í heim­ildum, eins og í kirkju­bókum og á skjala- og bóka­söfnum,“ útskýrir hún og bætir við að síð­asta ár hafi farið í að safna upp­lýs­ingum um öll morð­mál á Íslandi, fíkni­efna­mál, rán, duls­mál, blóð­skammir og fleira í „einn risa­stóran gagna­grunn“.

„Það er mik­il­vægt að vanda til verka þegar verið er að fjalla um saka­mál, sér­stak­lega á litla Íslandi þar sem allir þekkja alla.“

„Ég hef líka safnað að mér upp­lýs­ingum um sögu­leg atriði, bygg­ingar og ein­stak­linga í gegnum Íslands­sög­una sem hafa spilað veiga­mik­inn þátt í mörgum mál­anna, líkt og Stóri­dómur gerði.“

Mögulega eina „tvítyngda“ hlaðvarpið í heiminum

Margrét tekur fram að það séu þegar til nokkur íslensk hlað­vörp sem fjalla um glæpi. „En þau taka nær ein­göngu erlend mál fyrir og þess vegna fékk ég þá hug­mynd fyrir ári síðan að taka ein­göngu fyrir íslensk saka­mál á bæði íslensku og ensku til að gera þau aðgengi­leg erlendum aðdá­endum sannra saka­mála. Hvert mál kemur því út í aðskildum þáttum á bæði íslensku og ensku. Ég er ekki frá því að ég sé með eina „tví­tyngda“ hlað­varpið í heim­inum í dag.“

Gæði umfram magn

Upp­haf­lega stóð til að Icelandic True Crimes yrðu viku­legir þættir en Margrét segir að þar sem hún sjái um alla vinn­una sjálf hafi reynst erfitt að halda því við. „Ég vil skila frá mér vönd­uðum þáttum með áreið­an­legum heim­ildum sem ég hef borið saman við aðrar heim­ildir frekar en að senda frá mér þætti byggða á ein­hverjum heim­ildum sem reyn­ast svo ekki réttar.“

Spurð hvar hægt sé að nálg­ast Icelandic True Crimes segir Margrét að þætt­irnir komi út á öllum hlað­varpsveitum eins og Apple Podcasts og Spotify, en einnig sé hægt að streyma þeim beint af vef­síðu hlað­varps­ins, www.icelandictruecrimes.com.

„Allt auka­efni þeirra mála sem ég tek fyrir, eins og ljós­myndir, hlekki og annað, set ég inn á vef­síð­una úr þeim heim­ildum sem ég vinn með. Svo er hlað­varpið á Instagram og Facebook, þar sem einnig er umræðu­hópur hlust­enda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu