„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nokkrar útgáfur af jólasveinunum – og ekki allar sérlega fallegar

Nokkrar útgáfur af jólasveinunum – og ekki allar sérlega fallegar
Mynd / Pexels

Þó að við á Íslandi séum vön bræðr­unum þrettán sem við köllum jóla­sveina þekkjum við samt öll káta, rauð­klædda jóla­svein­inn sem á hug og hjörtu barna um allan heim. Í kvik­myndum er að finna alls kyns útfærslur á sveinka, bæði góðar og slæmar, og hér eru nokkrar þeirra.

Krútt­legt fram­hald
Kurt Russell er í hátíð­ar­skapi því hann fer aftur með hlut­verk Jóla­sveins­ins í nýrri jóla­mynd frá streymi­veit­unni Netflix, The Christmas Chronicles 2. For­ver­inn var klisju­kennd en skemmti­leg og fyndin og fram­halds­myndin gefur henni ekk­ert eftir, alveg jafn ynd­is­lega kitch og hall­æris­leg, auk þess sem hin síunga og bráð­skemmti­lega Goldie Hawn fer með stórt hlut­verk. Full­komin skemmtun fyrir alla fjöl­skyld­una – sem jafn vel verstu Tröll ættu að hafa gaman af.

Vondi jóli
Mynd­irnar um Bad Santa segja frá svika­hrapp­inum Willie Stokes sem flakkar, ásamt félaga sínum, á milli versl­ana­mið­stöðva klæddur sem jóla­sveinn en í stað­inn fyrir að breiða út fagn­að­ar­er­indi jól­anna er mark­mið tvíeyk­is­ins að ræna hvern ein­asta stað sem þeir koma á. Í fyrri mynd­inni kynn­ist Willie átta ára gömlum krakka sem flækir svo sann­ar­lega hlut­ina fyrir honum. Í fram­halds­mynd­inni nálg­ast jólin á ný og Willie er við sama hey­garðs­hornið og áður, nú safnar hann pen­ingum fyrir bág­stadda en hirðir svo pen­ing­ana sjálfur. Willie vill samt enn meira, fégráð­ugur sem hann er, og því ákveður hann að ræna vel­stæð góð­gerð­ar­sam­tök í slag­togi við smá­vaxna félaga sinn, Marcus, og móður sína, Sunny.

Nýr jóla­sveinn
Í mynd­inni The Santa Clause, sem er fyrsta myndin í þrí­leik, er sagt frá Scott Calvin. Hann er bara venju­legur maður sem lendir í því óhappi að jóla­sveinn­inn dettur af þaki hans og slasast á aðfanga­dags­kvöld. Scott og sonur hans, Charlie, finna 8 hrein­dýr á þak­inu og þeir ákveða að klára að send­ast með pakk­ana fyrir sveinka. Að ferð­inni lok­inni fara þeir til Norð­ur­póls­ins þar sem Scott er tjáð að hann verði að ger­ast nýi jóla­sveinnin og hafi því 11 mán­uði til að ganga frá sínum málum og mæta aftur á pól­inn á þakk­ar­gjörð­ar­dag­inn.

Krafta­verka­jól
Í Miracle on 34th Street virð­ast öll börn New York-borgar sann­færð um að Kris Kringle, nýi jóla­sveinn­inn í Cole’s-stór­versl­un­inni, sé hinn raun­veru­legi jóla­sveinn. Vin­sældir Kris vekja bæði tor­tryggni og afbrýði­semi meðal ann­arra jóla­sveina og versl­un­ar­eig­enda. Þeir reyna að taka hann úr umferð með því að höfða dóms­mál gegn honum. Þá kemur lög­mað­ur­inn Bryan Bedford og reynir að sanna til­vist jóla­sveins­ins og vinna málið. Það reyn­ist auð­vitað ekki ein­falt mál en eins og allir vita þá ger­ast krafta­verk á jól­unum.

Yngri sonur jóla­sveins­ins
Í teikni­myndin Arthur Christmas fáum við loks svar við ráð­gát­unni um hvernig jóla­svein­inum tekst að afhenda allar gjaf­irnar á einni nóttu. Starf­semin á Norð­ur­pólnum ein­kenn­ist af útpældu skipu­lagi og mik­illi hátækni sem er vel falin fyrir okkur hinum. En undir niðri leyn­ist venju­leg fjöl­skylda sem fer á kostum í góð­lát­legum deilum og valda­bar­áttu. Yngri syni jóla­sveins­ins, Arthur, er enn mjög annt um anda jól­anna og þegar hann fær óvænt upp í hend­urnar óend­an­lega mik­il­vægt verk­efni leggur hann allt í söl­urnar til þess að klára það áður en jólin renna upp.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu