„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Píratar brjálaðir yfir kynjahlutfalli hóps um kynfræðslu í skólum: „Hvernig getur þetta gerst?“

Píratar brjálaðir yfir kynjahlutfalli hóps um kynfræðslu í skólum: „Hvernig getur þetta gerst?“
Nemendur að störfum. Myndin teng­ist ekki bein­línis efni frétt­ar­innar.

Píratar eru síður en svo sáttir með Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra og skipan hennar í starfs­hóp sem efla á kyn­fræðslu í skólum. Þeir telja kynja­hlut­fallið í hópnum fárán­legt og gagn­rýna einnig að eng­inn full­trúi hinsegin sam­fé­lags­ins fái þar sæti.

Ástæðan fyrir því að Píratar eru ósáttir er sú að í hópnum sem Lilja skip­aði sitja ell­efu konur og tveir karlar. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu kom fram að þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir ráðu­neyt­is­ins hafi ekki tek­ist að jafna kynja­hall­ann betur.

Það er Ingi­mundur Stef­áns­son sem hefur umræð­una á Pírata­spjall­inu á Facebook og bendir þar á að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem mennta­mála­ráð­herrar láti bara konur móta kyn­fræði­kennsl­una. Það hafi Katrín Jak­obs­dóttir einnig gert á sínum tíma.

„Þetta er með ólík­indum – og kallar á Kast­ljós­þátt. Hvernig getur það gerst að mennat­mála­ráðu­neyti finnur ekki karla hjá ein­hverju þess­arra apparata, nú eða ann­arra, til að móta þessa stefnu um kyn­fræðlu??? Ein­hverra hluta vegna er þessu ráðu­neyti mis­lagðar hendur – Katrín Jakobs í hlut­verki mennta­mála­ráð­herra hýsti kennslu­gagn í kynja­fræðum, Kyn­unga­bók, sem ein­göngu var rit­stýrð og rituð af konum 6. Karl mynd­skreytti og próf­arkalas,“ segir Ingi­mundur.

Fjöl­margir Píratar gagn­rýna kynja­hlut­fall starfs­hóps­ins. Helgi Ing­ólfs­son bendir á ungan aldur karl­anna tveggja sem í hópnum eru. Hann ótt­ast fyr­ir­fram tals­verða slag­síðu í vinnu hóps­ins. „Karl­menn­irnir tveir í þessum hópi eru, held ég, báðir piltar á tán­ings­aldri. Sem þarf alls ekki að gera þá síður hæfa til starfs­ins, skal tekið fram. En tveir ung­lings­piltar and­spænis 11 gal­vöskum konum, sem sumar hverjar eru heil­mikil ljón með hvesstar klær og hreinar bombur í fræð­unum – æ, ég hef lent í ekk­ert mjög ósvip­uðum aðstæðum og vildi ekki vera í sporum bless­aðra drengj­anna – þótt ég efist ekki um að þeir standi sig vel,“ segir Helgi.

Birna Eik Bene­dikts­dóttir er alls ekki sátt. „Magnað að setja upp svona nefnd og hafa enga hisegin eða trans­mann­eskju með í henni,“ segir Birna.

Svona lítur starfs­hópur Lilju út:

Sólborg Guð­brands­dóttir, fyr­ir­les­ari og for­maður hóps­ins, án til­nefn­ingar,

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og rit­höf­undur án til­nefn­ingar,

Sóley Sesselja Bender, pró­fessor og for­stöðu­maður fræða­sviðs um kyn­heil­brigði í Háskóla Íslands, án til­nefn­ingar,

Unnur Þöll Bene­dikts­dóttir, án til­nefn­ingar,

Sigurþór Maggi Snorra­son, Samband íslenskra fram­halds­skóla­nema,

Ingólfur Atli Ingason, Samfés – lands­sam­tök félags­mið­stöðva og ung­menna­húsa á Íslandi,

Kolbrún Hrund Sig­ur­geirs­dóttir, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga,

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, Kenn­ara­sam­band Íslands

Sigrún Sóley Jök­uls­dóttir, Mennta­mála­stofnun,

Ása Sjöfn Lórens­dóttir, Þró­un­ar­mið­stöð heilsu­gæsl­unnar,

Ingi­björg Guð­munds­dóttir, Embætti land­læknis,

Þóra Björt Sveins­dóttir, Stígamót,

Indíana Rós Ægis­dóttir, Kynís – Kyn­fræði­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skólamál

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“
Innlent

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“

Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. Kennarar eru í áfalli eftir að Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­til­lögu sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram í kenn­ara­deil­unni. Einn þeirra, Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla, birti í gær mynd­skeið á Facebook þar sem hann seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. „Hvað gerir maður á...
Dómur hefur fallið – Verkfallsboðun kennara lögleg
Innlent

Dómur hefur fallið – Verk­falls­boðun kenn­ara lög­leg

Verk­falls­boðun kenn­ara er lög­leg, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Félags­dóms. Kenn­ara­sam­band Íslands var sýknað í morgun í Félags­dómi af kröfu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er taldi verk­falls­boðun kenn­ara ólög­lega. Vísir segir frá mál­inu. SÍS stefndi boðun verk­falls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfu­gerð lág fyrir í kjara­deil­unni en for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefn­una ekki hafa áhrif á boðuð verk­föll...
Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara: „Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta?“
Innlent

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara: „Gætu veik­indi vegna myglu skýrt þetta?“

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara og kemur með áhuga­verðan punkt varð­andi aukin veik­indi í stétt­inni. Grínist­inn og fram­bjóð­andi Við­reisnar í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum, Jón Gnarr, skrif­aði Facebook-færslu í gær en með færsl­unni birtir hann skjá­skot af frétt mbl.is sem fjall­aði um úttekt Við­skipta­ráðs á skóla­málum. Þar kemst Við­skipta­ráð meðal ann­ars að þeirri nið­ur­stöðu a veik­inda­hlut­fall kenn­ara vera almennt mun...
Dóra Björt var lögð í einelti af kennurum: „Við megum ekki skera niður okkar fegurstu blóm“
Innlentskólamál

Dóra Björt var lögð í ein­elti af kenn­urum: „Við megum ekki skera niður okkar feg­urstu blóm“

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir var lögð í ein­elti af kenn­urum á sínum yngri árum. Um þetta opn­aði hún í Facebook-færslu rétt í þessu. Pírata­fram­bjóð­and­inn Dóra Björt Guð­jóns­dóttir segir frá því í nýrri Facebook-færslu að hún hafi hlotið þann heiður að ávarpa ráð­stefnu ADHD-sam­tak­anna nýlega og segir frá því í leið­inni að hún sjálf sé með ADHD. „Ég hlaut þann heiður að...
Magnús Þór um úttekt Viðskiptaráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjónarhorn þau hafa valið sér“
Innlent

Magnús Þór um úttekt Við­skipta­ráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“

Magnús Þór Jónsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands ætlar að fara yfir úttekt Við­skipta­ráðs, í róleg­heit­unum og „sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“. Við­skipta­ráð segir meðal ann­ars í úttekt sinni að íslenska grunn­skóla­kerfið sé dýrt í alþjóð­leg­um sam­an­b­urði, kennslu­skylda lít­il og fjöldi nem­enda á hvern kenn­ara er einn sá lægsti þekk­ist. Þá er veik­inda­hlut­fall kenn­ara sagt vera almennt mun hærra en...
Svarar ekki hvernig verkfallsskólarnir átta voru valdir: „Ég dáist að hugmyndarflugi fólks“
Innlent

Svarar ekki hvernig verk­falls­skól­arnir átta voru valdir: „Ég dáist að hug­mynd­ar­flugi fólks“

Mjöll Matth­í­as­dóttir, for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara kann­ast ekki við að börn fólks í samn­inga­nefnd rík­is­ins séu nem­endur í þeim átta skólum sem kosið er nú um hvort loka þurfi vegna verk­falla kenn­ara. Mannlífi barst ábend­ing þar sem full­yrt var að þeir átta skólar sem valdir hafa verið fyrir verk­föll kenn­ara og kosn­ing stendur nú yfir um, séu skólar þar sem börn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins